Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Qupperneq 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gastt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002
<rs»-
' J*
Átök milli Orca-hópsins magnast:
Nýtt tilboö
væntanlegt
- kyrrstöðusamningur bindur Jón Ásgeir
r
/
K
&
ÐV-MYND BRINK
Síöbúin jólakveöja
Grafarvogsbúar fjölmenntu til síöbúinnar blysfarar og þrettándabrennu í gærkvöld. Hátíöarhöldunum lauk svo meö
glæsilegri flugeldasýningu sem gladdi unga sem aldna.
Utanríkisráðherra stefnt fyrir ólögmæta mismunun við ráðningu sýslumanns:
Kolbrún krefur ríkis-
sjóð um 7,5 milljónir
- málareksturinn m.a. byggður á niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála
„Ég á ekkert
sökótt við Jón Ás-
geir og ætla ekkert
að svara þessu,“
sagði Jón Ólafsson
kaupsýslumaður í
samtali við DV í
gærkvöldi. í frétt-
um RÚV i gær-
kvöldi sagði Jón
Ásgeir Jóhannesson, einn fjórmenn-
inganna sem mynda ORCA-hópinn
sem á um 20% í íslandsbanka, að fjar-
stæða sé að raunverulegt tilboð hafi
borist í hlut hópsins í bankanum. Ein-
asta hafi tölvupóstur borist og það frá
ótrúverðugum aðOum. Enn fremur
sagði Jón Ásgeir að engin staðfesting
hafi borist á því hverjir hinir hugsan-
legu og þar með ótrúverðugu kaupend-
ur séu, né hvemig þeir hyggist fjár-
magna meint bankakaup.
En em erlendir kaupendur að bank-
anum til staðar eða ekki? Samkvæmt
heimildum DV er svo og leituðu þeir
til lögmannsstofunnar Logos og Jak-
obs Möllers hrl. sem þar starfar. „Ég
svara í engu svona spumingum og í
því felst hvorki játun né neitun," sagði
lögmaðurinn í samtali við blaðið í gær-
kvöldi aðspurður um þetta. Hinir er-
lendu kaupendur munu einnig njóta
þjónustu virtrar lögfræðiskrifstofu í
Atlanta í Bandaríkjunum.
Eins og fram hefur komið seldi
Eyjólfur Sveinsson blaðaútgefandi
eignarhlut sinn í íslandsbanka á gaml-
ársdag til ORCA-mannanna Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar og Þorsteins Más
Baldvinssonar. Fyrir milligöngu Jóns
Ólafssonar hafa síðan borist tilboð í
allan hlut hópsins í bankanum, sem
menn kýta nú um hvort eigi sér stað í
veruleikanum eða sé „leikrit“, svo
Eldsvoöinn á Þingeyri:
Útförin í dag
Ungu hjónin og sonur þeirra sem fór-
ust í hinum hörmulega eldsvoða á Þing-
eyri þann 4. janúar síðastliðinn verða
borin til grafar frá Þingeyrarkirkju í
dag klukkan 14.00. Hjónin sem létust
hétu Hreiðar Snær Línason og Ingibjörg
Edda Guðmundsdóttir. Sonur þeirra
sem einnig fórst var eins og hálfs árs og
hét hann Leon Öm Hreiðarsson. Stofn-
aður hefur verið styrktarsjóður fyrir
þriggja ára son hjónanna sem komst lífs
af úr brunanum. Hann heitir Anton
Líni Hreiðarsson og er reikningurinn
nr. 4500 við Sparisjóð Vestfirðinga. Blóm
og kransar em vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hinna látnu
er bent á styrktarsjóðinn. -MA
vitnað sé til þeirra orða sem Jón Ás-
geir notaði í fréttum RÚV í gærvöldi.
Skv. heimildum DV mun ORCA-
hópnum hafa borist tilboð erlendis frá
sem mönnum þótti ekki ásættanlegt.
Var hinum erlendu aðilum gerð grein
fyrir þvi og mun nú af þeirra hálfu
vera unnið að breytingum á tilboðinu.
Á það að liggja fyrir um eða eftir helg-
ina. Þá er bent á að í gildi sé svokallað
„Standstill agreement", eða biðstöðu-
samningur, sem er undirritaður af
þremur liðsmönnum ORCA-hópsins,
þeim Eyjólfi, Þorsteini Má og Jóni
Ólafssyni. Samningurinn, sem bindur
hendur Jóns Ásgeirs, kveður á um að
erlendur aðili hafi rétt til að gera til-
boð í öll bréf hópsins og félaga sem
tengjast þeim í Islandsbanka innan
ákveðins tíma. Sá timi er ekki úti enn.
í vikunni kom fram að Kaupþing
Luxemborg er orðið fimmti stærsti
hluthafi íslandsbanka með um 4,5%
eignarhlut. Getum hefur verið leitt að
því að þau kaup tengist þeim átökum
sem nú eiga sér stað milli ORCA-
manna. -sbs
Kolbrún Sævarsdóttir lögfræðing-
u krefur ríkissjóð um tæpar 7,5
milljónir króna í skaða- og miska-
bætur vegna þess að utanríkisráð-
herra horfði fram hjá henni við
embættisveitingu sýslumanns á
Keflavíkurflugvelli í apríl 1999. Hún
telur ráðherra ekki hafa farið að
stjómsýslulögum og viðhaft ólög-
mæta mismunun þegar Jóhann
Benediktsson var skipaður í stöö-
una til 5 ára. Bótakrafan er byggð á
þeim tekjumun sem orðið hefði á
launum hennar í sínu þáverandi
starfi, lögfræðings hjá Lögreglu-
stjóranum í Reykjavik, og launum
sýslumanns á Keflavíkurflugvelli á
þeim tíma sem Jóhann er skipaður.
