Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Qupperneq 43
51 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 DV Helgarblað Wijk aan Zee 2002: Kasparov hættir við þátttöku Kasparov er hættur viö þátttöku í Corus-alþjóðaskákmótinu I Wijk aan Zee, Hollandi, og tekur Alexander Morozevich sæti hans. Kasparov veiktist af vírus í síöustu viku sem þýðir að honum er ráðlagt að hvOast næstu vikurnar. Þrátt fyrir að hann hafi orðið að hætta við þátttöku að sinni er mótið afskaplega vel skinað. f A-riðli keppa: Alexander Morozevich (Rússland), Michael Ad- ams (England), Peter Leko (Ungverja- land), Evgení Bareev (Rússland), Loek Van Wely (Holland), Alexander Khalifman (Rússland), Borís Gelfand (ísrael), Rustam Kasimdzhanov (Ús- bekistan), Dreev (Rússland), Alex- ander Grischuk (Rússland), Joel Lautier (Frakkland), Mikhail Gurevich (Belgía), Jeroen Piket (Hol- land) og Jan Timman (Holland). í B- riðli eru: Ivan Sokolov (Bosnía-Her- segóvína), Pavel Tregubov (Rúss- land), Mikhail Krasenkow (Pólland), Friso Nijboer (Holland), Yu (Kína), John Van der Wiel (Holland), Almira Skrypchenko-Lautier (Moldavía), Stefanova (Búlgaría), Peng (Holland), Harmen Jonkman (HoUand), Cuij- pers (HoUand) og Werle (HoUand). Kasparov hefur orðið efstur á þessu móti 3 ár í röð en nú verður nýr sig- urvegari krýndur. Vonandi er Kaspi ekki að gefa neitt eftir sem skákmað- ur og læknast sem fyrst. Skákþing Bandaríkjanna Vestur í Seattle fer fram meist- aramót Bandaríkjanna með 56 kepp- endum, þar af 12 konum. Þetta fyr- irkomulag er nýstárlegt og mætti at- huga að halda íslandsmót með þessu fyrirkomulagi. En líklega tala ég þar fyrir daufum eyrum?! En lít- um á skemmtilega skák frá 2 fyrr- verandi „andófsmönnum" í Sovét- inu. Þeir hafa báðir verið búsettir vel á annan áratug vestra þó Gulko sé farinn að tefla misjafnar en oft áður. Hvítt: Borís Gulko (2601) Svart: Alexander Shabalov (2606) Nimzo-indversk vörn Meistaramót Bandaríkjanna (4) 08.01. 2002 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0-0 5. Bd3 d5 6. a3 Bxc3+ 7. bxc3 dxc4 8. Bxc4 c5 9. Rf3 Dc7 10. Ba2 b6 11. 0-0 Rbd7 12. Bb2 Bb7 13. c4 Hfd8 14. Hel Hac8. Ein- hvern tímann hefði Gulko tekið það rólega og leikið 15. Hcl. En menn segja að skákstíUinn verði óstýrilát- ari fyrir vestan, hvassari og áhættu- samari. En svona eru víst Bandarík- in? 15. d5?! exd5 16. cxd5 c4 17. e4 b5 18. Rd4 De5 19. Df3 He8 20. Habl. Hér upphefst mikill skotbardagi og sviptingar. En Shabalov hefur löngum verið þekktur fyrir ílækjur miklar, enda uppalinn í borg meist- ara Tals, Riga í Lettlandi. 20. - Rxe4 21. Rxb5 Dxd5 22. Rxa7 Hb8 23. Hedl De6 24. Rb5 Dg6 25. Dh3 Rdc5 26. Rc3. Hér hefur Gulko sennilega talið stöðu sína trausta en svartur lumar á óvæntum leik. 26. - Rd2! 27. Hbcl Ef 27. Hxd2 Dxbl fylgt af máti með hrók í borðinu. 