Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001 I>V Fréttir Átök í bæjarmálum í Árborg: Drögum ekki vagninn fyrir Samfylkinguna - segir VG - Samstarf á jafnréttisgrundvelli ekki inni í myndinni, segir Samfylkingin „Við nennum ekki að vera í pólitík upp á það að draga vagninn fyrir eitthvert Samfylkingarfram- boð. Mér fmnst afskaplega dapur- legt ef sundra á samstöðu fólks hér í sveitarfélaginu sem telur sig til vinstri í stjórnmálum, því ég hefði talið að sameiginlegt markmið okk- ar ætti að vera að koma Sjálfstæðis- flokknum hér frá völdurn," segir Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir og forystumaður VG í Árborg. Brestir virðast komnir í samstarf vinstra fólks og félagshyggjufólks i byggöar- laginu sem starfar saman i Árborg- arlistanum og fékk menn kjöma í bæjarstjórn í síðustu kosningum - Margrét Þorsteinn Frímannsdóttir. Ólafsson. en er í minnihluta. Nokkrir fundir hafa veriö haldnir um áframhald þessarar samvinnu og i sl. viku fékk VG-fólk tilboð frá Samfylkingar- armi listans um hvernig skyldi á hann raðað fyrir næstu kosningar. „Þau segjast vilja fá fjögur efstu sæti listans og að við getum síðan fengið fimmta sætið. Ég sé engan grundvöll til viðræðna eftir þetta,“ segir Þorsteinn. Hann telur því lík- legt að í bæjarstjórnarkosningum í vor muni VG bjóða fram sinn eigin lista í sveitarfélaginu. Sigurbjörg Grétarsdóttir, formað- ur Samfylkingarinnar í Árborg, seg- ir nú þegar vera ákveöið að Árborg- arlistinn bjóði ekki fram sem slíkur heldur ætli fólk aö halda sig við Samfylkingarnafnið á framboðinu. Sjálfsagt sé að flokkurinn noti sitt eigið nafn, ekki síst þar sem hann eigi miklu fylgi að fagna í sveitarfé- laginu. Samstarf við VG á jafnréttis- grundvelli svo sem um að þeir fái 2. og 4. sætið á framboðslistanum sé í því ljósi ekki inni í myndinni. Þorsteinn Ólafsson kveðst raunar gruna samfylkingarfólk um græsku í þessu máli. Ætlan þess sé að sýna fram á sterka stöðu flokks síns í Ár- borg, heimabyggð Margrétar Frí- mannsdóttur - sem eins konar mót- vægi við að góður hljómgrunnur og mikið fylgi virðist vera við sjálf- stætt framboð VG til bæjarstjórnar á Akureyri þar sem er helsta bak- land Steingríms J. Sigfússonar. -sbs Norskir sérfræðingar leggja til breytingar í Bláfjöllum: Fimm nýjar skíðalyftur - og meiri snjór á skíðasvæðin Norskir sérfræðingar, sem Blá- fjallanefnd réð til að gera úttekt á skíðasvæðunum í Bláfjöllum, Skála- felli og Hengilssvæðinu, hafa skilað tillögum að stórfelldum breytingum á svæðinu. Norömennirnir leggja m.a. til aö fimm nýjar lyftur verði opnaðar á svæðinu og að lyfturnar verið tengd- ar betur saman þannig að auðvelt verði að flytja sig til á skíðasvæðinu. Aðrar breytingar sem norsku sér- fræðingamir leggja til á svæðinu eru Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar í Smáralind þar sem jólasveinarnir og yfir 70 verslanir og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna. 16:00-18:00 ÍSumargarðínum bjóðajólasveinar börnunum með sér í stuttar hestvagnaferðir. Jóladagskráin í Vetrargarðinum í dag! 16:30 og 17:30 JÓlasagan lesin. 17:00 og 18:00 Jólasveinarskemmta. Ævintýraheimur barnanna í Jólalandinu i allan dag. Veröldin okkar er full af lífi og fjöri í dag og það sama á við um göngugötuna þar sem tónlist harmonikku- leikara skapar rétta jólaandann. I P Smáralind -R ÉTT I JÓLAANDINN Verslanir opnar f dag milli klukkan 11:00 og 20:00 - www.smaralind.ls Meiri snjór Norsku sérfræöingarnir segja aö hægt sé aö nýta snjóinn í Bláfjöllum enn betur ef settar veröa upp snjósöfnunargiröingar og skíöabrekkurnar endurmótaöar. varðandi öryggismál sem þeir segja að séu víða 1 ólagi. Þeir leggja einnig til að aökoma að svæðinu verði bætt, lýsing í brekkunum aukin og byggt verði upp öflugt gönguskíðasvæði í Bláfjöllum.Taliö er aö þessar breyt- ingar kosti um sjö milljónir króna. Tillögur Norðmannanna verða lagðar fram á fundi með sveitarfélögunum sem standa að rekstri skíðasvæðanna og svo er bara að sjá hvað gerist í framhaldi af því. Melri snjór Sumum finnst kannski þessar til- lögur um breytingar á skíðasvæðun- um skjóta skökku við þegar stað- reyndin er sú að lítið hefur verið hægt að nota skíðasvæðin vegna