Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2002, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2002
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2002
19
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Ritstjóri: Óli Bjöm Kárason
Aóstoóarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
Æskilegt mótvœgi
Megineinkenni byggðaþróunar á íslandi hefur lengi ver-
ið sókn fólks frá dreifðari byggðum landsins til þéttbýlis-
ins á höfuðborgarsvæðinu. Þessi þróun er um margt eðli-
leg enda sækir fólk þangað ýmiss konar þjónustu sem ekki
er annars staðar að fá. Þar er miðstöð stjórnkerfis, at-
vinnulífs, menntunar og heilbrigðisþjónustu auk fjöl-
breyttra möguleika til afþreyingar, fjöldi veitingastaða,
kvikmynda- og leikhúsa.
Því hefur raunar verið haldið fram að öflugt höfuðborg-
arsvæði sé besta byggðavörn landsins. Væri það ekki fyrir
hendi flyttist unga fólkið burt frá landinu. Það má til sanns
vegar færa. Á þessu svæði fær vel menntað fólk störf við
hæfi og borgarheildin, Reykjavík og nágrannasveitarfélög-
in, mynda eftirsóknarvert umhverfi sem er svo mann-
margt og fjölbreytt að það er í flestu sambærilegt við það
sem þekkist í borgum í nágrannalöndum okkar.
Það svæði sem einna helst er mótvægi við höfuðborgar-
svæðið er Akureyri og Eyjafjarðarsvæðið. Á Akureyri búa
það margir, með tilheyrandi þjónustu, að svæðið getur að
nokkru keppt við höfuðborgarsvæðið. Akureyri er því að-
dráttarafl fyrir þá íbúa fjórðungsins, og raunar aðliggjandi
fjórðunga, sem kjósa að sækja í þá þjónustu sem stærri
þéttbýlisstaðir veita. Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunn-
ar var íbúafjölgun á Akureyri á liðnu ári vel yfir landsmeð-
altali, eða 1,6 prósent, og hlutfallslega meiri en í Reykjavík
þótt ekki nái hún sama hlutfalli og í stóru kaupstöðunum
á höfuðborgarsvæðinu, Kópavogi og Hafnarfirði, en þar
var fjölgun milli ára 3 prósent.
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, hefur
lýst þvi yfir að æskilegt sé að í framtiðinni búi 30-40 þús-
und manns á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Undir þá
ósk er hægt að taka og vissulega væri það merki um innri
styrk þjóðfélagsins myndaðist svo sterkur þéttbýliskjami
með Akureyri sem miðpunkt. Svæðið gæti þá veitt betri
þjónustu á öllum sviðum en nú er. Til þess að svo verði
þarf þó að fjölga verulega því íbúar á Akureyri eru nú ríf-
lega hálft sextánda þúsund, Dalvíkingar um tvö þúsund,
Ólafsfirðingar um þúsund sem og íbúar í Eyjafjarðarsveit,
auk annarra í minni þorpum og dreifbýli í grenndinni.
Á Akureyri er öflugt sjúkrahús, framhaldsskólar og há-
skólinn þar hefur virkað sem vítamínsprauta fyrir mennta-
og atvinnulíf svæðisins. Á svipuðum nótum getur ríkið
styrkt svæðið sem heild en áframhaldið er þó mest undir
heimamönnum komið og því fólki sem valið er til forystu
í sveitarstjórnarmálum. Fram hefur komið að þau bygging-
arsvæði sem nú eru fyrir hendi á Akureyri verði uppurin
árið 2015. Því ríður á að líta til lengri framtíðar og svo hef-
ur meðal annars verið gert með skipulagningu svokallaðs
Naustahverfis en þar er gert ráð fyrir 6 þúsund manna
byggð.
Akureyringar og nágrannar eiga því að geta litið björt-
um augum til framtíðarinnar. Um leið og fólki fjölgar eykst
þjónustan og verður fjölbreyttari og um leið eftirsóknar-
verð fyrir enn fleiri.
Samúðarkveðjur til Þingeyrar
Hugur landsmanna er hjá aðstandendum foreldranna
ungu og drengsins sem fórust í brunanum hræðilega á
Þingeyri í liðinni viku. Eftir lifir eldri sonurinn sem faðir-
inn bjargaði áður en hann fórst við að reyna að bjarga
konu sinni og yngra barni. Þorpið er sem lamað eftir sorg-
arfréttina og þjóðin finnur til vegna harmleiksins.
