Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Side 26
42
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95 ára________________________________
Hálfdán Einarsson,
Hólsvegi 13, Bolungarvík.
80 ára________________________________
Ólína Halldórsdóttir,
Gullengi 5, Reykjavík.
75 ára________________________________
Jón Bæringsson,
Höfðagötu 18, Stykkishólmi.
Anna Guölaug Sigurjónsdóttir,
Gilsbakka 9, Neskaupstað.
Hlldur Þórlindsdóttir,
Tröllagili 1, Mosfellsbæ.
Guöfinna Ólafsdóttir,
Gerðakoti 2, Bessastaöahreppi.
70 ára
Þorgeröur Laxdal
húsmóðir,
Gránufélagsgötu 20,
Akureyri.
Þorgeröur veröur á heimili
sonar síns, Þingvallastræti
18, efri hæð, og tekur þar
á móti gestum eftir kl. 15.00 á afmæl-
isdaginn.
Arnleif Jónsdóttir,
Vitastíg 8, Hafnarfirði.
Slgrún Júlíusdóttir,
Hákonarstöðum 1-2, N-Múlasýslu.
Rafn Magnússon,
Móaflöt 19, Garðabæ.
Grímur Ormsson,
Markarvegi 17, Reykjavík.
Haraldur Baldursson,
Fellasmára 12, Kópavogi.
Margrét Árnadóttir,
Austurbergi 32, Reykjavík.
60 ára
Víklngur S. Antonsson,
Ólafsgeisla 33, Reykjavík.
Drífa Gunnarsdóttir,
Þingvallastræti 37, Akureyri.
Erlingur Bótólfsson,
Hraunbæ 196, Reykjavík.
Vllborg Magnúsdóttir,
Hjarðarholti 15, Selfossi.
Sæunn Axelsdóttir,
Hlíöarvegi 51, Ólafsfirði.
50 ára
Anton Grétar Slgþórsson,
Fróðasundi 11, Akureyri.
Helgl Hrafnkelsson,
Fífuseli 29, Reykjavík.
Ásdís Einarsdóttir,
Víðimel 56, Reykjavík.
Ásdís Ásgeirsdóttir,
Stekkum 23, Patreksfirði.
Margrét Þóra Guömundsdóttlr,
Höfðavegi 43d, Vestmannaeyjum.
Ester Hjartardóttir,
Hjallabraut 12, Þorlákshöfn.
Sædís Ósk Guömundsdóttir,
Heiðarbóli 41, Keflavík.
Bára Hjaltadóttir,
Fellsenda 1, Búöardal.
Ægir Björgvinsson,
Álfaskeiði 98, Hafnarfiröi.
40ára
Nanna Guörún Marlnósdóttir,
Ljósheimum 22, Reykjavík.
Dagný Karlsdóttir,
Súluhöfða 21, Mosfellsbæ.
Stefán Þór Jansen,
Reykási 19, Reykjavík.
Zuilma Gabríela Sigurðardóttir,
Borgarási 12, Garðabæ.
Psrsónuleg,
Útfararslofa (slands
8uóurhtió38> Siml 581 3300
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002
Fólk í fréttum
Halldór Ásgrímur Ingólfsson
landsliðsmaður og skytta hjá Haukum
Halldór Ásgrímur Ingólfsson,
landsliðsmaður og meistarflokks-
maður Hauka í handknattleik, skor-
aði íjórtán mörk í bikarúrslitaleikn-
um gegn Fram er Haukar urðu bik-
armeistarar.
Starfsferill
Haildór fæddist 30. desember 1968
í Reykjavik og ólst þar upp til fjög-
urra ára aldurs en síðan á Seltjam-
amesi. Hann var í Mýrarhúsaskóla,
Valhúsaskóla, Fjölbrautaskólanum
í Ármúla, stundaði nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík og lauk BS-prófl í
byggingartæknifræði frá Tækni-
skóla íslands 1997.
Halldór stundaði ýmis almenn
störf á unglingsámm og námsárun-
um. Hann hefur verið byggingar-
tæknifræðingur hjá umhverfis- og
tæknisviði Hafnarfjarðarbæjar frá
því hann lauk námi.