27. - Bc8! Set- ur á tvo menn í einu, drottninguna og biskupinn á b2. Sannarlega óvænt uppákoma. 28. Bbl Rxbl 29. De3 Bb7 O-l. Sævar Bjarnason skrifar um skák Skákþátturinn Svíinn Ulf Andersson var um ára- bil stigahæsti skákmaður Norður- landa og er enn í fremstu röð. Á sterku skákmöti í Pamplona á Spáni vann hann sigur á Englend- ingnum Stuart Conquest á sinn sér- staka hátt. Hvítt: UÍf Andersson (2601) Svart: Stuart Conquest (2601) Slavnesk byrjun. Pamplona Spáni (6), 2.1. 2002 1. RÍ3 d5 2. d4 c6 3. c4 dxc4 4. e3 Be6?! Svona hálf-„Benónýskur“ leikur, frumlegur. Þeir hafa verið að reyna þetta, ungu mennirnir, en Ulf er þrautreyndur í svona ævin- týrum. Hann einfaldlega einfaldar taflið og lætur sér nægja aðeins betra tafl eða jafntefli ef það bregst að kreista fram eitthvað bitastætt. 5. Rc3 b5 6. a4! b4 7. Re4 Rf6 8. Rc5! Bd5 9. Bd2 e6 10. Hcl Bxc5 11. dxc5 Ra6 12. Bxc4 Rxc5 13. Bxb4 Db6. Nú hefur „Uffe“ fundist málin vera farin að flækjast dálítið. Hann einfaldar taflið. 14. Bxc5! Dxc5 15. Bxd5 Dxd5. Sterk staða og veikt peð á c6. Það er óþarfi að gera stutt jafntefli strax. 16. 0-0 0-0 17. Dc2 Hfc8 18. Hfdl Da5 19. h3 h6 20. Hd4 Hab8 21. Hc4 c5 22. Re5 Hb4. Það eru fleiri en' Magnús Aléx- andersson sem hafa bent á áhrifa- mátt þess'að „fimmfalda" í línvfjinf,; Hvítur nær-núwinningsstöðu a^ém- faldan hátt! 23.' Hxc5! Hxc5 Z4. Dxc5 Dxc5 25. Hxc5 Hxa4 26. Hc8+ Kh7. það er athyglisvert hversu áreynslulaust þessi staða kom upp. Og nú fellur peð og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum: 27. Rxf7 Hal+ 28. Kh2 Ha2 29. Hh8+ Kg6 30. Re5+ KÍ5 31. Rd3 e5 32. Hb8 a6 33. Hb6 Ha5 34. f3 h5 35. e4+ Kg6 36. Kg3 Kf7 37. Hb7+ Kf8 38. Kh4 1-0. FIDE janúar - Elo-listinn 2002 Kasparov (2838) og Kramnik (2809) eru enn í fyrsta og öðru sæti þrátt fyrir að hafa aðeins teflt 4 kappskák- ir hvor á móti öðrum undanfarna mánuði og þær voru ekki reiknaðar til stiga. Anand (2757) heldur áfram að lækka á stigum og nálgast nú næstu menn fyrir neðan sig töluvert en heldur þriðja sætinu. Michael Ad- ams (2742) nær fjórða sætinu aftur, rétt á undan Alexander Morozevich (2742) sem er fimmti. Veselin Topa- lov (2739) er sjötti. Keppendurnir sem tefla um heimsmeistarptitlil FIDE nú í janúar eru svo næstir. Ponomariov nær einu af 10 efstu sætunum í fyrsta skipti og er stigahæstur Úkraínubúa með 2727 og hækkar úr 2684. Hann er . 10 stigum hærri en Vassilí ívantsjúk sem hefur lækkað niður í 2717. (Ein- vígi þeirra á að byrja um miðjan mánuðinn.) Shirov nær aftur inn á meðal 10 efstu eftir að hafa lækkað örlítið á undanförnum listum, með 2715. Peter Leko (2713) fer úr 5. sæti í 10. Aðrir athyglisverðir skákmenn: Kiril Georgiev fellur úr 18. sæti í 33., Michal Krasenkow er kominn í 55. sætið eftir mikið fall á stigum frá aprílmánuði, Macieja skilar sér aftur á meðal 100 stigahæstu í 72. sætið, Baklan einnig í það 74., Zdenko Kozul kemur inn í 77. sætið. Banda- ríkjamaðurinn