Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Page 27
LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002
DV
27
Helgarblað
Sjónvarpsturninn í Shanghai
Guðmundur Guðnason leigubílstjóri stillir sér upp á árbakkanum á Bund. í baksýn er sjónvarpsturninn sem gengur
undir nafninu austurienska perlan og er fjögur hundruð sextíu og átta metra hár. Þeir sem vitja geta leigt
sér herbergi í turninum en það er dýrt.
Þegar horft er yfir borgina frá út-
sýniskúlu austurlensku perlunnar,
sem er fjögur hundruð sextíu og átta
metra hár sjónvarpsturn, má sjá stór
flutningaskip sigla inn í borgina eftir
Huangpu-ánni og byggingarkranana
á New Bund sem kemur til með að
verða helsta flármálahverfi Asíu á
næstu árum. í framtíðinni verður
hæsta bygging í heimi á New Bund en
framkvæmdir við hana hófust í ágúst
1997. Byggingin nefnist The Shanghai
World Financial Center og á fram-
kvæmdum við hana að ljúka árið
2004.
Yuyuan-garðurinn
Þrátt fyrir mikla uppbyggingu hef-
ur gamli hluti bæjarins fengið að
halda sér og verið gerður upp í sinni
upprunalegu mynd.
Þar er ótrúlega fallegur garður sem
heitir Yuyuan sem þýðir friður. Emb-
ætismaðurinn Pan Yun-Duan lét
byggja garðinn fyrir rúmum fjögur
hundruð árum handa foreldrum sín-
um til að njóta friðar í ellinni, en fað-
ir hans hafði gegnt því erfiða embætti
að vera dóms- og refsingarmálaráð-
herra í Shanghai-héraði.
DV-MYNDIR V. HANSEN
Sterk vestræn áhrif
Allt frá því að Vesturlandabúar fóru
að eiga viðskipti við Kína hefur
Shanghai verið ein helsta hafnar-
borg landsins og undir sterkum vest-
rænum áhrifum. Á árunum milli
1920 og 1930 var borginni stjórnað
af giæpaforingjum sem ráku hana í
gegnum næturklúbba, hóruhús og
ópíumbúlur.
Garðurinn, sem er rúmir tveir
hektarar að stærð, er kennslubókar-
dæmi um kínverskan landslagsarki-
tektúr, með stóru stöðuvatni, renn-
andi lækjum, fossum og manngerðum
klettum sem límdir eru saman með
hrísgrjónum. Þar er líka að fmna
skrautleg kínversk garðhýsi og bekki
þar sem gott er að hvíla þreytta fætur
og hlusta á niðinn í vatninu í skjóli
frá skarkala borgarinnar. Einnig er
hægt að fá sér ljúffengt te í fallegu,
gömlu húsi og horfa á guilfiskana
sem synda um í vatninu sem tilheyr-
ir garðinum.
Peace Hotel
Fyrra kvöidið okkar í Shanghai
fórum við að dansa á Peace Hotel sem
á sér langa og skrautlega sögu. Peace
er upphaflega tvö hótel sem sameinuð
voru í eitt árið 1956, fyrir þann tíma
var innangengt á milli hótelanna og
þau höfðu sameiginlegan bar. Á
stríðsárunum var hótelið afdrep þar
sem starfsmenn sendiráða og blaða-
menn vöndu komur sínar og eyddu
nóttinni við drykkju.
Sama djasshljómsveitin hefur
leikið fyrir dansi á hótelinu frá
ómunatíð og sumir hljóðfæraleikar-
arnir eldri en elstu menn muna. í
dag spilar Old Jazz Band aðeins
fyrri part kvölds en yngri menn
taka við klukkan ellefu.
Hljómsveitin spilar eingöngu eftir
pöntun en á borðum er að finna
lagalista sem hægt er að panta lög
eftir gegn ákveðnu gjaldi. Ef enginn
pantar lag sitja meðlimir hljóm-
sveitarinnar bara og horfa út í loft-
ið.
Fornminjar, forvitni og fimi
Þjóðminjasafnið í Shanghai þykir
með betri minjasöfnum í Kína enda
stórt, vel skipulagt og hýsir ótrúlegan
fjölda gripa. Það var mjög gaman að
rölta um safnið og skoða muni frá öli-
um tímum kínverskrar menningar og
lesa um þá hluti sem vekja athygli.
Ekki var síður gaman að babla við
starfsmennina á safninu með
handapati, brosi og grettum og reyna
að gera þeim grein fyrir því hvaðan í
heiminum við værum. Að lokum
greip ég likan af jörðinni og sýndi af-
greiðslustúlkunum í kafFiteríunni Is-
land. Þær trúðu vart eigin augum og
áttu reyndar enn erfiðara með að
trúa því að einhver ætti heima svona
norðarlega og væri hvorki Síberíubúi
eða inúíti og skríktu í einum kór
bingdaó, bingdaó - íseyjan
Seinna kvöldið í Shanghai var far-
ið á akróbatsýningu þar sem sýndar
voru einhverjar þær ótrúlegustu lík-
amskúnstir sem ég hef á ævi minni
séð. Sumar æfingarnar og uppstilling-
arnar voru þess eðlis að ég hefði ekki
trúað þvi að hægt væri að beita
mannslíkamanum á svoleiðis hátt.
Óhugnanlegt en um leið heillandi.
Jaði Búddha-hofið
Það síðasta sem við skoðuðum í
Shanghai var munkaklaustur sem
hýsir hvíta Búddha-styttu úr jaði sem
er rúmlega tonn á þyngd. Styttan er
ótrúlega vel gerð og mikið augnayndi,
ekki síst svipurinn á henni sem er á
einhvem hátt lokkandi en um leið
framandi. Satt best að segja fannst
mér eins og styttan væri lifandi þeg-
ar ég horfði í augun á henni en að
hugur væri einhvers staðar annars
staðar og að hún kærði sig kollótta
um alla túristana sem komu í löngum
röðum til að skoða hana.
Vistarverur munkanna voru í litlu
samræmi við glæsileika salanna þar
sem þeir tilbáðu guði sína. Óteljandi
myndir af jafn mörgum guðum voru í
salnum þar sem munkarnir lágu á
bæn og kyrjuðu möntrur.
Svefnskáli munkanna hafði spart-
verskt yfirbragð, lítið var um þæg-
indi og hreint ótrúlegt hvemig menn-
irnir gátu sofið á hörðum tréplötum
með þunnar ábreiður, en þannig er
víst máttur trúarinnar.
-Kip
Kínverskir dagar
í Laugardalshöll 17. - 20. janúar
Opið
17.-18. janúar kl. 14:00-20:00
19. - 20. janúar kl. 10:00-20:00
Velkomin á vörusýninguna Kínverskir dagar í Laugardals-
höll. Tólf kínversk fyrirtæki kynna hágæða iðnaðarvöru.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna eru til viðtals á staðnum.
Sýningin er opin almenningi.
Heimilistæki Ferðaþjónusta Kínverskur bjór
Iðnaðarvörur Listiðnaður Fatnaður
Gjafavörur Verkfæri Kínverskir listmunir
Smíði fiskiskipa Viðhald fiskiskipa Veiðarfæri
Aðgangur 500 krónur fyrir 12 ára og eldri.
Aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði.
Aðalvinningur er ferð fyrir tvo til Kína.
Skipulagt af China Council for the Promotion of International Trade og China
Chamber of International Commerce. Samstarfsaðilar: (slensk - kínverska
viðskiptaráðið, Kínversk- íslenska menningarfélagið, Viðskiptaþjónusta
utanríkisráðuneytisins og Útflutningsráð Islands.