Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Page 51

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Page 51
LAUGARDAGUR 12. JANUAR 2002 59 C DV Helgarblað Russell Crowe: Betri í rúmi en á Leikarinn Russell Crowe á heldur á brattann að sækja eftir síð- asta ár. Öfugt við það sem flestir leikarar vilja þá var það ekki frammistaða hans á hvíta tjaldinu sem kom honum á síður blaðanna á liðnu ári heldur miklu frekar einkalíf. Hann virðist r/*\ ■0 -* Meg Ryan Hún svaf víst hjá Russell Crowe á gamla árinu. þess vegna standa sig mun betur í rúminu en á hvíta tjaldinu. Stærstu afrek hans á þessu sviði eru sögð vera ástarævintýrið með Meg Ryan sem varð samt ekki að neinu nema nokkrum stolnum ljósmyndum og sífelldum neitunum. Síðan er sagt að hann hafi skriðið upp í til Nicole Kidman sem er reyndar gömul kærasta hans en það er reyndar nokkuð sem hvorugt þeirra vill viður- kenna. Síðast en ekki , síst er sagt að Crowe hafi skriðið upp í hjá svarkin- um Courtney Love sem er ekkja Kurts Cobains eins og margir vita. Crowe og Love eyddu saman nótt á hótel- herbergi en Love segir að þau hafi grátið saman, haldist í hendur og farið með ljóð. Af einhverjum ástæð- um þykir þetta ekki sérstaklega trú- verðug saga og almennt talið að þau hafi eytt nóttinni í villtum ástarleikj- um. Love elti Crowe á röndum í sam- kvæmi skömmu seinna og síðar um kvöldið náðist mynd af henni þar sem hún var að reyna að troða sér inn í bíl- inn til hans þar sem hann var á hálf- gerðum flóttá úr téðu samkvæmi. Courtney Love Hún eyddi nótt á hóteli með Crowe en segir aö þau hafi bara hatdist í hendur og lesið Ijóð. Elizabeth Hurley: Alsæl og ólétt Ofurfyrirsætan Elizabeth Hurley hefur oft verið í fréttum vegna einkalífs síns, ekki síst meðan hún bjó með leikaranum Hugh Grant. Ekki fór alltaf vel á með þeim og ekki alveg ástæða til að rifja öll þau leiðindi upp. Þau skildu í sæmilegu bróðerni og Hurley tók upp ástarsam- band við Steve nokkurn Bing. Bing þessi er ekki merkilegur pappír því þegar Hurley tilkynnti honum um vænt- anlegt barn, sem væri ávöxtur ást- arsambands þeirra, lét hann sig hverfa. Hann bar því reyndar við að hann hefði líklega ekki verið eini garðyrkjumaðurinn sem kom að umræddum ávexti. Elizabeth Hurley. Hún er komin fimm mánuði á leið og er aisæi. Hurley hefur sést á síð- um blaðanna í London í verslunarleiðöngrum mikl- um þar sem hún dregur að sér barnaföt, vagna, kerrur og ýmist barnadót sem verðandi mæðrum finnst jafnan merkilegra en annað þegar svona stendur á. Hún er komin fimm mánuði á leið og sýnist vera alsæl þar sem hún rambar með sína smávöxnu kúlu á mag- anum milli búða. Hurley segist ekki kvíða því að ala barnið upp ein en henni til halds og trausts er systir hennar, Katie, sem er einnig á lausu um þessar mundir eftir að hafa slakað sínum eiginmanni fyrir borð, i óeiginlegri merkingu þess orðs. Joan Collins: Giftist í fimmta sinn Leikkonan Joan Collins varð fræg um alla heims- byggðina þegar hún lék hina kaldlyndu Alexis í sjónvarpsþáttunum Dynasty sem margir komnir yfir þrí- tugt gætu hugsanlega mun- að eftir en blómatími þeirr- ar sápu var um líkt leyti og Dallas. Collins er 68 ára gömul og hreint ekki dauð úr öllum æðum. Hún stefnir glaðbeitt upp að altarinu í fimmta sinn nú á næstu