Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
27
Sport
Leikmaður helgarinnar: Abel Xavier, Liverpool
aö vera lukkutröll
Ef einhverjum hefur dottið í hug að
veðja á að Abel Xavier hefði skorað í
sínum fyrsta leik með Liverpool, og
þar að auki skorað fyrsta mark leiks-
ins, hefði sá hinn sami sennilega orð-
ið moldríkur eftir helgina. Xavier
hafði ekki skorað eitt einasta mark í
45 leikjum með Everton en gerði það
ótrúlega í sínum fyrsta leik eftir að
hann var keyptur til erkifjendanna.
Og Liverpool fylgdi því síðan eftir
með fimm mörkum til viðbótar gegn
Ipswich.
„Ég hlýt að vera lukkutröll - að
minnsta kosti eru hinir leikmenn-
imir alltaf að segja það,“ sagði Xa-
vier í samtali við opinbera heimasíðu
Liverpool. Að skora fyrsta
markið mitt í fyrsta leik
mínum er frábært en ég
var samt einungis einn af
mörgum leikmönnum sem
lék vel. Ég veit að skot
mitt breytti um stefnu af
varnarmanni en ég mun
samt eigna mér markið.
Ég vil það svo sannarlega
því að þetta er fyrsta
markiö mitt á Englandi."
Kaupin á Abel Xavier fyrir rúmum
tíu dögum vöktu mikla athygli enda
gerist það ekki á hverjum degi sem við-
skipti með leikmenn eiga sér stað milli
þessara liða. Hann er einungis annar
Abel Xavier
Fæddur: 30. nóvember 1972
Hæð: 188 cm
Þyngd: 86 kg
Lið: Estrela Amadora,
Benfica, Bari, Real Oviedo,
PSV Eindhoven, Everton og
Liverpool.
Landsleikir/Mörk: 18/2.
leikmaðurinn siðan
1959 sem keyptur er
beint frá Everton til
Liverpool. Hinn var
Nick Barmby fyrir
einu og hálfu ári.
Xavier vakti heims-
athygli þegar hann
fékk á sig vítaspyrnu í
framlengingu gegn
Frökkum I undanúr-
slitum EM árið 2000. Hann var í kjöl-
farið rekinn af leikvelli og dæmdur í
níu mánaða keppnisbann frá Evrópu-
leikjum. Frakkar skoruðu gullmark úr
þessari vítaspymu og urðu að lokum
Evrópumeistara. -HI
Enska knattspyrnan í gær:
Ferguson áfram
- United vinnur
Arsenal vann Everton
Manchester United hélt upp á það
með sigri að Alex Ferguson til-
kynnti formlega í gær að hann hefði
framlengt samning sinn viö Man.
Utd. til ársins 2005. United lék gegn
Charlton á útivelli og sigraði 2-0
þrátt fyrir að leikur liðsins hefði
ekki verið sérstaklega sannfærandi.
Charlton sótti töluvert í leiknum og
sýndi á tímabili töluvert betri leik
gegn meisturunum en slakur vam-
arleikur varö þeim að falli. Þá náði
Charlton lítið að nýta sér sóknar-
þunga sinn og sá Roy Carrol, sem
leysti Fabien Barthez af í markinu
vegna meiðsla þess síðamefnda, við
flestum tilburðum Charlton i þá
veru.
Það var Ole Gunnar Solskjær sem
tryggði Man. Utd stigin þrjú með
tveimur mörkum. Það fyrra af-
greiddi hann snyrtilega eftir frá-
bæra stungusendingu frá Roy
Keane og það seinna kom eftir skot
frá Ruud van Nistelrooy. Inn á milli
náði reyndar Graeme Stuart að
skora fyrir Charlton en það mark
var dæmt af vegna rangstöðu.
Ole Gunnar Solskjær lýsti því yf-
ir eftir leikinn að þrátt fyrir að auk-
in samkeppni væri komin í fram-
línustöðurnar hjá United væri hann
tilbúinn til að berjast fyrir sæti
sínu. „Ég reyni einungis að gera þá
ákvörðun eriflða fyrir framkvæmda-
stjórami að setja mig út úr liðinu
fyrir næsta leik. Við erum mjög
ánægðir með stigin þrjú og að hafa
haldið hreinu. Það er erfitt að spila
á móti Charlton og þeir settu
nokkra pressu á okkur í síðari hálf-
leik. I síðasta leik á móti þeim vor-
um við 3-1 yfir en misstum það nið-
ur í 3-3. Núna fengum við ekkert of
mörg færi en við verðum að taka
þau sem bjóðast."
Heppnismark Arsenal
Arsenal heldur einnig sínu striki
í toppbaráttunni en það þurfti
skrautlegt mark frá Sylvain Wiltord
til að tryggja sigurinn. Leikurinn
var afskaplega leiðinlegur á að
horfa og það voru helst skemmtileg
tilþrif frá David Ginola, sem lék
sinn fyrsta leik fyrir Everton, sem
glöddu augað. Ginola var m.a. tví-
vegis nálægt því að koma Everton
yfir í fyrri hálfleik.
