Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2002, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002
Fréttir DV
Ævintýraleg fjárfesting átti að tryggja heimsbyltingu í fjarskiptum:
Sími í klóm skýjaglópa
- @IPbell lifði í ár og hálfur milljarður fauk. 1500 krónur á hvern íslending
í upphafi ársins 2000 gengu
Landssíminn, Opin kerfi og Fjár-
festingarbanki atvinnulífsins til
samstarfs viö erlenda aðila sem boö-
uðu byltingarkenndar lausnir á
sviöi hugbúnaðar sem nýtast áttu í
millilandasímtölum og valda bylt-
ingu í fjarskiptum í heiminum. Um
var að ræða aðila sem stofnað höfðu
fyrirtækið @IPBell. Þórarinn Viðar
Þórarinsson, forstjóri Landssímans,
og Frosti Bergsson, aðaleigandi
Opinna kerfa, féllu fyrir
hugmyndinni og þeir komu sér
saman um að Landssíminn legði
tæpar 4 milljónir dollara í
fyrirtækið en Opin kerfi rétt innan
við milljón dollara. Þá gekk
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins í
nafni Talenta-Hátækni til liðs við
fjárfestana tvo en með verulega
minna fjármagn, eða sem nam 5
prósenta hlut. Látið var að þvi
liggja að einungis væri
tímaspursmál að @IPBell fengju
skráningu á bandaríska
verðbréfamarkaðnum Nasdaq. í dag
teljast þessir fjármunir að mestu
glataðir.
Upphafiö
Samkvæmt heimildum DV var
þaö Breti, Graham Butler að nafni,
sem kom viöskiptahugmyndinni
fyrst á framfæri við Þórarin Viðar
Þórarinsson í maí árið 1999, nokkru
eftir aö Þórarinn tók viö starfi sem
forstjóri Landssímans. Bretinn, sem
verið hafði starfsmaður þýska
landssímans, Deutsche Telekom, í
London, kom til landsins í tvígang
árið 1999. í farteskinu hafði hann
hugmyndina um heimsyfirráð á
sviði fjarskipta. Honum er lýst
þannig að hann hafl verið afburða
sölumaður „sem hefði getað selt
ömmu sína þrisvar", eins og einn
heimildarmanna DV orðaði það.
Butler var í samstarfi við Indverja,
Anand Kumar, og fjármálamanninn
Alan Bashforth, sem var hinn raun-
verulegi hugmyndafræðingur.
Fjórði maðurinn var David Young
sem kom inn í myndina á frumstigi
og lagði til tækniþekkingu sína.
Hugmynd fjórmenninganna gekk út
á það aö koma upp heimsneti meö
tækjabúnaði sem keyptur yrði af
Hewlett Packard, Oracle, Cisco og
SciDyn. Ekkert þurfti aö greiða út
þar sem framvirkir samningar yrðu
gerðir um kaupin. Eignir félaganna,
sem voru kjaminn að baki @IPbell,
voru engar aðrar en meint hugvit.
„Þeir áttu ekki svo mikið sem
bíldruslu," segir einn heimildar-
manna DV. Þórarinn Viðar féll fyrir
hugmyndinni og fékk Frosta Bergs-
son, stjómarformann Opinna kerfa,
í lið með sér. Hann talaði fyrir
samstarfi við @IPbell-mennina sem
hann kvaðst treysta í hvivetna. Um
þetta leyti var bandarisk lög-
fræðistofa fengin til að kanna
bakgrunn tveggja forsvarsmanna
fyrirtækisins og leggja mat á það
hversu áhættusöm fjárfestingin
væri. Aðeins var kannaður bak-
grunnur þeirra Anands Kumar og
Alans Bashforth. í skýrslu lög-
fræðinganna kom fram að menn-
irnir virtust vera í lagi en fjár-
festingin var talin áhættusöm vegna
skorts á þeim þjónustusviðum sem
mynda þyrfti. Hvorki var gerð
úttekt á Graham Butler né David
Young.
Efasemdir
Á lokastigi samninga var haldinn
fundur meöal stjómenda Landssím-
ans þar sem einnig sátu fulltrúar
Opinna kerfa, með Frosta Bergsson
í broddi fylkingar, og fulltrúi Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins. Á
fundinum var væntanlegt samstarf
við útlendingana kynnt. Flestir
fundarmanna sátu þögulir undir
framsögu forsvarsmannanna sem tí-
unduðu kosti þess að ganga til liðs
útlendinganna, umfram það að láta
kanna tvo þeirra. Innan Símans
kom fljótt upp kvittur um að
mennirnir væru ekki allir þar sem
þeir voru séðir. Þeir höfðu til
dæmis lýst því hvar þeir sjálfir
störfuðu áður og var sú saga glæst.
Samkvæmt heimildum DV kom á
daginn við handahófskennda
athugun að í einhverjum tilvikum
var sagt ósatt um suma vinnustaði
þar sem þeir höfðu alls ekki unnið
og annars staðar voru starfslok af
óljósum ástæðum. Þá vakti það
undrun margra þeirra sem til
þekktu innan Símans að fyrirtækið
var að boða þær sömu IP-
tæknilausnir og stórfyrirtæki voru
með heilu deildimar að vinna að.
Nefnt er að stórfyrirtækin hafi þá
þegar ákveðið að leggja 900
milljónir punda í þær rannsóknir.
Þar eru nefnd til sögu fyrirtækin
Cable Wireless og Northern
Network, auk fleiri. Tortryggnin
var á gólfinu hjá Landssímanum en
topparnir virtust trúa á kraftaverk
örfyrirtækisins sem fékk 5 milljónir
dollara frá íslandi í upphafi og
seinna meira. Á hveitibrauðsdögum
þessa samstarfs voru því ýmis teikn
á lofti um að ýmislegt væri
athugavert við hugmyndina að baki
@IPbell, án þess að tilraun
væri gerð til að brjóta það
mál til mergjar.