í málarekstrinum er ekki síst vís-
að til þess að álit kærunefndar jafn-
réttismála sé að ráðherra hafi með
skipun sinni brotið gegn ákvæðum
jafnréttislaga. 1 rökstuðningi ráðu-
neytisins fyrir ráðningu Jóhanns í
embættið kom
fram að áhersla
hefði verið lögð á
að nýr sýslumað-
ur á Keflavíkur-
flugvelli hefði
þekkingu á
Schengen-sam-
starfinu, reynslu
af starfi við lög-
regluembætti,
góða tungumála-
kunnáttu og reynslu af samskiptum
við stjórnvöld annarra landa. Ráðu-
neytið greindi frá því að Jóhann
hefði haft yfirburðaþekkingu á
Schengen-samstarfinu enda hefði
það ráðið úrslitum við val á manni
til að gegna embættinu. Kolbrún
haföi hins vegar mikla reynslu af
lögfræðistörfum tengdum lögreglu-
málum og málarekstri fyrir dómi.
Hún hafði starfað hjá Borgarfógeta-
embættinu, sem nú er Sýslumaður-
inn í Reykjavík, verið dómarafull-
trúi við Héraðsdóm Reykjavíkur og
var lögfræðingur sem rak fikniefna-
mál fyrir dómi fyrir Lögreglustjór-
ann i Reykjavík. Hún rak einnig
eigin málflutningsstofu í 2 ár.
Kolbrún vísaði máli sínu til
kærunefndar jafnréttismála sem
komst að þeirri niðurstöðu að hún
væri að minnsta kosti jafnhæf Jó-
hanni Bendediktssyni til að gegna
sýslumannsstöðunni á Keflavíkur-
flugvelli. Með vísan til þess hefði
ráðherra brotið gegn jafnréttislög-
um. Jafnframt var þeim tilmælum
beint til utanrikisráðherra að við-
unandi lausn yrði fundin á málinu
sem Kolbrún gæti sætt sig við. Þrátt
fyrir ítrekaðar óskir um slíka lausn
hefur það ekki verið gert. Málið var
flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Búist er við að dómur gangi
innan 3-4ra vikna. -Ótt
Ógnaði lögreglu
með sveðju
Karlmaður á þrítugsaldri var hand-
tekinn í gærmorgun í íbúð á Hring-
braut eftir að hafa ógnað lögreglu
með stórri sveðju. Maðurinn er grun-
aður um að hafa ekið á bilageymslu-
hurð í vesturbænum og við það eyði-
lagt hana. Tilkynning um ákeyrsluna
barst rétt fyrir hádegi og var í fram-
haldi af því farið á heimili manns
sem lögreglan hafði grunaðan um
verknaðinn. Þar ógnaði maðurinn
lögreglumönnunum með sveðju. Þeim
tókst að yfirbuga manninn og var
hann handtekinn. -MA
Banaslys í Kömbum
Banaslys varð í Kömbum í mjög
hörðum tveggja bUa árekstri seint á
níunda tímanum í gærkvöld. Fimm
manns voru í bUunum og einn var
látinn þegar blaðið fór í prentun. Aðr-
ir voru iUa slasaðir. Allt tUtækt lög-
reglu- og sjúkralið bæði frá Selfossi
og úr Reykjavík fór á vettvang sem og
þyrla Landhelgisgæslunnar. -sbs
Einn lést í bílslysi
Banaslys varð á KísUveginum mUli
Mývatns og Húsavíkur, á sjöunda tím-
anum f gærkvöld. Saman rákust fólks-
bUl og jeppi á blindhæð. Karlmaður sem
ók fólksbUnum lést. Farþegar í fóUis-
bílnum, kona og bam, auk ökumanns
jeppans voru fiutt á sjúkrahús. -sbs
Jón Ólafsson.
Lettar stunda ljótan leik:
Lögregla leitar
dollarasvindlara
Lögreglan í Reykjavík leitaði í
gærkvöldi nokkurra útlendinga sem
grunaðir eru um að hafa verslað
fyrir falsaða 50 dollaraseðla á
nokkrum stöðum í borginni.
Fölsuðu seðlamir eru í vörslu lög-
reglu og að sögn varðstjóra eru þeir
afar faglega falsaðir og líta við
fyrstu sýn út fyrir að vera ekta.
Upp komst um svikin þegar ár-
vökull bankastarfsmaður veitti því
athygli að tveir dollaraseðlar voru
með sama númerinu. Komið hefur í
ljós að mennirnir hafa haft haft við-
komu víða um borgina og sinnt
smálegum viðskiptum með hinum
fólsuðum seðlum.
„Þeir eru enskumælandi, töluðu
saman sin I milli líklega á rúss-
nesku, en sögðust vera Lettar,"
sagði Jón Ólason, aðalvarðstjóri
Lögreglunnar í Reykavík, við DV í
gærkvöldi.
Hvatti hann verslunarfólk til þess
að vera á varöbergi gagnvart er-
lendum viðskiptavinum sem fram-
vísuðu Bandarikjadölum sem gjald-
miðli. -aþ/SBS
Meö falsaöa seöla
Varöstjórinn meö seölana - en hvar
eru svindlararnir?
r mámlk
fyrlr fagmenn
og fyrlrtæhl,
heimiliog
sKóta, fyrir röð
og regtu, mlg
ogþig, |
hýbýlauegl 14 • simi 554 4443 • if.ls/rafport
Útiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800