Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002
I>V
9
Fréttir
DV-MYND GARÐAR HARDARSON
Líflegt
Ástandið við höfnina á Stöðvarfirði er allt
annað og betra eftir að Samherji kom til
leiks í þorpinu.
Togaralandanir dag-
lega á Stöðvarfirði
Að undanfórnu hefur verið mikil um-
ferð um Stöðvarfjarðarhöfn en togaramir
Kambaröst, Margrét og Björgúlfur hafa
landað þar á undanfornum vikum. Það er
ánægjulegt að sjá að nær daglega liggur
togari við bryggju en hverri togaralöndun
fylgja þónokkur umsvif. Öll skipin era í
eigu Samherja en koma þess fyrirtækis til
Stöðvaríjarðar hefur aukið stöðugleika í
fiskvinnslu á staðnum. Hefur nýlega verið
tekin i notkun ný fiskvinnslulína í frysti-
húsinu á Stöðvarfirði og einstaklingsbón-
us innleiddur á nýjan leik við fiskvinnsl-
una. Líkt og á flestum öðrum stöðum var
það kerfi afnumið fyrir mörgum árum en
hópbónus tekinn upp í staðinn. -GH
Reyðarfjörður:
Lóðaumsóknum
fjölgar verulega
- vaxandi bjartsýni vegna álversbyggingar
Bæjarstjóm
Fjarðabyggðar
staðfesti starfs-
mannastefnu
Fjarðabyggðar 7.
febrúar sl. og
verður hún
kynnt á næstu
misserum fyrir
starfsmönnum sveitarfélagsins.
Forstöðumönnum stofnana
Fiarðabyggðar hefur þegar verið
kynnt efni og innihald hennar.
Jafhframt voru starfsskyldur
stjómenda afgreiddar til síðari
umræðu í bæjarstjórn en þær
fjalla almennt um hlutverk
stjórnenda. Bæjarstjóra, Guð-
mundi Bjamasyni, var falið að
vinna úttekt á því hvort skyn-
samlegt væri að sameina frá-
veitu, hitaveitu, rafveitu og
vatnsveitu í eitt b-hluta-fyrir-
tæki. Þetta verður unnið sam-
hliða því sem verið er að breyta
reikningsskilum
sveitarfélagsins til
samræmis við nýjar
reikningsskilavenj-
ur.
Veruleg aukning
hefur orðið í lóða-
umsóknum og nú
þegar er búið að út-
hlutað 19 lóðum á Reyðarfirði.
Reikna má með að vaxandi vonir
um að byggt verði álver á Reyð-
arfirði eigi stærsta þáttinn í því.
Samþykkt hefur verið að leggja
„átaki til lækkunar verðbólgu"
lið með því að lækka álagningu
þjónustugjalda. Sorpeyðingar- og
sorphreinsunargjöld árið 2002
lækka um 1.000 krónur alls á
hverja tunnu og draga á til baka
5% af þeirri 10% hækkim sem
tók gildi um síðustu áramót á
leikskólagjöldum, skóladagheim-
ilisgjöldum og gjöldum félags-
legrar heimaþjónustu. -GG
Frá Reyðarflrði.
Verð
90 cm 35.600,- SamU 30.600
100 cm 39.000,- Samt; 34.000
105 cm 42.800,- Samt; 37.800
120 cm 49.900,-Samt: 44.900
RRGnnR BJöRnsson,
Sérbæfmg i framteiðsfu oa honnun springdýna.
Dalshrauni 6-Hafnarfiröi-Simi: 555 0397-www.rbrum.is
1RJ8 Jeriiiiiujan hn
Fermingargjöf j
sem innborgun á rúmi \
www.vw-poio.is
það ættu oilir að eiga einn
• Nýr Polo er stærri en fyrirrennari hans og býr yfir fádæma
skemmtilegum aksturseiginleikum, lipurð og afli. Þessi glæsilega
hannaði bíll býðst með frábæmm vélarútfærslum, nýrri bein-
skiptingu, langtímaolíubúnaði og svo mætti lengi telja. Komdu
og reynsluaktu þessum einstaka bíl sem allir ættu að eiga.
Volkswagen Polo var sæmdur hinum eftirsóttu
verðlaunum Gullna stýrið af þýska tímaritinu
Bild am Sonntag. Það gerist ekki betra.
Nýr Polo
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða www.hekla.is • Netfang hekla@hekla.is
BIRTINQUFI / BÍA