Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Page 18
18
LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________X>V
Allir saman ókeypis
- góðgerðatónleikar í Háskólabíói í fjórða sinn
H j arðsmekkur
Einar Báröarson
Hann segist ætla aö hafa fremur hægt um sig á nýju ári og helga sig nýjum
og breyttum lífsstíl eftir annasamt ár í sviösljósinu.
eða sjálfstæði?
lenda.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna vinnur ómetanlegt starf því
þótt margir eigi stóra fjölskyldu
sem veitir styrk kemur ekkert í
staðinn fyrir þann skilning sem sér-
þjálfað fólk getur veitt fjölskyidum
þegar á bjátar.
Það fer ekki eins vel hjá öllum og
frænda mínum en ekki verður ann-
að séð en hann hafi náð fullum
bata.“
Hefði getað verið verra
Einar var mjög mikið í sviðsljós-
inu síðastliðið ár, bæði í tengslum
við þátttöku íslands í Evróvisjón-
söngvakeppninni og ekki síður i
sambandi við Eldborgarhátíðina
sem var um verslunarmannahelg-
ina. Einar fékk sinn skammt af háði
og spotti fyrir í nýlegu ára-
mótaskaupi.
„Mér fannst skaupið gott og með
þeim betri sem ég hef séð en kom
nokkuð á óvart hvað var mikið gert
úr Evróvisjón en hafði nokkuð gam-
an af. Halldór Gylfason er góður
leikari og náði mér ágætlega og þeir
hefðu sjálfsagt getað farið verr með
mig.“
Meirihluta ársins sem var að líða
var Einar í starfi sem markaðsstjóri
hjá Vísi.is en hætti þar á haustmán-
uðum og hefur starfað sjálfstætt síð-
an í einstökum verkefnum. Hann er
t.d. að vinna fyrir íslenska hljóm-
plötuframleiðendur bæði meðan á
jólasölunni stóð og mun tengjast af-
hendingu íslensku tónlistarverð-
launanna í byrjun febrúar. Þess má
geta að plötusala mun hafa verið í
sögulegu hámarki fyrir þessi jól.
Bíó á bjórdaginn
Heimildarmynd um Eldborgarhá-
tíðina umdeildu verður frumsýnd 1.
mars, daginn sem bjórinn var leyfð-
ur á Islandi. Einar segir að það sé
ekki vegna bjórsins að sá dagur
varð fyrir valinu heldur hafi menn
ekki viljað vera of nálægt frumsýn-
ingu annarrar íslenskrar myndar,
Gemsa, sem verður frumsýnd í byrj-
un febrúar.
„Ég ætla annars að hafa fremur
hægt um mig á nýja árinu og hugsa
meira um sjálfan mig andlega og
líkamlega og gefa fjölskyldunni
meiri tíma. Ég stefni að þvi að hafa
þetta ár rólegra og yfirvegaðra en
það síöasta."
-PÁÁ
Nicole Kidman
Hún átti gott ár og nú biasir óskar-
inn viö.
Nicole Kidman:
Átti
frábært
ár
í upphafi ársins 2000 var Nicole
Kidman enn þá gift Tom Cruise, ioks-
ins orðin ófrísk eftir áralangar til-
raunir en leikferill hennar var ekkert
sérstaklega merkilegur. Nú ári
seinna er hún einstæð móðir tveggja
fósturbarna þeirra Cruise, eftir-
sóttasta leikkona í Hollywood og fyr-
irmynd svikinna kvenna um allan
heim. Þetta er konan sem leggst ekki
víl og vol þótt eiginmaðurinn yflrgefi
hana heldur rís úr öskunni og flýgur
á vit ævintýranna.
Stuttu eftir skilnaðinn við Cruise
missti Kidman fóstur og það gerði
hana að hetju í augum kvenna og hún
fékk samúð þeirra óskipta.
Rauða myllan sem sumir töldu víst
að myndi mistakast hefur reynst vera
stærsti smellur ársins í kvikmynd-
um. Menn eiga ekki orð yfir þessa
stórkostlegu sjónrænu veislu þar sem
öllum listformum er hrært af full-
komnu áhyggjuleysi saman í bragð-
góðan graut. Kvikmyndin The Others
var síðan það sem flestir kalla óvænt-
asti smellur sumarsins eða „sleeper
hit“ eins og það er kallað í
Hollywood. Þannig hefur þetta reynst
vera afar gott ár fyrir Kidman og
flestir telja víst að óskarinn bíði
hennar á þessu ári.
