Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 2
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002 Fréttir Stjórnarandstaðan harðorð vegna uppsagnar starfsmanns Landssímans: Spilling og hroki - Steingrímur vill að Friðrik segi af sér - Össur vill auka vernd heimildarmanna Formenn Samfylkingar og Vinstri grænna átelja harðlega að Landssíminn skuli hafa sagt upp starfsmanni sem upplýsti DV um fjársýslu stjómarformanns Símans. „Þetta er í samræmi við hrokann og yfirganginn sem einkennt hefur ákvarðanir stjómenda þessa fyrir- tækis undanfarið,“ segir Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Össur Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, telur að auka þurfi vernd heimildarmanna. „Það er með engu móti hægt að jafna þessu athæfi starfsmannsins við trúnaðarbrest þar sem aðili hagnast á upplýsingum í viðskipta- legu tilliti. Ég lit svo á að þessi starfsmaður hafi verið að uppfylla borgaralegar skyldur sínar með því að fletta ofan af verknaði sem virð- ist ganga á svig viö lög. Það var klárlega í þágu almannahagsmuna og eigenda fyrirtækisins, íslensku Ossur Skarphéðinsson. þjóðarinnar, að þetta kæmi fram í dagsljósið," seg- ir Össur. Össur bendir á að starfsmaður- inn hafi verið að upplýsa almenn- ing um verknað sem lyktaði mjög cif spillingu. 1 Sví- þjóð séu starfs- menn opinberra fyrirtækja vemdað- ir þannig að ekki megi refsa þeim undir sambærilegum kringumstæð- um. „Það virkar sem undarlegt rétt- læti að þessi maður skuli hljóta svona grimmileg örlög nánast sama dag og yfirmaður annarrar ríkis- stofnunar, sem hefur tekið fé borg- aranna ófrjálsri hendi, fær kurt- eislegt bréf úr stjómarráðinu. Því miður er að koma í ljós að það skiptir máli á íslandi að vera skjól- Steingrímur J. Sigfússon. Friðrik Pálsson. stæðingur valdamikilla stjómmála- manna,“ segir Össur og vísar til máls forstöðumanns Þjóðmenning- arhússins. „Þessar nomaveiðar líta ákaflega illa út,“ segir Steingrímur J. Sigfús- son. Hann sér ekki að starfsmaður- inn hafi valdið tjóni eða skaðað eig- endur Símans. Hann hafi verið að upplýsa þjóðina um hluti sem al- menningur hafi átt rétt á að vita. Tiltal hefði verið nær fremur en brottrekstur en hugsanlega eigi við- urlögin að vera refsing öðrum til viðvörunar. Skilaboðin séu e.t.v. þau að menn skuli hafa sig hæga. Steingrímur telur tímabært að Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Símans, segi af sér þótt sjálfur hafi Friðrik sagt í gær að hann hefði ekkert slíkt í hyggju. „Það þarf að hreinsa þama út og það er lágmark að bæði einkavæðingarnefnd og stjóm Símans fari. Friðrik er auð- vitað þar með talinn og ég hef sagt að ráðherrar eigi lika að taka pok- ann sinn. Það er gjörsamlega óþol- andi að þessi leikur haldi þannig áfram að hver bendi á annan og enginn axli ábyrgð." Líkt og Össur ber Steingrímur saman þetta mál og mál forstöðu- manns Þjóðmenningarhússins. Þeir eru sammála um að munurinn á viðbrögðunum sé sláandi. -BÞ Inflúensan: Leggst þungt á börn „Það em margir veikir af inflúensu þessa dagana,“ segir Þórður G. Ólafs- son, heimilislæknir og yfirlæknir á læknavaktinni. „Inflúensan leggst sérstaklega þungt á yngri krakka. Tveggja til fimm ára börn verða áberandi mest veik. Einkennin lýsa sér með háum hita, kvefi og hósta. Þau verða oft skyndi- lega lasin, líður mjög illa með höfuð- og magaverkjum." Þórður segir að krakkamir verði oft lystarlausir og því mikilvægt að halda að þeim vökva. „Veikindin geta staðið nokkra daga áður en hitinn fer að lækka. Inflúensan gengur yfirleitt yfir á vikutíma og rétt að halda börn- unum inni að minnsta kosti einn dag eftir að þau verða hitalaus." Að sögn Þórðar virðast fullorðnir þola inflúensuna betur. „Kannski hafa þeir einhver gömul mótefni í lík- amanum sem verka gegn henni að einhverju leyti." -Kip Þórður G. Olafs- son læknir. Litlu munaði að Alfreð Þorsteinsson dytti út af lista framsóknarmanna: Ég er himinlifandi - yfir úrslitunum, segir Anna Kristinsdóttir Úrslit i skoðanakönnun fram- sóknarmanna vegna komandi borg- arstjórnarkosninga urðu tvisýnni en búist haíði verið við. Atkvæði féllu þannig að Alfreö Þorsteinsson lenti í 1. sæti og fékk 128 í það sæti. Flest atkvæði í 1. og 2. sæti hlaut Anna Kristinsdóttir, 170. Flest at- kvæði í 1.