Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2002, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2002
Fréttir
DV
Spenna vegna ákvörðunar um aðferð við uppstillingu á lista Sjálfstæðisflokks:
Leiðtogaprófkjör er
enn talið líklegast
- Júlíus Vífill metinn sigurstranglegri leiðtogi en Inga Jóna í nýlegri Galluplcönnun
Samkvæmt nýlegri Gallupkönn-
un sem gerð var á fylgi stóru fram-
boðanna tveggja í borgarstjóm
Reykjavíkur njóta Reykjavíkurlist-
inn og Sjálfstæðisflokkurinn svo til
nákvæmlega sama fylgis kjósenda.
Könnunin, sem gerð var 10.-20. des-
ember, tók líka til þess hvort þeirra
Ingu Jónu Þórðardóttur eða Júlíus-
ar Vífils Ingvarssonar væri líklegra
til að leiða D-listann til sigurs. í ljós
kom að flestir þeirra sem spurðir
voru töldu Júlíus Vífil líklegri til
sigurs en Ingu Jónu, eða rúm 42%
um 550 svarenda, og rúmlega 30%
töldu Ingu Jónu sigurstranglegri.
Tæp 24% töldu að hvorugt þeirra
væri líklegt til að leiða listann til
sigurs og um 3% töldu bæði jafn lík-
leg. Athygli vekur að um þriðjungur
aðspurðra tók ekki afstöðu til þess-
arar spurningar.
Þessi könnun hefur ekki verið
birt opinberlega frekar en aðrar
svipaðar kannanir sem gerðar hafa
verið, en samkvæmt heimildum DV
var hún gerð fyrir Júlíus Vífil Ingv-
arsson, sem eins og áður hefur kom-
ið fram í DV hefur verið að velta
fyrir sér möguleikum sínum á að
leiða lista flokksins í borgarstjórn-
arkosningunum í vor. í samtölum
við menn sem standa nær Ingu
Jónu Þórðardóttur í Sjálfstæðis-
flokknum koma hins vegar fram
miklar efasemdir um að þessar töl-
ur gefi rétta vísbendingu um stöðu
hennar meðal flokksmanna og
stuðningsmanna flokksins.
Enn hefur ekki verið ákveðiö
hvaða aðferð Sjálfstæðisflokkurinn
mun nota við að raða upp á listann,
en eins og greint var frá í frétt DV í
gær er búist við ákvörðun um það á
fundi stjórnar fulltrúaráðsins í
Reykjavík síöar í vikunni, en Mar-
geir Pétursson vill lítið gefa upp um
niðurstöður fyrir fram en vísar til
ummæla sinna í DV í gær þar sem
hann sagöi að greinilega hafi orðið
vart við mikinn áhuga og baráttu-
gleði hjá flokksmönnum.
Birgir
Guðmundsson
fréttastjóri
Leiötogaprófkjöriö líklegast
Af samtölum við flokksmenn í
höfuðborginni aö dæma gætir nú
talsverðs taugatitrings vegna fram-
boðsmálanna. Kemur þetta meðal
annars fram í því að menn eru treg-
ir til að koma opinberlega fram á
þessu stigi og hafa uppi vangaveltur
um stöðuna. Það breytir þó ekki því
að víða er veriö að skipuleggja og er
greinilegt að enn telja menn meiri
líkur en minni á því að farið verði í
svokallað leiötogaprófkjör. Uppstill-
ing er þó síður en svo út úr mynd-
inni og í raun ekki heldur hefð-
bundiö prófkjör þó það sé nú talinn
ólíklegasti kosturinn.
Ljóst er að í röðum borgarfulltrú-
anna sjálfra, ekki síst þeirra sem
keppa aö því leynt eða ljóst að leiða
listann í næstu kosningum, er próf-
kjör sú leið sem flestir telja eðlilega.
Viðmælendur blaðsins benda á
þrennt sem mæli sérstaklega með
prófkjöri. í fyrsta lagi er bent á að
erfitt verði fyrir þann einstakling,
sem taki að sér að leiða listann, að
takast á við það hlutverk án þess að
hafa fengið skýrt umboö til þess frá
flokksmönnum. í öðru lagi sé hefð
fyrir því hjá sjálfstæðismönnum í
Reykjavík að velja á lista með próf-
kjöri. I þriöja og síðasta lagi skipti
Björn
Bjarnason.
Eyþór
Arnalds.
Inga Jóna
Þórðardóttir.
Júlíus Vífill
Ingvarsson.
Margeir
Pétursson.
Borgarstjórn
Sjálfstæöismenn í borgarstjórn Reykjavíkur leggja ofurkapp á aö vinna borgina af Reykjavikurtistanum. Fyrsta skrefiö í
þeim slag er aö koma sér saman um leiö til aö velja á framboðslistann.