Það stendur mikið til í Háskóla-
bíói á morgun. Þá ætla margar
hendur að leggjast á eitt og halda
tónleika í góðgerðaskyni. Tónleik-
arnir hafa verið haldnir þrisvar
sinnum áður að frumkvæði sama
hóps og allur ágóði rennur til
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna og langveikra barna.
Að sögn Einars Bárðarsonar, sem
er einn þeirra sem standa fyrir tón-
leikunum, gefa allir vinnu sína,
bæði listamenn og aðstoðarmenn,
og undanfarin þrjú ár hafa safnast
um sex milljónir samtals og í ár er
vonast til þess að tveggja milljóna
markinu verði náð.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.00 og standa til 22.00. Forsala að-
göngumiða er þegar hafin í Háskóla-
bíói og kostar miðinn aðeins 2000
krónur.
Á tónleikunum koma fram nokkr-
ar af þekktustu og vinsælustu
hljómsveitum landsins og einnig
söngvarar. Þama verða söngvararn-
ir Páll Rósinkranz, Svala Björgvins,
Védís Hervör og Jóhanna Guðrún
og hljómsveitimar Sálin hans Jóns
míns, Jet Black Joe, Ný Dönsk, Á
móti sól, írafár og í svörtum fótum.
Sálin alltaf með
Einar Bárðarson sagði í samtali
við DV að Sálin hans Jóns míns
hefði þá sérstöðu í hópnum að hafa
komið fram á öllum tónleikunum.
„Það má segja að þetta hafi farið
vel af stað fyrir nærri fjórum árum
þegar við héldum þetta í fyrsta
skipti. Þá var Jóhannes Jónsson í
Bónus kynnir á konsertinum og
tókst afar vel upp.
Annars er það nafni minn, Einar
Björnsson, sem leigir út hljóðkerfi
og ljóskastara, sem er lykilmaður í
þessum undirbúningi en hann lánar
mikið af tækjum og mannskap til að
setja þau upp. Það sama má segja
um Háskólabíói sem leyfir okkur að
vinna þarna að vild og lánar fólk í
miðasölu og þess háttar. Síðan gefa
allir tónlistarmenn vinnu sína.“
Einar sagði að hugmyndin að tón-
leikahaldi þessu hefði kviknað fyrir
fjórum árum og kveikjan má segja
að hafi veriö barátta ungs frænda
Einars sem veiktist af krabbameini
aðeins fimm ára gamall.
„Ég VEir þá í námi erlendis en
þetta snertir mann með öörum
hætti þegar það kemur upp innan
fjölskyldunnar. Þá kemst maður í
nánari snertingu við þetta og skilur
betur þarfir þeirra sem í þessu
Umræðan um hvaða bækur selj-
ast vel og hvaða bækur seljast illa
er alltaf fyrirferðarmikil rétt fyrir
og eftir jól. Hin síöari ár hafa ver-
ið saman settir sérstakir vinsælda-
listar sem upplýsa menn um þetta
og gjarnan skapast auglýsingafár
kringum tvær þrjár bækur sem
hljómar einhvem veginn svona:
„Fyrsta prentun uppseld! Önnur
prentun á leið í verslanir!" eða
„Önnur prentun uppseld! Þriðja
prentun á leiö í verslanir!" Aug-
lýsingar af þessu tagi eiga senni-
lega að hvetja fólk til að fyllast
skelfingu yfir því að það sé að
missa af einhverju og fá það til
þess að gripa veskiö og haska sér í
næstu bókabúð.
