Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 8
8
Fréttir
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001
DV
Lax og silungs veiðivörur
Sportvörugerðin
Skipholti 5, Reykjavík, s. 562-8383
I desember er Kolaportið opið
virka daga kl. 12-1‘S'
og helgar kl. 11-18
úrvo
X "> hei.nS—'""
Islensk tónlist
Klassísk tónlist
Popptónlist
Harmonikutónlist
afavara
lufestir
Itínvei
Jólakjólar
kr. 2500
Kínversk skip kr. 1000
• Kínversk nœrföt
Handmóluð kr. 1000
kínversk skart-
gripaskrín kr. 900
lconotn
framleiðsla
nsk hönnun
Nóttföt kr. 850
Vettlingar kr. 400
Vöggusett kr. 1750
jnnhattar
húfum og höttum
Veislujakkar
fró kr. 3500
ikjurum,
Kveikjarar frá kr. 500
Húfur og hattar
fra kr. 900
Jgf
; ■fíi
\
KOLAPORTIÐ - Opið alla daga
^ Enn seinkun á útsendingum Stöðvar 1:
I loftið í febrúar
„Markaöurinn
er einfaldlega
ekki móttækileg-
ur sem stendur
fyrir nýrri sjón-
varpsstöð. Þannig
að okkur fannst
heillavænlegast
að biða fram yflr
áramótin," segir
Hólmgeir Baldurs-
son, stofnandi
Stöðvar, aðspurður að því hvers
vegna stöðin væri ekki enn komin í
loftið eins og áætlað var. Hólmgeir
bendir á að þær sjónvarpsstöðvár
sem fyrir eru hafi ekki átt sjö dag-
ana sæla enda auglýsingamarkaður-
inn ekki beysinn og þess vegna hafi
Stöð 1 kosið að taka það rólega og
bíða betri tíma.
„Stöðin hefur einnig verið að
setja upp sitt eigið dreiflkerfi og það
hefur tæknilega séð verið meira en
að segja það,“ útskýrir Hólmgeir.
Tilraunaútsendingar eru nú þegar
hafnar á höfuðborgarsvæðinu og
munu þær að sögn Hólmgeirs nást á
öllu Faxaflóasvæðinu fyrir áramót.
Forsvarsmenn stöðvarinnar vonast
til að þeir þurfi þó ekki að biða leng-
ur en fram í febrúar til að geta haf-
ið alvöruútsendingar. Fyrir utan
kvikmyndir og breska og banda-
ríska þætti hefur stöðin einnig gert
samning við Saga Film um gerð á
sex íslenskum þáttum. Má þar
nefna þátt með Jónasi Jónassyni í
anda útvarpsþáttar hans Kvöldgest-
ir á Rás 2 og Mummi í Mótorsmiðj-
unni mun einnig verða með eigin
spjallþátt. -snæ
Hólmgeir
Baldursson.
Afsönnuðum að stofnunin lam-
aðist vegna mannabreytinga
- segir Theodór A. Bjarnason, forstjóri Byggðastofnunar á Sauðárkróki
ustu ára. Brottflutningur fólks frá
stöðum þar sem atvinnulífið hefur
víða verið að veikjast og verð fast-
eigna fallið stórlega í samanburði
við fasteignir í þenslunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta ástand hafi
valdið mismunun milli landsbyggð-
ar og höfuðborgarsvæðis. Veðhæfni
landsbyggðarinnar hafi fallið hjá
lánastofnunum, myndast hafi eyða
sem erfltt sé að fylla.
„Við þurfum á meira ijármagni
að halda og einnig þurfa lánastofn-
anir á landsbyggðinni að vinna vel
saman þannig að betri nýting fáist á
fjármagninu og einhver hagræð-
ing,“ sagði Theodór A. Bjamason.
-ÞÁ
„Uppi voru getgátur um að stofn-
unin myndi lamast við þær miklu
mannabreytingar sem urðu við
flutninginn 1. júní en aðeins einn
starfsmaður flutti með norður. Okk-
ur hefur tekist að afsanna það. Þetta
eru t.d. allt sérfræðingar sem komu
að lánamálunum hjá okkur, há-
skólamenntað fólk, fullorðið fólk
með víðtæka reynslu og ungt og vel
menntað. Þessi samsetning er mjög
álitleg og veitir festu og stöðug-
leika,“ segir Theodór A. Bjarnason,
forstjóri Byggöastofnunar.