DV sendir aðstandendum öllum samúðarkveðjur.
Jónas Haraldsson
I>V
Skoðun
Hyggjum að heildarvanda
Bindindissamtökin IOGT
á íslandi áma landsmönn-
um öllum gleðilegs árs og
þakka hið liðna. Um leið
skal þeim fjölmörgu þakkað
sem veittu samtökunum
dýrmætan stuðning á liðnu
ári. Bindindissamtökin
IOGT vilja heita á alla is-
lendinga að berjast hinni
góðu baráttu til varnar
þeirri miklu vá sem víman
skapar, til samstarfs í þeirri
baráttu eru þau reiðubúin
hvar og hvenær sem er.
Við höfum nýlega hlustað á það að
sala áfengis á nýliðnu ári hafi slegiö
öll fyrri met og var þó af ærnu að
taka, við höfum einnig séö fréttir af
hreinni örtröð við áfengisverzlanir á
gamlaársdag. En bjartsýn skulum
við til atlögu leggja þrátt fyrir aö
alltof margt sé ekki sem skyldi.
í upphafi er það áfengisneyslan
Við höfum einnig heyrt og lesið
ummæli þeirra sem fást við meðferð-
arstarf um sívaxandi vanda æ yngra
fólks bæði af völdum áfengisneyzlu
en ekki síður vegna neyzlu annarra
vímuefna og jafnvel enn hættulegri.
Þau ummæli eru ekki'til
beinnar uppörvunar svo
skelfilegar staðreyndir sem
þau fela í sér, en þau eiga
samt að hvetja til enn frek-
ari átaka til forvarna, enn
markvissari baráttu.
Enn skal áherzla á það
lögð sem er löngu staðfest
að neyzla hinna ólöglegu
vímuefna hefst nær undan-
tekningalaust á áfengis-
neyzlu og eins skyldi því
ekki gleymt sem það fólk
segir sem næst er vandan-
um og við hann fæst, en þess dómur
er ótvírætt sá að þrátt fyrir allt sé
áfengið enn mestur skaðvaldur og
ætti engum á óvart að koma.
Það er þó hryggileg staðreynd að
alltof margir ræða þennan vanda ein-
göngu út frá ólöglegum vímuefnum
og vissulega eru þau ógnvænleg, en
sleppa alveg að minnast á undanfar-
ann og skaövaldinn mesta, áfengið.
Bindindið er best
Ekki er síður hryggilegt að sjá og
heyra þann linnulausa áróður sem
uppi er hafður fyrir því að auka enn
frjálsræðið i áfengismálum. Jafnvel
„Við höfum nýlega hlustað á það að sala áfengis á nýliðnu
ári hafi slegið öll fyrri met og var þó af æmu að taka, við
höfum einnig séð fréttir af hreinni örtröð við áfengisverzl-
anir á gamlaársdag. En bjartsýn skulum við til atlögu
leggja þráttfyrir að alltof margt sé ekki sem skyldi.“
eru inni á Alþingi flutt mál sem eiga allt undir yfirskini einhvers óskil-
að opna enn frekar allar flóðgáttir, greinds frelsis, þótt mönnum þar á
Lífrænt eða starfrænt kynlíf
virðist ekki eins „svöl“ núna
og í upphafi. Hún þarfnast
greinilega réttlætingar. Einn
nektardansstaðurinn vildi
gefa peninga til Mæðra-
styrksnefndar og vinna
þannig gegn því óorði sem
súlustaðirnir telja sig búa
við, ómaklega.
Siðferði er samkomu-
lagsatriði
Fulltrúi borgarstjórnar
impraði feimnislega á því í
sjónvarpi að kannski mætti banna
eitthvað af því sem fram fer á þess-
um svokölluðu súlustöðum og gott ef
ekki staðina sjálfa. Ekki hafði bönn í
tengslum við kynlíf fyrr borið á
góma en spyrillinn varð strangur og
hvass í bragði og spurði hvort borg-
aryfirvöld ætluðu að ráðast með
bönnum að persónulegum skemmt-
unum almennings.
