Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Síða 7
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
23
Sport
„Ætlaði bara
að vinna”
- sagði Kristín Jónsdóttir, fyrirliði KR, eftir bikarsigurinn
Kristín Jónsdóttir, fyrirliði KR,
var að vonum hress eftir leikinn
en hún fór fyrir sínu liði í fram-
lengingunni þegar Helga Þorvalds-
dóttir og Guðbjörg Norðfjörð
höfðu farið út af með 5 villur í lok
venjulegs leiktíma. „Við byrjuðum
ekki eins sterkt og við ætluðum
okkur en náðum að koma til baka
undir lok venjulegs leiktíma,”
sagði Kristín. „Ég hugsaði ekki
neitt um það þegar Guðbjörg og
Helga fóru út af, ég hugsaði bara
um að vinna leikinn og satt best
að segja tók ég ekki eftir því að
þær væru ekki inni á. Ég ætlaði
bara að vinna þennan leik, það var
alveg á hreinu,” sagði Kristín
Jónsdóttir, fyrirliði KR, rétt eftir
að hún hafði tekið við bikarnum.
Það er ótrúlega erfitt að
horfa á leikinn af bekknum
Helga Þorvaldsdóttir, besti leik-
maður bikarúrslitaleiksins, skor-
aði mikilvæga þriggja stiga körfu
undir lok venjulegs leiktíma. „Ég
veit ekki hvað ég var að hugsa, lét
bara vaða og boltinn datt ofan í. Ég
fann mig mjög vel í leiknum og
skotin duttu niður i dag, sem betur
fer,” sagði Helga eftir leikinn.
Varðandi það atriði þegar hún
fékk sína fimmtu villu sagði Helga.
„Það er það versta sem maður get-
ur lent í, að fara út af með fimm
villur á tímapunkti eins og ég í
gær. Það er ótrúlega erfitt að
horfa á leikinn af bekknum og geta
ekki gert neitt,” sagði Helga Þor-
valdsdóttir KR-ingur sæl og glöö
eftir bikarleikinn gegn Njarðvík.
Keith Vassell, þjálfari KR, var
mjög stressaður á löngum köflum í
bikarleik KR og Njarðvíkur í
kvennaflokki og spurning hvort
það tók ekki einhverja orku frá
honum, en sömu félög mættust
strax á eftir í bikarúrslitum karla.
„Já, það er allt annað að þjálfa en
leika inni á vellinum, maður getur
svo lítið gert utan vallar. Ég bjóst
ekki við Njarðvíkurliðinu eins
sterku og það var í dag, þær léku
mjög vel. Við lékum að mér fannst
ekki eins vel og við getum best og
það kom mér á óvart eftir hinn
góða undirbúning hjá okkur alla
síðustu viku,” sagði Keith Vassell
í leikslok í kvennaleiknum og var
svo þotinn í upphitun fyrir úrslita-
leik karla.
Viö tróöum upp í landann,
enginn bjóst við þessu
„Við áttum að taka þetta og við
ætluðum að gera það en í fram-
lengingunni vantaði okkur reynsl-
una sem KR hafði yfir að ráða,”
sagði Auður R. Jónsdóttir, fyrir-
liði Njarðvikur, eftir leikinn. „Við
vorum aldrei sigurvissar en við
ætluðum okkur að fara alla leið og
vinna bikarinn í fyrsta sinn,”
sagði Auður spurð hvort hún hefði
séð hilla undir bikarsigur undir
lok venjulegs leiktíma.
Þjálfari liðsins er hinn 25 ára
Einar Á. Jóhannsson. „Okkur
skortir vissulega reynslu í leiki
sem þessa en ég get ekki annað en
sagt að við höfum troðið upp í
landann. Það bjóst enginn við því
að við myndum komast þetta langt
og það er ansi sárt að við skyldum
ekki klára þetta í venjulegum leik-
tíma eins og við höfðum mögu-
leika á. Við fengum á okkur
þriggja stiga körfu þegar við vor-
um einu stigi yfir og lítið var eftir.
Ég er gríðarlega stoltur af mínu
liði, þær lögðu sig 110% fram og
það er ekki hægt að biðja um
meira,” sagði raddlítill þjálfari
kvennaliðs Njarðvíkur eftir
æsispennandi bikarúrslitaleik
gegn KR á laugardag.
-vbv
4-1
í þ'. : 1kíft 1
Kristín Jónsdóttir, fyrirliöi KR, kyssir hér bikarinn eftirsótta eftir 81-74 sigur
á Njarðvík í æsispennandi framlengdum bikarúrslitaieik í gær. DV-mynd Hari
Örn Arnarson
íþróttamaöur ársins 2001
Hlaupa- og göngugreining
„Ég er með léleg hné. Sem krakki óx ég mjög hratt og hnén
fylgdu ekki alveg með. Mér var ráðlagt að fara í greiningu
hjá Stoðtækni og fá innlegg. Eftir að ég fékk innleggin er
ég orðinn góður í hnjánum og þau hafa hjálpað mjög mikið,
bæði þegar ég er á þrekæfingum og daglega, ég er alltaf
með þau í skónum."
Orn Arnarson, sundmaður
Ertu með þreytu eða verki í fótum eða baki?
Komdu og láttu skoða niðurstigið þitt í
göngugreiningu.
Rétt undirstaða getur skipt sköpum til að
ná árangri.
-----------------•------------------
Tímapantanir i síma 581 471 1
Kringlan 8-12,3. hæð, Reykjavík
STOÐTÆKNI
Gísli Ferciincindsson efif
Gréta María Grétarsdóttir er hér á fullri ferö í bikarúrslitaleiknum í gær.
DV-mynd Hari