Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Síða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 I George W. Bush. Rafsanjani gagn- rýnir ásakanir Bandaríkjaforseta Akbar Hashemi Rafsanjani, hinn áhrifamikli fyrrum forseti írans, hefur gagnrýnt George W. Bush Bandaríkjaforseta fyrir ásakanir hans í garð íranskra yfirvalda um að þau skjóti skjólshúsi yfir al- Qaeda-liða Osama bin Ladens og vinni gegn nýjum stjórnvöldum í Afganistan. „Þessar ásakamir hans eru eru ruddalegar og niðrandi," sagði Rafsanjani sem greinlega var mikið niðri fyrir. „Bandarikjamenn vaða uppi með frekja og halda greinilega að þeir séu einir í heim- inum. Forsetinn getur ekki leyft sér að tala svona til þjóðar okkar,“ seg- ir Rafsanjani og vitnar í orð Bush frá þvi í gær þar sem hann sagði að annaðhvort spiluðu íranir með Bandaríkjunum eða á móti. Skipulögðu árás- ir á bandaríska hermenn Samkvæmt upplýsingum stjórn- valda í Singapúr undirbjuggu íslömsku hryðjuverkamennirnir sem handteknir voru í síðasta mánuði árásir á bandaríska hermenn sem staðsettir eru i Singapúr. Sem dæmi var sprengjuárás fyrirhuguð á fólks- flutningabíl sem flytja átti hermenn frá flotastöð til neðanjarðarlestar- stöðvar í miðborginni og önnur á bandarísk flutningaskip sem lágu við festar í höfninni. Alls voru fimmtán manns handteknir, en tveimur þeirra var sleppt eftir yfirheyrslur. Sönnun- argögn, m.a. á myndbandi, sem fund- ust við handtökurnar, sýndu að árás- irnar voru vel skipulagðar og aðeins framkvæmdin eftir. Afganskur lögreglumaður. Þrjátíu þúsund manns í nýju lög- regluliði Afgana Að sögn Yunus Qanooni, innan- ríkisráðherra í nýrri ríkisstjóm Afganistans, hafa afgönsk stjóm- völd samþykkt reglur að skipan nýs lögregluliðs landsins sem í upphafi verður skipað um 30 þúsund manns frá öllum 32 héruðum landsins. „í fyrstu verða 100 manns kallaöir til starfa frá hverju héraði og verða þeir við þjálfun í heilan mánuð áð- ur en þeir taka til starfa, en þeir fyrstu munu sinna skyldustörfum í höfuðborginni Kabúl,“ sagði Qanooni. Kasmírdeilan: Sextán manns féllu í átökum gærdagsins REUTERMYND Chirac heiörar minningu gamallar stríðshetju Jacques Chirac Frakklandsforseti á smásteinóttri stétt í París á leiö til minningarathafnar um stríöshetjuna Marechal Delatre de Tassigny, en í gær voru fimmtán ár liöin frá dauöa hans. Að sögn S. Padmanabhan, hátt- setts foringja í indverska hernum, hefur ekkert lát orðið á árásum að- skilnaðarsinna á síðustu þremur mánuðum, þrátt fyrir baráttu að- þjóðasamfélagsins gegn hryðjuverk- um í heiminum, sem Pakistanar taka þátt í. „Það hefur lítið sem ekkert verið aðhafst af hálfu pakistanskra yfir- valda til að draga úr hryðjuverkun- um í eigin landi,“ sagði Padmanab- han og bætti við að indverskar ör- yggissveitir hefðu fellt að meðaltali um þrjú hundruð meinta hryðju- verkamenn í hverjum mánuði síðan í júní. „Þetta eru skelfilegar stað- reyndir og ég vona að Musharraf grípi sem fyrst í taumana með að- gerðum í samræmi við baráttuna gegn hryðjuverkum," sagði Pad- manabhan sem bíður spenntur eftir þjóðarávarpi Musharrafs sem hann flytur væntanlega í dag. Sextán manns, flestir félagar í samtökum aðskilnaðarsinna í Kasmír, féllu í skotbardögum milli indverskra stjórnarhermanna og kasmískra aðskilnaðarsinna í gær. Sex þeirra féllu í skotbardaga í An- antnag-héraði suður af borginni Srinagar, en til átaka kom á svæð- inu eftir að einn aðskilnaðarsinna henti handsprengju að indverskum herflutningabíl. Sprengjan hæfði þó ekki bilinn og hlutust engar skemmdir eða meiðsli af, að sögn talsmanns indverska hersins. Þá kom til skotbardaga í Kapran- héraði í nágrenni Srinagar, þar sem indverskur hermaður, óbreyttur borgari og þrír aðskilnaðarsinnar, þar af einn pakistanskur, féllu. Að síðustu féllu fjórir aðskilnað- arsinnar, einn indverskur landamæravörður og óbreyttur borgari í tveimur skotbardögum í Valley-héraði. Indverskur öryggisvörður Indverskir öryggisveröir í Kasmír hafa í mörg horn aö líta vegna stööugra árása aöskilnaöarsinna. Israelar leggja flug- völlinn í Gaza í rúst ísraelsku herjarðýturnar, sem í gærmorgun réðust inn á aðþjóða- flugvöllinn í Gaza í skjóli skrið- drekasveitar, linntu ekki látum fyrr en búið var að eyðileggja flugbraut- ir vallarins, þrátt fyrir