Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Side 30
42
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
ISESSuOl
85 ára__________________________
Sólveig Hjálmarsdóttir,
Þúfubaröi 13, Hafnarfiröi.
80 ára__________________________
Kolbeinn Grímsson,
Freyjugötu 44, Reykjavík.
Málfríöur Einarsdóttir,
Hrafnistu, Reykjavík.
Þórhildur Skarphéðinsdóttir,
Kjalarsíöu 16c, Akureyri.
?5ára___________________________
Ruth Pálsdóttir,
Hlíöarhúsum 3, Reykjavík.
70 ára_________________________
Steinunn Gunnarsdóttir,
Heiöarholti 44b, Keflavik.
60 ára_________________________
Árni Reynisson,
Þrastanesi 9, Garöabæ.
Eyjólfur G. Svavarsson,
Skólavegi 82, Fáskrúðsfiröi.
Ingunn Stefánsdóttir,
Bólstaöarhlíö 42, Reykjavík.
Kristín Ásgrímsdóttir,
Aöalgötu 17, Ólafsfirði.
Kristján Þór Kristjánsson,
Engihjalla 25, Kópavogi.
Snorri Magnússon,
Glitvangi 29, Hafnarfirði.
50 ára_________________________
x Brynja Baldursdóttir,
Krókamýri 18, Garðabæ.
40 ára_________________________
Ásmundur Jónsson,
Hrísmóum 3, Garöabæ.
Benedikt G. Ásgrimsson,
Brúarási 4, Reykjavík.
Fanney Benedikta Ellertsdóttir,
Arnarsmára 26, Kópavogi.
Guörún Sigurjónsdóttir,
Rfulind 2, Kópavogi.
Helgi Jónsson,
Hafnargötu 117, Bolungarvík.
t Jakobína Elín Áskelsdóttir,
Þverholti 12, Akureyri.
Kerstin E. Andersson,
Álfheimum 8, Reykjavík.
Malgorzata Tarnowska,
Aðalstræti 44, Þingeyri.
Siguröur Ingvarsson,
Völvufelli 44, Reykjavík.
Steinunn H. Halldórsdóttir,
Breiöabólsstað, Dalasýslu.
Sveinn Pálsson,
Austurvegi 6, Vík.
Þorgeir Kristófersson,
Holtsbúö 52, Garöabæ.
Þórunn Guömundsdóttir,
Kleifarseli 19, Reykjavík.
Aðventu-leíðiskrossar
12V-34V
Sent í póstkröfu, sími 898 3206
Persónuleg,
alhli&a útfararþjónusta.
Sverrir Einarsson Bryndís
úttararstjóri Valbjamardóttir
útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suöurhliö35> Sfmi 581 3300
allan sblarhrlnglnn. www.Utforin.iS
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001
I>V
Fólk í fréttum
Halldór Jónsson
forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
Halldór Jónsson, forstjóri Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri, hef-
ur verið í fréttum vegna yfirvofandi
niðurskurðar á Fjórðungssjúkra-
húsinu.
Starfsferill
Halldór fæddist á Akureyri 22.11.
1950 og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA 1970 og við-
skiptafræðiprófi frá HÍ 1977.
Halldór starfaði við bókhald og
tölvuvinnslu í Ríkisbókhaldi
1971- 75, var blakkennari við HÍ
1972- 80, var, ásamt fleirum, eigandi
GT-búðarinnar hf. í Reykjavik frá
1976 og í hlutastarfi þar 1976-79, var
framkvæmdastjóri Málmvara hf. i
Reykjavík 1977-79, sölustjóri GT-
búðarinnar 1979-80, þjálfaði félags-
lið i Reykjavík í blaki 1972-80, þjálf-
ari karlalandsliðsins í þlaki 1975-76
og 1978-80 og þjálfari kvennalands-
liðsins í blaki 1978-80.
Halldór flutti til Akureyrar 1980.
Hann þjálfaði félagslið á Akureyri
og í Eyjafírði í blaki 1980-87, var
framkvæmdastjóri Norðlenskrar
tryggingar hf. og síðar NT-umboðs-
ins á Akureyri 1980-84, eigandi,
ásamt fleirum, að Sindrafelli hf. frá
1982 og í hlutastarfi þar við ráðgjöf
og umsjón með bókhaldi til 1984.