Halldór æfði og keppti í hand-
knattleik með Gróttu frá 1980,
keppti með liðinu í yngri flokkum,
lék með meistaraflokksliði Gróttu
1986-90, lék með meistaraflokki
Hauka 1990-94, lék með Bodo i Nor-
egi 1994-95 og hefur leikið með
meistaraflokki Hauka frá 1995.
Hann hefur leikið u.þ.b. þrjátíu
landsleiki.
Halldór varð nokkrum sinnum ís-
landsmeistari með yngri flokkum
Gróttu, varð deildarmeistari með
Haukum 1994, bikarmeistari með
liðinu 1997, íslandsmeistari með
Haukum 2000, og íslands- og bikar-
meistari með Haukum 2001.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 30.6. 2000 Elínu
Ásu Þorsteinsdóttur, f. 20.5. 1970,
nema við KHÍ. Hún er dóttir Þor-
steins Kristjánssonar húsvarðar,
búsettur í Reykjavík, og Ingibjargar
Jónsdóttur, starfsmanns við ríkis-
sjónvarpið.
Börn Halldórs og Elínar Ásu eru
Stefán Þór, f. 13.1. 1988, nemi; íris
Thelma, f. 5.3. 1997.
Systkini Halldórs eru Jóhann
Jónas Ingólfsson, f. 15.2. 1957, heild-
sali, búsettur í Bretlandi; Magnea
Ingólfsdóttir, f. 21.8. 1961, húsmóðir
í Hafnarfirði, en maður hennar er
Guðjón Antóníusson; Hrönn Ingóifs-
dóttir, f. 22.4. 1964, háskólanemi í
Danmörku, en maður hennar er
Stefán Eirfkur Stefánsson; Ásgeir
Ingólfsson, f. 26.7. 1973, nemi.
Foreldrar Hafldórs: Ingólfur
Magnús Ingólfsson, f. 15.10. 1936, d.
7.8. 1997, leigubifreiðarstjóri á Sel-
tjamamesi og formaður Frama, og
Ingibjörg Ottósdóttir, f. 3.9. 1939,
húsvörður, nú búsett í Hafnarflrði.
Ætt
Ingólfur var sonur Ingólfs, bif-
reiðarstjóra í Keflavík, Magnússon-
ar, sjómanns í Garði, frá Riftúni i
Ölfusi, Grímssonar. Móðir Ingólfs í
Keflavík var Sigríður Jónsdóttir.
Móðir Ingólfs, formanns Frama,
er Jóhanna Frið-
riksdóttir, sjó-
manns á Látrum
í Aðalvík, Geir-
mundssonar, b. á
Atlastöðum,
Guðmundssonar,
b. i Kjaransvík,
Snorrasonar, b. í
Hælavík, Brynj-
ólfssonar. Móðir
Friðriks á Látr-
um var Sigur-
lína Friðriks-
dóttir, b. í Neðri-
Miðvík, Jónsson-
ar, b. þar, Jóns-
sonar. Móðir Sig-
urlínu var Júdit
Jónsdóttir. Móð-
ir Jóhönnu var Mikkalína Þor-
steinsdóttir, sjómanns á Borg, Gísla-
sonar smiðs Jónssonar, vinnu-
manns í Reykjafirði, Bjamasonar.
Móðir Gísla var Sigurlaug Jónsdótt-
ir. Móðir Þorsteins var Solveig Þor-
leifsdóttir, b. í Æðey, Benediktsson-
ar, hreppstjóra á Keldu og b. á Blá-
mýrum, Þórðarsonar, ættföður
Vigurættar, Ólafssonar, ættföður
Eyrarættar, Jónssonar. Móðir
Mikkalínu var Jóhanna María Jó-
hannesdóttir, b. á Hjöllum, Andrés-
sonar og Friðgerðar Hafliðadóttur.
Ingibjörg er dóttir Ottós, vita-
varðar í Svalvogum í Dýrafirði, Þor-
valdssonar b., sjómanns og vita-
varðar í Svalvogum, Kristjánssonar,
b. og sjómanns í Hvammi i Dýra-
firði, Jónssonar, glanna á Kjarans-
stöðum, Jónssonar. Móðir Kristjáns
var Kristín Skúladóttir. Móðir Þor-
valds var Guðmunda Guðmunds-
dóttir, skipasmiðs í Hjarðardal, Þor-
valdssonar. Móðir Ottós var Sólborg
Matthíasdóttir, b. á Haukabergi á
Barðaströnd, Péturssonar, b. á
Haukabergi, Guðmundssonar. Móð-
ir Sólborgar var Ingibjörg Zakarías-
dóttir, b. í Holti á Barðaströnd,
Jónssonar.
