Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Síða 47
55 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 X>v___________________________________________________________________________________________ íslendingaþættir Stórafmæli Sunnudagurinn 13. janúar 85 ára_________________________________ Svava Þorbjarnardóttir, Öldugötu 33, Reykjavík. 75 ára_________________________________ Þórunn Guömundsdóttir, Sóltúni 28, Reykjavík. Bjarni Guömundsson, Bæ 3, Drangsnesi. 70 ára_________________________________ Hermína Jónsdóttir, Lönguhlíö 5g á Akureyri, veröur sjötug mánud. 14.1. Af þvi tilefni taka hún og fjölskylda hennar á móti gestum í sal Hjálpræðishersins, Hvannavöllum 10, laugardaginn 12.1 kl. 16.00-19.00. Þórlaug Júlíusdóttir, Suöurbraut 6, Hafnarfiröi. Anna Ingólfsdóttir, Hnaukum, Djúpivogi. 60 ára_________________________________ Kristmundur Sigurösson, Seljabraut 42, Reykjavík. Aldís Hjaltadóttir, Lágabergi 9, Reykjavík. Sóiveig Þ. Ásgeirsdóttir, Stelkshólum 2, Reykjavík. Hjörtur Guöbjartsson, Hlíöarhjalla 41e, Kópavogi. Sigurbjörn Einarsson, Túngötu 8, Bessastaöahreppi. 50 ára_________________________________ Sigurður I. Ragnarsson, Skúlagötu 74, Reykjavík. Árni Ólafur Ingvason, Kársnesbraut 61, Kópavogi. Pálína Björk Jónsdóttir, Dufþaksholti, Rangárvallasýslu. 40 ára_________________________________ Vífill Sigurösson, Efstasundi 48, Reykjavík. Hulda Sjöfn Ólafsdóttir, Flúðaseli 61, Reykjavík. Helgi Bjarnason, Foldasmára 13, Kópavogi. Bergþóra Ragnarsdóttir, Miðvangi 104, Hafnarfiri. Einar Brandsson, Vesturgötu 123, Akranesi. Guömundur S. Ásgeirsson, Móholti 3‘, Isafiröi. Rósa Fanney Friðriksdóttir, Melavegi 8, Hvammstanga. Þórir Þórisson, Reykjum, Árnessýslu. Jarðarfarir Minningarathöfn um Ólaf Guttormsson, Hólalandi 16, Stöðvarfirði, veröur haldin í Fossvogskirkju miövikud. 16.1. kl. 15.00. Ása G. Stefánsdóttir, Krummahólum 4, Reykjavík, veröurjarösungin frá Árbæjarkirkju mánud. 14.1. og hefst athöfin kl. 13.30. Jökull Már Bjarkason lést fimmtud. 3.1. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugard. 12.1. kl. 14.00. Ólafur Hólmgeir Pálsson múrarameistari, Starengi 94, veröur jarösunginn frá Háteigskirkju mánud. 14.1. kl. 13.30. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Fáöu þér miöa 1800 6611 eöa á hhi.is Smáauglýsingar DV 550 5000 Hundrað ára____________________________ Fríður Sigurjónsdóttir ljosmooir Fríður Sigurjónsdóttir ljósmóðir, Hrafnistu í Reykjavík, verður hundrað ára á morgun. Starfsferill Fríður fæddist á Sandi í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp til 1906 er fjölskylda hennar flutti að Einarsstöðum í Reykjadal þar sem hún bjó til 1913. Þá fluttist fjölskyldan að Litlu-Laugum i Reykjadal. Fríður var í unglingaskólanum að Breiðumýri i Reykjadal 1921-22 og lauk ljósmóðurprófi frá Ljós- mæðraskóla íslands 1933. Fríður var ljósmóðir i Borgarnesi 1933-36, við Landspítalann 1936-37, á Akureyri 1937-55 og á Sólvangi í Hafnarfirði 1955-72. Fjölskylda Systkini Fíðar: Arnór f. 1.5. 1893, d. 24.3. 1980, skólastjóri Alþýðuskól- ans á Laugum og rithöfundur; Sig- urbjörg f. 1894, dó tveggja ára; Unn- ur, f. 13.7. 1896, d. 14.3. 1993, hús- freyja á Laugabóli í Reykjadal; Áskell, f. 13.3. 1898, d. 19.12. 1997, bóndi og oddviti Laugafelli í Reykja- dal; Dagur, f. 22.4. 1900, d. 10.2. 