það máli fyrir þá
frambjóðendur
sem vilja leiða
listann að valiö
verði með próf-
kjöri, einfaldlega
vegna þess að
talið er nær úti-
lokað að Björn
Bjarnason muni
þá blanda sér í
baráttuna. Hann
muni ekki, sem einn af gamalreynd-
ustu forustumönnum flokksins á
landsvísu, fara að etja kappi við
sveitarstjómarmenn í Reykjavík í
prófkjöri. Enda hafa þeir þrír fram-
bjóðendur sem líklegastir eru til að
keppa um fyrsta sætið, Inga Jóna
Þórðardóttir, Júlíus Vífíll Ingvars-
son og Eyþór Arnalds, allir lýst sig
fylgjandi prófkjöri - hvort heldur
sem er leiðtogaprófkjöri eða hefð-
bundnu prófkjöri.
Ýmsir ókostir
Gallar prófkjörs eru hins vegar
margir og ekki virðist standa á tals-
mönnum prófkjörs aö viðurkenna
það líka. Sá ókostur sem flestir
nefna fyrst vegna prófkjörs er að
það sundri fólki óþarflega í aðdrag-
anda kosninga og geti skilið eftir sig
djúp sár. Þá sé það bæði dýrt og auk
þess sé erfitt að fá fólk til að taka
þátt í því. Leiðtogaprófkjör sé leiö
til að lágmarka slíkan skaða en
komi ekki í veg fyrir hann. Megin-
vandinn hins vegar sem viðmælend-
ur blaðsins sjá í tengslum við próf-
kjör, hvort heldur sem það yrði leið-
togaprófkjör eða heföbundið próf-
kjör, er þó annars eðlis. Sá vandi
snýr að því að þrátt fyrir að menn
gangi í gegnum erfitt prófkjör geti
komið upp sú staða að engin afger-
andi niðurstaða fáist - að ekkert eitt
leiðtogaefnanna hafi svo afgerandi
stuðning að umboð leiðtogaefnisins
geti talist ótvírætt. Skoðanakannan-
ir, eins og sú sem sagt var frá hér að
ofan, hefur einmitt aukið á þessa
óvissu að dómi ýmissa viðmælenda
blaðsins úr röðum sjálfstæðis-
manna. Könnunin sýnir vissulega
stuðning við Júlíus Vífil Ingvarsson
og nokkru minni við Ingu Jónu
Þóröardóttur. En þriöjungur að-
spurðra tekur ekki afstöðu til
þeirra, fjölmargir telja hvorugt
þeirra augljósan kost og enginn veit
hvort niðurstaðan hefði orðið önnur
ef spumingin heföi í upphafi tekið
til fleiri nafna en bara þessara
tveggja. Þannig er ljóst að þeir sem
vilja t.d. Eyþór Arnalds sem leið-
toga telja þessa niðurstöðu litla vís-
bendingu um raunverulega stöðu.
Hins vegar er niðurstaða af þessu
tagi áfall fyrir Ingu Jónu Þórðar-
dóttur, einfaldlega vegna þess að
hún er sitjandi leiðtogi en nýtur
samt ekki þeirrar hylli og þess for-
skots meðal almennra kjósenda,
sem slík leiðtogastaða ætti að færa
henni.
Óskýr niðurstaða
Það er því ekki síst hræðslan við
að fara í gegnum átakamikið próf-
kjör án þess að fá fram afgerandi
niðurstöðu, sem virðist kynda und-
ir hugmyndinni um að fara þrátt
fyrir allt í gamaldags uppstillingu
að þessu sinni. Það kemur ekki á
óvart að það eru flokksmenn hrifn-
ir af Birni Bjarnasyni sem sagðir
eru hlynntir uppstillingarleiöinni,
enda líklegra að hægt verði að
kalla hann til í slikum tilfellum.
Heimildarmönnum blaðsins ber
hins vegar ekki saman um hvernig
eða hvort uppstillingarsinnar eigi
einhvern stuðning formanns
flokksins. Það þarf í raun ekki að
koma á óvart því Davíð Oddsson er
í þröngri stööu og stígur því var-
lega til jarðar. Annars vegar er
Inga Jóna Þórðardóttir eiginkona
Geirs Haarde, varaformanns
flokksins, og hins vegar Björn
Bjarnason menntamálaráðherra og
góður vinur og félagi til margra
áratuga. En uppstillingarleiðin á
sér fleiri rök sem ýmsir telja mik-
ilsverð. Með uppstillingu er hægt
að klæðskerasníða lista sem verður
mun sterkari en sá listi sem fengist
út úr prófkjöri. Við þessum rökum
hafa talsmenn prófkjörs hins vegar
svar á reiðum höndum því hið svo-
kallaða leiðtogaprófkjör er í raun
sambland af uppstillingu og próf-
kjöri, því hugmyndin er að leiðtog-
inn og kjörnefndin raði á listann í
sameiningu.
Langsótt en ...