vikum, nánar tiltekið á Valentínus- ardaginn sem er óskadagur allra elskenda. Þá verður henni við hlið Joan Collins Hún hefur náð sér í nýjan eigin- mann sem er heilum 32 árum yngri en hún er. eiginmaður númer fimm en sá er Percy nokkur Gibson sem enginn kann nein deili á önnur en að hann verður næsti herra Collins. Gibson er 36 ára gamall og því 32 árum yngri en Collins ef mér skjöplast ekki þess meira í reikningi. Collins giftist í fyrsta sinn árið 1952 en það hefur þá verið 12 árum áður en Gib- son fæddist en það skiptir ekki máli. Ástin er eilif og spyr ekki um aldur, stétt né stöðu, svo vitnað sé í orð þjóðskáldsins sem ég man ekki hvert er. 4 'S» ókhald Alhliða bókhaldsnám þar sem tekið er á flestum þáttum bókhalds. Nemendur vinna raunhæf bókhaldsverkefni úr viðskiptalífinu og geta að námi loknu séð um bókhald smærri fyrirtækja eða unnið í fjármáladeildum. Bókhald 1 Námið er fyrir byrjendur og hentar þeim sem hafa áhuga á að kynna sér eða starfa við bókhald. Fjallað er um grundvallaratriði bókhalds, tilgang þess og hlutverk bókarans. Farið er í dagbókarfærslur s.s. sölu og kostnað, viðskipti við útlönd, kaup og sölu eigna og skuldabréfa- og veðlánaviðskipti. Efnahags- og rekstrarreikningar gerðir. Farið í launaútreikninga og skýrslur þeim viðkomandi. Meðferð virðisaukaskatts í bókhaldi og útfylling á vsk-skýrslu. Kenndur er reikningsjöfnuður með einföldum lokafærslum s.s. fyrirfram og ógreiddur kostnaður, tapaðar kröfur, vextir, afskriftir tækja og áhalda og tilgangur þeirra. Nemendum era afhent raunhæf fylgiskjöl og þeir látnir færa bókhald eftir þeim. Kennt er mánudaga og miðvikudaga frá kl. 17:00 - 20:00 Kennsla hefst 28.janúar Bókhald 2 (tölvubókhald) Námið er fyrir þá sem hafa faglegan grunn í bókhaldi og hafa áhuga á frekara námi. í náminu læra nemendur flóknari þætti bókhalds og tölvubókhalds. Tekið er fyrir m.a. dagbókarfærslur, reikningsjöfnuður og vaxta- og prósentureikningur. Þá er farið í lög og reglugerðir um bókhald og virðisaukaskatt og skil vsk-skýrslu. Nemendur fara yfir lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, gerð launaseðla, mat á hlunnindum til tekna og skilagreinar staðgreiðslu. Einnig er tekið fyrir afstemmingar, fymingar, endurmat og verðbreytingarfærslur, tekju- og eignaskattur og skattaskil. Farið er í lestur ársreikninga og verkefni í tölvubókhaldi færð samhliða yfir námstímann. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 17:00 ■ 20:00 Kennsla hefst 29.janúar Skráning í síma 588 5810 VIÐSKIPTA- OG TÖLVUSKÓLINN Faxafeni 10 -108 Reykjavík ■ Sími 588 5810 Bréfasími 588 5822 • framtid@vt.is ■ www.vt.is S k Ó l i V I ðskiptalífsin <5- ■HCKawasaki Island þakkar Kawasaki-eigendum og iandsmönnum öllum fyrir samstarfið á liðnu ári. Samstarfsaðilum og stuðningsmönnum þökkum við sérstaklega sigur í öllum flokkum íslandsmótsins í MotoCrossi. 1. sæti MotoCross A fl„ íslandsmeistari Ragnar I Stefánsson 1. sæti MotoCross B fl„ íslandsmeistari Sævar Benonýsson 1. sæti MotoCross liðakeppni, íslandsmeistarar Team Frostfiskur-ProCircuit - Wind Bikewear. Titlar koma og fara en Kawasaki stendur sig! Skemmtum okkur saman á nýju ári! Vélhjól & Sleðar - Kawasaki, Funhöfða 19, sími 587 1135 www. biker.is r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.