1978, skólastjóri barnaskólans á Litlu- Laugum; Sigurbjörg, f. 19.2. 1904, d. 14.8.1998, ráðskona á Litlu-Laugum; Halldóra, f. 26.6. 1905, d. 10.4. 1994, skólastjóri Húsmæðraskólans á Laugum; Ingunn, f. 24.11. 1906, d. 20.5.1931; Ásrún, f. 16.7.1908, d. 13.4. 1984, hjúkrunarkona; Bragi, f. 9.11. 1911, d. 29.10. 1995, alþm., ritstjóri Alþýðumannsins, bankastjóri og skáld. Uppeldisbróðir Fríðar var Gísli T. Guðmundsson, f. 22.3. 1915, 1915, d. 30.11. 1991, systursonur Sigurjóns, póstmaður í Reykjavík. Fríður hefur borið velferð systk- inabarna sinna mjög fyrir brjósti. Allt fram á þennan dag hefur hún fylgst vel með hvað á daga stórfjöl- skyldunnar drífur og verið með all- ar upplýsingar á reiðum höndum um helstu viðburði í lífi hennar. Vilji menn leita frétta af frændfólk- inu er vísast að Fríður geti veitt þær. Systkinabörn Fríðar eru þrjá- tíu og fjögur og frá þeim kominn mikill fjöldi afkomenda. Þau hafa ætíð sýnt Fríði frændrækni en að öðrum ólöstuðum fer þar fremst Þórunn Bragadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, sem hefur verið henni ómetanleg hjálparhella hin síðari ár. Fríður bjó í eigin hús- næði þar til fyrir tveimur árum að hún flutti að Hrafnistu í Reykjavík. Foreldrar Fríðar voru Sigurjón Friðjónsson, f. 22.9. 1867, d. 26.5. 1950, bóndi, oddviti, alþm. og skáld, og k.h., Kristín Jónsdóttir, f. 22.10. 1867, d. 29.10. 1928, húsfreyja. Ætt Sigurjón var bróðir Guðmundar, skálds og b. á Sandi í Aðaldal, fóður Bjartmars alþm. og Heiðreks skálds. Annar bróðir Sigurjóns var Erling- ur, kaupfélagsstjóri og alþm. Systir Sigurjóns var Áslaug, móðir Karls fsfelds rithöfundar. Sigurjón var sonur Friðjóns, b. á Sílalæk og Sandi, Jónssonar, b. á Hafralæk, Jónssonar, b. á Hólmavaði, Magnús- sonar, ættföður Hólmavaðsættar Jónssonar. Móðir Sigurjóns var Sigurbjörg Guðmundsdóttir, b. á Sílalæk, Stef- ánssonar, b. þar, Indriðasonar, ætt- föður Sílalækjarættar, Árnasonar. Kristín var systir Bjöms, rit- stjóra Fróða á Akureyri. Kristín var dóttir Jóns, b. á Rifkelsstöðum, Ólafssonar og Halldóru, systur Ein- ars, alþm. i Nesi, langafa Gunnars J. Friðrikssonar, fyrrv. formanns VSf. Hálfbróðir Halldóru var Gísli, faðir Garðars stórkaupmanns, afa Garðars Halldórssonar arkitekts og Garðars Gíslasonar hæstaréttar- dómara. Þá var Gisli langafi Þórs Vilhjálmssonar dómara. Annar hálf- bróðir Halldóru var Ásmundur pró- fastur, faðir Einars Morgunblaðsrit- stjóra. Halldóra var dóttir Ásmund- ar hins ættfróða, hreppstjóra á Þverá, Gíslasonar, b. í Nesi. Móðir Halldóru var Guðrún Björnsdóttir, umboðsmanns í Lundi, bróður Kristjáns ríka á Illugastöðum, fóður Sigurðar á Hálsi, langafa Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Níræð II Fimmtugur Kristín Sigurðardóttir Haraldur Hauksson húsmóðir í Borganesi læknir á Akureyri Kristín Sigurðardóttir, Borgarbraut 65A, Borgar- nesi, er níræð í dag. Starfsferill Kristín fæddist á Þið- riksvöllum við Hólmavík og ólst upp á Drangsnesi til átta ára aldurs og síð- an á Akureyri. Hún stundaði nám við Bama- skólann á Akureyri. Kristín var húsmóðir á Hólmavík 1931-52 og í Jafnaskarði í Staf- holtstungum 1952-60 er hún flutti í Borgarnes þar sem hún býr enn. Fjölskylda Kristín giftist Andrési Konráðs- syni, f. 15.6. 1906, d. 4.5. 1994, verka- manni og bónda, syni Konráðs Kon- ráðssonar, f. 14.6. 