En þrátt fyrir að uppstillingar-
leiðin virðist hafa verið að vinna á
upp á síðkastið meta flestir við-
mælendur stöðuna þannig að leið-
togaprófkjör verði ofan á hjá full-
trúaráðinu á fimmtudag. í því sam-
bandi er bent á, bæði í gamni og al-
vöru, að fari svo að það prófkjör
skili ekki skýrri niðurstöðu sé enn
tækifæri - og að sumra dómir jafn-
vel eðlilegra tækifæri - til að kalla
til utanaðkomandi aðila, sem vænt-
anlega yrði Björn Bjarnason. Rétt
er að undirstrika að viðmælendur
sem þekkja til í Sjálfstæðis-
flokknum töldu þessa hugmynd
nokkuð langsótta en virtust þó hafa
heyrt af henni og velt henni fyrir
sér. Hugmyndin er í raun einföld
og er nánast stæling á uppstilling-
artaktík Reykjavíkurlistans. Þá
yrði fyrsta sætið á lista flokksins
gert að sérstöku virðingarsæti og
sá sem þar yrði gæti orðið forseti
borgarstjórnar ef listinn ynni borg-
ina. Hins vegar yrði 8. sæti listans
sérstakt baráttusæti þar sem borg-
arstjóraefnið tæki sæti, sem hugs-
anlega yrði þá Björn Bjarnason.
Uppleggið væri þá að kjósa milli
borgarstjóraefna sem bæði væru i
baráttusætum.
Einn sigurvegari
Langlíklegasta niðustaðan hins
vegar að dómi viðmælenda blaös-
ins sem tengjast Sjálfstæðisflokkn-
um í Reykjavík er sú að stjórn full-
trúaráðsins muni leggja til við hið
fjölmenna fulltrúaráð flokksins í
Reykjavík aö farið verði í leiðtoga-
prófkjör. Niöurstaðan úr því verði
síðan látin gilda og hinn nýi for-
ingi muni sjá til þess að velja með
sér lið sem hann treystir og efast
ekki um umboð hans sem oddvita.
Eða eins og einn viðmælandi blaðs-
ins orðaði það: Það gæti vissulega
orðið lítill munur á mönnum í leið-
togaprófkjöri, en það verður samt
bara einn sem vinnur.
3UJJ ^íij'-ífsvw
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 16.00
Sólarupprás á morgun 11.07
Síðdegisflóð 14.16
Árdegisflóð á morgun 03.02
15.20
11.16
18.49
07.35
mmm:
Búist við stormi
Suðvestan 13-18 og snjó- eöa
slydduél um vestanvert landiö í dag
en léttskýjaö noröaustanlands. Hiti
1 til 7 stig, hlýjast á Austfjöröum.
Gengur í sunnan 18-23 meö
rigningu og hlýnar vestan til í kvöld.
nga
Hvasst í fyrramálið
Sunnan 18-23 austan til en lægir
vestan til í 10-15 upp úr hádegi.
Rigning vestan- og sunnan til en
skýjaö og úrkomulítiö noröaustan-
lands. Hiti 0-3 stig.
Veðrið n
Fimmtudagur
SgSpýi
Föstudagur
Laugardagur
-$> ■$>
Hití 0°
tii 8°
Vindur:
8-13 ‘V*
S 8-13 og
rlgning. Htti 0-8
stig. Hvesslr og
kólnar.
Hití 0°
tii 3°
Vindur:
7-12
SV og él en
úrkomulitiö
austan tll.
Kólnandi veóur
og víöa vægt
Hiti 0”
til 3°
Vindur:
7-12 m'&
SV oí «1 en
úrkomulítlö
austan tll.
Kólnandi veöur
og viöa vægt
frost. frost.
hp? TT77?
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 16-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
mm.P
AKUREYRI hálfskýjaö 4
BERGSSTAÐIR skýjaö 3
BOLUNGARVÍK haglél 2
EGILSSTAÐIR léttskýjað 3
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 1
KEFLAVÍK snjóél 3
RAUFARHOFN léttskýjaö 2
REYKJAVÍK snjóél 2
STÓRHÖFÐI snjóél 3
BERGEN alskýjaö 5
HELSINKI skýjaö 0
KAUPMANNAHOFN alskýjað 2
OSLO skýjaö -8
STOKKHOLMUR þokumóöa 0
ÞÓRSHÖFN hálfskýjaö 6
ÞRÁNDHEIMUR alskýjaö 2
ALGARVE léttskýjaö 10
AMSTERDAM alskýjað 2
BARCELONA þokumóöa 5
BERLÍN þokumóða 0
CHICAGO léttskýjaö -6
DUBLIN skýjaö 7
HALIFAX snjókoma -1
FRANKFURT skýjað 1
HAMBORG alskýjað 2
JAN MAYEN skafrenningur -2
LONDON mistur 5
LUXEMBORG skýjaö -1
MALLORCA skýjað 8
MONTREAL heiðskírt -11
NARSSARSSUAQ snjókoma -3
NEW YORK skýjaö -3
ORLANDO heiöskírt 5
PARÍS skýjaö 2
VIN alskýjaö 0
WASHINGTON léttskýjaö -2
WINNIPEG heiöskírt -2