Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 13
VEIAVER
Ungmenni valda
usla í Salt Lake
í fyrrinótt þurfti að kalla til
óeirðalögreglu þegar hópur
drukkinna ungmenna olli usla í
miðborg Salt Lake City, miðpunkti
vetrarólympíuleikanna sem lauk
þar í gær, aðfaranótt sunnudags.
Ólætin áttu sér stað í grennd við
hótel þar sem voru höfuðstöðvar Al-
þjóða Ólympíunefndarinnar í Salt
Lake City. Lögreglan skaut gúmmí-
klúlum í átt að mannfjöldanum til
að dreifa honum þegar átökin milli
ungmennanna og lögreglunnar
brutust út en þau fyrrnefndu svör-
uðu fyrir sig með þvi að kasta bjór-
glösum að lögreglunni.
Meðlimum Ólympíunefndarinnar
var sagt að halda kyrru fyrir þann
stutta tíma sem átökin stóðu yfir.
Stilit til friðar
Til átaka kom á milli ungmenna og
óeirðarlögreglunnar í Salt Lake City.
Íslandssími
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002
DV
Utlönd
Lík uppreisnarleiðtogans Jonasar Savimbi var til sýnis til að staðfesta dauða hans:
Hvatt til friðar í Angóla
Dauði Jonasar Savimbi hefur gefið
friðarvonum í hinu stríðshrjáða
Angóla byr undir báða vængi en
Savimbi dó í átökum við angólska
herinn á föstudag.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
Kofi Annan, hvatti alla hlutaðeigandi
til að nýta sér núverandi aðstæður í
landinu og stilla til friðar. Sama má
segja um bandaríska utanríkisráðu-
neytið og portúgölsk yfirvöld en
Angóla var áður fyrr nýlenda Portú-
gala. Síðan landið hlaut sjálfstæði ár-
ið 1975 hefur verið barist þar nánast
sleitulaust og fór Savimbi þar fremst-
ur í flokki fyrir Unita-samtökin al-
ræmdu.
Ríkissjónvarpið og -útvarpið hafa
óspart hvatt eftirlifandi meðlimi
Unita til að gefast upp en einn tals-
maður samtakanna, Rui Oliveira,
sagði á laugardag að „ætlunarverk
Unita mundi ekki breytast".
Lík leiðtogans var til sýnis fyrir
fréttamenn í Lucusse, sem er í austur-
hluta Angóla, til þess að taka af allan
vafa um dauða hans. Hann varð sam-
kvæmt fregnum fyrir 15 byssuskotum,
2 í höfuðið og hinum í efri hluta lík-
amans, sem og fætur.
Fréttamenn í Angóla sögðu að tveir
háttsettir menn innan samtakanna
hefðu einnig iátist en nánustu sam-
starfsmönnum Savimbi hefði tekist að
flýja.
Unita hefur barist við stjórnvöld í
Angóla síðan landið fékk sjálfstæði ár-
ið 1975, en Savimbi stofnaði samtökin
nokkrum árum fyrr til að berjast við
MPLA-samtökin sem tóku við völdum
í landinu þegar það fékk sjálfstæði.
Átökin hafa í gegnum árin kostað
um 500 þúsund mannslif og valdið því
að hundruð þúsunda til viðbótar hafa
misst heimili sitt. Því er ljóst að upp-
byggingin sem er fram undan i land-
inu er mikil.
Nýjung
Framþróun í eyrnagatagerð
StofnaO 1918
Rakarstofan
Klapparstig
Siml SS1 3010
REUTER-MYND
Lík Jonasar Savimbi.
■
Lækkaðu símakostnaðinn um 1.000 kr. á mánuði í 10 mánuði
Það er alltaf gott að eiga inni hjá
einhverjum. Þegar þú færð þér áskrift
hjá fslandssíma færðu ekki aðeins lægri
mínútugjöld en aðrir bjóða. Þú færð
einnig 10.000 kr. inneign til lækkunar
á símakostnaðinum - 1.000 kr. á
mánuði, næstu 10 mánuði.
Enginn binditími.
Ekki þarf að kaupa símtæki til að nýta sér
tilboðið.
Þú velur þá áskriftarleið sem þér hentar best.
Þú velur greiðsluleið - kreditkort, debetkort
eða gíróseðill.
Símatilboð á islandssimi.is.
Nánari upplýsingar í 800 1111 og á islandssimi.is
Tilboðið f*st hji söluaðllum (slandsslma
CQ>
NÝHERJI
/Gu/Xit
nnÉ
Heimilistæki
Bókobúð 5
KefUwíkur ® radiomidun.
10.000kr.
inneign fylgir GSM áskrift