.
í
áí^h
. • •-•"•,? •'■ ‘.v
fV Vf•!,,•• . ..» • ' '■•'y^
■
"rffit V. - --; í/t':*-•
vV,..»V.* *< *
, v* M
' '■*"** Hirr A
Stjórnin
Eftir aö ofursölumaöurinn Graham Butler kom til íslands meö hugmynd aö heimsbyltingu liöu nokkrir mánuöir þangaö
til stjórn Landssímans samþykkti aö leggja fram 4 milljónir dollara.
Frosti Þórarinn Viöar
Bergsson. Þórarinsson.
krafist 5 milljón dollara fyrir 15
prósenta hlut en slakaði á kröfunni.
Framkvæmdastjóri IP-fjarskipta var
skráður hjá Hlutafélagaskrá. Þar
var um aö ræða framkvæmdastjóra
Skímu, dótturfélags Landssímans.
Sá hafði síðar engin afskipti af
rekstri IP-fjarskipta en stjórnar-
mennimir Frosti Bergsson og
Þórarinn Viðar Þórarinsson sáu um
öll samskipti viö móðurfélagið og
voru á tíðum ferðalögum milli
landa til að gæta hagsmunanna.
Þeir fóru á þessu tímabili nokkrum
sinnum til New York og einu sinni
til Bretlands.
Símafyrirtækið, sem er að mestu
í eigu íslensku þjóðarinnar, var
orðið þátttakandi í fjárfestingu sem
skila átti fjarskiptalausnum á
heimsvísu.
Alan Bashforth var ráðinn
framkvæmdastjóri @IPbell með 250
þúsund dollara i árslaun.
Flugeldasýning
Mikil flugeldasýning varð um
mál þetta í fjölmiðlum og mátti
skilja að íslensku fyrirtækin hefðu
gert einstaklega góðan samning.
Þórarinn Viðar, Frosti Bergsson og
Bjarni Ármannsson, forstjóri Fiár-
festingarbanka atvinnulífsins, luku
í febrúar árið 2000 upp einum
munni um það hve góður kostur
fjárfestingin væri: „Áhættan sem
þessu fylgir er töluverð en ávinn-
ingurinn getur líka orðið margvís-
legur, og þá ekki síst sá að tryggja
að íslendingar verði meðal þeirra
fyrstu til að nýta sér samskiptanet
framtíðarinnar til fullnustu," sagði
Þórarinn Viðar á þessum tíma.
..Með þátttöku í þessu verkefni
er FBA að sinna því hlutverki sínu
að styðja við alþjóöavæðingu ís-
lenskra fyrirtækja og efla þannig
samkeppnishæfni íslensks atvinnu-
lífs,“ sagði Bjami Ármannsson, for-
stjóri FBA, um fjárfestinguna.
„... Opin kerfi eru umboðsaðilar
hér á landi fyrir helstu samstarfsað-
ila @IPbell og því sérstaklega
ánægjulegt að geta gengið til
samstarfs við þá á heimsvísu í
þessu verkefni," . sagði Frosti
Bergsson við sama tækifæri. Og
Opin kerfi uppskáru vel því
hlutabréf í félaginu og FBA
snarhækkuðu nokkru áður en
kaupin voru staðfest. Nokkuð sló á
ánægjuna er ásakanir komu fram í
tveimur fréttabréfum um að
innherjaupplýsingar hefðu
valdið þessu en ekki er til
þess vitað að málið hafi
verið rannsakað.
íslendingarnir
gerðu fátt til þess
að kanna
bakgmnn
Reynir
Traustason
ritstjórnarfulltrúi
Á fundinum hjá Landssímanum
komu fram efasemdir frá að
minnsta kosti einum fundarmanna
sem taldi að ekki væri allt sem
sýndist varðandi @IPbell og vildi
vara við því aö Landssíminn léti
svo mikla fjármuni út í óvissu. Þá
mun Þórarinn Viðar hafa varpað
fram þeirri hugmynd hvort
hugsanlegt væri að Síminn legði
minna í púkkiö. Frosti Bergsson
sagði að slíkt tækifæri byðist aðeins
einu sinni. Allt eins kæmi til greina
að Opin kerfi legðu fram tvær
milljónir dollara á móti þremur
milljónum Símans. Úr varð að
skiptingin varð 1 milljón á móti 4
miújónum dollara Landssímans eða
á þeim tíma um 300 milljónir króna,
að núvirði rúmar 400 milljónir.
Síminn samþykkir
Þann 13. janúar samþykkti stjórn
Landssímans aö leggja út í fjárfest-
inguna. Þar gekk Þórarinn Viðar
hart fram í að knýja málið í gegn.
Friðrik Pálsson, stjómarformaður
Landssímans, stóð þétt að baki
hans. Stofnað var félagið IP-fiar-
skipti sem var í eigu íslensku fyrir-
tækjanna. IP-fiarskipti eignuðust 20
prósenta eignarhlut í fyrirtækinu
með @nafnið. Reyndar hafði Butler
viö fyrirtækið sem látið var að
liggja að væri 25 milljón dollara
virði, með rekstur í Washington
D.C., London, hýsingu í Kaup-
mannahöfn og einhver dótturfyrir-
tæki. Meðal bakhjarla fyrirtækisins
var fiárfestingasjóður, að nafni
Skye Capital, sem að mestu var í
eigu bresks auðkýfings. Um þetta
leyti var það rætt að Sumitomo
kæmi aö fiármögnun nýja fyrirtæk-
isins.
------------------------------,----------------------------
Bjarni
Ármannsson.
Friörik
Pálsson.