Spurningin er einungis áhugaverð
vegna þess hve vitlaus hún er. Að
sjálfsögðu er siðferði samkomulags-
atriði í hverju samfélagi.
Það hafa alltaf ríkt boð og bönn
um kynlif fólks, aðallega um það
hver megi gera hvað með hverjum.
Hver má horfa á hvað og hver má
kaupa hvern. Og um það snúast
súlustaðirnir. Hverjir halda þeim
uppi? Ef konur, eldri borgarar, börn
og blankir og/eöa áhugalausir karl-
menn teljast ekki með“almenningi“,
má vissulega segja að bann við súlu-
stöðum snerti persónulegar skemmt-
anir „almennings".
„Náttúrulaust kynlíf"
Á súlustöðum grunar marga að
fram fari vændi, eiturlyfjasala og
annað slíkt á bak við tjöld-
in. Það er með öðrum orö-
um vandinn. í vændi leyf-
ist einhverjum einstak-
lingum að ganga á rétt,
vilja og sjálfsvirðingu ann-
arra. Hver skilgreinir
þann rétt og þann vilja er
svo auðvitað flókið mál
sem krefst lengri umræðu.
Hins vegar ættu fáir að
leggjast gegn vitsmuna-
legri umræðu um klám-
væðinguna sem nú fer yfir
löndin því að hún er fyrir löngu
gengin út í algjörar öfgar.
Ég held að ég tali fyrir þó nokkurn
hóp karla þegar ég segi að mér fmnst
það óttaleg mæða og leiðindi að láta
stöðugt elta mig meö tilboðum um
einhvers konar „náttúrulaust kyn-
líf‘.
Þrívíðar súiudansmeyjar?
Nú kem ég loksins aftur að upp-
hafinu, það er að segja hinu rafræna
og stafræna farsímakynlífstilboði.
Því ekki að fylgja þeirri hugmynd al-
mennilega eftir og setja upp súlu-
dansstaði sem byggjast á sýndar-
veruleika? Menn gætu þá kannski
frábeðið sér þessar klámofsóknir í
farsímum, tölvum og fjölmiðlum og á
veggspjöldum og vísað öllu draslinu
í sérstök klámhús þar sem hægt
væri að horfa á þrívíddarmyndir af
súlumeyjum og stelpumar sem eru
núna að puða við þessa vitleysu
gætu farið að gera eitthvað annað.
Má ég benda borgárstjórninni á að
hið kunna hús Perlan, sem einnig
hefur verið kölluð sílíkonbrjóstið,
gæti hentað vel til slíkra nota.
Kristján Jóhann Jónsson
Kristján Jóhann
Jónsson
rithöfundur
Þriðja í jólum hentist Fréttablaðið
inn á gólf tU mín með þær fréttir að
nú yrði senn hægt að fá playboy-
myndir af nöktum konum sendar í
farsímann sinn. Þegar þessi sælutið
rennur upp get ég með öðrum orðum
gripið simann við kjötborðiö í ein-
hverri kjörbúðinni og skoðað bert
kvenfólk í „Leikdrengnum", ef drátt-
ur verður á kjötsölunni.
í DV mátti rétt fyrir jólin lesa tU-
lögur um kynlífs- og nektarjól þar
sem blaðamaður lét sig dreyma um
kynsvaU í barrnálahrúgunni undir
jólatrénu. Næst kemur trúlega uppá-
stunga um að jólasveinarnir verði
klámvæddir og þá verður væntan-
lega byrjað á nöfnunum. Ég giska á
að við heyrum þá um jólasveinana:
PilsaUetti, LæraskeUi, Fjölþreifi,
Brjóstakreisti, Súlumæni og Bróka-
kræki, svo að hafm sé einhvers kon-
ar endurvinnsla á ímynd gömlu
þrjótanna.
Ekki er þó víst að slík endursköp-
un yrði vinsæl því að klámbylgjan
„Því ekki að fylgja þeirri hugmynd almennilega eftir og
setja upp súludansstaði sem byggjast á sýndarveruleika ?
