Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 32
fes*
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum alian
sólarhringinn.
s liujv/ir
f Holijason hf.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MANUDAGUR 25. FEBRUAR 2002
Hef ekkert
meira að segja
„Ég hef ekkert meira aö segja viö
fjölmiðla. Nú vil ég bara fá að vera
í friði með fjölskyldunni," sagði
Guðmundur
Magnússon.
Guðmundur
Magnússon, for-
stöðumaður Þjóð-
menningarhúss-
ins, í stuttu sím-
tali við DV í gær.
Ýmsir hafa talið
viðbrögð við um-
sýslu hans of létt-
væg og hefur
krafa um afsögn
komið upp. DV
forstöðumanninn
hugðist spyrja
hvort hann teldi koma til álita að
segja upp, a.m.k. tímabundið, til að
lægja öldurnar en gafst ekki færi á
því. Símtalinu lauk í kjölfar tilvitn-
aðra ummæla. -BÞ
Goöabunga.
Mýrdalsjökull:
Ekkert lát á
skjálftum
Enn er ekkert lát á skjálftavirkn-
inni í Goðabungu í Mýrdalsjökli.
Um fimm skjálftar eru að meðaltali
í Goðabungu á sólarhring. Einn 3,2
stiga skjálfti varð á sunnudagsnótt.
Jarðvísindamenn fylgjast grannt
með jöklinum.
Komið hefur í ljós að i gangi er
einhver þensla í jarðskorpunni
undir jöklinum. Hana á að reyna
að rannsaka betur á næstunni til
að reyna að meta hvaö er i gangi
undir jöklinum. Fari svo að gos
komi upp í Goðabungu eru allar
líkur á að hlaup komi niður í Jök-
ulsá á Sólheimasandi eða í Mark-
arfljót. -NH
Veður vikunnar:
Talsvert frost
með éljum
Fyrri hluta vikunnar
verða austan- og norð-
með éljum
norðan og austan til en
skýjað með köflum suðvestanlands.
Frost verður 1 til 12 stig, mildast
syðst.
Þegar líða fer á vikuna verður
fremur hæg breytileg átt, bjart veð-
ur og kalt. Um helgina er búist við
suölægum áttum, slyddu og jafnvel
rigningu.
...EKKI ASTÆÐA TIL!
Rán í Sparkaupum:
Afgreiðslu-
stúlkan
bundin niður
DV-MYND KO
Lögreglumenn ræða við fórnarlamb ræningja
Tveir menn rændu verslunina Sparkaup í Suöurveri seint í gærkvöld. Þeir villtu á sér heimildir og komust inn
bakdyramegin. Þeir bundu afgreiöslustúlku niöur og tæmdu peningaskáp. Lögregla leitar mannanna. Á innfelldu
myndinni sést hanski sem lögregla telur tengjast málinu.
Tilkynnt var um rán við verslun-
ina Sparkaup í Suðurveri i Reykja-
vík rétt fyrir klukkan tíu í gær-
kvöld. Þjófarnir voru tveir að verki
og komust þeir á brott með eitthvað
af fjármunum. „Þjófarnir voru tveir
að verki og sögðust vera starfsmenn
hjá Vífilfelli og komu þess vegna
inn lagermegin að versluninni,"
sagði Haraldur Örn Birgisson í sam-
tali við DV stuttu eftir atvikið. Har-
aldur var annar tveggja starfs-
manna Sparkaupa á vakt þegar rán-
ið var framið.
„Við vorum héma á efri hæðinni
að vinna okkar vinnu þegar annar
þeirra kallaði eftir aðstoð okkar. Þá
fór stúlkan sem var á vakt með mér
niður til að hjálpa þeim en þá var
hún bara hreinlega tekin og bundin.
Því næst neyddu þeir hana til að vísa
þeim á peningaskáp þar sem uppgjör
frá því fyrr um daginn var geymt."
Haraldur telur að ránsfengurinn hafi
verið undir hundrað þúsund krónum
og bætir því við að þeir hafi ekki ver-
ið vopnaðir öðra en vasahníf. -áb
Mikil viðbrögð vegna brottreksturs heimildarmanns DV:
Eg iðrast einskis
- segir Halldór Öm Egilson sem rekinn var vegna upplýsinga um Góðráð
„Ég iðrast einskis," segir Halldór
Öm Egilson, sem var rekinn á fóstu-
dag frá Landssíma íslands vegna upp-
lýsinga sem hann lét DV hafa um Góð-
ráð ehf„ einkafyrirtæki Friðriks Páls-
sonar, stjómarformanns Símans. Hall-
dór Öm, sem gegndi starfi millistjóm-
anda, er nú atvinnulaus og án með-
mæla. Hann hafði starfað hjá fyrirtæk-
inu síðan 1. júlí 1998 og kýs nú að tjá
sig sem hluthafi í fyrirtækinu.
Upplýsingamar náði Halldór í inn í
bókhaldskerfi Símans og afhenti blaða-
manni DV að beiðni hans. I þeim felst
það eitt að árið 2001 hafi stjómarfor-
maðurinn fengið 7.618.900 krónur frá
Landssímanum í nafni einkafyrirtæk-
is síns, Góðráða.
Gríðarleg viðbrögð hafa orðið í kjöl-
far fréttar DV um að Halldór hafi ver-
ið rekinn. Fjöldi manns hefúr haft
samband viö blaðið tfl að spyija með
hvaða hætti sé hægt að koma til hjálp-
ar „Litla Landssímamanninum" eins
og hann kallast manna í milli.
