Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Side 16
16 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002 33 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjórí: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjórí: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Fróttastjórí: Birgir Guðmundsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugeró og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Sótt að fjölmiðlum Fjölmiðlar verða á hverjum tíma að treysta á heimildar- menn til að nálgast upplýsingar sem annars yrðu aldrei opin- berar - upplýsingar sem eðli máls er nauðsynlegt að dregnar séu fram í dagsljósið. Trúnaður milli heimildarmanna og fjöl- miðla er mikilvægur, raunar lífsnauðsynlegur. Fyrir almenning er nauðsynlegt að fjölmiðlar sinni hlut- verki sínu af einurð, heiðarleika og óhlutdrægni - óháðir sér- hagsmunum fámennra stétta eða nokkurra einstaklinga. Fjöl- miðlar hafa tekið að sér varðstöðu fyrir almenning, fyrir skatt- greiðendur, fyrir neytendur - varðstöðu gegn spillingu, óráðsíu og valdníðslu. DV hefur staðið þessa varðstöðu lengi og mun halda því áfram. Þar verður ekkert gefið eftir. Reynt hefur verið að skerða athafnafrelsi fjölmiðla með ýmsum hætti á undanfórnum mánuðum, bæði beint og óbeint. Gott dæmi um það er þegar Samkeppnisstofnun setti ákveðn- ar reglur um framkvæmd verðkannana. Þá lýsti DV því yfir að blaðið myndi aldrei láta opinbera stofnun setja blaðinu skorð- ur við framkvæmd verðkannana þar sem vönduð vinnubrögð og blaðamennska hafa verið í heiðri höfð. Tilgangur Sam- keppnisstofnunar með reglunum var ekki að tryggja hag neyt- enda heldur sérhagsmuni verslunareigenda. Undanfarnar vikur hefur DV verið leiðandi í fréttum og um- fjöllun um málefni Landssíma íslands. Blaðið hefur reynt af fremsta megni að varpa ljósi á allar hliðar þeirra fjölmörgu mála sem komið hafa upp í tengslum við fyrirtækið af heiðar- leika og óhlutdrægni. Lesendur blaðsins dæma síðan um það hvemig til hefur tekist. En við vinnu sína hafa blaðamenn DV þurft að treysta á heimildarmenn innan fyrirtækisins - heim- ildarmenn sem telja nauðsynlegt að réttar upplýsingar komist til almennings. í liðinni viku gripu stjórnendur Landssímans til þess ör- þrifaráðs að segja starfsmanni upp vegna upplýsinga sem hann veitti blaðamanni DV. Hvort hagsmunum Landssimans er best borgið með því að reka starfsmenn sem verða uppvísir að „leka“ á eftir að koma í ljós. En stjórnendur fyrirtækisins verða að gera greinarmun á því hvort um er að ræða upplýs- ingar sem snerta viðskiptamenn fyrirtækisins og viðskipta- hagsmuni þess eða upplýsingar sem eðlilegt er að gerðar séu opinberar. Þegar sótt er að heimildarmönnum fjölmiðla er um leið sótt að fjölmiðlunum sjálfum. Fyrir fjölmiðla og almenning hlýtur slíkt að vera áhyggjuefni. Vökusigur Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, haföi sætan sigur í kosningum til stúdentaráðs í liðinni viku. í fyrsta skipti í 12 ár setjast hægrimenn að völdum í Háskóla íslands en Röskvu- menn, kosningabandalag andstæðinga Vöku, eru úti í kuldan- um. í áratugi hafa forystumenn íslenskra stjórnmálaflokka lagt kapp á að tryggja pólitíska stöðu sína meðal háskólastúdenta og úrslit kosninga til