Halldór var skrifstofustjóri Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
1984- 85 og framkvæmdastjóri þess
1985- 90 og 1994—99. Hann var bæjar-
stjóri á Akureyri 1990-94 og er for-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri frá 1999.
Halldór var formaður Ungtempl-
arafélagsins Fannar á Akureyri
1967-70, formaður blakdeildar
íþróttafélags MA 1968-69, í stjórn
Blaksambands íslands 1971-80, for-
maður blakdeildar íþróttafélags
stúdenta 1972-78 og formaður
1976-80, í stjórn Norðurlandasam-
bands stúdenta um íþróttir 1976-80,
í sóknamefnd Lögmannshlíðarsókn-
ar 1982-95, í stjórn Félags forstöðu-
manna sjúkrahúsa 1987-90 og frá
1994, formaður Landssambands ís-
lenkra vélsleðamanna 1996-99, fé-
lagi í Rotaryklúbbi Akureyrar frá
1989 og forseti klúbbsins 1995-96, fé-
lagi í Oddfellowreglunni frá 1982,
vararæðismaöur Breta á Islandi frá
1996, í stjóm Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. frá 1988 og formaður
stjórnar félagsins 1993-95, í stjórn
Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf.
1991-99, formaður stjómar 1994-95
og 1997-99, í stjórn Sjávarútvegs-
sjóðs íslands hf. 1996-99 og formað-
ur stjómar 1997-99, sat í fjölmörg-
um ráðum og nefhdum fyrir Akur-
eyrarbæ 1990-94 og hefur setið i
vinnuhópum og nefndum fyrir heil-
brigðisráðuneytið og fjármálaráðu-
neytið.
Halldór setti nokkur Akureyrar-
og íslandsmet í frjálsum iþróttum
1966-68, er margfaldur íslands- og
bikarmeistari í blaki, lék tuttugu og
sjö landsleiki í blaki, var þátttak-
andi í akstursíþróttum 1975-80 og
sigraði, ásamt Úlfari Haukssyni, í
fyrstu rallkeppni á íslandi 1975.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 7.8. 1971 Þor-
gerði Jóhönnu Guðlaugsdóttur, f.
10.9. 1951, aðstoðarskólastjóra. Hún
er dóttir Guðlaugs Stefáns Jakobs-
sonar, fyrrv. verkstjóra á Akureyri,
og Steingerðar Hólmgeirsdóttur
húsmóðir.
Börn Halldórs og Þorgerðar Jó-
hönnu eru Jón Torfi, f. 28.1. 1972,
læknir á Akureyri, kvæntur Láru
Halldóru Eiríksdóttur, f. 23.4. 1973,
kennara, og er sonur þeirra Halldór
Yngvi, f. 25.4. 1999; Guðlaugur Már,
f. 17.4. 1973, sölumaður á Akureyri,
kvæntur Elvu Sigurðardóttur, f. 9.3.
1972, nema í hjúkrun, og er dóttir
þeirra Arna Rún, f. 7.4.1995.
Foreldrar Halldórs: Jón Snæland
Halldórsson, f. 13.2. 1927, fyrrv. bif-
reiðarstjóri og trillukarl, og Torf-
hildur Steingrímsdóttir, f. 5.6. 1931,
húsmóðir.
Ætt
Jón Snæland er sonur Halldórs,
b. í Ásbyrgi í Glerárþorpi, Jónsson-
ar, b. í Krossanesi, Halldórssonar.
Móðir Halldórs í Ásbyrgi var Júlí-
ana Kristjánsdóttir.
Móðir Jóns Snælands var Hrefna
Pétursdóttir, b. á Halldórsstöðum í
Eyjafirði, Tómassonar, b. í Borgar-
gerði í Skagafirði, Jónassonar, hús-
manns Tómassonar, b. á Skriðu í
Saurbæjarhreppi, bróður Sigurðar,
langafa Guðrúnar, móður Ottós A.