Á miðvikudag í síðustu viku var
Halldór kallaður fyrir yfirmann sinn
og spurður um aðild aö málinu, í kjöl-
far þess að tæknimenn höfðu rakið það
Friðrlk Pálsson.
hvaðan kallað var
eftir upplýsingun-
um og hvar þær
vora prentaðar út.
Hann viðurkenndi
undanbragðalaust
að hafa staðið að
þessu og var tfl-
kynnt að hann
yrði rekinn. Sam-
kvæmt heimildum
DV var hann látinn undirrita starfs-
lokaplagg þar sem honum er óheimflt
að ræða málefni Landssímans næstu
árin. Halldór sagði við DV að hann
myndi standa við að ræða ekki málefni
Símans sem slík en enginn gæti bann-
að sér að ræða núverandi stöðu sína
sem hluthafi.
Annar heimildarmaður hjá Lands-
símanum lét DV vita af örlögum Hall-
dórs samdægurs. Þá hafði blaðamaður
samband við Friðrik Pálsson stjómar-
formann og spurði hvort þetta væri
rétt.
„Ég get staðfest að einn starfsmaður
var rekinn og annar fékk áminningu
fyrir að upplýsa um tfltekin gögn í
bókhaldi,“ svaraði Friðrik að bragði.
Landssími
R«ykj avik
Zslsnds
Roportng píriods 01 - 16 2
Reporting period Reporting period
d debittotal credit total
7.618 . 900,00
7.2 07.616.00
FRIÐRIK PÁLSSON
Landssíminn
Millistjórnandi var rekinn fyrir aö veita upplýsing-
ar sem leiddu til þess aö upplýst var um trúnaö-
arbrot viö stjórn fyrirtækisins.
„Ég er hluthafi í Landssímanum,
auk þess að hafa starfað hjá fyrirtæk-
inu sem er gott og mér þykir vænt um.
Mínar ástæður fyrir að upplýsa máiið
era þær einar að mér ofbauð ruglið
sem átti sér stað þama,“ segir Halldór
og bendir á að i útboðslýsingu, grein
10.4 þar sem fjallað er um laun stjóm-
arformanns og annarra stjómar-
manna, sé ekki orð að finna um samn-
ing Góðráða við Símann. Þá sé að sínu
mati ljóst að þeir sem stóðu að samn-
ingi við Góðráð hafi farið á svig við lög
um hlutafélög nr. 30 frá 2.
janúar 1995.
„Þetta kemur allt fram í
opinberum gögnum þannig
að ég er ekki að brjóta
neinn trúnað þar. Aftur á
móti er ljóst að stjómarfor-
maður og samgönguráð-
herra bratu trúnað við
stjómina og þjóðina með
leynisamningnum. Ég þarf
að gjalda fyrir með starfi
mínu og ef það er lausnin
verður svo að vera. Ég teldi
eðlflegt að þáttur stjómar-
formannsins, Friðriks Páls-
sonar, yrði kannaður af þar til bærum
aðilum," segir Halldór.
Hann segir óvissu ríkja um framtíð
sína. Hann hafi engin meðmæli frá
Símanum og tíminn einn geti leitt í
Ijós hvemig honum og fjölskyldu hans
reiði af.
„í dag er óvissan algjör en ég gerði
mitt til að upplýsa fólk um trúnaðar-
brest og það sem gerðist í raun og átti
að halda leyndu. Ég álít mig hafa
hreina samvisku," segir Halldór.
-aþ/rt
Skattrannsókn á Norðurljósum:
ikkkkkkkkkk
Upplýsingar frá útlöndum
^Gitarinn^
- réðu tímasetningu aðgerða, segir fyrrverandi forstjóri
„Ég vil ekki tjá mig um þessi um-
mæli Hreggviðs, hvorki játa þeim
né neita. Annað er ekki um málið
að segja,“ segir Skúli Eggert Þórðar-
son skattrannsóknarstjóri þegar
hann er spurður út í ummæli sem
Hreggviður Jónsson, fyrrverandi
forstjóri Norðurljósa, lét falla í
Kastljósi Ríkissjónvarpsins á laug-
ardag. Þar sagöi Hreggviður að til-
viljun ein hefði ráðið því að skatt-
rannsóknarmenn hefðu komið í höf-
uðstöðvar fyrirtækisins að Lyng-
hálsi sama dag og hann yfirgaf fyr-
Hreggviður
Jónsson.
Skúli Eggert
Þóröarson.
irtækið. Hafi hann spurt skattrann-
sóknarstjóra út í málið og veriö tjáð
að þeir hefðu verið að bíða eftir
mikilvægum upplýsingum frá út-
löndum sem borist hefðu á fimmtu-
dagsmorgun. Skúli vildi ekki tjá sig
um hvaða upplýsingar hefði verið
að ræða né hvaöan þær heföu
borist.
Búist er við að nokkra mánuði
taki að fara yfir gögnin sem
skattrannsóknarstjóri lagði hald á í
húsnæði Norðurljósa en nefnt hefur
verið að rannsóknin snúist aðallega
um eignamyndun, rekstrargjöld og
umsýslu Jóns Ólafssonar. -ÓSB
^uncarmn^
0? Stórhöfða 27, •5’
X s. 552 2125. X
JL. Rafmagns gítar, *
¥ magnari m/effekt ¥
'K’ól og snúra 33.900krK
irkkkkkkickk
/
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é
é