stúdentaráðs verið nokkurs konar póli- tísk vog á ástandið í landsmálum. Kosningabandalag vinstrimanna í Háskólanum, Röskva, er svipað kosningabandalag og Reykjavíkurlistinn - bræðingur vinstri grænna, Samfylkingarinnar og framsóknarmanna. Úr- slitin í kosningunum í Háskólanum eru því ekki þau skilaboð sem forystumenn Reykjavíkurlistans höfðu kosið sér. Kosningaundirbúningur Reykjavíkurlistans fer því ekki sérstaklega vel af stað. Vonbrigði í Háskóla íslands koma beint ofan i fámennt og fremur misheppnað prófkjör Samfylkingar- innar og furðulegar hugmyndir eins helsta forystumanns Reykjavíkurlistans um að Orkuveita Reykjavikur kaupi stór- an hlut í Landssíma íslands. Óli Björn Kárason Ummæli Spurt og svarað____Þjónar Þjóðmenningarhúsið einhverjum tilgangi? ÐV Skoðun reglur gleymst aö geta þess aö umrædd 25% landbúnaðarstyrkjanna eru aðeins bundin við fyrsta árið. Um tíu ára aðlögun er að ræða sem tryggir hærra hlutfall frá ári til árs fram til 2013 að 100% er náð. Aðrir hlutar landbúnaðarstefnunnar eins og full- ur markaðsaðgangur gOda strax að fullu gagnvart nýju ríkjunum. Uppbygging atvinnugreina Rök framkvæmdastjórnarinnar fyrir því að fara þessa leið eru efna- hagsleg. Stefnt er að því að draga al- mennt úr landbúnaðarstyrkjum inn- an sambandsins á næstu árum. Sam- bandið hefur sína fjárhagsáætlun Ofara eftir og talið er að það styðji betur við þróun landbúnaðar í nýju löndunum að byggja styrkina upp með þessum hætti og að hyggja þá í leiðinni betur að uppbyggingu arm- arra atvinnugreina á landbúnaðar- svæðunum þar sem ljóst sé að nú- tímavæðing landbúnaðarins muni hafa í for með sér atvinnuleysi í dreifbýlinu. Eftir þennan tiu ára aðlögunar- tíma verði síðan ein landbúnaðar- stefna í sambandinu sem allar þjóð- imar ráði þá við. Svanfríður Jónasdóttir Ný aðildarríki ESB og nýjar Bjami Harðarson, ritstjóri Sunnlenska: Hallir eru löstur Davíðs „Þjóðmenningarhúsið er dæmi um einn stærsta löst nú- verandi forsætisráðherra, og þó er Davið að mörgu leyti ágætur. Lösturinn er sá að Davíð þarf aUtaf að vera að reisa sér hallir. Þegar hann var borgarstjóri reisti hann Ráðhús og Perlu - og nú þarf hann sem forsætisráðherra að gera gamla Safnahúsið að lítilli höU, svona í túnfæti Stjómarráðsins. Mér fmnst hugmyndin um Þjóðmenningarhús að mörgu leyti góð ef hún væri framkvæmd af einkafyrirtæki, en það er alveg fráleitt að nota skattfé almennings í svona bruðl.“ „Verði haldið áfram á sömu braut er sýnt að aðflug að Reykjavikurflugvelli verður stöðugt erfiðara og áhœttusamara, og jafnvel horfur á að loka verði honum áður en þessi 15 ár hennar Ingibjargar Sólrúnar renna út.“ Evrópusambandið er aUtaf að breytast, nýjar áherslur og ákvarðanir taka við af eldri og ný svið eru tekin inn í sam- starfið. Það gerist eft- ir að samkomulagi er náð mUli þeirra ríkja sem fyrir eru í sambandinu. Þeirri aðferð meirihlutaá- kvarðana sem hér þekkist best er sem „ ÞingmaOur sagt ekki beitt held- Sam»TO'nflar ur er sá tími tekinn sem þarf tU að ná samkomulagi sem aUar ESB-þjóð- imar geta lifað við. í hvert sinn sem nýtt land verður hluti sambandsins breytast reglur tU að unnt sé að mæta sérstökum þörf- um eða tU að taka mið af öðrum að- stæðum. Þannig leiddi innganga Sví- þjóðar og