Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 29
45
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002____________________________
DV Tilvera
Spears á tjaldiö
Söngkonan Britney Spears er ekki
lengur bara söngkona þvi um síðustu
helgi var fyrsta verkefni hennar þar
sem hún kemur fram sem leikkona op-
inberað með ffumsýningu myndarinn-
ar Crossroads þar sem Spears leikur
aðalhlutverkið. Hún mætti til frumsýn-
ingarinnar í fylgd kærastans, Justins
Timberlake, klædd bleikum kjól, með
sjöunda áratugar sixpensara á höfðinu
og virtist njóta sín í botn.
„Þetta verður ekkert mislukkað
Carey-ævintýri,“ sagði Spears og vitn-
aði þar í mislukkaða tilraun söngkon-
unnar Mariah Carey til að ná frægð og
frama á hvíta tjaldinu í myndinni
Glitte en hún varð helsta aðhlátursefni
gagnrýnenda í fyrra.
Spears segist engu kvíða og er að eig-
in sögn viss um gott gengi myndarinn-
ar. „Ég er mjög ánægð með árangurinn
en þetta var alls ekki auðvelt og svolítið
ógnandi í fyrstu. Ég er ánægð með að
hafa hellt mér út í þetta,“ sagði Spears
sem leikur táningsstelpu í myndinni
sem fer með kærastanum sínum, sem
leikinn er af Anson Mount og tveimur
æskuvinum, í skemmtiferð til LA.
Vilja ólmir fá
Makka til Vegas
Skemmtanastjórar í gleðiborginni
Las Vegas í Nevada vilja ólmir fá Bítil-
inn fyrrverandi, Paul McCartney, til
að koma vestur og skemmta gestum á
hótelinu MGM Grand. Kaninn er tilbú-
inn að greiða popparanum gamla fjög-
ur hundruð milljónir króna fyrir
skemmtunina. Ef Palli þiggur boðið
fær hann þar með hæstu laun sem
breskur listamaður hefur fengið fyrir
eina tónleika.
Forráðamenn hótelsins í Vegas vilja
að Bítiilinn fyrrverandi komi í staðinn
fyrir hnefaleikakeppni þeirra Mikes
Tysons og Lennox Lewis 6. apríl næst-
komandi. Tyson fékk ekki leyfi til að
boxa i Nevada og því verður að fá eitt-
hvað í staðinn. í svona borg er jú ekki
hægt að líða messufall.
Alþjóðleg sýning Kynjakatta:
Kattafár í Kópavogi
Margir glæsilegustu högnar og
læður landsins komu saman í reið-
höll hestamannafélagsins Gusts í
Kópavogi um helgina til að sýna sig
og sjá aðra. Mátti þar sjá eðalborna
hefðarketti af framandi tegundum á
borð við síams, bengal, abyssiníu og
sómalí gera sér glaðan dag ásamt
eigendum sinum og öðrum kattaá-
hugamönnum. Þá voru einnig mætt-
ir til veislunnar nokkrir erlendir
dómarar sem skoðuðu kvikindin í
krók og kring til að komast að því
hverjir stæðu öðrum framar í feg-
urð, líkamlegu atgervi og
hegðun. Fjölmargir gestir litu
inn á sýninguna um helgina
enda ekki á hverjum degi
sem tækifæri gefst til að sjá
jafnmarga fágæta og fram-
andi ketti á einum stað.
Bestur
Systkinin Lísa Rut og Aron Örn meö kisuna sína,
Brynjar’s Blue Velvet, en hún var valin besti köttur
sýningarinnar á laugardaginn, auk þess sem hún
hlaut sérstök verölaun sem uþþáhaldsköttur
eins dómarans.
Verðlaunaköttur
Ólafur Njálsson meö bengalköttinn sinn, Satyanara-
yana, en hann hlaut verölaun í sínum flokki.
DV-MYNDIR EINAR J
Kötturinn veginn og metinn
Erlendir dómarar handléku kettina og skoö-
uöu á alla kanta áöur en þeir kváöu upþ úr-
skurö sinn.
■V
Hlaöin blómum og verölaunagripum
Katrín Gunnarsdóttir bar af öörum dönsurum í
einstaklingskeþþni á Islandsmeistaramótinu í
free style-dansi. Hlaut hún jafnframt verölaun
fyrir hópdans, auk þess aö vera Reykjavíkur-
meistari í greininni.
Slgurvegaramir
Eldmóöur úr Reykjavík sigraöi í hópkeppninni og voru stúlkurnar aö vonum
ánægöar meö árangurinn aö keppni lokinni.
Fifth Element
Fifth Element, íslandsmeistararnir í break-dansi, sýndi listir sínar í hléi.
Ungur og efnilegur dansari
Á laugardaginn keþþtu yngrí dansar-
ar í íslandsmeistaramótinu í free
style. Hér dansar ein ung og upp-
rennandi af list.
íslandsmeistaramótið í free style:
Eldmóður bar
sigur úr býtum
Árlegt íslandsmeistaramót í
free style-dansi var haldið um
helgina í íþróttahúsi Fram í
Safamýri. Gríðarleg þátttaka
var í mótinu i ár en alls tóku 30
hópar og 15 einstaklingar þátt í
eldri flokki 13 til 17 ára ung-
linga. í hópakeppninni bar hóp-
urinn Eldmóður úr Reykjavík
sigur úr býtum en í einstak-
lingskeppninni var það Reykja-
víkurmærin Katrín Gunnars-
dóttir sem þótti öðrum fijóðum
fótafimari. Á laugardaginn var
siðan haldið íslandsmeistara-
mótiö í yngri flokki, 10 til 12
ára, og var ekki síður góð þátt-
taka í þeim flokki. Þó að tilþrif-
in á dansgólfinu hafi kannski
ekki verið jafn glæsileg og hjá
hinum eldri lofuðu þau engu að
síður góðu og er án efa mikils
að vænta af hinum ungu
dönsurum á komandi árum.
DV-MYNDIR EINAR J.
%r
The New Multi Compact
Sportj epplingurinn
sem bætir kostum
jepplingsins við bestu
eiginleika smábílsins.
Verö: Beinsk. 1.648.000 kr.
Sjálfsk. 1.748.000 kr.
Aflmikil og sparneytin 16 ventia vél, HH
I meðaleyðsla aöeins 6.9 L á hundraðid.
$ SUZUKI
--------
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Meðal staðalbúnaðar er:
Sítengt fjórhjóladrif, ABS hemlar,
álfelgur, upphituð framsæti,
þakbogar og rafdrifnar rúður.
I
4