í síðari hálfleik fór leikurinn
síðan niður í meðalmennskuna og
sigurmarkið var alveg í stíl við
leikinn. Wiltord fékk þá fyrirgjöf
sem hann ætlaði að taka viðstöðu-
y*Vtf'r V
spon Ca\®
Ole Gunnar Solskjær og Roy Keane fagna marki þess fyrrnefnda gegn Charlton í gær.
laust, og gerði það reyndar, en
hitti boltann illa. Boltinn fór hins
vegar í háum boga yfir Thomas
Simonsen í marki Everton sem
var afar illa staðsettur í markinu.
Þetta mark reyndist duga tfl þess
að tryggja Arsenal sigurinn en lið-
ið hefur ekki enn tapað á útivelli í
vetur. Everton virðast hins vegar
allar bjargir bannaðar því auk
færanna sem þeir fengu hefðu
þeir tvívegis átt að fá vítaspyrnu í
leiknum án þess að þeir fengju
hana dæmda.
Arsene Wenger var mjög sáttur
við að fara með öll stigin frá Goodi-
son Park. „Þetta var mun meira lík-
amlegt en teknískt. Völlurinn er erf-
iður og við vissum að við urðum að
sýna mikinn karakter til að vinna
sigur hér. Fyrri hálfleikurinn var
nokkuð erfiður en við vildum ná
sigri og þegar markið komum héld-
um við okkar striki vel.“ Þess má
geta að níu fastamenn vantaði í lið
Arsenal í leiknum en Arsene
Wenger vildi alls ekki kenna því um
að liðið hefði oft leikið betur en í
þessum leik.
-HI
Reuters
ftii ENOtflMD
Aston Villa-Chelsea..........1-1
1-0 Merson (28.), 1-1 Lampard (64.)
Bolton-West Ham .............1-0
1-0 Gardner (37.)
Derby-Sunderland.............0-1
0-1 Quinn (80.)
Fulham-Blackburn ............2-0
1-0 Hayles (31.), 2-0 Malbranque (63.)
Ipswich-Liverpool............0-6
0-1 Xavier (16.), 0-2 Heskey (43.), 0-3
Hyypia (53.), 0-4 Owen (63.), 0-5 Owen
(71.), 0-6 Heskey (90.).
Middlesborough-Leeds........2-2
0-1 Bakke (19.), 1-1 Ince (50.), 1-2
Fowler (54.), 2-2 Windass (88.)
Newcastle-Southampton .... 3-1
1-0 Robert (24.), 2-0 Shearer (29.), 2-1
Pahars (39.), 3-1 Shearer (45., vsp.)
Tottenham-Leicester .........2-1
1- 0 Anderton (36.), 2-0 Davies (61.),
2- 1 Oakes (79.).
Charlton-Man. Utd ...........0-2
0-1 Solskjær (33.), 0-2 Solskjær (74.)
Everton-Arsenal .............O-l
O-l Wiltord (62.)
Man. Utd 27 17 3 7 66-35 54
Liverpool 27 15 7 5 44-24 52
Newcastle 26 16 4 6 51-33 52
Arsenal 26 14 9 3 51-30 51
Chelsea 26 11 11 4 46-26 44
Leeds 26 11 10 5 37-29 43
Aston Villa 26 9 11 6 32-29 38
Tottenham 26 10 5 11 37-35 35
Fulham 25 8 11 6 25-23 33
Charlton 26 8 9 9 30-32 33
Sunderland 26 8 7 11 21-30 31
WestHam 26 8 7 11 2042 31
Ipswich 26 8 6 12 34-40 30
Southampt. 26 9 3 14 31-41 30
Everton 26 7 7 12 26-33 28
Middlesboro25 7 7 11 24-33 28
Bolton 26 6 10 10 30-42 28
Blackburn 26 6 7 13 32-36 25
Derby 26 6 4 16 18-43 22
Leicester 26 3 8 15 18-46 17
1. deild:
Bamsley-Burnley .............1-1
Crewe-Coventry...............1-6
Gillingham-Wimbledon.........0-0
Nott. For.-Millwall..........1-2
Rotherham-Stockport..........3-2
Sheff. Utd.-Portsmouth ......4-3
Walsall-Sheff. Wed...........0-3
Man. City-Preston............3-1
Watford-Grimsby..............2-0
WBA-Norwich..................1-0
Eidur Smári Guðjohnsen fór af leik-
veUi tæpum hálftíma fyrir leikslok í
jafnteflisleUcnum gegn Aston VUla.
Guðni Bergsson lék aUan leikinn
meö Bolton í sigurleiknum gegn West
Ham.
Lárus Orri Sigurðsson lék allan leik-
inn með WBA í sigurleiknum gegn
Norwich. Heiðar Helguson var hins
vegar ekki í leikmannahópi Watford í
sigurleik liðsins gegn Grimsby.
ívar Ingimarsson lék aUan leikinn í
1-0 sigri Brentford á Bomemouth í
ensku 2. deildinni. Þá voru Ríkharð-
ur Daðason og Bjarni Guðjónsson i
byrjunarliöi Stoke í 0-1 tapi gegn
Port Vale og Stefán Þórðarson kom
inn á sem varamaður fyrir Ríkharð í
siðari hálfleik. -HI
Bæjarlind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 5514
Players-open í pool
Keppni í pool fer fram þriðjudagskvöldið
12. febrúar og miðvikudagskvöldið 13.
febrúar. Skráningu lýkur í kvöld.
Allar nánari upplýsingar á Players#
Bæjarlind 4, Kópavogi.