Finnlands tU viðurkenn- ingar á sérstöðu landbúnaðar á norð- lægum slóðum. Norðmenn voru líka á sínum tíma búnir að ná fram ýms- um athyglisverðum atriðum varð- andi sjávarútveg þegar þeir áttu síð- ast í samingaviðræðum við sam- bandið. Hefðu þeir samþykkt inn- göngu 1994 væru þau atriði hluti sjávarútvegsstefnu sambands- ins núna. Stækkunarferlið Nú liggur það fyrir að tíu ný lönd leita inngöngu í samband- ið. Við hljótum að fylgjast grannt með því hvemig það ferli gengur fram. MikUvægt er aö hafa réttar upplýsingar um þær ákvarðanir sem teknar em um breytingar og forsendur þeirra. Þessar þjóðir munu nefnUega líka verða hluti af EES-svæðinu og tengjast okkur þannig með nýjum hætti. Það hefur vakið athygli að framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins ákvað að nýju löndin, sem öll eru með hlutfallslega mik- inn mannafla bundinn í landbún- aði, fengju aðeins 25% af þeim landbúnaðarstyrkjum sem sam- bandið hefur veitt samkvæmt þeim reglum sem um slíka styrki hafa gUt. Út af þessu hefur verið lagt og ýmislegt gáfulegt komið fram um jafnræði og breytingar á reglum. Umfjöllunin hefur hins vegar verið ónákvæm og jafnvel vill- andi. Það hefur tU dæmis alveg Svanfríbur Jónasdóttir „Það hefur til dæmis alveg gleymst að geta þess að umrædd 25% landbúnaðarstyrkjanna eru aðeins bundin við fyrsta árið. Um tíu ára aðlögun er að ræða sem tryggir hærra hlutfall frá ári til árs fram til 2013 að 100% er náð.“ - Frá fundi um afkomu bœnda. Blekkingin á börum „Nei, ég var alltaf edrú í leikjum en hins vegar var ég oft timbraður. Það vand- ist og mér fannst það ekki koma neitt sér- staklega niöur á frammistöðu minni. Það er svolítið skrýtið að héma heima komst ég upp með að lifa þessu óreglu- lífi, þótt fólkið mitt, aðstandendur og vinir reyndu að hafa vit fyrir mér. En ég var bara of djúpt sokkinn, hékk á börum borgarinnar í vafasömum fé- lagsskap með mönnum sem eins var ástatt hjá. Blekkingin hélt mér gang- andi: „Ég? Með drykkjuvandamál? Ekki aldeUis!" Þannig hugsaði ég.“ Sigfús Sigurðsson handboltamaöur í viðtali við Mannlíf. Þvílík hræsni „Manni verður eiginlega flökurt að sjá fféttamenn á RÚV segja glað- hlakkalega fréttir af erfiðleikum hjá Norðurljósum. HvUík hræsni! Ekki þarf RÚV að lenda í svona vandræð- um. Það er stofnun sem í skjóli ríkis- valdsins halar inn þrjá mUljarða í rekstrarfé á ári og hefúr leyfi tU að senda eigin handrukkara á alla sem vUja horfa á sjónvarp, líka þá sem kæra sig ekki um dagskrána á RÚV. Samt geta þeir Markús Öm og Gunn- laugur Sævar, með aUt þetta fé, ekki sinnt jafneinfóldum hlut og að sýna ffá heimsmeistarakeppni í fótbolta eða ólympíuleikum. Ekki veit ég hvert aUir peningamir fara, en svo mikið er víst að þeir hrökkva ekki einu sinni fyrir rekstrinum. Stofnun- in er rekin með haUa ár eftir ár. Eng- inn virðist þurfa að súpa seyðið af því. Svoleiðis komast menn hins veg- ar ekki upp með á frjálsum markaði." Egill Helgason á Strik.is ^ í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar um Þjóðmenningarhúsið hafa vaknað spurningar um gildi þess og hlutverk. Við Miðjarðarhafið? Eggert Skúlason framkvœmdastjóri: Allir karlar í smóking „Nú er ég kjaftstopp þegar þú spyrð mig svona - og slíkt gerist ekki oft. Þó held