Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001
Fréttir I>V
J
Opiö virka daga
10-19.
SUÐURNESJUM
SÍMI 421 4888-421 5488
Toyota Land Cruiser GX 3,0 turbo
dfsil, nýskráður 06/98, ekinn 56
þús,, 5 gíra, 38" breyting, 7 manna.
Loftdæla, dráttarkrókur, silfurgrár,
einn eigandi.
Verð 3.380 þ., ath. skipti.
Toyota Land Cruiser GX intercool-
er turbo dísil, nýskráður 05/00,
ekinn 27 þús., 35“ breyting, sjálfskip-
tur, svartur, kastaragrind, krókur, fil-
mur, varahjólshlíf, spoiler o.fl.o.fl.
Verð 4.250 þús.
1 *•... ■ joM|| Bpg- ^ Toyota Landcruiser 100 VX dísel
turboToyota LandCruiser VX 3,0
turbo dísil, nýskráður 07/99, ekinn
56 þús., leður, 7 manna, sjálfskiptur,
gullsanseraður, krókur.
Verð 3.200 þús., ath. skipti.
HT
turbo, nýskráður 07/99, ekinn 50
þús., sjálfskiptur, leður, tölvustýrð
fjöðrun, 38" breyting, er á 35",
tölvukubbur, dr-beisli, aukamiðstöð,
vínrauður, o.fl. Verð 5.950 þús.
Nissan Patrol 2,8 turbo dfsil,
háþekja, árgerð 1993, ekinn 240
þús., 33" breyting, 5 gíra.
Verð 1.090 þús. Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser GX 3,0 turbo
disil, nýskráður 08/2000, ekinn 45
þús., sjálfskiptur, silfurgrár, dr-beisli.
Verð 3.490 þús. Ath. skipti.
Mitsubishi Pajero 2,8 intercooler
turbo dísil, árgerð '98, nýskráður
12/97, ekinn 100 þús., 33" breyting,
dökkgrænn, 5 gíra.
Verð 2.300 þús. Ath. skipti.
Nissan Terrano 3,0 SE V-6,
nýskráður 10/93, ekinn aðeins 90
þús., sjálfskiptur, 33" breyting,
toppeintak.
Verð 950 þús.
Nissan Terrano II Luxury,
nýskráður 03/98, ekinn 94 þús.,
blár, 5 gira, 31" dekk, krókur, blár,
leður, lúga.
Verð 1.930 þús. Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 80 4,5 bensín
, árg. 1995, ekinn 124 þús., 44 breyt-
tur, er á 38", tveir millikassar, 140 I
tankur, sjálfskiptur, leðurtopplúga,
glæsilegur bíll.
Verö 3.500 þús.
Toyota Land Cruiser 3,0 turbo dísil
intercooler, nýskráður 02/98, ekinn
110 þús., 38" breyting, aukatankur,
sjálfskiptur, 7 manna, kastaragrind, 4
kastarar, o.fl. o.fl.
Verð 3.480 þús., ath. skipti.
Nissan Terrano II sport, 2,4 bensín,
nýskráður 06/00, ekinn 44 þús., hví-
tur, 5 gíra, 5 dyra, 7 manna.
Verð 2.250 þús.
Toyota Land Cruiser VX 3,0 turbo
dísil, nýskráður 01/2000, ekinn 32
þús., 33", 16" breyting, grillgrind,
leður, sjálfskiptur, filmur.
Verð 3.890 þús. Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser GX turbo dísil
intercooler, árgerð '94, ekinn 240
þús., 38" breyting, lækkuð drif, læs-
tur framan og aftan, hvítur, sjálfskip-
tur glæsilegur bíll.
Verð 2.850 þús., ath. skipti.
'fV v-
SP-FJÁRMÖCNUN HF
www.sp.is
Hraðamyndavélar í Hvalfjarðargöngum:
Ökumenn
keyra hægar
Hraði í Hvalfjarðargöngunum
hefur lækkað töluvert eftir að
hraðamyndavélar voru settar upp í
göngunum í byrjun ágúst og hafa
vélarnar því sannað gildi sitt. Sam-
kvæmt frétt á Lögregluvefnum var
af alls rúmlega 14.200 ökutækjum
sem fóru um göngin á um tveggja
vikna tímabili í nóvember 301 öku-
maður kærður fyrir of hraðan akst-
ur. Það þýðir að um tveir af hverj-
um hundrað ökumönnum voru
kærðir fyrir hraðakstur en að 98 af
hverjum hundraði hafi keyrt á rétt-
um hraða. Þá hafa hraðamælingarn-
ar einnig orðið til þess að færri
keyra á miklum hraða í gegnum
göngin og er mjög lítið um akstur á
Hvalfjarðargöng.
meira en 100 km hraða en það var
nokkuð algengt fyrstu vikurnar eft-
ir að vélarnar voru settar upp.
Flestar kærur þessa dagana eru
vegna hraða frá rúmlega 80
km/klst. til rúmlega 90 km/klst.