snjó- leysis. Norðmennirnir hafa þó einnig hugsað fyrir því því þeir leggja til aö settar verði upp snjósöfnunargirðing- ar til að nýta betur þann snjó sem til fellur. Einnig eru þeir með hugmynd- ir um að laga lögun skíðabrekknanna þannig að minni snjó þurfi til þess að hægt sé að hafa brekkurnar opnar. Norðmennirnir hafa einnig skoðað möguleika á að nota gervisnjó á svæð- inu en hann þykir ekki vera góður kostur þar sem hann er mjög dýr. -snæ Frá slysstaö. UV-MYNU HJtlUK Gatnamót Miklu- og Háaleitisbrautar: Harður árekstur Um klukkan hálfsjö á laugardags- kvöldið lentu sendibíll og fólksbíll i mjög höröum árekstri á gatnamót- um Miklubrautar og Háaleitisbraut- ar og voru gatnamótin lokuð í klukkustund vegna þessa. Báðir bíl- arnir eru mjög mikið skemmdir og þurfti tækjabíll slökkviliðsins að ná ökumanni fólksbílsins út. Tveir voru fluttir á slysadeild en þeir fengu að fara heim eftir að gert hafði veriö að sárum þeirra. Gatna- mótin voru lokuö í klukkustund. -snæ Heiti potturinn Umsjón: Gylfi Kristjánsson netfang: gylfik@dv.is Hiti í þinginu Menn eru heitir í þinginu þessa dag- ana og stuttur í þeim kveikjuþráður- inn sumum. Þannig tókst Kristjáni L. Möller samfylkingarmanni að ná Steingrími J. Sig- fússyni, formanni Vinstri grænna, á flug þar fyrir nokkrum dögum þeg- ar verið var að ræða um kaup RARIK á Rafveitu Sauðár- króks. Steingrím: þótti Kristján nálgast viðfangsefnið á ómálefnalegan hátt enda hafði Kristján blandað inn í umræðuna tOvitnun í samþykkt landsfundar Vg þar sem rætt var um fækkun ljósastaura í þéttbýli. Steingrimur byrsti sig við Kristján en Siglfirðingurinn lét sig ekki og minnti á þegar Siglfirðingar seldu veitustofn- anir sínar fyrir um áratug, og sagði að Steingrímur hefði þá setið í ríkisstjórn og staðið nákvæmlega að málum eins og rikisstjómin gerir nú og VG gagn- rýnir, að veita RARIK leyfi til lántöku vegna kaupanna. Ráðherrann í Kvosina Edwina Curry, fyrrverandi heil- brigðisráðherra Bretlands, sem nú er orðin útvarpskona og starfar hjá BBC, ætlar aö vera meö beina útsendingu úr miðbæ Reykjavíkur seint að kvöldi 22. og 23. desember. Eins og venjulega þeg- ar erlendir fiölmiðlamenn leggja leið sína í Kvosina er umfjöllunarefniö skemmtanalif höfuðborgarbúa sem út- lendingum þykir alltaf jafn skrautlegt, enda er miðbær höfuðborgarinnar oft á tíðum eins og vígvöllur um helgar þegar þúsundir manna eru þar að „skemmta sér“. Eitthvað mun útvarpskonan Curry líka ætla að fjalla um álfatrú íslendinga en hún þykir erlendis næstum því eins merkileg og skemmtanalífiö í Reykjavík sem er víst engu líkt. Er amma dauð? í Bók sinni Alíslensk fyndni sagöi Magnús Óskarsson skemmtilegar sög- ur af þekktum mönnum. Ein góð var af séra Baldri Vilhelmssyni sem margar skemmtileg- ar sögur eru reynd- ar til af. I sögu Magnúsar segir af þvi er Baldur var í Háskólanum og bjó á Garði. Þar var aðeins einn sími fyrir nem- endur og því oft biö- röð við símann. Eitt sinn hafði mynd- ast löng röð við símann þegar Baldur var að tala og vissu menn að hann var að ræða við pabba sinn. Af og til opn- uðu menn huröina að símaklefanum og heyrðu þá mas um einskis verða hluti. Þar kom að einhver opnaði hurð- ina og spurði Baldur hvort hann færi ekki að verða búinn í símanum og svaraði Baldur því játandi. Og þegar hurðin lokaðist heyrðist Baldur segja: „En án gamans, er amma dauð?“ Verður Dalla biskup? Ólafur Skúlason mátaði biskups- hempu sina að nýju á dögunum, en þá voru innan kirkjunnar langt komnar fyrirætlanir þær um að hann yrði um skemmri tima vígslubiskup í Hólastifti. Sem kunnugt er hefur Bolli Gústavsson sagt sig frá embætt- inu vegna veikinda, og þykir mörgum þar vera skarð fyrir skildi. Á endanum fóru leikar í bisk- upsmálinu reyndar svo aö Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, sem Bolli tók raunar við af á sínum tíma, var settur í embættiö og mun gegna þvi fram í ágúst á næsta ári. Þá verð- ur kjörinn nýr vígslubiskup í Hólastifti - en í millitíðinni á að vera búið að sameina Austfjarðaprófasts- dæmi því. Ýmsir kandídatar eru nefndir sem biskupsefni á Hólum en flestir nefna sr. Döllu Þórðardóttur i Miklabæ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.