Michelsens. Tómas var sonur
Jónasar, b. í Ytra-Dalsgerði, Jóns-
sonar, b. í Syðra-Dalsgerði, Einars-
sonar. Móðir Jónasar í Ytra-Dals-
gerði var Helga, systir Jónasar í
Hvassafelli, afa Jónasar Hallgríms-
sonar og langafa Friðbjöms, afa
Ólafs Jóhannessonar forsætisráð-
herra. Helga var einnig systir Jós-
efs, langafa Finns Jónssonar ráð-
herra, afa Hallgríms Snorrasonar
hagstofustjóra. Þá var Jósef langafi
Kristjáns, afa Jónasar frá Hriflu, og
langafi Jóhanns Sigurjónssonar
skálds. Helga var dóttir Tómasar,
ættfóður Hvassafellsættar, Tómas-
sonar. Móöir Hrefnu í Ásbyrgi var
Stefanta, dóttir Sigtryggs, b, á Úlfá,
Sigurðssonar og Friöriku Friðriks-
dóttur frá Baldursheimi.
Torfhildur er dóttir Steingríms
forsætisráðherra Steinþórssonar, þ.
i Álftagerði viö Mývatn. Bjömsson-
ar, b. á Bjarnarstöðum. Björnsson-
ar. Móðir Steingríms var Sigrún,
hálfsystir Kristjáns ráðherra, Pét-
urs ráðherra og Steingríms alþm.,
föður Jóns sýslumanns. Þá var Sig-
rún hálfsystir Rebekku, móður Har-
alds Guðmundssonar ráðherra og
ömmu Jóns Sigurðssonar, fyrrv.
viðskiptaráðherra. Sigrún var dótt-
ir Jóns, alþingisforseta á Gautlönd-
um, Sigurðssonar.
Móðir Torfhildar var Ósk Jór-
unn, dóttir Áma, b. á Skeiði, Jóns-
sonar og Guðrúnar Sigríðar Björns-
dóttur, b. á Grund í Ólafsfirði,
Bjömssonar. Móðir Guðrúnar Sig-
ríðar var Jórunn Magnúsdóttir.
Gunnar Jónsson
mjólkurfræöingur og fyrrv. yfirverkstjóri MBF
Gunnar Jónsson mjólkurfræðing-
ur, Grenigrund, Selfossi, er áttatíu
og fimm ára í dag.
Starfsferill
Gunnar fæddist t Reykjavík en
ólst upp hjá kjörforeldrum sínum á
Eyrarbakka til 1931 er hann flutti
með þeim til Selfoss.
Kjörforeldrar hans voru hjónin
Jón Helgi Ingvarsson, f. 24.6.1891, d.
31.12. 1971, vegaverkstjóri, og Helga
Jónsdóttir, f. 20.9. 1883, d. 30.9. 1968,
húsmóðir.
Jón Helgi og Helga ættleiddu
einnig Sveinborgu, systur Gunnars.
Gunnar hóf nám í mjólkurfræði í
Mjólkurbúi Flóamanna haustið
1932. Hann fór til Danmerkur 1934
og stundaði þar framhaldsnám á
Statens Forsögsmejeri í Hilleröd og
síðan á Drekiide Andelsmejeri í
Öreby en lauk námi frá Laldelund
Mejeriskole vorið 1937.
Gunnar starfaði síðan hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna á Selfossi og hjá
Mjólkursamlaginu í Borgarnesi.
Hann réðst svo sem yfirverkstjóri
að Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi
og starfaöi þar til starfsloka 1986 en
þá hafði hann starfað við mjólkur-
iðnaðinn í fimmtíu og fjögur ár.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 11.5. 1940 Helgu
Lilju Þórðardóttur, f. 2.11. 1920, hús-
móður. Hún er dóttir Þórðar J. Sím-
onarsonar, b. á Bjamastöðum í ölf-
usi, og k.h., Ástu Mariu Einarsdótt-
ur húsfreyju.
Böm Gunnars og Helgu Ldju eru
Eygló Jóna, f. 26.3. 1941, djákni á
Selfossi, gift Ingvari Eiríkssyni bif-
reiðastjóra og eiga þau þrjú börn;
Ásta María, f. 22.5.