ég, miðað við atburði síðustu daga, að þetta sé sambland af ferðaskrifstofu og ráðgjafarfyrirtæki. í það minnsta dreg ég slíka ályktun miðað við þá reikninga sem þetta fyrirtæki hefur verið að greiða. En í fuUri alvöru sagt þá hef ég ekki hug- mynd um hvaða tUgangi þetta hús þjónar. Ég man eftir einni beinni sjónvarpsútsendingu úr Þjóðmenningarhúsinu, þá flóði þama aUt í kampavíni og aUir karlar voru i smóking. Meira hef ég ekki heyrt af þessu fyrirbæri við Hverfis- götuna, fyrr en nú.“ Gerður Kristný, ritstjóri Mannlífs: Verði fólki mál í miðbœnum „Mér hefur þótt gott að skjót- ast í Þjóðmenningarhúsið þegar ég hef þurft á salemi i bæjar- leiðöngrum. Gólfið er undurfagurt, starfsfólkið hvíslar gjaman og svo get ég læst að mér. Það ftnnst mér kostur. Jólakransarnir framan á hús- inu um hátíöarnar voru lika vægast sagt guð- dómlegir. Þegar ég velti þessari spumingu hins vegar nánar fyrir mér verð ég að viðurkenna að ég veit ekki hver tilgangurinn með Þjóðmenn- ingarhúsinu er. Ég hef séð þar bæði víkinga- og ljóðasýningu en heUdartUgangurinn er mér hul- inn. Nema hann sé sá að koma fólki tU bjargar verði því mál í miðbænum." hverju þessar seldust ekki. Þær voru að vísu svartar, en aðeins farið að leka úr örfá- um þeirra vegna morknunar. Við hlið þeirra var skemmd- ur laukur og myglaður hvít- laukur. Harðlínugrænmetisfólk segir að laukur sé óhoUur og þarna var okkur beinllnis bjargað frá honum. Þar fyrir ofan lágu sjóreknar gulrætur. Þær hljóta að hafa orðið skip- reka, það er eina skýringin á bleytunni í pokunum og svörtu blett- unum. Sjóslysablettir, gat ekki verið mygla. Síðan mátti fá salat sem var brúnt að utan og svo skvolpaði brúnt vatn inni í plastinu. Kannski var sal- atið nýbúið að fá sér kaffi. Tómatar og sellerí Plasthúðuðu sveppimir voru brúngiUir og suUaði i þeim. Pipar- ávextimir - ég hefði vUjað vita hvaða ár þeir voru fæddir, því jafn- vel Móðir Teresa var ekki svona hrukkótt um áttrætt. Tómatarnir voru tUbreyting. Þeir voru með hvítum skemmdum, þess- um sem líkjast munnangri, bara miklu stærri. Svo voru þeir auðvitað líka með litlu, svörtu blettunum. SeUeríiö var grænt á endanum sem upp sneri, svo ég kippti einu upp. Ýlduvatnið gusaðist yfir mig úr pok- anum. Mér finnst, að umbúðirnar eigi að vera vatnsheldar. Púrrumar voru visnar, steinseljan var dökkgræn bleyta, EN - innan um blómkálið með myglublettunum og úldnu blööunum utan um fann ég tvo óskemmda hausa. Þeir hafa ef- laust lent i borðinu fyrir slysni. Að öðru leyti var óskemmt grænmeti þennan dag fljóttalið: Lambhagasalat. Það var ferskt. Hitt óhappið i Kauffélagi Ör- eiganna. Lög um grænmeti? Ég fór heim og hringdi í Neytendasamtökin. TU að spyrja hvort það væru ekki einhver lög um að ekki mætti selja skemmd- an mat. Gvu, sögðu Neyt- endasamtökin, það veit ég ekki. HoU- ustuvemd hefur með það að gera. HoUustuvemd hafði ekkert með það að gera, þetta heyrði undir HeU- brigðiseftirlitiö. Nei, það eru ekki lög um græn- meti. Grunaði okkur það ekki? Það eru reglur. Sem segja, að um óskorið grænmeti gUdi skyn kaupandans. Ef hann skynjar eitthvað ólystUegt, þá má hann sleppa því að kaupa það. - Takk. Bara sykur og flot Daginn eftir kom ég aftur í Kauffé- lag Öreigans. Gatan fyrir framan það