-3. sæti hlaut Marsibil Sæ- mundsdóttir, 181. í fjórða sæti varð Þorlákur Björnsson með 230 at- kvæði og í fimmta sæti Guðrún Jónsdóttir með 229 atkvæði. Aðeins eitt atkvæði skildi Þorlák og Guð- rúnu að en kosningin var bindandi fyrir íjögur efstu sætin. Niðurstað- an þýðir að Alfreð tekur 2. sætið á Reykjavíkurlistanum, Anna Krist- insdóttir 5. sætið, Marsibil skipar 10. sætið og Þorlákur 14. sæti. Alls voru 344 á kjörskrá og kusu 279, eða 81,1%. Ekki mátti miklu muna að Anna sigraði Alfreð eins og sést á því að hún fékk 113 atkvæði í 1. sætið eða 15 atkvæðum minna en Alfreð í 1. sætið. Ef Anna hefði sigrað Alfreð Anna Kristinsdóttir. Alfreö Þorsteinsson. hefði hann dottið alveg út af listan- um og afskiptum hans af borgarmál- um þar með lokið. Framsóknarmað- ur sem DV ræddi við í gær velti upp spumingu um hvað hefði gerst ef Óskar Bergsson hefði ekki dregið sig í hlé í miðri baráttu vegna óá- nægju. Framboð hans hefði hugsan- lega orðið til þess að fækka atkvæð- um Alfreðs. Ekki náðist í Alfreð til að fá við- brögð hans við úrslitunum en Anna Kristinsdóttir hafði þetta um niður- stöðuna að segja: „Ég er himinlif- andi.“ Anna sagði að hún hefði vissu- lega verið búin að átta sig á að hún hefði mikinn stuðning. „En það kemur samt á óvart hve mörg at- kvæði ég fékk í fyrsta sætið." Aðspurð hvort Anna teldi þetta veika kosningu fyrir Alfreð sagði hún það ekki hennar að túlka það. Þetta væri hins vegar sterk kosning fyrir sig og hún væri mjög sátt við úrslitin. Það væri gott að hafa full- trúa beggja kynja á listanum og hún teldi að kjósendur hefðu sent þau skilaboð að þeir vildu konu í stað Sigrúnar Magnúsdóttur. Mikil hefð sé fyrir því að kona og karl skipi tvö efstu sætin í sveitarstjórnarkosn- ingum hjá Framsóknarflokknum. Anna hefur setið sem varafulltrúi í jafnréttisnefnd en kemur að öðru leyti ný inn i sveitarstjómarmálin. Hún er 38 ára og leggur stund á nám, auk þess að starfa á skrifstofu Framsóknarflokksins. Aðspurð um helstu baráttuatriöi nefnir Anna húsnæðismál og skipulagsmál sem dæmi. -BÞ Litlu mátti muna að Sparisjóður Siglfirðinga færi á hausinn: Erfiðleikum mætt með eignasölu og nýju fé - stjórnin hætti öll nema einn maður - skipt um sparisjóðsstjóra Miklir erflðleikar hafa verið hjá Sparisjóði Siglfirðinga undanfarið og nam tap sjóðsins um 150 milljónum króna i fyrra. Meginskýringin er rakin til óvarlegra kaupa á hlutabréfum sem féUu í verði og orsökuðu þennan mikla taprekstur. Sparisjóður Siglftrðinga er tUtölulega lítil rekstrareining og var eigið fé sjóðsins komið niður fyrir hættumörk. Við þessu hefur verið bragðist með því að skipta um spari- sjóðsstjóra og sljóm utan einn meðlim, fá nýtt fé inn í sjóðinn og selja eignir. Þeir sem komu inn í sjóðinn með nýtt stofnfé era m.a. Kaupþing, Spari- sjóður Borgamess, Sparisjóður Dalvik- ur og Sparisjóður Ólafsfjarðar. Siðast- nefndi sparisjóðurinn hefur lent í miklum áföllum undanfarið og er skemmst að minnast nýlegs dóms þar sem fyrrverandi sparisjóðsstjóra var gert að greiða tugi miUjóna króna vegna brots í starfi. Þessar fjórar bankastoöianir komu inn með um 60 mUljónir króna og einnig hefur áfóU- unum verið mætt með eigna- sölu, s.s. sölu á hlutabréfum og þá m.a. í Kaupþingi. Ólafur Marteinsson vongóður um að styrking eig- infjárstöðu með nýju stofnfé muni duga tU að tryggja fram- tíð Sparisjóðs SigUirðinga en telur að reksturinn muni verða þungur næstu misseri. Sjóðurinn hefur notið ráð- gjafar hjá