Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Síða 4
LAUGARDAGUR 12. JANUAR 2002 Fréttir I>V Formaöur Byggðastofnunar vill leigja út byggðakvótann: Ný samstaða um gjör- breytt stjórnkerfi segir formaður Samfylkingar „Á meðan byggðakvóti er við lýði í þessari mynd tel ég sjálfsagt að fara þá leið að láta greiða fyrir hann,“ segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, um þá hug- mynd Kristins H. Gunnarssonar, þingflokksformanns Framsóknar- flokksins og formanns Byggðastofn- unar, að eðlilegt væri að bjóða út byggðakvótann og leigja hæstbjóð- anda í stað þess að færa völdum fyr- irtækjum kvótann án endurgjalds. Þessi yílrlýsing Kristins vekur mikla athygli enda er hann einn af valdamestu mönnum annars stjórnarflokk- anna. Byggðakvótinn hefur víöa valdið harövítugum átökum og deil- um enda verið að úthluta verðmæt- um sem nema 150 milljónum króna árlega. Deilumar eru ekki aðeins á milli eigenda fyrirtækja heldur hafa Kristinn H. Gunnarsson. þær náð inn í bæjarstjórnir. Þannig geisa átök innan bæjar- stjórnar Vestur- byggðar og á Fá- skrúðsfirði er tekist á innan sveitarstjórnar Búðahrepps. Kristinn H. Gunnarsson benti á það í DV í gær að ekki væri verjandi til lengdar að úthluta ein- Ossur Skarphéðinsson. um slíkum veðmætum en hafna öðr- um. „Það gleður mig að það skuli vera þungavigtarmaður í Framsóknar- flokknum sem kemur fram með þessa hugmynd sem er mjög í anda þeirrar fiskveiðistefnu sem Sam- fylking hefur fylgt. Þetta sjónarmið Kristins sýnir að ný samstaða er að myndast í stjómmálum um gjör- breytt stjórnkerfi fiskveiða þar sem byggt er á því grundvallaratriði að rétturinn til að nýta auðlindina er ekki ókeypis," segir Össur. -rt Hella: Eldur í fisk- verkunarhúsi Eldur kom upp í tveggja hæða húsi á Hellu upp úr klukkan flmm í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli varð töluvért tjón í brun- anum bæði á húsnæðinu sjálfu og á fiskverkunartækjum sem þar voru. Húsið, sem stendur við Þrúðvang 36, er tveggja hæða og kom eldurinn upp á efri hæð þar sem er að finna skrifstofur og fleira. Á neðri hæð- inni var fiskverkun en það eru NG- matvæli sem eru með starfsemi í húsinu. Það var íbúi í næsta húsi sem fyrstur varð var við reyk i húsinu og hafði samband við Neyðarlínuna. Um fimmtán slökkviliðsmenn frá Hellu og Hvolsvelli fóru á vettvang og náðu þeir að ráða niðurlögum eldsins upp úr klukkan sjö. Engin slys urðu á fólki. Ekki er enn vitað hvað orsakaði eldinn en menn frá Löggildingarstofu fóru austur fyrir fjalli í gær til að aðstoða við rann- sóknina. -MA DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON. Svartur reykur Bilaður ketiH í Kjötmjölsverksmiðj- unni i Hraungerðishreppi spúði svörtum reyk út í loftið. Svartur reykur frá kjötmjölinu í gærdag lagði þykkan svartan reyk frá Kjötmjölsverksmiðjunni í Hraungerðishreppi. Að sögn starfs- manns í verksmiðjunni var skýring- in sú að bilun hefði orðið í katli verksmiðjunnar. Viðgerð stóð yfir og seinni partinn í gær var búið að komast fyrir vandamálið og reykur- inn úr sögunni. -NH Byggðakvótadeilan á Fáskrúðsfirði: Varaoddviti harðneit- ar aðild að innbroti - segir Vaðhorn hafa brotið samning við Byggðastofnun „Ég hef aldrei farið inn í neinn gám á vegum Vaðhoms til að róta í körum,“ segir Guðmundur Þor- grimsson, varaoddviti sveitar- stjómar Búðahrepps, vegna ásak- ana eigenda byggðakvótafyrirtæk- isins Vaðhoms ehf. um að hann og fleiri hafi brotist