1870, sjómanns i Ólafsvík, og Jóhönnu Þórðardóttur, f. 25.5. 1878, húsfreyju. Börn Kristínar og Andrésar eru Sæunn, f. 30.11. 1930, húsmóðir í Vonarholti á Kjalarnesi, gift Sigurði Sigurðssyni og eiga þau fimm börn; Guðrún, f. 7.10. 1932, fyrrv. banka- starfsmaður í Reykjavík, gift Magn- úsi Hallfreðssyni; Konráð f. 7.10. 1932, framkvæmdastjóri Loftorku í Borgarnesi, kvæntur Margréti Björnsdóttur og eiga þau fimm böm; Ari Gísli, f. 25.9 1938, d. 12.11. 1950; Guðleif, f. 19.6. 1941, for- stöðumaður í Borgarnesi, gift Ottó Jónssyni og eiga þau þrjú börn; Anna Mar- ía, f. 5.8. 1948, hjúkrunar- ráðgjafi í Noregi; Arn- heiður, f. 6.11. 1950, þroskaþjálfi í Noregi, og á hún þrjú börn. Systkini Kristínar, sammæðra: Magnína Sveinsdóttir; Úraníus Guð- mundsson. Systkini Kristínar, samfeðra: Jó- hannes Sigurðsson, látinn; Valdi- mar Sigurðsson, látinn; Karítas Sig- urðardóttir, dó ung; Ingibjörg Sig- urðardóttir, rithöfundur í Sand- gerði; Jenný Sigurðardóttir, búsett í Sandgerði. Foreldrar Kristínar voru Sigurð- ur Óli Sigurðsson, f. 2.1.1875, bóndi í Súðavík-Rúfeyjum, og Pálína Sam- úelsdóttir, f. 10.6.1871, húsfreyja. Fósturforeldrar Kristinar voru Jón Jónsson, kennari á Drangsnesi, og Anna Árnadóttir húsmóðir. Kristín tekur á móti gestum í dag í samkomusalnum Borgarbraut 65 A, Borgarnesi, eftir kl. 15.00. Hún af- þakkar vinsamlega blóm og gjafir. Haraldur Hauksson, sér- fræðingur í skurðlækning- um við Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri, Eikar- lundi 22, Akureyri, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Haraldur fæddist á Ak- ureyri og ólst þar upp fyrstu árin en síðan í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1972, embætt- isprófi í læknisfræði frá HÍ 1978, stundaði framhaldsnám í Falun og Malmö í Svíþjóð 1981-89, öðlaðist sérfræðileyfi í almennum skurð- lækningum á Islandi 1985, í Svíþjóð 1986 og í æðaskurðlækningum sem undirsérgrein á íslandi 1991. Haraldur hefur verið sérfræðing- ur á handlæknisdeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri frá 1989, var kennari við Hjúkrunarskóla Is- lands 1978-79 og er kennari við hjúkrunarbraut HA frá 1991. Haraldur sat í Starfsmannaráði FSA 1991-95, var formaður í tvö ár, sat í stjórn læknaráðs FSA 1992-96, hefur gegnt nefndarstörfum á veg- um þess, var gjaldkeri Læknafélags Akureyrar 1995-96 og ritari Æða- skurðlækningafélgs íslands frá 1997. Fjölskylda Haraldur kvæntist 25.8. 1979 Sigrúnu Krist- jánsdóttur, f. 31.8. 1954, læknaritara. Hún er dóttir Kristjáns Bjarna- sonar og Mekkínar Guðnadóttur, bænda í Sigtúnum í Eyjafjarðar- sveit. Böm Haralds og Sig- rúnar eru Kristín Þóra, f. 4.5. 1979, háskólanemi í Álaborg, en sambýlismaður hennar er Jón Gunnar Benjamínsson; Laufey Sig- rún, f. 16.8. 1982, nemi við MA; Þórný Linda, f. 28.9. 1985, nemi við MA. Systkini Haralds: Jóhann Svanur Hauksson, f. 21.12. 1953, lögfræðing- ur hjá Lögreglunni í Reykjavík; Ei- ríkur Hauksson, f. 4.7. 1959, tónlist- armaður og kennari í Frederiksstad i Noregi; Laufey Sigrún Hauksdótt- ir, f. 22.4. 1961, sjúkraþjálfari við Landsspítalann, Grensásdeild; Haukur Hauksson, f. 23.12.1963, sál- fræðingur í Reykjavík. Foreldrar Haralds: Haukur Ei- ríksson, f. 30.8. 1930, d. 25.9. 1963, blaðamaður við Morgunblaðið, og Þórný Þórarinsdóttir, f. 22.3. 