Sparisjóðabankanum og Tryggingasjóði sparisjóða. Stórar tölur „Þetta eru stórar tölur í samhengi við efnahag svona lítils sjóðs en það er mat manna að starfsemi sjóðsins sé ekki í hættu," segir Ólafúr Marteins- son sem var i vikunni kjörinn nýr for- maður stjómar sjóðsins. Hann segist Of litlir sjóðir Víöa um landið hafa komið upp erfiðleikar hjá sparisjóðum und- anfarið en Ólafur telur ekki að skýr- ingin sé sú að sjálfsákvörðunarvald yf- irmanna sé meira hjá sparisjóðunum en öðrum bankastofnunum. „Ég held að þetta tengist frekar því hve óskap- lega litlar þessar stofnanir era. Oftar en ekki era þær að lána til atvinnulífs og það þarf hreinlega svo lítið til að áfóll verði. Efnahagurinn er svo smár,“ segir Ólafúr. „Mér fmnst líklegt að viðræður fari i gang meðal sparisjóða um frekari sameiningar á næstunni. Þetta era kannski einingar með eigið fé á bilinu 150-300 milljónir en era þó flokkaðar sem meðalstórir sparisjóðir. Menn mega núna lána allt að 25% af eigin fé til eins aðila en máttu lána 40% fyrir nokkrum árum. Það munar ekkert um fjármálastofnanir af þessari stærð. Þær mega ekki lána neitt,“ segir Ólaf- ur. Ekki er formlega búið að ráða nýjan sparisjóðsstjóra en formlegar viðræð- ur era hafnar við Ólaf Jónsson. -BÞ Styttra nám til stúdentsprófs Menntamálaráðu- neytið telur rétt að hefja vinnu sem leið- ir til styttingar náms tO stúdentsprófs. Fljótlega verður skip- uð nefnd sem hefur það hlutverk að finna leiðir til að stytta framhaldsskólanám um eitt ár. Nefhd- in á að skila skýrslu um málið í haust. Ályktun um Landssímann Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að ríkis- stjómin hverfi þegar frá öllum áform- um um frekari einkavæðingu innan al- mannaþjónustunnar. Ekki verði frek- ar aðhafst í þessum efnum fyrr en þjóðin hefúr átt þess kost að gera upp við einkavæðingarstefhuna. Sjóður i gíslingu Þórður Ólafsson, formaður stjómar Atvinnuleysistryggingasjóðs, krefst þess að stjómvöld viðurkenni sjálf- stæði sjóðsins. Hann segir að fjármála- ráðuneytið hafi sjóðinn í gislingu. í honum era 8 miiljarðar. Þórður telur hættu á að stjómvöld eyði fé sjóðsins í annað en atvinnuleysisbætur. RÚV greindi frá. Ómerktir sjúklingar í könnun á vegum gæðadeildar Landspítalans - háskólasjúkrahúss reyndist rúmur helmingur sjúklinga ómerktur. Könmmin var gerð á tutt- ugu og tveimur deildum. Lilja Stefáns- dóttir aðstoðarhjúkrunarforstjóri segir að það þurfi að herða reglur um merk- ingu sjúklinga því að hingað til hafi þær verið óskráðar. Mbl. greindi frá. Lyfjanotkun hefur aukist Lyfjanotkun á ís- landi hefur aukist um tæplega 60% und- anfarin 10 ár sam- kvæmt upplýsingum sem heilbrigðisráðu- neytið og landlæknir hafa tekið saman um lyfjanotkun. Verð- mæti seldra lyfja, miðað við hámarks- verð, meira en tvöfaldaðist, úr rúm- lega 6 milljörðum í tæplega 13 miljarða á sama tímabili. RÚV greindi frá. Mikill snjór á Ströndum Nemendur í Finnbogastaðaskóla í Trékyllisvík urðu að fresta skólaferöa- lagi til Reykjavíkur fyrir helgi vegna veðurs. Ekki hefúr verið flogið til Gjög- urs síðan í siðustu viku. I óveðrinu um daginn fór raflnagn af sveitinni og komst það ekki á í Munaðamesi við Ingólfsfjörð fýrr en seint í gær. Fariö fram á rannsókn Þrír hluthafar í leitis telja aö for- svarsmenn fyrirtækisins, nokkrir hluthafar og stjómarmenn hafi gerst sekir um refsiverða háttsemi af ýmsu tagi og hafa farið fram á opinbera rannsókn rikislögreglustjóra. Stjóm- arformaður leitar.is segir hluthafana beita ijárkúgunum til að auka verð- mæti hlutabréfa sinna í fyrirtækinu. RÚV greindi frá. Ijós í myrkri Á miðvikudag- inn hefst vetrar- hátíðin Ljós í myrkri í Reykja- vik. Hátíðin, sem er helguð ljósinu, verður sett á Lækjartorgi klukkan 19.30 með ávarpi Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg- arstjóra. -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.