Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Page 9
24
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
25
Sport
Sport
Efri mynd: Friörik Ragnarsson, þjálfari Njarövíkur. Ákveöinn og sigurreifur.
Neöri mynd: Ingi Pór Steinþórsson, þjálfari KR. Niöurbrottinn eftir tapið.
Logi Gunnarsson, leikmaöurinn ungi í liöi Njarövíkur, leikur ávallt af mikilli tilfinningu og fagnaöi ógurlega þegar
bikarmeistaratitillinn var í höfn á laugardag. DV-mynd Hari
flnna körfuna.
Stóru mennirnir hjá
Njarðvík í villuvandræðum
KR fór í svæðisvörn til að
freista þess að loka betur á Loga
fyrir utan og gekk það vel. Það
varð allavega til þess að KR-ing-
ar náðu áttum því að þeir voru
orðnir fjórum stigum undir en
breyttu stöðunni sér í vil og
leiddu 64-59 eftir þriðja leik-
hluta.
Njarðvíkingar voru komnir r
villuvandræði og voru stóru
mennirnir farnir að tínast út af.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
liðsins, breytti einnig yfir í
svæðisvörn til að reyna halda
stóru strákunum sínum inni á
vellinum og reyndist sú ákvörð-
un góð. Friðrik Stefánsson og
Halldór Karlsson fóru reyndar
báðir út af með fimm villur en á
móti voru KR-ingar í vandræð-
um með sóknina hjá sér á móti
svæðisvörninni. Staðan var
77-77 þegar skammt var eftir og
eftir það gerðu Njarðvíkingar
níu stig gegn aðeins tveimur
mörkum KR-inga og tryggðu sér
þar með sætan sigur og bættu
við enn einum bikarnum í safn-
ið hjá félaginu.
Jón Arnór meiddist illa í upp-
hafi íjórða leikhluta en kom inn
á aftur þegar um fjórar mínútur
voru eftir. Hann var þó nokkuð
þjáður og munaði um það fyrir
KR að hafa besta mann sinn
ekki heilan í lokin.
Njarðvíkingar éru vel að
sigrinum komnir og eru með
frábært lið. Liðið er skipað
gríðarlegum öflugum leikmönn-
um og hafa Njarðvíkingar án
efa besta byrjunarliðið á land-
inu.
Teitur klikkar ekki á
örlagastundu
Teitur steig að sjálfsögðu upp
og lagði sitt af mörkum til að
landa bikarnum. Með þriggja
stiga körfu hans í lokin lauk
leiknum og var það við hæfi að
þessi frábæri leikmaður væri sá
sem gengi frá leiknum. Þetta er
væntanlega síðasti bikarúrslita-
leikur hans en hann hefur leik-
ið alls 10 úrslitaleiki og hefur
unnið sjö þeirra og átt stóran
þátt í þeim öllum.
Logi kom liðinu inn í leikinn
aftur þegar útlitið var dökkt og
minnti ærlega á sig. Brenton
vann þriðja bikarúrslitaleik
sinn í jafn mörgum tilraunum
og átti mjög góðan leik eins og
vænta mátti. Hann var sterkur
á lokakaflanum og var hægt að
leita til hans í sókninni þegar
liðið þurfti körfu.
KR-ingar eru væntanlega
svekktir yfir að hafa tapað
leiknum þar sem þeir voru ansi
líklegir til að vinna leikinn eins
og liðið spilaði framan af.
Menn leituðu kannski of mikið
af þriggja stiga skotinu í stað
þess að sækja að körfunni og
svo hittu menn illa í seinni hálf-
leik. Það er þó engum blöðum
um það að það fletta að KR er
með frábært lið sem gerir
væntanlega tilkall til íslands-
meistaratitilsins í vor.
Vassell og Herbert góöir
Keith Vassell átti ábyggilega
besta leik sinn í vetur og spilaði
vel, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Þá var Herbert Amarson góður
og hefur kappinn verið mjög
góður eftir áramót. Helgi og Jón
Arnór áttu fínan dag, og hefði
Jón eflaust verið enn betri heill
á heilsu, og Arnar Kárason var
traustur. -Ben
Það var sannkallaður stór-
meistaraslagur á milli tveggja
frábærra liða þegar Njarðvík
og KR mættust á laugardaginn
í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ
og Doritos. Eins og ávallt þeg-
ar þessi lið mætast var um
jafna og spennandi viðureign
að ræða og fór svo að Njarðvík
var sterkari aðilinn á lokakafl-
anum og sigraði 86-79 eftir að
KR hafði haft frumkvæðið
mestallan leikinn.
