Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Page 25
i- 25 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 13 V________________________________________________________________________________________________Helgarblað Konur og karlar. Jónina segir að konurgeti verió grimmar og óvægnar en hún hefur starfað í dæmigerðum karlaheimi árum saman. Hér erJónína með tveimur kraftajötnum af gagnstæðu kyni sem báðir æfa í Planet Gym 80. Til vinstri er Auöunn Jónsson og til hægri Jón Valgeir Williams. ur komnar frá einum samkeppnis- aðilanum mínum og ég veit að hann á þá ósk heitasta að líf mitt verði í takt við lygamar hans. Sögumar um mig og karlmenn sem ég á að hafa verið að hitta hing- að og þangað um bæinn eru helber lygi. Hann dæmir sjálfan sig með þessu bulli. Ég var alltaf trú Jó- hannesi og er stolt af því. Tryggð er nefnilega dyggð. - Hvað er dýrmætast í lífinu? „Það dýrmætasta í lífinu eru bömin okkar og við verndum þau best með því að vera þeim góðar fyr- irmyndir og mér finnst ég ekki alltaf hafa verið það. Ég hef ekki alltaf verið í því jafnvægi sem þarf til að vera góð móðir þótt ég hafi sannarlega reynt.“ Jónína gekk eins og fleiri í gegn- um skilnað fyrir fáum árum og í bók hennar er farið nokkrum orð- um um hamingjusöm hjónabönd og má skilja það svo að hún hafi ekki mikla trú á tilvist þeirra. Hún segist ekki geta metið hvort skilnaðir séu mistök en segist halda að mörg hjónabönd séu mistök en margir staldri aldrei við til þess að íhuga hvernig þeir standi í þessum efnum. „Það þýðir samt ekkert að vera aðeins í baksýnisspeglinum og horfa til baka. Ég get ekki ákveðið fyrir aðra hvort skilnaðir séu mis- tök en líflð snýst um tryggð og traust og maður verður að hcdda áfram að leita að heilbrigðri ham- ingju. Ég skal fmna hana.“ Hroki aö loka sig af Jónína skrifar mikið um það í bókinni hve hættulegt sé fyrir fólk að dæma aðra og velta sér upp úr einkalífl fólks sem er í sviðsljósinu. „Auðvitað, eins og með þessu við- tali, gef ég færi á mér en hitt er svo annað mál að ég hef engan áhuga á því að vinna í felum. Það er viss hroki í því að loka sig af. Setja sig á svo háan hest að almenningur haldi að maður sé úr gulli. Lífið er nefni- lega að gefa og þiggja, ekki bara þiggja. Lífiö er samskipti, ekki ein- leikur. Allt ljótt sem maður heyrir um sjálfan sig særir mann auðvitað og þá skiptir engu máli hvort mað- ur er frægur, fátækur eða ríkur. Ég hef fengið mjög góð viðbrögð frá mörgum konum og er ánægð með það og er mjög hamingjusöm með þau. En ég bið þær í formála bókar- innar að vera ekki að gaspra um það úti í bæ sem þær þekkja í bók- inni því ég er að opna hjarta mitt.“ Jónína aftur ein Jónína hefur ekki farið varhluta af því að sviðsljósið hefur beinst að hennar einkalifi undanfarin miss- eri, sérstaklega sambandi hennar við Jóhannes Jónsson kaupmann og er óhætt að segja að þau hafi verið eitt af mest umtöluðu pörum í opin- beru lífi. Þar hafa orðið breytingar á. „Það skildi leiðir með okkur Jó- hannesi. Það var ekkert auðvelt fyr- ir okkur frekar en aðra en það var orðin þörf á aö byrja nýtt líf og það fer mjög vel á með okkur þrátt fyrir þennan skilnað. Hver endir boðar nýtt upphaf og meira vil ég ekki segja um það. Lífið er ekkert einfalt sem betur fer. Þvert á móti er það mjög flókiö og ég er hamingjusöm í dag, ég sé hins vegar eftir að hafa sært fólkið mitt. Ég hef lært af þessu öllu og er mjög þakklát fyrir það sem ég átti. Maður lærir af öll- um sem maður kynnist og mest af þeim sem eru ólíkastir manni. Samt vill maður að lokum helst binda sig við þá sem eru líkastir manni, þar líður manni best. Ég vil binda mig við sannleikann, heiðarleikann og ástina i allri sinni mynd. Samt er fá- sinna að alhæfa um hjónabandið og ég bið fólk um að líta ekki á mig „Það var líka uppi orðrómur um að Jóhann- es vœri að borga þetta fyrir mig, það stóð aldrei til boða og hefði ég ekki kært mig um það. Hann hefur aldrei borgað neitt fyrir mig prívat eða í rekstrinum og get ég róað fólk með því að íslenskir „milljarðamœringar“ eiga ekki endilega pen- inga. íbúðina og allt sem ég á hef ég alfarið greitt sjálf. Hann fékk hins veg- ar að gista þar um tíma; í mínu húsi. “ sem einhverja fyrirmynd í þeim efn- um því fátt geri ég verr en að vera í hjónabandi." Trúi á ástina - Trúir þú á ástina þrátt fyrir allt? „Ég geri það. Ég vakna á hverjum morgni og hugsa: hverja get ég elsk- að i dag. Ég er rómantísk í eðli minu og vil helst hafa allt fallegt í kringum mig en þannig er raun- veruleikinn ekki. Sumir eru alltaf að leita að því ljóta og ömurlega í lífinu." Jónína vitnar að lokum i Lao-Tse þar sem segir að þúsund mílna ferðalag hefjist á blettinum undir fótum manns. „Maður má ekki semja leikritið, leika sjálfur og gagnrýna það líka. Það er mjög hættulegt. Ég vil bara vinna með heiðarlegu fólki sem sýn- ir öðrum virðingu. Ég hef enga þörf fyrir að verða ríkt lík.“ PÁÁ GÓLFEFNABÚÐIN traust undirstaða fj'ölskyldunnar Borgartúni 33 Reykjavík flísar, plast- og viðarparket .... Vegna fyrirhugaðra breytinga á versluninni býðst nú tækifærí tíl að tryggja sér vandaðar vö.rur frá vióurkenndum framteiðendum á hreint ótrúiegum kjörum. Opið 8-18 mánud.-föstud. og 10-14 iaugard. Tilboðsverð á fylgíefnum s.s. fúgu og filsalÍmL Atfe. útsalan stendur aðefns I fáa daga á meðan bfrgðlr endast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.