Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 28
> 40______
Tilvera
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001
I faðmi fjölskyldunnar
Gestur Ólafsson, skipulagsfræöingur og arkitekt, ásamt eiginkonu sinni, Guöbjörgu Garöarsdóttur,
og dóttur þeirra, Guörúnu Sóleyju.
DV-MYNDIR EINAR J
Gestur Ólafs-
son sextugur
Gestur Ólafsson, arkitekt,
skipulagsfræðingur og formaður
Skipulagsfræðingafélags íslands,
fagnaði sextugsafmæli sinu á
heimili sínu á laugardaginn. Eins
og vera ber heilsaði fjöldi góðra
gesta upp á afmælisbarnið í til-
efni dagsins, jafnt vinir, ættingjar
sem samstarfsmenn. Þau leiðu
mistök áttu sér stað í afmælis-
grein sem birtist um Gest í helg-
arblaði DV að röng mynd var birt
með greininni og er hér með
beðist velvirðingar á þvi.
Það fór vel á meö þeim Sissú Pálsdóttur, myndlistarmanni og arkitekt, og
Ragnheiöi Vaidimarsdóttur, bróðurdóttur afmælisbamsins, í veislunni.
*v
—T5^a—
Blaðberar óskast
í eftirtaldar götur:
Álfaborgir Hraunbraut
Dísaborgir Helgubraut
Vættaborgir Huldubraut
Ásbraut Marbakkabraut
Upplýsingar í síma 550 5777
G j örningaklúbburinn
kominn á kreik
Á laugardaginn var opnuð sýning
á vegum Gjörningaklúbbsins góð-
kunna í Gallerí@hlemmur.is. Að
venju var fullt út úr dyrum í
galleríinu enda alltaf mikil
tilhlökkun hjá listunnendum þegar
Gjömingaklúbburinn blæs til
sýningar. Stúlkurnar sem skipa
klúbbinn þykja nefnilega með
eindæmum frumlegar og
uppátækjasamar og aldrei að vita
hvað kann að gerast þegar þær eru
annars vegar.
þín
Eitt verkanna á sýningunni, spegillögð líkkista sem ber hiö
kaldhæðnislega heiti, Án þín, vakti mikla athygli gesta,
ekki síst hinna yngri.
DV-MYNDIR EINAR J
Margt til lista lagt
Viö opnunina á iaugardaginn sýndu myndlistarkonurnar í Gjörn-
ingaktúbbnum fram á ótvíræöa tónlistarhæfileika sína þegar þær
frumfluttu eigin lagsmíö fyrir síiófón, blokkflautu og þríhorn.
Japakkana
hvert á land sem er!
Þú kemur með pakkana á næstu afgreíðslu
Flytjanda (VM) hvar sem er á landinu og við
komum þeim til skila fyrir jól.
Síðustu ferðir frá landsbyggðinni 20. des.
Síðustu ferðir frá Reykjavík 21. des.
Flytjum matvæli í kæli- og frystibílum.
Ódýr og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar í síma 515 2200.
Tommy og Pam-
ela deila enn
Sílikonsprengjan Pamela Ander-
son og tattúbrjálæðingurinn
Tommy Lee eru ekki hætt að slást.
Nú eru það synirnir tveir, Brandon
og Dylan, sem eru bitbein þeirra.
Pamela hefur leitað til dómstóla
vestan hafs til að fá ein fullt forræði
yfir sonunum, að því er fram kemur
í bandaríska tímaritinu People. Til
þessa hafa þau Pamela og Tommy
deilt forræðinu.
En Pamela vill ekki bara fá óskipt
forræði heldur vill hún einnig að
ungengnisréttur Tommys verði tak-
markaður. Þar vísar hún til al-
ræmds skapgfsa fyrrum eigin-
mannsins.