Menn gœtu þá kannski frábeðið sér þessar klámofsóknir
í farsímum, tölvum og fjölmiðlum og á veggspjöldum og
vísað öllu draslinu ísérstök klámhús....“
bæ ætti a.m.k. að vera ljós sú hræði-
lega ánauð sem þessi vímuvaldur
sem aðrir geta skapað og skapa svo
skelfílega mörgum. Og viðbrögðin
við hinum ólöglegu eiturefnum eru
jafnvel þau að þá sé ráðið bara að
leyfa þau og lögleiða, þótt bergmál
þeirrar ósvinnu hafi sem betur fer
ekki borizt inn í sali Alþingis.
Það eitt er okkur sæmandi að taka
heildstætt á vandanum, undanskUja
þar engin vímuefni, heldur snúa okk-
ur að þeim staðreyndum sem hvar-
vetna blasa við um órofasamhengið í
aUri vímuefnaneyzlu.
Við drögum enga dul á það að okk-
ur þykir bindindið bezt og má ég þá
vitna til fyrirsagnar á ágætri grein
Steingríms J. Sigfússonar í tilefni af
Bindindisdegi íjölskyldunnar „Ör-
uggastir eru þeir sem aldrei byrja“.
En auðvitað viljum við sem bezt
samstarf og samvinnu við aUa þá
sem af einlægni vUja setja hlutina í
rétt samhengi og vUja af raunsæi og
festu takast á við vandímn og þó
fyrst og síðast finna hinar beztu leið-
ir tU sem árangursríkastra forvarna.
- Göngum bjartsýn og baráttuglöð
mót nýju ári og umfram aUt saman.
Helgi Seljan
Betra heilt en vel gróið
„Forvamir og efling
lýðheUsu er nátengd
umræðu um heUsu-
gæslu. Menn gera sér
æ betur grein fyrir
mikUvægi þess að
grafast fyrir um eðli
og orsök sjúkdóma og
heUsufarsvanda með það fyrir augu
betra sé heUt en vel gróið. Þetta er
helsta markmið íslenskrar heUbrigð-
isþjónustu, en það hefur hamlað að
formlegt forvarnarstarf hefur verið
mjög dreift og lítU samvinna mUli
þeirra sam hafa sinnt forvömum ...
Nú er unnið að því að sameina krafta
aUra sem sinna forvömum og betri
lýðheUsu í LýðheUsustöð. Hugmyndir
um hana munu líta dagsins ljós innan
tíðar og hefur heUbrigðisráðherra
boðað frumvarp þess efnis á vorþingi.
Þörfm fyrir samvinnu á þessu sviði
er öUum ljós.“
Siguröur Guömundsson landlæknir,
í Læknablaöinu.
Ávísun á blómlegt
mannlíf
„80% landsmanna gera sér glögga
grein fyrir því aö það er rangt að ráð-
ast á það blómlega í undirstöðuat-
vinnugrein þjóðarinnar. Smábátaút-
gerðin á að vera öflug, hún veitir ör-
yggi í atvinnulífi hinna dreifðu
byggða, er ávísun á blómlegt mannlíf
og beitir veiðiaðferðum sem vemda
lífríki sjávar. Þá skUar afli triUukarla
hærra útflutningsverði en hjá skipum
sem landa aflanum einu sinni í mán-
uði, auk þess sem veiðamar eru
stundaðar á bátum sem eru smíðaðir
hér á landi. Hátt hlutfaU aflaverðmæt-
isins rennur því ekki beint til er-
lendra skipasmíðastöðva."
Örn Pálsson, framkvstj. Landssamb.
smábátaeigenda, í Brimfaxa.
Spurt og svaraö
Eykur það líkur á að af stóriðjuframkvœmdum á Austurlandi verð
/hlutíir Nufóm'tmiií ueróur juerri?
Einar Már Sigurðarson,
þingmaður Austlendinga:
Einsýnt að
álver rísi
„Það að Norðmenn séu tU-
búnir að skoða að eiga stærri
hlut í álveri við Reyðarfjörð en
áður hefur verið rætt um sýnir í hnotskurn já-
kvæðan áhuga þeirra gagnvart þessu verkefni.
Sömuleiðis eru íslenskir fjárfestar jákvæöir - og
verkefnið aUt komið á beina braut eftir að nið-
urstaða umhverfisráðherra liggur fyrir. AUtaf
má deUa um hversu stór eignarhluti einstakra
aðila á að vera og i raun er engin leið fyrir leik-
mann að mynda sér nákvæma skoðun þar á.