inn i gám fyrir- tækisins í því skyni að kanna hvort fyrirtækið væri að flytja út óunninn fisk sem veiddur væri úr byggðakvóta. Eigendur Vaðhorns segja í greinargerð sinni vegna ásakana um misnotkun byggðakvóta að Guðmundur varaoddviti hafi verið kallaður til af forsvarsmönnum annars fyrirtækis á staðnum, Skútuklappar, til að róta í fiskikör- um sem biðu þess í gámi að véra flutt úr landi. Þar var um að ræða óunninn fisk en slíkur útflutning- ur úr byggðakvóta er algjörlega bannaður. I greinargerðinni segir að umræddur fiskur hafi veriö að mestu steinbítur, sem ekki er inn- an byggðakvótans. Aflinn hafi ver- ið af bátnum Friðriki Steinssyni SU 254 og ekki tilheyrt byggða- kvóta í úthlutun til bátsins: „At- hæfi forsvarsmanna Skútuklappar og formanns byggarráðs, Guð- mundur Þorgrímssonar, jafngildir að okkar mati innbroti," segir í greinargerð og tilgreint er að það hafi verið tilkynnt lögreglu. Ekki heyrt af kæru „Ég hef ekkert heyrt af lögreglu- rannsókn á þessu máli sem til- greint er. Þá hef ég ekki skoðað fisk frá byggðakvótafyrirtækinu," segir Guðmundur og telur vera um róg að ræða. Úthlutun Byggöastofnunar á veiðiheimildum ýmist tilefnz stríðs eða friðar: Bölvun byggðakvótan - tiigmilljónir færðar vöidum fyrirtækjum á silfurfati kvymt'ír af útbiutun OfitKi*- kv'rt.11 þvi ekynl art Hjáipu bjrKSrtMT' VAuju í vnaOa. «- reum-mJHuL. \ lUDUm '.ftoðum hrtúr rryulaD of*- ' sú aft i s'.ört í*rw aó k-.'Aflnn áuni atvinnu og þar ni'ft -luidn .ftiaerti þrt Iieftir haan -wftíft UWfcl viiTxiniDg.'u- ci rtáfii.XL kvMtm. mm þo ttbt **Vkí tstíuil. awtiniutaafirar Byggöakvóti veldur usla Eins og greint var frá í DV í gær veldur byggöakvótinn harðvítugum deilum víða. Á Fáskrúðsfiröi ganga ásakanir á báöa bóga. Hann segir byggðarráð hafa far- ið rækilega i saumana á því hvort Vaðhom hafi skilað á land þeim afla sem krafist er í samningnum um byggðakvótann. Niðurstaðan sé ótvíræð: „Fyrirtækið stóð ekki við samning um að vinna 300 tonn af fiski.“ Guðmundur hefur krafið Byggðastofnun skýringa á þvi að ákveðið var að láta hið brotlega fyrirtæki enn hafa byggðakvótann þvert á yfirlýstan vilja sveitar- stjórnar Búðahrepps. „Við kröfðumst þess að byggða- kvótinn yrði auglýstur að nýju í ljósi þess að samningurinn var brotinn. Ekkert var á það hlustað," segir hann. í DV í fyrradag staðhæfði Þóra Kristjánsdóttir, einn eigenda Vað- homs og hreppsnefndarmaður í minnihluta, að fyrir mistök starfs- manns Atvinnuþróunarfélags Austurlands hafi verið kveðið á um að fyrirtækið landaði 300 tonn- um út á 113 tonna byggöakvóta. Hún sagðist aldrei hafa boðið nema tvöföldun byggðakvótans. „í samningnum sem undirritað- ur er af forvarsmanni Vaðhorns segir skýrt að landað verði 300 tonnum til vinnslu hér. Við það var ekki staðið," segir Guðmund- ur. Hann segist hafa fengiö þá skýr- ingu munnlega frá starfsmanni Nýsis sem annast ráðgjöf vegna kvótans að ekki hefði verið hægt að svipta Vaðhorn kvótanum vegna þess að þá hefði verið brotið gegn fyrirtækinu þar sem fleiri byggðakvótafyrirtæki hefðu brotið samninga. Ekki væri hægt að mis- muna fyrrtækjum. „Ég bíð eftir skriflegum skýring- um,“ segir Guðmundur. Ekki náðist í Stefán Þórarinsson, starfsmann Nýsis, sem annaðist ráðgjöf vegna byggðakvótans. -rt íslandsbanki: Verðbréfaþing þógult Bréf í íslandsbanka hafa hækkað nokkuð í verði síðan Jón Ólafsson, einn hluthafa í bankanum og banka- ráðsmaður, skýrði frá meintum áhuga útlendinga