Auk hraðamyndavéla i Hvalfjarð-
argöngum á lögreglan i Reykjavík
rauðljósamyndavélar og hraða-
myndavélar sem notaðar eru vítt og
breitt um borgina. Kærur í nóvem-
ber vegna þessara véla voru alls 108
og því var heildarfjöldi „myndavéla-
kæra“ alls 409 kærur í nóvember.
Dómur féll nýlega í máli sem höfðað
var vegna aksturs á móti rauðu ljósi
þar sem rauðljósamyndavél „upp-
götvaði“ brotið. Ökumaður neitaði
því að rautt ljós hefði verið komið
áður en hann ók yfir stöðvúnarlínu.
Dómurinn taldi hins vegar sannað
að maðurinn hefði brotið gegn þeim
ákvæðum umferðarlaga sem tilfærð
voru í ákærunni. -MA
Sykurneysla íslenskra barna gífurleg:
Fimmta hvert barn of feitt
Fimmta hvert bam er of þungt á
íslandi skv. nýlegum rannsóknum
og eru líkur á að þúsundir grunn-
skólabarna verði árlega fyrir einelti
í skólum, m.a. vegna offitu. Þetta
kom fram hjá Ástu Möller þing-
manni (D) sem spuröi heilbrigðis-
ráðherra um úrræði heilbrigðiskerf-
isins á Alþingi í liöinni viku.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra sagði að heilbrigöisstarfs-
menn skoðuðu frávik um þyngd
barna og veittu ráögjöf. Stundum
væri of feitum vísað til sérfræðinga,
s.s. barnalækna. Hins vegar væri
vandi feitra barna margþættur og
ekki nema að hluta tengdur heil-
Asta Möller. Jón
Kristjánsson
brigðiskerfmu. Gæta yrði að mörg-
um þáttum og yrðu fjölmargir aö
koma að lausn, s.s. leikskólar og
grunnskólar.
Sigriður Ingvarsdóttir (D) sagði
að hver íslendingur drykki að með-
altali 160 litra af sykruðum gos-
drykkjum og þar af væri hlutdeild
barnanna mikil. Hún taldi að matar-
æðið skipti hvað mestu í þessu
vandamáli. Mikilvægt væri að bjóða
upp á hollar skólamáltíðir en því
miður væri lítið um það í skólum
landsins.
Guðmundur Árni Stefánsson taldi
vart á færi ráðherra að fá þjóðina til
að skipta um mataræði heldur væri
ábyrgðin í höndum foreldranna.
Ummæli Guðmundar Árna sýna
að hann hefur ekki skilning á vand-
anum að mati Ástu og lýsti hún
vandlætingu vegna þeirra. -BÞ
Verð á geisladiskum:
Edda hækkar ekki verðið
Edda, miðlun og útgáfa, hefur
ákveðið að fara ekki að fordæmi
Skífunnar og hækka verö á geisla-
diskum, útgefnum nú fyrir jólin. í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
segir að þar sem verð á geisladisk-
um hafi verið hækkað í samræmi
við gengislækkun krónunnar fyrr
á þessu ári hafi ekki verið taldar
forsendur fyrir frekari hækkun-
um. Viðmiðunar-útsöluverð á
geisladiskum frá Eddu er því 2.399
kr. en brögð hafa verið aö því að
einstakir smásöluaðilar hafi
hækkað verð á geisladiskum Eddu
miðlunar til samræmis við verð-
hækkanir annarra útgefenda.
Vilja forsvarsmenn Eddu taka
fram að slíkar aðgerðir séu alfarið
á ábyrgð viðkomandi smásöluað-
ila. Edda, miðlun og útgáfa, hefur
sent frá sér hátt á þriðja tug nýrra
titla á þessu ári, m.a. með Megasi,
Eddu Heiðrúnu Backman, Rússí-
bönum, Ham, Úlpu og fleiri.
-ÓSB
Byssumaður
handtekinn
Lögreglan á Akureyri handtók
karlmann aðfaranótt sunnudags,
vopnaðan haglabyssu. Maðurinn
hafði gert sér leik að því að skjóta
út um glugga á íbúð í Glerárhverfi
sem hann var einsamall í en engin
slys urðu á fólki við þessa iðju
hans. Að sögn Lögreglunnar á Ak-
ureyri gekk vandræðalaust að
handtaka manninn sem mun hafa
verið undir áhrifum einhverra
vímuefna. -snæ
Erill í Reykjavík:
Kvartað vegna
jólalaga
Helgin hjá Lögreglunni i Reykja-
vík var nokkuð erilsöm. Einkennd-
ist hún af útköllum vegna jólaboða
sem haldin voru víðs vegar um bæ-
inn. Eitthvað var um minni háttar
pústra bæði i heimahúsum og í mið-
bænum en þeim mun fleiri kvartan-
ir bárust vegna hátt spilaðra jóla-
laga i jólapartíum. Mikið af fólki
var í miðbænum og ölvun töluverð.
-snæ