Meginmálið er hins vegar þetta: að borð fyrir
báru virðist vera í aUri fjármögnun og umræð-
an bendir til að einsýnt sé að álver rísi.“
1 Kári Amór Kárason,
Lífeyrissjóði Norðurlands:
Ætti að verða
viðráðanlegra
„Það liggur í augum uppi að
því stærri sem hlutur Norð-
manna er aukast líkumar á að af
framkvæmdum verði. Mönnum þykir eðlilegt að
hlutur Norsk Hydro verði stór því fyrirtækinu er
ætlað að selja bæði aðfóng tU álversins sem og af-
urðir þess. Eitt af vandamálunum í ferlinu hefur
verið hve íslensku fjárfestunum er ætlað að
leggja mikið tU þessa verkefnis en því minni sem
sá hlutur verður þeim mun viðráðanlegri ætti
hann að verða. Fjárfestar hafa engar ákvarðanir
tekið í þessu máli heldur fylgst með þróuninni.
Málin ættu að fara að skýrast nú þegar úrskurð-
ur umhverfisráðherra liggur loks fyrir."
Jakob Frímann Magnússon
tónlistamaður:
Markaðurinn
rœður för
„Ef umrætt verkefni er raun-
verulega traust og arðbær fjár-
festing munu fjárfestar keppast
um það. Hagsmunir hins almenna fjárfestis eru
hins vegar ólíkir hagsmunum þess sem fær
einkarétt á að selja fyrirtækinu hráefni og aö
dreifa og selja fuUunna vöru þess eins og Norsk
Hydro ætlar sér.
Þó íslenskir fjárfestar óski þess að Norsk
Hydro hætti sér lengra í fjárfestingum hér er
það fyrst og síðast hinn almenni og alþjóðlegi
fjármagnsmarkaður sem á að ráða for.“
Haraldur Haraldsson
athafnamaður:
Allt betra en
Norðmenn
„Reynsla allra þeirra sem átt
hafa viðskipti við Norðmenn er
sú að þeir eru óalandi, óferjandi
og í raun mjög iUt við þá að eiga. í mínum huga er
alveg ljóst að aUir eru betri en Norðmenn og því
skil ég hreinlega ekki hvers vegna íslendingar eru
áfjáðir í að byggja álver fyrir austan i samvinnu
við þá. Mun affarasælla væri aö aUt álverið yrði í
eigu Norðmanna en ekki miðað við 49% eignarað-
ild þeirra því þá stjórna þeir fyrirtækinu auðvitað
að vUd og geta sviðið íslendinga eins og þeim sýn-
ist. Ég er enginn spámaður um hvort álver verður
byggt fyrir austan - en best hefði ég talið að aðrir
kæmu þar að málum en Norðmenn."
Áhugi er fyrir því að eignarhluti
Norsk Hydro í álveri við Reyöarfjörð verði allt að 49% en áður var rætt um allt niður í fiórðungshlut Norðmanna.
ELDFLAUGA
VARNARKERFI
~ Það cr gott og^
blessað, en getur
það skannað
innritaðan farangur?
ttUMtUC
JWH
(fp U .o t (ýtöpe-
W9T- efTÍWke umh semcez
Þorskstofninn
er arðlaus
Fyrir stuttu skýrðu
stjórnvöld frá því að
kvóti yrði aukinn örlítið
í nokkrum fisktegund-
um svo sem ufsa o.fl.
þannig að útflutnings-
tekjur myndu aukast um
líklega 6 milljarða. Þetta
væri m.a. byggt á svo-
kallaðri „fiskifræði sjó-
mannsins" sem ætti nú
að byrja að hlusta meira
á. Þetta er gott og bless-
að svo langt sem það
nær. Því er sleppt og
Lúðvík
Gizurarson
hæstaréttariögmaöur
að stórum hluta og stofninn
fór að rétta við.
