Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2002, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2002, Side 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2002 Útlönd Harmur kveðinn að Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, og konu hans: Nýfædd dóttir lést í örmum foreldranna Mikill harmur er nú kveðinn að Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, og eiginkonu hans eftir að tíu daga gömul dóttir þeirra lést í örmum foreldra sinna á sjúkra- húsi í Edinborg í Skotlandi í gær. Hinn fimmtugi Brown og eigin- konan Sarah, sem er 37 ára, höfðu setið við beð dóttur sinnar, Jennifer Jane, frá því á föstudag þegar hún fékk alvarlega heilablæðingu. Jennifer Jane fæddist 28. desember síðastliðinn, sjö vikum fyrir tím- ann, og vó aðeins rúmar fjórar merkur. Hún var því einfaldlega of veikburða til að þola blæðinguna. Heilablóðfall er algengur fylgikvilli við fyrirburafæðingar. Jennifer Jane var fyrsta barn for- eldra sinna. Brown hjónin yfirgáfu sjúkrahús- ið tæpri klukkustund eftir að dóttir þeirra lést, án þess að ræða við fréttamenn. REUTER-MYND ' Harmleikur Gordons Browns og Söruh Gordon Brown, fjármálaráöherra Bretlands, og Sarah, eiginkona hans, yfir- gefa sjúkrahúsiö eftir aö tíu daga gömul dóttir þeirra lést í örmum þeirra. Jennifer Jane var flutt á nýbura- deild konunglega sjúkrahússins í Edinborg frá sjúkrahúsi nærri kjör- dæmi Browns á föstudag eftir að venjubundin ómskoðun leiddi heila- blæðinguna í ljós. Fljótlega kom i ljós að barnið var alvarlega veikt og talsmaður hjón- anna staðfesti að stúlkan hefði ver- ið skírð á sjúkrahúsinu á sunnu- dagskvöld. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, var mjög brugðið þegar honum voru færð tíðindin austur í Afganistan og sendi hann fjármála- ráðherra sínum innilegustu samúð- arkveðjur sínar. „Ég finn svo mikið til með Gor- don og Söruh. Ég veit hversu mjög Gordon hlakkaði til að verða faðir,“ sagði Blair í Afganistan í gær. „Ég veit hversu stolt þau voru af Jenni- fer Jane og að það hefðu orðið henni yndislegir foreldrar." Charies Bishop Fjölskylda Bishops segist ekki skilja hvaö kom yfir drenginn þegar hann ákvaö aö fljúga á stórhýsiö í Tampa. Fjölskylda Charles Bishops niðurbrotin Julia Bishop, móðir drengsins sem flaug kennsluflugvélinni inn í stórhýsi Bank of America i borginni Tampa á laugardaginn, segir syni sínum hafa verið mjög annt um Bandaríkin og hún skilji því ekki hvað hafi komið yflr drenginn sinn. „Fjölskyldan er gjör- samlega niðurbrotin," sagði móðirin í yfirlýsingu í gær og bætti við að hún hefði engar skýringar á þessum hræðilega atburði. Að sögn Karenar Johnson, ömmu drengsins, hefur Qölskyldan alltaf stutt aðgerðir Bandaríkjanna gegn bin Laden og samtökum hans og þvi sé af- staða drengsins óskiljanleg. „í sorg okkar þökkum við guði fyrir að enginn annar fórst eða slasaðist," sagði amm- an. ‘1 L— //> W' Æ9> * htffrtfiriTiii / S í mf . li/ ÁMm REUTER-MYND Börn í Soweto rekin af heimllum sínum Þúsundir fátækra fjölskyldna voru reknar úr hreysum sem þær höföu reist sér í borginni Soweto vestur af Jóhannes- arborg í Suður-Afríku í gær. íbúar Soweto höföu kvartaö yfir því að fólkiö, sem bjó ólöglega, heföi kynt undir auknum glæpum í borginni. Hér má sjá þrjú börn bíða viö aleigur fjölskyldunnar eftir brottreksturinn. REUTER-MYND Eduardo Duhalde Argentínuforseti reynir hvaö hann get- ur til aö blása nýju lífi í efnahaginn. Argentínustjórn reynir að jarða verðbólgudraug Stjórnvöld í Argentínu, sem los- uðu sig um helgina úr spennitreyju Bandaríkjadollars, reyndu í gær að koma í veg fyrir að gengisfelling pesans myndi endurvekja verð- bólgudraugirin og kynda enn frekar ólgubálið í landinu. Eduardo Duhalde, sem þingið valdi til að gegna forsetaembættinu til loka næsta árs, nam úr gildi fast- gengisstefnuna gagnvart Banda- ríkjadollar, þar sem einn dollari jafngilti einum pesa, og felldi geng- ið til að örva útflutning og hleypa nýju lífl í efnahag landsins. Almenningur óttast nú mjög að verðbólga svipuð þeirri sem geisaði á níunda áratug síðustu aldar fari aftur á kreik. Efnahagsmálaráðherra Argent- inu fór þess á leit við verslanir að þær hækkuðu ekki verð á vörum sínum og hvatti neytendafélög til að vera á varðbergi gagnvart verð- hækkunum. Berlusconi lýsir stuðningi við ESB Silvio Berlusconi, forsætisráð- herra Ítalíu, sem um helgina skipaði sjálfan sig í sæti utanríkisráðherra Ítalíu eftir að Renato Ruggiero sagði af sér embætti, ítrekaði í gær stuðn- ing ítala við Evrópusambandið og sagðist taka fullan þátt í samstarflnu innan þess. Ruggiero, sem er mikill Evrópu- sinni og fyrrum einn af forystumönn- um WTO, Alþjóða verslunarráðsins, sagði af sér eftir deilur sem blossuðu upp innan ítölsku rikisstjórnarinnar í kjölfar innleiðingar evrunnar og sá Berlusconi sig tilneyddan til að gefa út stuðningsyfirlýsingu við ESB eftir að Evrópuráðherrar Frakka, Þjóð- verja og Belga höfðu lýst miklum áhyggjum yflr óeiningunni innan ítölsku ríkisstjórnarinnar. Sagði forsætisráðherrann það skoðun sína að farsælli framtíð Ítalíu vær best borgið innan ESB.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.