að þær hafi ekki verið í notkun síðan ófriðar- bálið kviknaði fyrir botni Miðjarð- arhafs í september sl. Eyðileggingin á flugvellinum hófst stuttu eftir að Bush Banda- ríkjaforseti sagðist vera farinn aö gruna að vopnin sem ísraelsmenn uppgötvuðu í skipi á Rauðahafi í síðustu viku hefðu verið ætluð til hryðjuverka í Miðausturlöndum. Bush sakaði þó Yasser Arafat ekki um beinan þátt í vopnamálinu eins og Ariel Sharon, forsætisráð- herra ísraels, hefur ítrekað gert, en sagði þó að sönnunargögn bentu til að palestínsk stjómvöld væru við- riðin málið. Gælt viö byssuna ísraelskur hermaöur gælir viö skriödrekabyssuna sína eftir aö hafa skotiö nokkrar íbúöabyggingar í rúst í Rafah-flóttamannabúöunum. Að sögn Iman Farris, talsmanns ísraelska hersins, var eyðilegging flugvaUarins og íbúðarbygginganna í Rafah-flóttamannabúðunum í fyrra- dag ekki bein hefndaraðgerð heldur aðeins viðvörun til palestínskra yfir- valda rnn það hvað geti gerst og hvað muni gerast haldi hryðjuverkin áfram. Flugbrautirnar í Gaza höfðu ný- lega verið gerðar upp, eftir svipaðar aögerðir ísraelmanna í desember sl., en í gær réðust jarðýtur ísraela einnig að samgönguleiðum til Rafah- búðanna og grófu þær í sundur. Palestinsk yfirvöld gagnrýndu að vonum aðgerðirnar og sögðu að þær gerðu ekki annað en auka á ofbeldið. Þá tilkynntu ísraelsk yfirvöld að níu Palestínumenn hefðu verið handteknir í gær, flestir grunaðir um aðild að vopnasmygli, þó ekki í sambandi við vopnaskipið. Stoiber kanslaraefni KD Edmund Stoiber verður næsta kanslaraefni Kristilegra demókrata- flokksins í þingkosningunum sem fram fara í Þýskalandi í september nk. Þetta kom fram i ávarpi Angelu Merkel, formanns flokksins, á flokksstjórnarfundi sem haldinn var í Magdeburg í gær, en þar til- kynnti Merkel að hún gæfi ekki kost á sér í slaginn gegn Gerhard Schröder. Samdráttur hjá Ford Ford-bílaverksmiðjurnar i Banda- ríkjunum, sem eru þær næst- stærstu í heiminum, hafa tilkynnt að til standi að loka fimm af verk- smiðjum þeirra í Norður-Ameríku, sem þýðir að allt að 22 þúsund manns missa vinnuna. Bill Ford, nýr framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins, segir þetta sársaukafulla ákvörðun en nauðsynlega vegna samdráttar í sölu og mikils taps á rekstri síðasta árs. Börnin aftur í skólann Skólar á miðju óróasvæðinu í Belfast á Norð- ur-írlandi voru opn-aðir aftur í gær eftir tveggja daga látlausar óeirðir, þar sem um 40 lögreglu- menn hafa slasast. Að sögn séra Aiden Troy, talmanns stjórnvalda, var ákveðið að opna skóla strax og endi var bundinn á óeirðirnar. „Því fyrr því betra og vonandi er þetta yfirstað- ið,“ sagði Troy. r , h Rússneskt gjaldþrot Síðustu frjálsu og óháðu sjón- varpsstöðinni í Rússlandi, TV-6, verður lokað samkvæmt úrskurði gerðardóms í Mosku í gær. Stöðin, sem náði til flestra svæða Rúss- lands, var úrskurðuð gjaldþrota. Var það niöurstaöa dómsins að því bæri að loka henni. Úrskurðurinn hefur verið gagnrýndur og hann sagður enn ein tilraun Vladimirs Pútíns til að hafa áhrif á umfjöllun, en aðaleignadi stöðvarinnar, Boris Berezovsky, fyrrum Kremlverji, er einmitt þekktur fyrir gagnrýni sína á Pútln. Powell styður Israela Colin Powell, utan- ríkisráðherra Banda- ríkjanna, styður þá kröfu ísraelsmanna að palestínsk yfirvöld L’Tms' handtaki þá sem I stóðu að meintu Ay I vopnasmygli um M Rauðahaf og að réttað verði yfir sökudólgunum. Powell lýsti einnig yfir stuðningi við sið- ustu aðgerðir ísraela og sagði þær aðeins varnartilburði gegn aðgerð- um Palestínumanna. „Ef Arafat ger- ir ekki eitthvað í vopnamálinu mun það hafa alvarlegar afleiðingar í samskiptum okkar viö hann,“ sagði Powell sem væntanlega heldur til Afganistans næstu daga. Hart fékk 5 ára dóm Bretinn Gary Hart, sem olli járn- brautarslysinu í Selby i Yorkshire í austurhluta Englands, þar sem tíu manns létu lífið, var í gær dæmdur í fimm ára fangelsi af breskum rétti í Leeds fyrir gáleysislegan akstur. Slysið varð 12. febrúar í fyrra og missti Hart stjórn á Land Rover- jeppa sínum eftir að hafa sofnað undir stýri, með þeim afleiðingum að bíllinn festist á járnbrautartein- unum um leið og hraðlest bar að. Við áreksturinn kastaðist hún í veg fyrir flutningalest sem kom á móti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.