Enn í plastinu
Siöasta jólavertíð er engin und-
antekning hvað þetta varðar. Mik-
il múgæsing skapaðist í kringum
nokkrar bækur og svo fór að þær
seldust í fleiri eintökum en áður
hefur gerst. Engu er líkara en að
þetta asnalega auglýsingatrix
bókaútgefenda virki. Um leið og
menn heyri að margir hafi keypt
einhverja bók geri þeir umsvifa-
laust það sama. Rökin eru: „Bókin
hlýtur að vera góð fyrst allir eru
að kaupa hana.“
Það má segja að þeir sem ganga
í liö með hundruöum og hlaupa út
í bókabúð til þess að kaupa bók
sem allir eru að kaupa, séu búnir
svokölluðum hjarðsmekk. Þeir
nenni ekki að koma sér upp eigin
smekk eða grennslast fyrir um
hvaða smekk sá sem þiggur af
þeim bókargjöf hefur heldur fylgi
bara hjörðinni.
Ég fór að hugsa um þetta um
daginn þegar ég reyndi að fá fólk
til þess að segja mér hvað þvi
hefði fundist um vinsælustu bæk-
ur síðustu vertíöar, sem flestir
höfðu fengið í jólagjöf. Öfl voru
svörin á einn veg. Annaðhvort
hafði fólk ekki komið þvi í verk að
lesa bækurnar eða það hafði
hreinlega skilaö þeim!
Margir höfðu ekki fengið bæk-
umar í jólagjöf heldur keypt sér
þær i desember af einskærum bók-
Margir höfðu ekki fengið
bœkumar í jólagjöf héld-
ur keypt sér þœr í desem-
ber af einskœrum bók-
menntadhuga. Einhvem
veginn virtist manni
púðrið til að lesa þessi
tímamótaverk vera farið
úr mönnum eftir áramót.
Þeir sögðust hafa byrjað
á þeim og lesið einverjar
síður, en svo sett þœr upp
í hillu. Aðrir viður-
kenndu að nefndar met-
sölubækur vœru enn í
plastinu.
menntaáhuga. Einhvern veginn
virtist manni púðrið til að lesa
þessi tímamótaverk vera farið úr
mönnum eftir áramót. Þeir sögð-
ust hafa byrjað á þeim og lesið ein-
verjar síður, en svo sett þær upp í
hillu. Aðrir viðurkenndu aö nefnd-
ar metsölubækur væru enn í plast-
inu.
Gyrðir eða prósak?
Þær bækur sem lifa með þjóð-
inni eru kannski einhverjar allt
aðrar en þær sem æðinu ollu.
Fyrst og síðast er það nefnilega
notagildið sem öllu máli skiptir.
Sennilega geta metsölubækur síð-
ustu jóla verið undir sömu lögmál
settar og önnur snögg æði hvað
þetta varðar. Fótanuddtækið, sem
var svo heillandi blátt og gaf fyrir-
heit um vellíðan, reyndist of flókið
og illa smíðað og skilaöi eigendum
þess engu nema þreytu og pirr-
ingi. Fótanuddtækiö lenti út í skúr
vegna þess að það reyndust engin
not fyrir það.
Notagildið getur verið misjafnt
eftir bókum og eftir mönnum. Há-
lendishandbókin eftir Pál félaga
minn rokseldist vegna þess að
notagildi hennar er augljóst og
ósvikið. Fólk þarf á þessari bók aö
halda ef það ætlar aö ferðast á
fjöllum. Bækur sem hægt er að
leita aftur og aftur í - bækur sem
eru bæði uppflettirit og skemmti-
lesning eins og Rokksaga Dr.
Gunna munu líka reynast mörgum
vel. Sagði svo ekki Páll Baldvin í
dómi um bók Gyrðis Næturluktina
að landlæknir ætti að útdeila
henni í stað prósaks? Fyrir Páli
Baldvini er texti Gyrðis því geð-
hjálp og kannski er það hjálpin
sem flestir þurfa á að halda. Marg-
ir munu líka vera þannig saman-
settir að þeir lita á lestur sem
hreint sáluhjálparatriði. Þeir
smjatta á orðum, dást að tungu-
máli og stíl og fara nærfærnum
höndum um síður. Þetta eru þeir
sem hafa helst not af listilega
skrifuðum skáldsögum og fogrum
ljóðum.
Þeir sem eru búnir hjarösmekk
ættu að athuga að hver maður þarf
sjálfur að kafa inn í sig og finna
hvaöa bók hann hefur mest not
fyrir. Annars fer fyrir bókunum
eins og blessuðum fótanuddtækj-
unum.