Þessar vikurnar er unnið að því
að koma stofnuninni fyrir á þriðju
hæð Ártúns. Stefnt er að því að um
áramót verði öll stofnunin komin
undir eitt þak en Þróunasviðið er
enn til húsa i Stjórnsýsluhúsi
Skagaflarðar.
„Við erum að vinna að því að efla
faglegt yfirbragð stofnunarinnar.
Við höfum byggt upp faglegt vinnu-
ferli, með ákveðinni festu í úr-
vinnslu erinda sem stofnuninni ber-
ast. Þannig skipulagning á að verja
stofnunina gagnvart því að lenda i
vafasömum eða umdeilanlegum
málum. Við erum svo sem lítið
hrifnir af slysum úr fortíðinni og
finnst slæmt þegar verið er að
sverta forvera okkar vegna þeirra.
Við viljum frekar reyna að tryggja
framtíðina og efla stofnunina til
þeirra verka,“ sagði Theódór.
Talsvert hefur verið flallað um
lánveitingar Byggðastofnunar á
þessu ári, að þær séu ekki nægar.
Theodór segir að vissulega þurfi
Byggðastofnun á mun meira flár-
magni að halda en sú staða sem er
uppi eigi orsakir í byggðaþróun síð-
Fyrstu nemendurnlr útskrifast úr Hafnarskólanum
Páll Pétursson félagsmálaráöherra afhendlr nemanda í fyrsta útskrlftarhópi
Hafnarskólans prófskírteini. Hafnarskólinn annast starfsnám fyrir hafnar-
verkafólk og starfsfólk vöruhúsa. Skólinn var stofnaöur á síöasta ári að
frumkvæöi Samskipa, í samvinnu viö Menningar- og fræöslusamband alþýöu
og stéttarfélagiö Eflingu.
Try ggingay f irlæknir:
Starfsendurhæf-
ing mikilvæg
Menntunarstig öryrkja er yfir-
leitt lægra en annarra og þeir hafa
i meira mæli en aðrir unnið við
ófaglærð störf en gerist og gengur
meðal þjóðarinnar. Þar sem fara
saman lægra menntunarstig og
þrengri atvinnutækifæri hjá ör-
yrkjum en gerist meöal alþjóðar
má ætla að aukin starfsendurhæf-
ing og flölbreyttari námstækifæri
séu til þess fallin að bæta stöðu
þessa fólks; sem er að detta út af
vinnumarkaði vegna heilsubrests,
erflðra starfa eða ónógrar mennt-
unar. Þetta segir meðal annars í
grein eftir Sigurð Thorlacius trygg-
ingayfirlækni og fleiri i nýjasta
Læknablaðinu. Þar er fjallað um
stöðu þeirra íslendinga í dag sem
urðu öryrkjar árið 1997.
Greinin byggist á könnun sem
gerð var meðal 967 öryrkja. Svör
bárust frá nærfellt 70% þeirra. Um
það hvers vegna öryrkjar komi
einkum úr hópi þeirra sem minni
menntun hafa segir í greininni að
þær hömlur sem öryrkjar búa við
valdi hér oft miklu og takmarki
tækifæri og kjör - en í öðrum til-
vikum verða menn öryrkjar vegna
þess að þeir hafa unnið erfðari
störfln í þjóðfélaginu.
Þá segir loks í greininni að með-
altekjur íslendinga sem séu virkir
á vinnumarkaði virðist vera nær
tvöfallt hærri en öryrkja. Laun fyr-
ir þau störf sem helst megi búast
við að öryrkjum bjóðist séu hins
vegar mun lægri. Það að laun fyrir
þau störf sem öryrkjum helst bjóð-
ast séu lítið hærri en örorkubæt-
umar ýti ekki undir vilja til vinnu
ef heilsan bresti. „Því er mikilvægt
að i boði sé starfsendurhæfing sem
getur orðið til að auka líkurnar á
því að viðkomandi fái störf sem eru
hærra launuð og ekki erfiðari en
svo að hann ráði við þau.“ -sbs
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Verjast vafasömum málum
TheódórA. Bjarnason og hans fólk hjá Byggöastofnun á Sauöárkróki vinnur
aö því aö skapa vinnuferli sem á aö koma í veg fyrir vafasöm og umdeild
mál sem þekkt voru meöan stofnunin starfaöi fyrir sunnan.