Helgi og Vassell byrjuöu
leikinn af krafti
KR-ingar byrjuöu leikinn
með þvilíkum látum með þá
Helga Magnússon og Keith
Vassell í fararbroddi. Fyrstu
sjö stigin í leiknum voru rönd-
ótt og eftir átta mínútur var
staðan 25-8, KR í vil. Njarðvík
tókst aðeins að klóra í bakkann
áður en leikhlutinn var allur og
staðan eftir fyrsta leikhluta var
26-16 fyrir KR. Eins og áður
sagði voru þeir Helgi og Vassell
magnaðir fram að þessu og
skoruðu 19 af 26 mörkum
liðsins. Jón Arnór Stefáns-
son, sem spilaði meiddur,
ætlaði sér kannski einum of
mikið í byrjun leiks og fór út
í einstaklingsframtakið en
tók sig á í öðram leikhluta.
Munurinn var þetta kring-
um 10 stigin fram að hálfleik
en í þriðja leikhluta fóru
hlutirnir að gerast hjá Njarð-
víkingum. Logi Gunnarsson
hrökk loksins í gang og kom
mönnum sinum inn í leikinn
með skotsýningu og einnig
var vörn liðsins mjög góð á
þessum kafla og KR-ingar
voru í miklu basli með að
Njarðvík-KR 86-79
0-7, 6-18, 8-23 (16-26), 23-28, 23-33,
33-43 (39-48), 42-50, 54-50, 57-61
(59-64), 66-64, 68-72, 75-72, 77-77,
81-79, 86-79.
Stig Njarövikur: Brenton
Birmingham 25, Logi Gunnarsson 22,
Teitur Örlygsson 18, Friörik
Stefánsson 10, Páll Kristinsson 7,
Halldór Karlsson 4..
KR: Keith Vassell 24, Herbert
Arnarson 19, Helgi Magnússon 14,
Jón Arnór Stefánsson 14, Arnar
Kárason 4, Hjalti Kristinsson 2,
Magni Hafsteinsson 2.
Fráköst: Njarðvík 39 (13 í sókn, 26 í
vörn, Brenton 9), KR 37 (14 í sókn, 23
í vörn, Vassell 13).
Stoösendingar: Njarðvik 18 (Brenton
7), KR 21 (Arnar 6).
Stolnir boltar: Njarövik 10 (Teitur
3), KR 7 (Herbert, Helgi 2).
Tapaöir boltar: Njarðvík 12, KR 10.
Varin skot: Njarðvík 5 (Friðrik 4),
KR 6 (Vassell 4).
3ja stiga: Njarðvík 20/9, KR 36/13.
VítU Njarðvík 19/13, KR 12/8.
Dómarar (1-10): Lcifur Garðarsson
og Kristinn Óskarsson (8).
tíœöi leiks (1-10): 9.
Áhorfendur: 1500.
Maöur leiksins:
Brenton Birmingham, Njarðvík
Njarðvíkingar
sterkari í lokin
Logi Gunnarsson, leikmaður Njarðvíkur, smellir hér kossi á bikarinn eftirsótta. Nú er það bara Loga og hans
manna í Njarðvík að verja íslandsmeistaratitilinn. DV-mynd Hari
Jón Arnór Stefánsson, aðaldriffjöður KR, meiddist í byrjun fjórða leikhluta í bikarúrslitaleiknum og var borinn
af velli talsvert kvalinn eftir meiösl á ökkla. Hann kom inn á aftur eftir nokkrar mínútur en það nægði KR-ingum
ekki. DV-mynd Hari
Stuðningsmenn Njarðvfkur ærðust af fögnuði í leikslok. DV-mynd Hari
„Logi fór að hitta, þá
var þetta komið“
Teitur Örlygsson, annar þjálfara
Njarðvíkur, lék vel í leiknum á
laugardag og þegar DV-Sport náði
tali af þessum reynslumikla leik-
manni rétt eftir að leik lauk sat
hann einn á varamannabekk
Njarðvíkur og var að átta sig á
þessu öflu. Aðspurður um hvort
hann hefði ekki verið farinn aö
ókyrrast þegar KR var 15 stigum
yfir í fyrri hálfleik sagði Teitur:
„Það var náttúrlega nóg eftir og
þeir hittu þarna mjög vel og um
leið og þeir hættu því kom góöur
kafli hjá okkur. Logi fór að hitta
og tók góða rispu og þá vissum við
að þetta var komið. Þá var þetta
bara spurning um tímann," sagði
Teitur Örlygsson nánast raddlaus
eftir leikinn gegn KR á laugardag.
Var farinn aö hafa bullandi
áhyggjur í fyrri hálfleik
Friðrik Ragnarsson, aðaiþjálfari
Njarðvíkur, fór mikinn á hliðar-
línunni i leiknum. „Já, ég var far-
inn að lifa mig vel inn i leikinn og
eitthvað verð ég að gera fyrst ég er
ekki að spila. Við vorum komnir
með bakið upp við vegg og vorum
9 stigum undir í hálfleik. Þá er
bara eitt að gera og það er að
spyrna sér frá veggnum og það
gerðum við. Við vorum orðnir
hræddir, vörnin þéttist og við vor-
um miklu grimmari í seinni hálf-
leik en þeim fyrri,“ sagði Friðrik
Ragnarsson
„Ég er virkilega ánægður með
að koma til baka á móti svona
sterku liði. Ég verð að segja alveg
eins og er að ég var farinn að hafa
buflandi áhyggjur í fyrri hálfleik.