var þakin brotnum eplum og krömd- um tómötum. Almáttugur, hugsaði ég, hvað húsmæðumar hafa orðið brjálaðar í dag. Það var þó ekki ástæðan. Heldur var öskudagur og kauffélagið hafði gefið bömunum hoUustu í stað sælgætis. Þau hentu ávöxtum jarðar í götuna, því ísland er ekki við Miðjarðarhafið og við vUjum bara sykur og flot. Inni fyrir var búið að hreinsa skemmda grænmetið úr borðinu. Er á meðan er. Auður Haralds Auður Haralds rithöfundur Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður: Bruðlað í þarfleysu „Nei, Þjóðmenningarhúsið þjón- ar nákvæmlega engum tUgangi því á sama tíma og bruðlað var í fram- lögum tU þess eigum við Þjóðminjasafn sem er i nið- umíðslu og er geymt í pappakössum. Þeim hundruð- um mUljóna sem bruðlað var með i Þjóðmenningar- húsið hefði betur verið varið til Þjóðminjasafnsins. Engu líkara er en ráðamenn hafi ekki vitað hvað þeir áttu að gera við Safnahúsið þegar það losnaði. Skynsamlegast hefði verið að Hæstiréttur fengi inni í gamla Safnahúsinu, þá hefði sá hræðilegi kumbaldi sem í dag er dómhús aldrei verið byggður. Það hús stingur í stúf við önnur í kring og eyðileggur útlit hverfisins þar sem það stendur." Það var hér um daginn að fjórar húsmæður hittust í Kauffélagi Öreig- anna. Oft eru svona fundir eina fé- lagslíf kvenna sem annars hanga bara yfir pottunum eða liggja eins og hráviði í sófunum heima hjá sér, óttalega einmana og andlega koðnað- ar. Þær geta því orðið ósköp kátar að komast í snertingu við aðra sér skylda lífveru og gefa þá frá sér aUs kyns gleðihljóð, svona eins og HaUó og Fyrirgefðu (þaö síöara ef tvær ætla að fá úr sama balanum í einu). - Stundum segir jafnvel ein við aðra: Kálbögglar í kvöld? sem er bæði afar persónulegt og merki um samskipta- þörf á lokastigi sjúkdómsins. Við grænmetishilluna Við húsmæðumar hittumst við grænmetishiUuna af þvi að við höfð- um, þvert á stefnu kauffélagsins, ætl- að að hafa grænmeti í matinn um kvöldið. Andartaki síðar höfðum við gefið okkur á vald geðshræringa og æsinga. Rífandi góð tjáskipti sem við fengum út úr því. í boði voru: Þetta 30-40 kartöflur. íslendingar eru svo vanir skemmd- um kartöflum, að ég skU ekki af Við grænmetisborðið. - „ Við húsmœðurnar hittumst við grœnmetishilluna af því að við höfðum, þvert á stefnu kauffélagsins, ætlað að hafa grænmeti í matinn um kvöldið. Andartaki síðar höfðum við gefið okkur á vald geðshrœringa og æsinga. Rífandi góð tjáskipti sem við fengum út úr því. “ Húsnæðismál HÍ Á sl. ári gengu Reykvikingar að kjörborðinu og greiddu atkvæði sitt um það hvort ReykjavíkurflugvöUur ætti að fara eða vera áfram í Vatns- mýrinni Úrslit urðu þau að heldur fleiri vUdu leggja vöUinn niður en hinir og Ingibjörg Sólrún hefur lýst því yfir að veUinum verði lokað eftir 15 ár. Ein aðalástæðan fyrir því er sú að nota þarf Vatnsmýrina aUa sem byggingarland fyrir deildir Háskól- ans sem eru á hrakhólum. Víst er það rétt að háskólastúdent- um hefur fjölgað verulega á síðustu ámm og áratugum. Þegar ég lauk námi þaðan fyrir 30 áram nákvæm- lega vora innritaðir stúdentar 6 tU 7 hundruð og aðeins lítiU hluti þeirra lauk þaðan burtfararprófi. Nú skUst mér að fjöldi háskólaborgara nálgist 10 þúsund og fer þeim aUtaf fjölgandi. Allt innan seilingar Ekki er