Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 25
41 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002 DV Tilvera Myndgátan hér til hliöar lýsir nafnorði. Lausn á gátu nr. 3240: Gengur á hönd konungs Krossgáta Lárétt: 1 leiði, 4 vitur, 7 væta, 8 laupur, 10 frumeind, 12 blekking, 13 duga, 14 hossast, 15 hrædd, 16 treg, 18 karlmannsnafn, 21 vöðva, 22 skarð, 23 fiskur. Lóðrétt: 1 tannstæði, 2 ósínki, 3 trúlofun, 4 óalgengt, 5 fálm, 6 óhreinindi, 9 illdeilur, 11 duglega, 16 atorku, 17 hlass, 19 kjölrák, 20 rennsli. Lausn neðst á síðunni. H V N líftif/ h { P ^ _ ^ n . ix.' '7. » S.Ö «c* _^.jl '>T_ «=>e<-3 z' ' ‘ \ o ^ \ •s<3-vUii •» • !lf iTir ^ ,-vf >> //s- 3lf:m ' ' Skák Umsjón: Sævar Bjarnason Þegar maður teflir illa teflir and- stæðingurinn vel og öfugt. Merkileg staðreynd! Þorvarður Ólafsson haföi forystu á meistaramóti Hellis allt fram að 6. umferð er hann tapaði fyrir Bimi Þorfmnssyni. Hér er reyndar formaður Taflfélags Reykjavíkur, Sig- urður Daði Sigfússon, hjálpsamur eins og hans er vani annars. Eða skákin er harður skóli og það er kalt á toppnum og úti um þessar mundir. Það er sem betur fer alltaf hægt að tefla aðra skák ef svo ber undir. Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon. Svart: Þorvarður F. Ólafsson. ítalski leikurinn. Meistaramót Hellis (3), 2002. 1. e4 e5 2. RE3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3 Rf6 5. d4 exd4 6. b4 Be7 7. e5 Re4 8. Rxd4 Rxe5 9. Bb3 d5 10. De2 Rg6 11. 0-0 0-0 12. Bc2 He8 13. f4 Bf6 14. Dd3 a5 15. b5 c5 16. bxc6 bxc6 17. Hdl Db6 18. Be3 (Stöðu- myndin) 18. -Ba6 19. c4 Bxc4 20. Da3 Rxf4. 0-1 Bridge Sagnhafi lendir oft í ágiskunar- stöðum sem geta valdið úrslitum um hvort spil standi eða falli. Hins veg- ar er með skynsamlegri hugsun oft hægt að komast að réttri niðurstöðu í ágiskunarstöðunum. Skoðum hér eitt dæmi. Þeir sem vilja spreyta sig á vandamálinu, skoði til að byrja Umsjón: ísak Öm Sigurösson með aðeins sagnimar og hendur AV. Lokasamningurinn er 3 spaðar, spil- aðir á vesturhendina. Útspil norðurs er tígulgosi sem fær að eiga fyrsta slaginn. Næst kemur tígultía, litið úr blindum, suður drepur á ásinn og spilar næst hjartasjöunni. Hvað ger- ir þú í þeirri stöðu? 4 ÁG842 44 KG2 ♦ 76 * K107 4 53 44 Á54 4 G10542 4 D1076 44 93 4 D93 4 Á642 «4 D10876 4 ÁK8 4 D53 4 G98 N V A S 4 K9 SUÐUR VESTUR NORÐUR AUSTUR 144 14 244 24 3 44 pass pass 3 4 p/h Þú ert sjálfur ekki með nægilega sterk spil til þess aö berjast upp í 3 spaða, en austur fer upp á þriðja sagnstigið í krafti fjórða trompsins. Tveir tapslagir eru á tígul, a.m.k. einn í hjarta og sennilegast einn á lauf. Til þess að vinna spiliö verður þvi spaöakóngur að liggja og aðeins einn slagur má tapast á hjarta. Sagn- hafi reynir að gera sér mat úr þeim upplýsingum sem liggja til staðar. Einhverjir sagnhafar myndu senni- lega fara upp með hjartakónginn á þeim forsendum að ásinn sé líklegri til að vera á hendi suðurs eftir opn- unina. En ekkert liggur á. Eftir út- spilið er augljóst að suður á ÁK í tígli. Til að vinna spilið verður suður að eiga spaöakóng. Suður á greinilega 5 hjörtu, því norður tekur varla und- ir á minna en 3 spil. Sömuleiðis má teljast líklegt að suður eigi a.m.k annað háspil- anna í laufi. Það fel- ast ákveðin skilaboð í því að norður skuli spila út tígli en ekki hjarta. Ástæðan hlýt- ur að vera sú aö hann heldur á ásn- um en ekki drottningunni. Suður á ágætis opnun sem réttlætir baráttu hans í þrjú hjörtu, með ÁK í tígli, spaðakóng, punkta í laufi og hjarta- drottningu. Því ætti skynsamur sagn- hafi að komast að þeirri niðurstöðu að hjartagosinn sé rétta spilið. Lausn á krossgátu_______ ■SBJ 02 ÚEA 61 ‘Piæ LX ‘§np 91 ‘BjBjo n ‘inQa 6 ‘uiPM 9 ‘)Bd s ‘)jæ§piBfs p ‘jpuuB)S3j g ‘uo z ‘uio§ \ :jjajQori ‘sojj gg ‘paS zz ‘BJI?5( 12 ‘JBAg/ 81 ‘raæjp 91 ‘Boj gj ‘jcnp p\ ‘Bofj ei ‘ibj zi ‘uiojb 01 ‘siaui 8 ‘Efnaj l ‘nods \ ‘jojS i ijjajpi Bananalykt Hvernig er þetta með þessa svokölluðu sjálftöku hér í okkar góða landi? Hvað er sjá- lftaka? Útskýring: Til dæmis þeir starfsmenn viðkomandi