sem vildu kaupa allstóran hlut Orca-hópsins í bank- anum. Til skoðunar er hvort bréfin hafi verið „töluð upp“ í gengi til að meira fáist fyrir þau án þess að inn- stæða hafi verið fyrir kauptilboð- inu. Bréfin hækkuðu um 3% sl. föstudag í miklum viöskiptum og hafa heldur stigið síðan. Fagmenn benda á að yfir- leitt séu litlar hreyfingar í jafnstórum fyrirtækjum og íslandsbanka og því verði 3% hækkun að teljast um- talsverð. Eins og DV hefur greint frá átti Verðbréfaþing fund með einum Orca-meðlimn- um, Eyjólfi Sveinssyni, fyr- ir helgi, m.a. vegna mis- Rnnur Sveinbjörnsson. vísandi upplýsinga á gengi á söluhlut Eyjólfs til Þor- steins Más Baldvinssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar. Ekki liggur hins vegar fyrir hvort Verð- bréfaþing hefur óskað eft- ir fundi meö Jóni Ólafs- syni. Finnur Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Verð- bréfaþings, vill ekki tjá sig um málið en almennt ber þinginu að láta Fiármálaeftirlitið vita ef þingið telur að lög eða reglur séu brotnar. Finnur vildi ekki svara hvort þingið hefði komið ábending- um áfram til Fjármálaeftirlitsins. DV hefur eftir öðrum heimildum að yfirvöldum þyki málið þess eðlis að skoða verði nánar. Framkvæmdastjóri Fjármálaeftir- litsins vill ekki tjá sig um málið. -BÞ iUÍ‘dE;'sí]Í! JjmíúW REYKJAVlK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 16.11 Sólarupprás á morgun 10.59 Síödegisflóö 18.01 Árdegisflóö á morgun 06.24 rw? Veðrið í 15.29 11.07 22.34 10.57 Svalast á Vestfjörðum Suðlæg átt, 5-8 m/s, skýjað og víða lítils háttar súld eða rigning sunnan- og vestanlands en léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 0 til 5 stig, svalast á Vestfjöröum. Hiti nálægt frostmarki NA 10-15 m/s á Vestfjörðum en annars hæg suölæg eða breytileg átt. Hiti nálægt frostmarki og snjókoma noröan til, hiti 1-6 stig og rigning sunnan til. Mánudaqur Þriðjudagur Miðvikudagur O Hití 1° Ö 0 °„°„° o o Hiti 1° ^ll^° til 6“ til 4° tiI4° Vindur: 10-15"* Vindur: 10-15""» Vindur: S-13°VB * \£ NA 10-15 m/s á Vestfjöröum en A 8-13 annars staöar. Hiti viö frostmark og snjókoma noröan tll en hiti 1-6 stig og rigining sunnan til. A- og NA-átt veröa ríkjandi um allt land. Víöa veröa él og reikna má meö vægu frostl. A-átt og snjókoma sunnan til en skýjaö noröan tll og vægt frost. m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinnlngsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinnlngskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 Veðrið kl. 12 AKUREYRI léttskýjað 2 BERGSSTAÐIR léttskýjaö -2 BOLUNGARVÍK snjóél 2 EGILSSTAÐIR snjókoma 0 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -1 KEFLAVÍK slydduél 3 RAUFARHÖFN skýjaö -3 REYKJAVÍK slydda 2 STÓRHÖFÐI skúr 3 BERGEN súld 5 HELSINKI alskýjaö 0 KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 0 ÓSLÓ þoka -5 STOKKHÓLMUR 3 ÞÓRSHÖFN rigning 8 ÞRÁNDHEIMUR alskýjað 3 ALGARVE þokumóöa 14 AMSTERDAM súld 3 BARCELONA léttskýjaö 10 BERLÍN þokumóöa -5 CHICAGO alskýjað 1 DUBLIN rigning 10 HALIFAX léttskýjaö 0 FRANKFURT súld -5 HAMBORG þokumóöa -1 JAN MAYEN skafrenningur 4 LONDON þokumóöa 1 LÚXEMB0RG þokumóöa -2 MALLORCA skýjaö 15 MONTREAL alskýjað 2 NARSSARSSUAQ léttskýjaö -14 NEWYORK rigning 6 ORLANDO heiöskírt 7 PARÍS alskýjaö 6 VlN skýjaö -1 WASHINGT0N rigning 8 WINNIPEG heiöskirt -8 ÓU.l )L¥!j x>.Vt ffiuiffi’Jli ’JA'i iLlÍ'lA.'IiÍfJffiLjiSEa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.