Lífskraftur sjávar
endurnýjar stofna
Greinarhöfundur hélt svo
áfram í skóla. Þar las hann
m.a. um þá fullyrðingu Bjarna
Sæmundssonar fiskifræðings,
að maðurinn kæmist oft ná-
lægt því að ofveiða fiskistofna
og næstum útrýma þeim. Við
þessu væri aðeins eitt ráð og
það væri fiskifriðun. Svo væri
lífmagn og frjósemi sjávar
ekki rætt að hægt er að
auka útflutningstekjur af fiskafurð-
um um 60 milljarða á ársgrundvelli
en ekki 6 milljarða eins og nú er
gert. Nýir 60 milljarðar í tekjur
koma af þorskstofni í hámarksstærö.
Þá er hægt að veiða 400.000 tonn af
þorski árlega. Nú er veiðin 190.000
tonn.
Friðun á þorski vantaöi 1939
Höfundur þessarar greinar hlust-
aði daglega á „fiskifræði sjómanns-
ins“ árið 1939 þegar hann dvaldi á
Norðfiröi sem drengur sumarlangt.
Spegilsléttur Norðfjörður baðaði sig
í yndislegu sumar-
veðri dag eftir dag.
Sjómenn kvörtuðu
samt mikið undan er-
lendum togurum og
raunar innlendum
líka. Þá sagði „fiski-
fræði sjómannsins" á
Norðfirði, að þorsk-
urinn væri í útrým-
ingarhættu vegna of-
veiði. Það var nokk-
uð til í því. Sjómenn í
Neskaupstað töluðu
um mikla veiði fyrri
ára en nú væri þorsk-
urinn næstum horf-
inn. Greinarhöfund-
ur hafði samúð með
skoðunum þeirra.
Vonandi myndu þess-
ir sjómenn ekki
missa vinnuna vegna
þess að þorskurinn
væri ofveiddur, út-
dauður og horfinn.
Svo kom stríðið.
Með heimsstyrjöld-
inni 1939-1945 fóru
næstum allir erlendir
togarar af miðunum
hér við land. Þorskur-
inn var því friðaður
mikið að nánast kraftaverk
færi í gang ef veiði væri hætt eða
dregið nægilega úr henni. Þá segði
„flskifræði sjómannsins", að fiski-
stofn eins og t.d. þorskstofninn við
ísland færi að stækka á ný og næði
fljótt fullri stofnstærð. Og þetta gerð-
ist í stríðinu 1939-1945.
Þorskurinn í útrýmingarhættu
Lítið er orðið um stóran hrygning-
arþorsk sem getur dregið úr eðlilegri
endumýjun og nýliðun. Menn verða
bara að hlusta á þá einfóldu ráðlegg-
ingu Bjarna Sæmundssonar fiski-
fræðings, að nægileg friðun mun ein
veita öflugu lífríki sjávar við ísland
aftur tækifæri til að gera það krafta-
verk að rétta sjálft við þorskstofn-
inn, ef hann bara fær frið sbr.
reynsluna frá 1939-1945. - Opinberir
aðilar neita í dag að taka á þessu
vandamáli.
Þorskveiöar okkar
aröiausar í dag
Halda má því fram með fullum
rökum, að núverandi þorskveiðar
séu arðlausar fyrir þjóðarbúið.
Vegna fyrri ofveiði og brottkasts á
smáþorski er leyfileg þorskveiði
komin niður í 190.000 tonn. Gæti
annars verið 400.000 tonn árlega.
Mest allar daglegar tekjur af þorski
fara í rekstur á of stórum og of dýr-
um fiskiskipum.
Sé um tekjuafgang að ræöa fer
hann í afborganir og vexti af 200
milljarða skuld útgerðarinnar sem
er að meirihluta í gjaldeyri. Þorsk-
veiðar okkar skila því ekki gjaldeyri
í dag inn í bankana til sölu. Bankana
vantar gjaldeyri og gengið fellur.
Þetta þarf að stöðva. Tekjulausar
fiskveiðar felldu alltaf gengið fyrr á
árum. - Líka núna.
Lúðvík Gizurarson
„Sé um tekjuafgang að rœða fer hann í afborganir og vexti af 200
milljarða skuld útgerðarinnar sem er að meirihluta í gjaldeyri. *
Þorskveiðar okkar skila því ekki gjaldeyri í dag inn í bankana til
sölu. Bankana vantar gjaldeyri og gengið fellur. “