Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Qupperneq 15
15
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001 _______________________________________________________________
DV ________Útlönd
Bandaríski tali-
baninn hjálpfús
Tvítugi Bandaríkjamaðurinn,
sem barðist í liði talibana í
Afganistan og var handtekinn í upp-
reisn fanga við Mazar-i-Sharif, hef-
ur veitt yfirvöldum gagnlegar upp-
lýsingar. Bandarískir embættis-
menn eru enn að kanna hvort hann
býr yfir leynilegum upplýsingum
sem gætu komið að gagni í hernaði
Bandaríkjanna í Afganistan.
Bandaríski talibaninn John
Walker er í haldi bandarískra .land-
gönguliða í bækistöð úti í eyðimörk-
inni suður af Kandahar.
Yfirvöld hafa ekki enn ákveðið
hvort Walker verður ákærður fyrir
að vera í liði talibana.
Kjarnorkusérfræðingar undir grun:
Tengsl við bin
Laden skoðuð
Bandarísk yflrvöld eru að rann-
saka nýjar leyniþjónustuskýrslur
um tengsl pakistanskra kjarnorku-
vopnasérfræðinga við talibana eða
al-Qaeda hryðjuverkasamtök
Osama bin Ladens, að því er banda-
ríska dagblaðið New York Times
hafði í gær eftir bandarískum og
pakistönskum embættismönnum.
Pakistanar handtóku og yfir-
heyrðu fyrir rúmum mánuði tvo
kjarnorkuvisindamenn sem höfðu
tengsl við talibana og al-Qaeda.
Hvorugur þeirra var þó talinn búa
yfir þekkingu til að aðstoða hryðju-
verkamenn við að smíða kjarnorku-
vopn eða útvega þau.
Bæði Bandaríkjamönnum og
Pakistönum hafa síðan þá borist
nýjar upplýsingar um hugsanleg
tengsl vísindamanna sem búa yfir
nauðsynlegri þekkingu.
Bandarísk yfirvöld segja upplýs-
ingarnar nógu trúverðugar tií að
þau hafi ástæðu til að vera áhyggju-
full út af öryggi kjarnorkuvopna-
áætlunar Pakistana.
Pakistanskir embættismenn segja
að George Tenet, forstjóri banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA, hafi
farið fram á það í heimsókn til
Pakistans fyrir rúmri viku að tveir
pakistanskir vísindamenn yrðu yf-
irheyrðir. Menn þessir hafa mikla
þekkingu á kjarnorkuvopnaáætlun
pakistanskra stjórnvalda. Það
fékkst ekki staðfest hjá CIA.
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af
því að liðsmenn al-Qaeda séu á hött-
unum eftir þó ekki væri nema frum-
stæðu geislavirku vopni og öryggis-
mál í Pakistan eru áhyggjuefni.
Bandarískir ráðherrar halda uppi gagnrýni á Palestínumenn:
ísraelar hafna boði harð-
línumanna um vopnahlé
borginni Haifa í ísrael.
Þetta var fimmta sjálfsmorðsárás-
in innan ísraels á tíu dögum og
Ariel Sharon forsætisráðherra sagði
að árásir á Palestínumenn kynnu að
verða auknar.
Dick Cheney, varaforseti
Bandaríkjanna, sagði í gær að Yass-
er Arafat, forseti Palestínumanna,
hefði tafið fyrir myndun sjálfstæðs
ríkis Palestínumanna með því
hvemig hann hefði brugðist við of-
beldisaðgerðum harðlínumanna
sem beinast gegn Ísraelsríki.
„Ég held að það sé ekki spurn-
ing,“ sagði Cheney í viðtali við
NBC-sjónvarpsstöðina vestra. „Stað-
reyndin er sú að þar til Arafat sýn-
ir að honum er alvara að hafa hem-
il á sjálfsmorðsárásum Palestinu-
manna gegn ísraelum mun ekkert
miða áleiðis."
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sendi Palestinu-
mönnum einnig tóninn í gær. Hann
fordæmdi sjálfsmorðsárásir Palest-
ínumanna sem særðu átta manns í
ísrael í gær og sagði sveitum harð-
línumanna að ofbeldisverk þeirra
myndu ekki ganga af Ísraelsríki
dauðu.
Powell ítrekaði fyrri gagnrýni
sína á Yasser Arafat og sagði að
hann gæti gert meira til að binda
enda á ofbeldisverkin.
Öryggissveitir Arafats segjast
hafa handtekið leiðtoga harðlínu-
manna, að kröfu ísraela og Banda-
ríkjamanna.
Hárgreiðsla í Kabúl
Afgönsk kona nýtur þess aö geta látiö dedúa viö háriö á sér á hárgreiðslu-
stofu í Kabúl. Frá því talibanastjórnin í Afganistan var hrakin frá völdum hafa
afganskar konur hægt og sígandi snúiö aftur til vinnu utan heimilisins og far-
iö aö lifa sjálfstæöara lífi en áöur. Margar hverjar hytja sig þó enn frá toppi til
táar þegar þær fara út á meöal fótks.
íslamskar harðlínusveitir sögðu i
yfirlýsingu, sem þær sendu frá sér í
gær, að þær myndu stöðva öll of-
beldisverk innan landamæra ísraels
í eina viku ef ísraelski herinn léti af
árásum sínum á Vesturbakkann og
Gaza.
Háttsettur ísraelskur embættis-
maður vísaðí boðinu hins vegar á
bug og sagði að ísraelar ættu ekki
annarra kosta völ en að verja hend-
ur sínar á meðan palestínsk yfir-
völd stöðvuðu ekki ofbeldisverkin
og handsömuðu þá sem bera ábyrgð
á þeim.
Ekkert lát var á ofbeldisverkum
fyrir botni Miðjarðarhafsins í gær.
ísraelskir hermenn skutu fjóra
palestínska lögregluþjóna til bana.
Nokkrum klukkustundum síðar
sprengdi Palestínumaður sjálfan sig
og særði átta manns á strætisvagna-
biðstöð, fullri af hermönnum, nærri
REUTERJHYND
Ofbeldi á hernumdu svæöunum
Patestínskur lögregluþjónn viröir fyrir
sér bíl fjögurra félaga sinna sem
ísraelskir hermenn drápu í gær.
Ævintvrí fyrír fullorðna Hláturinn lengir itfi^
.FrAsagnarhittvr bókmrintw tinkmnnlst mf frjóu
Imyndunmr* fíi og myndmáliO mf útfíúruðum
og skrmut/egum tiknhmtml I mndm bmrrokktímm
dm Im Bmrtm... ævintýrmlmg frisðgnln
htldur Imsmndm við afnlð. Unsyfir lýkur -/*
Sigriður Albertsdóttir DV
*Húmorinn, krmummr i hvmrrl síðu. “
- Fréttablaðið.
Bnn mln gmgnrýnmndmrósln I hnmppmgmt
Óddu Ismbmllu.
Salka
skemmtilegar bmkur
Dodge Durango SLT+ árg. 1999 til sölu, ekinn aðeins 17
þús. km, hvítur, leðurinnréttingar, allt rafdrifið, álfelgur,
aksturstölva. Einn með öllu.
Upplýsingar í síma 695 1787.