1931, kennari í Reykjavík. Henný Hermannsdóttir danskennari, Lautasmára 51, Reykjavík, verður fimmtug á morgun. Starfsferill Henný fæddist í Reykjavík. Hún hefur dansað frá því hún man eftir sér. Á bamsaldri og unglingsárunum stundaði hún nám í samkvæmis- dönsum hjá fóður sínum jafnhliða tólf ára námi í klassískum bcillet og jassballet við Þjóðleikhúsið. Eftir gagnfræðapróf stundaði hún nám í danskennslu á íslandi, við Carlsens Institut í Kaupmannahöfn 1967, í London 1968 og aftur í Carlsens Institut þar sem hún lauk prófum. Hún kenndi síðan dans við Dans- skóla Hermanns Ragnars til 1997. Henný starfaði hjá Loftleiðum við flugafgreiðsluna á Keflavíkurflug- velli 1971-74, var flugfreyja hjá Loft- leiðum og síðar Flugleiðum 1973-82 með hléum, rak tískuverslun í Reykjavík í fimm ár og var fararstjóri hjá Sunnu á Mallorca sumarið 1977. Henný var kjörinn Miss Young International á samnefndri fegurðar- samkeppni í Tokyo 1970 og fór í þriggja mánaða sýningarferð til Ástralíu í kjölfar þess. Hún er einn af aðalstofnendum Módel- samtakanna og starfaði við tískusýningar hér á landi i u.þ.b. tuttugu ár. Henný situr í stjórn Danskenn- arasambands Islands og starfar í ýmsum nefndum á vegum Dans- ráðsins. Fjölskylda Fyrsti maður Hennýjar er Guð- mundur S. Kristinsson, f. 28.12.1936, d. 22.1. 1993, flugafgreiðslumaður. Dóttir Hennýjar og Guðmundar er Unnur Berglind, f. 3.12. 1977, danskennari og háskólanemi, en sambýlismaður hennar er Ilhan Erkek veitingamaður. Annar maður Hennýjar er Gunn- ar Árnason, f. 14.2.1957, d. 23.5.1997, sýningarstjóri. Sonur Hennýjar og Gunnars er Árni Henry, f. 26.9. 1982, mennta- skólanemi, en sambýliskona hans er Jórunn Jónsdóttir menntskóla- nemi og er sonur þeirra Alexander Svavar, f. 7.12. 2000. Eiginmaður Hennýjar er Baldvin Berndsen, f. 27.2. 1943, fram- kvæmdastjóri. Foreldrar hans: Ewald Berndsen, f. 1918, d. 1998, framkvæmdastjóri í Reykjavík, og k. h., Jóhanna Sigríður Baldvins- dóttir, f. 1918, húsmóðir. Börn Baldvins eru Baldvin Örn, f. 1962, maki Berglind Helgadóttir og eiga þau tvö börn; Jóhanna Sigríð- ur, f. 1964; Ragnar Baldvin, f. 1976; Margrét Lára, f. 1979; Ewald, f. 1981. Bræður Hennýjar: Arngrímur, f. l. 12. 1953, stjórnarformaður ís- lenskra ævintýraferða; Bjöm, f. 26.8. 1958, rekstrarfræðingur. Foreldrar Hennýjar: Hermann Ragnar Stefánsson, f. 11.7. 1927, d. 10.6. 1997, danskennari í Reykjavík, og k.h., Unnur Ingeborg Arngrims- dóttir, f. 10.1. 1930, danskennari og framkvæmdastjóri Módelsamtak- anna. Sambýlismaður Unnar er Gunnar Valgeirsson flugvirki. Ætt Hermann var sonur Stefáns Sveinssonar frá Hvammstanga, verkstjóra á Kirkjusandi, og Rann- veigar Ólafsdóttur. Unnur er dóttir Arngríms, skóla- stjóra Melaskólans, Kristjánssonar, b. á Sigríðarstöðum, bróðir Helgu, móður Jóns Péturssonar, prófasts á Kálfafellsstað. Kristján var sonur Skúla, b. á Sigríðarstöðum, Krist- jánssonar og Elísabetar Þorsteins- dóttur. Móðir Elísabetar var Guð- rún Jóhannesdóttir, b. í Leyningi, Halldórssonar. Móðir Arngríms var Unnur Jóhannsdóttir, b. á Skarði í Grýtubakkahreppi, Bessasonar. Móðir Unnar Arngrimsdóttur var Henny Othelie, f. Helgesen, í Bergen, húsmóðir. Henný er í París á afmælisdag- inn. Fimmtug_________________________________ '___________________ Henný Hermannsdóttir danskennari í Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.