að efa að aUur þessi mikli fjöldi þarf stórt húsrými ef vel á að vera að honum búið. Vera má að það hafi ekki aukist í samræmi við fjölg- un stúdenta og er það miöur. Ef við lítum nú nánar á byggingarsögu HÍ þá er hún í stórum dráttum á þessa leiö: Mjög myndarlega var staðið að byggingu nýju aðalbyggingarinnar er tekin var í notkun árið 1940, þótt hún sé nú fyrir löngu orðin aUt of lít- U. Fljótlega voru reistar minni bygg- ingar í nágrenni hennar er tengdust HÍ, eins og t.d. stúdentagarðamir, Ámagarður, Lagagarður, Hjónagarð- ar og Prófessorahverfið, aUar í næsta nágrenni við aðalbygginguna. EðlUegast hefði verið að byggja næst á Melunum, norðan Suð- urgötu og vestan Hótel Sögu, aUt vestur að Fádkagötu. Þama var stærðar lóðarrými sem engar byggingar voru á nema gamla Loftskeytastöðin. Ef þama hefðu þá verið reist nokkur háhýsi í stU við BændahöUina og Háskólabíó hefðu húsnæðisvandræði HÍ verið leyst tfi langs tíma. Enginn er kominn til að segja að ekki megi hýsa fleiri en eina háskólastofnun undir sama þakinu. Þetta gera Norð- menn á Blindern og gengur vel. En hvað gerðist? Skipulagsyfir- völd Reykjavíkur og forráðamenn HÍ klúðruðu þessu algerlega. í staö þess að byggja háhýsi var dritað niður nokkrum smærri húsum, eins og t.d. Raunvísindastofnun, Náttúrufræði- húsi og byggingarsvæðið gjöreyðUagt. Hefði það ekki verið gert mundi hafa fengist tUvalið svæði í næsta ná- grenni við aðalbyggingu HÍ og þær sérstofnanir er ég nefndi áðan. Þurft hefði að gera undirgöng undir Suður- götuna tU þess að auðvelda samgang á miUi og stutt hefði verið í Þjóðar- bókhlöðuna. AUar stofnair HÍ hefðu þannig verið innan seUingar nema Læknagarður en hann er best stað- settur þar sem hann er, í nágrenni Landspitalans við Hringbraut. Örlítið hægar Síðustu 30 árin virðist mér að ekki hafi verið mikið byggt yfir deUdir HÍ, þrátt fyrir aUa þessa fjölgun stúd- enta, og var því komið mál að bæta úr. Og hvar skyldu skipu- lagsyfirvöld og forráða- menn HÍ ætla að bera niður? Jú, í Vatnsmýr- inni. Þar hefur nú þegar verið hafist handa við að reisa stórhýsi fyrir HÍ niðri við Njarðargötu er nefnist Líftæknihús eða eitthvað á þá leið. Verði haldið áfram á sömmu braut er sýnt að aðflug að ReykjavíkurflugveUi verður stöðugt erfiðara og áhættusamara og jafn- vel horfur á að loka verði honum áður en þessi 15 ár hennar Ingibjargar Sólrúnar renna út. Hvað veldur þessari aðfor að FlugveUin- um? Er borgin svo aðþrengd með byggingarland að gripa þurfi tU slíkra ráða, úr því að nálægðin við aðalbygginguna var rofin eins og hér hefur verið nefnt? Ef sest er upp í bU skiptir ekki svo miklu máli, hvort ekiö er lengra eða skemmra. Hvemig væri að fara sér örlítið hægar og notfæra sér óbyggt svæði sunnan viö nafnlausu götuna er ligg- ur frá Hringbraut neðan við stúd- entagarðana inn í Prófessorahverfið. Þama mætti reisa nokkur meðalhá hús að ósekju. Þetta er þó nær Há- skólanum og ekki jafnnálægt Flug- veUinum og Njarðargatan. Þetta held ég að stjómendur HÍ ættu að athuga áður en gengið er svo langt að láta Háskólabyggingar teygja sig niður aUa Vatnsmýrina og ógna þar með framtíð Reykjavíkurfiugvallar. Agnar HaUgrimsson Agnar Hallgrímsson cand. mag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.