Shabalov nær aftur inn i 79. sætið. Það eru nokkrir sem ná inn á 100 stigahæstu í fyrsta skipti. Hannes H. Stefánsson (2604) er í 83. sæti og þriðji stigahæsti Norður- landabúinn. Ioannis Papaioannou (2601) er í 85. sæti. Glek nær inn aft- ur á 100 stigahæstu í 86. sætið, Epis- hin (2599) nær einnig inn aftur eftir að að hafa tapað yflr 100 elo-stigum á sex mánuðum! Undrabamið Teimour Radjabov nær loks inn á meðal 100 stigahæstu. Hann byrjaði árið með 2483 en er núna með 2599. Líklega á hann eftir að hækka enn meira á komandi misserum. Lajos Portisch (2596) er kominn aftur meðal 100 stigahæstu eftir nokkurra ára fjar- veru. Peter Heine Nielsen (2642) er efstur Norðurlandabúa í 47. sæti. Annar Dani, Curt Hansen, er í 71. sæti. Svíinn Ulf Andersson er í 97. sæti með 2598. Þeir sem detta af lista þeirra 100 stigahæstu eru m.a. Jaan Ehlvest (fellur úr 2626 í 2589), Gil- berto Milos og John Nunn detta allir út af listanum yfir 100 stigahæstu. Einvígi Hannesar og Shorts Því lýkur nú um helgina og skora ég á skákáhugamenn að taka þátt í líflegum umræðum um skák í Ráð- húsi Reykjavíkur, eins og þær um- ræður voru hvað bestar í gamla daga! 5. skákin hefst í dag, kl. 17, og 6. og síðasta skákin verður tefld á morgun og byrjar kl. 14. Aðgangur er ókeypis. íslandsmót barna Sverrir Þorgeirsson sigraði á ís- landsmóti barna. Sverrir hlaut 8 vinninga af 9 mögulegum. Annar varð Ásgeir Mogensen með 7,5 vinn- inga. Þessir tveir verða fulltrúar ís- lands í e-flokki Norðurlandamótsins í skólaskák sem fram fer i Danmörku um miðjan febrúar. Ólafur Evert Garrí Kasparov Veiktist af vírus og var ráölagt aö hvílast. sigraði í undankeppni um annað sæt- ið í d-flokki og verður þar fulltrúi ís- lands ásamt Atla Frey Kristjánssyni. Skákþing Reykjavíkur Eftir 2 umferðir hafa 7 keppendur tvo vinninga en það eru: Stefán Kristjánsson, Björn Þorfinnsson, Sig- urður Páll Steindórsson, Júlíus Frið- jónsson, Haraldur Baldursson, Lenka Ptácniková og Sigurður G. Daníels- son. í 3. umferð mætast m.a.: Stefán- Sigurður Páll, Júlíus-Björn, Harald- ur-Lenka og Sigurbjörn J. Bjömsson og Sigurður G. Daníelsson. Keppend- ur eru um 56 talsins. I UTON 1,16 viu ÞtGftR Þfl VIHVUfb HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Fððu þér miða í 800 6611 eða á hhi.is Einfaldleikinn er lika fagur og tækjasalur og sund á sama stað í Hafnarfirði og Kópavogi Kortið gildir i sal og sund á þeim staðsemþaðer keypt. AÍIIr starfsmenn Nautiiuseru menntaðir íþróttakennarar. Hver einstaklingur fær leiðsögn í tækjunum i byrjun og sérsniðna æfingaáætlun. Panta þarf tímann með fyrirvara. Wáraaidurstakmark. Árskort á tilboði 21.990 kr. (1.833 kr. á mánuði) Athugið tilboðið gildir til 20. janúar 2002 Nautilus á íslandi Sundlaug Kópavogs sími 570 0470 og Suðurbæjarlaug Hafnarfirði sími 565 3080

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.