stofnunar sem eru í æðstu stöðum og taka sér vald og fjármuni úr fyrirtækjunum eins og þeir eigi það sjálfir. Ef það eru ekki þessir menn sem um ræðir þá eru það vin- ir eða aðrir venslamenn. Það liggur við að í hverri viku komi upp spillingamál hér og þar í atvinnugeiranum og verst þykir mér þegar um ríkisfyrirtæki eða ríkisstofn- anir er að ræða. Það besta við þetta allt, og einhvern veginn mjög hlægi- legt, er að enginn þessara manna segir sjálfviljugur af sér eða er hreint og beint rek- inn. Svo eru miklir speking- ar úti í bæ að velta því fyrir sér hvort ekki hafl verið brot- inn svokallaður andmælarétt- ur á þessum sömu mönnum. Þeir fengu ekki að skýra út vitleysuna eða sjálftökuna áð- ur en málin voru gerð opin- ber. Ég spyr: Hvernig er þetta eiginlega með okkar yndislega land? Erum við að verða brjál- uð af græðgi? ER spillingin að ganga frá okkur? Við lesum um það ótt og títt að hinn og þessi smákrimmi sé dæmur fyrir þjófnað, hafi stolið úr búð einhverjum tug- um þúsunda en svo koma þessir hvítflibbar, taka sér fé „alveg óvart“ og lofa að gera það aldrei aftur. Skamm, þetta má ekki. En bíddu við. Hvað- an kemur þessi bananalykt? Sandkorn Umsjón: Birgir Guðmundsson • Netfang: sandkorn@dv.is Mikil spenna er nú komin upp vegna bæjarstjórnarkosning- anna á Akureyri en listar flokk- anna hafa smám saman verið að taka á sig mynd. Þegar er ljóst hverj- ir muni skipa efstu sætin hjá Samfylkingu og Sjálfstæð- isflokki og vekur það sérstaka at- hygli að í fjórða sæt- inu hjá Sjálfstæðisflokknum er að finna Sigrúnu Jakobsdóttur hótel- rekstrarfræðing sem ekki hefur verið 1 stjórnmálum áður. Þykir þetta útspil sjálfstæðismanna vera nokkuð sterkt enda muni Sigrún gefa listanum ferska ásýnd. Krist- ján Þór Júliusson mun áfram verða bæjarstjóraefni listans og er nokk- urt sjálfsöryggi í herbúðum sjálf- stæðismanna þessa dagana, enda koma þeir vel út úr skoðanakönn- unum ... Samfylkingin á Akureyri á hins vegar á brattann að sækja ef marka má síðustu skoðanakönnun Gallups. Þar er flokkurinn með ein- ungis einn mann inni en er núna með tvo. Oktavía Jóhannesdótt- ir, sem mun leiða listann eftir að hafa I fellt Ásgeir Magnússon í skoðana- könnun með- al flokks- manna, á erfitt verk fyrir höndum. Heyrst hefur að Samfylkingarmenn hyggist leita eftir hjálp út fyrir bæj- armörkin og hafi fengið Karl Th. Birgisson til að aðstoða sig og gefa góð ráð varðandi kosningabarátt- una, en Karl er þaulvanur PR-mað- ur til margra ára ... Um þessar mundir er ekki til formleg staða málfarsráðunautar á Ríkisútvarpinu en Gunnar Stefáns- son dagskrárfulltrúi hefur sinnt | þessu hlutverki að einhverjum 1 hluta með öðr- um störfum. Þessir hlutir eru ekki sagð- ir vera ofar- lega á for- gangslista hjá yfirstjóm út- varpsins en þó mun einn útvarpsráðs- maður sérstaklega áhugasamur um málið, en það er Mörður Ámason, sá hinn sami og vildi á sínum tíma að Evróvisjónlagið Birta yrði sung- ið á íslensku og uppskar óvinsæld- ir fyrir. Mörður mun hins vegar pressa stíft að málfarsráðunautur fái skilgreindan sess hjá stofnun- inni og m.a. mun hann hafa lagt til að Gunnar Stefánsson verði settur í þetta með formlegri hætti og kveðið verði á um málfarsráðgjöf sem ákveðið starfshlutfall... Gamansögur eru iðuiega í gangi á Netinu og ein þeirra fjallar um nýlega könnun sem átti að gera um heim allan á vegum Sameinuðu 1 þjóðanna. I Spurningin sem spyrja átti var svona: „Viltu gjöra svo vel að segja okkur skoðun þína á mat- arskortinum sem hrjáir umheim- inn?“ Könnunin fór út um þúfur af eftirfarandi ástæðum: f Afríku vissi enginn hvað „matur“ var. í Vestur-Evrópu vissi enginn hvað „skortur" var. I Austur-Evrópu vissi enginn hvað „skoðun“ var. í Suður-Ameríku vissi enginn hvað „gjöra svo vel“ var og í Bandaríkj- unum vissi enginn hvað „umheim- urinn“ var. ... án þess að úga andmæli á iþættu .Jt~ ' Kasru vinir, menntun er ^ ’Sko. Égv'- sagði það. Þetta er ekki s-appelsínL^ Svo þú ert dýralaeknir. Hva, féll6tu í Iaekni6fræðinni? t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.