1942, hárskerameist-
ari í Reykjavík, gift
Sveini Aðalbergs-
syni trésmíðameist-
ara og eiga þau fjög-
ur börn; Oddrún
Svala, f. 16.3. 1944,
verslunarmaður í
Reykjavík, gift Stef-
áni Jónssyni, versl-
unarmanni og söngv-
ara, og eiga þau tvö
börn; Símon Ingi, f.
21.12. 1946, mjólkur-
fræðingur á Akur-
eyri, kvæntur Kolfinnu Sigtryggs-
dóttur og eiga þau fimm böm; Þórð-
ur Jóhann, f. 31.10.1948, d. 30.8.1989,
íþróttakennari; Gunnar Óðinn, f.
2.10.1952, prentari á Selfossi, kvænt-
ur Gyðu Steindórsdóttur og eiga
þau fimm börn; Erla Bára, f. 4.6.
1956, húsmóðir í Garðabæ, gift
Magnúsi Þorsteinssyni skipstjóra
og eiga þau þrjú böm; Trausti Viö-
ar, f. 24.4. 1960, raf-
magnstæknifræðing-
ur í Regensburg í
Þýskalandi, kvæntur
Margréti Gunnars-
dóttur og eiga þau
þrjá syni.
Alsystkini Gunn-
ars: Laufey, sem er
látin; Sveinborg, bú-
sett á Selfossi; Guð-
mundur, búsettur í
Reykjavík; Oddrún,
búsett i Reykjavík.
Hálfsystkini Gunn-
ars, samfeðra: Guð-
mundur, sem er látinn; Eyþór sem
er látinn; Óskar, sem er látinn; Guö-
ný, látin.
Foreldrar Gunnars voru Jörgen
Þórðarson, f. 6.9. 1878, d. 30.9. 1951,
kaupmaður í Reykjavík, og Oddrún
Sveinsdóttir, f. 1.6.1880, d. 22.4.1925,
húsmóðir
Gunnar verður ekki heima á af-
mælisdaginn.
Merkir Islendíngar
Hörður Þórðarson, sparisjóðsstjóri
SPRON, fæddist á Kleppi í Reykjavík
11. desember 1909, sonur Þórðar Sveins-
sonar, yfirlæknis á Kleppspítalanum, og
k.h., Ellenar Johanne Sveinsson.
Bræður Harðar urðu allir þjóðkunn-
ir menn: Úlfar augnlæknir; dr. Sveinn,
skólameistari og prófessor; Agnar, rit-
höfundur og bókavörður; Gimnlaugur,
hæstaréttarlögmaður, faðir Hrafns
kvikmyndaleikstjóra og Tinnu
leikkonu, og Sverrir, lengst af blaða-
maður við Morgunblaðið, faðir Þórðar
augnlæknis. Börn Harðar eru Þórður,
hjartasérfræðingur, yfirlæknir og prófess-
or, og Anna, skrifstofustjóri.
Hörður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
Hörður Þórðarson
um í Reykjavík 1927 og embættisprófi í lög-
fræði við Háskóla íslands 1933.
Hörður stundaði almenn bankastörf og
starfaði í lögfræðideild Landsbanka ís-
lands frá 1933 en var síðan sparisjóðs-
stjóri SPRON frá 1942 og til æviloka 6.
desember 1975.
Hörður var í hópi þekktustu
bridgespilara hér á landi. Hann var
fyrsti formaður Bridgefélags Reykja-
víkur og síðar kjörinn heiðursfélagi
þess og sinnti íjölda trúnaðarstarfa fyr-
ir bridgesamtökin. Hann var í landsliði
Islands i bridge um árabil og sveit hans
vann marsinnis íslands- og Reykjavikur-
mót. Þá var hann lengi forseti íþróttadóm-
stóls ÍSÍ og sat í yfirkjörstjórn Reykjavíkur.
Myndabrengl
Gestur Olafsson Slgurður
Þórðarson
Vegna tæknilegrar bilunar birt-
ust rangar myndir með afmælis-
greinum um Sigurð Þórðarson rík-
isendurskoðanda og Gest Glafsson,
skipulagsfræðing og arkitekt í síð-
asta helgarblaði. Um leið og réttar
myndir eru hér birtar eru viðkom-
andi beðnir afsökunar á þessum
leiðu mistökum.