Þeir voru komnir 15 stigum yfir og
byijuðu með flugeldasýningu og
við á hælunum. Síðan náðum við
að snúa þessu við á frábæran
hátt.“
- Hvað gerðist inn í klefa hjá
ykkur i hálfleik?
„Við töluðum náttúrlega um að
stoppa í götin í vöminni og í svona
leik verður maður að vera búinn
að ná þessu niður í þriðja leikhluta
í svona 5 til 6 stig . Við ætluðum að
gera hlutina jafnt og þétt, sem við
og gerðum, og stóðum síðan uppi
sem sigurvegarar. Ég hélt góða
skammaræðu yfir strákunum í
hálfleik því að ég var alls ekki sátt-
ur við leik okkar þessar 20 minút-
ur en sú ræða er ekki bönnuð inn-
an 18 ára,“ sagöi Friðrik Ragnars-
son, aðalþjálfari Njarðvíkur, eftir
glæstan sigur á KR i bikarúrslitum
karla. -vbv
„Þetta er bara hefðin
og Njarðvíkurhjartað"
Logi Gunnarsson, hhm tvítugi leik-
maður Njarðvíkur sem fór á kostum í
úrslitum um íslandsmeistaratitilinn á
síðustu leiktíð, átti frábæran leik
gegn KR og skoraði 22 stig og flest
komu þau í seinni hálfleik." Það hef-
ur verið talað um það að undanfömu
að ég sé ekki búinn að ná mér á strik
í vetur en mér gekk vel í úrslita-
keppninni í fyrra og ég vildi bara
sýna í dag að ég er enn til. Ég er leik-
maður sem stend uppi í stóra leikjun-
uni. Ég vil koma sérstaklega inn á
það að þegar ég las um það hvað
Vassell sagði um okkur þar sem hann
nefndi Brenton og Teit sem aðalmenn
og mig ekki, þennan þama númer 14.
Það fór í mig,“ sagði Logi Gunnars-
son eftir leikinn þegar hann var ný-
búinn að kyssa bikarinn. „Við bara
ákváðum að mæta til leiks i seinni
háifleik og Njarðvíkurliðið mætti svo
sannarlega og svona erum við. Þeh-
hefðu átt að vera með þetta og hefðu
sennilega verið það gegn öllum öðr-
um liðum en Njarðvík er öðravísi en
öll önnur lið. Þetta er bara hefðin og
Njarðvíkurhjartað. Ég er alveg radd-
laus. Ég öskraði svo mikið inni á vell-
inum og get varla talað lengur,“ sagði
Logi Gunnarsson Njarövíkingur.
Þetta var alger gjöf
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR,
var gjörsamlega niðurbrotinn í leiks-
lok. „Þetta var ótrúlegt, þetta var bara
gjöf, alger gjöf. Við gáfum þeim þetta.
Við vorum alveg með þetta en hentum
þessu frá okkur með fáránlega óskyn-
samlegum leik. Við misstum bara
dampinn í seinni hátfleik, vörnin var
ekki eins góð og í þeim fyrri og þeir
fengu að taka sín skot og þá er ekki
von á góðu.
- Leið ykkur ekki of vel með 9
stiga forskot i hálfleik?
„Ég var hræddur .í hálfleik en við
vissum að þetta var langt frá því að
vera búið og að þeir gætu alveg gert
það sama i seinni hálfleik og við gerð-
um í þeim fyrri. Ég hélt að þetta væri
komið hjá okkur þegar viö jöfnuðum
75-75 en svona er þetta bara. Við hent-
um þessu bara frá okkur. Þetta var al-
ger gjöf og ekkert annað,“ sagði Ingi
Þór Steinþórsson, þjálfari KR, eftir
tapleikinn gegn Njarðvík.
Jón Amór Stefánsson, leikmaður-
hm frábæri í KR, meiddist í byrjun
fjórða leikhluta i leiknum en kom
síöan aftur inn á eftir nokkrar mínút-
ur. Jón Amór meiddist á ökkla á æf-
ingu í vikunni og var því tæpur fyrir
leikinn. „Já, ég tók af mér teipið eins
og kjáni i hálfleik, það særði mig að-
eins og ég hélt að þetta væri allt í lagi
en svo var ekki. Ég lenti á Brenton
eða var það ekki Brenton annars? -
Þið voruð með mikla yflrburði í
fyrri hálfleik, hvað gerðist eigin-
lega í þeim seinni?
„Já það er ekki hægt að segja
hvað við gerðum í fyrri hálfleik. Við
komum ekki eins baráttuglaðir í
seinni hálfleikinn og það gerði út-
slagið. Sennflega var kæruleysið of
mikið hjá okkur i seinni hálf-
leiknum," sagði Jón Amór Stefáns-
son, leikmaður KR, eftir tapið gegn
Njarðvík í úrslitum bikarsins. -vbv