Móðir Ingibjargar var Magnea
Símonardóttir, sjómanns frá Kirkju-
bóli í Mosdal í Ámarfirði, og Krist-
ínar Guðmundsdóttur.
Sextugur
.
Þorsteinn Eggertsson
rithöfundur, söngvaskáld og myndlistarmaöur
Þorsteinn Eggertsson, rithöfund-
ur, söngvaskáld og myndlistarmaö-
ur, Skipholti 18, Reykjavík, er sex-
tugur í dag.
Starfsferill
Þorsteinn fæddist í Keflavík en
ólst upp í Gerðahreppi frá tveggja
ára aldri. Hann lauk landsprófi við
Héraðsskólann á Laugarvatni 1958,
stundaði nám við Handiða- og
myndlistarskólann 1959, við Aka-
demiet for Fri og Merkantil Kunst í
Kaupmannahöfn 1965, sótti nám-
skeið í bókasafnsfræði við HÍ 1972
og 1974 og stundaði nám við KHÍ
1981 og 1982.
Þorsteinn var söngvari með KK-
sextettinum 1960, með Beatniks í
Keflavík 1961-62, The Lennons og
The Playboys í Kaupmannahöfn
1964. Hann hefur verið teiknikenn-
ari með hléum á árunum 1965-99,
við Breiðagerðisskóla, Laugalækjar-
skóla, Bamaskólann í Keflavík,
skóla Ásu Jónsdóttur í Reykjavík,
Valhúsaskóla, Hofsstaðaskóla, Vest-
urbæjarskóla og Grunnskóla
Grindavíkur og var uppeldisfulltrúi
á Unglingaheimili ríkisins í Kópa-
vogi 1979-81 og hefur verið mynd-
menntakennari við Námsflokka
Reykjavíkur frá 1993.
Þorsteinn er landsþekktur dægur-
lagatextahöfundur en hann á meira
en fjögur hundrað texta á plötum og
diskum hinna ýmsu flytjenda.
Þorsteinn var fréttaritari Alþýðu-
blaðsins í Kaupmannahöfn 1964 og
1965, gaf út tímaritið Samúel 1969,
var fréttaritari Morgunblaðsins í
Vestur-Berlín 1970, blaðamaður við
tímarit SAM-útgáfunnar, Tímann,
Vikuna og Hús og híbýli og ritstjóri
Vefarans og Sumarbústaðablaðsins,
var auglýsingateiknari hjá Hug-
mynd og framkvæmd 1977, stundaði
dagskrárgerð fyrir RÚV 1982-86, fyr-
ir Stöð 2 1987, og fyrir Aðalstöðina,
var leikari með Leikfélagi Keflavík-
ur 1966-72, kom fram á rokkhátíð-
um á Brodway 1983 og 1984, samdi,
leikstýrði, kynnti og söng á sýning-
imni Rokkskór og bítlahár í Sjallan-
um og á Hótel íslandi, samdi og
vann myndband sýningarinnar
Saga Bitlanna á Hótel íslandi 1989,
vann að sýningu með Jóni Sigurðs-
syni bankamanni og Hauki
Morthens 1989, leikstýrði fyrir Leik-
félag Tálknafjarðar 1990 og samdi
söngleikinn Besta sjoppan í bænum,
sýndi í Keflavík 1998.
Þorsteinn hefur myndskreytt
bækur fyrir Vöku-Helgafefl og fleiri,
hefur haldið málverkasýningar hér
á landi og erlendis og setti upp sýn-
ingu í Ankara í Tyrklandi á verkum
tíu íslenskra skopteiknara 2001. Út
hafa komið í Bretlandi eftir Þor-
stein skáldsagan The Paper King's
Subjects, og smásagnasafnið Late
Night Rhapsodies.
Fjölskylda
Sambýliskona Þorsteins frá því
1991 er Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, f.
9.7. 1941, lektor. Hún er dóttir Ólafs
Jakobssonar, skósmiðs á ísafirði, og
Önnu Bjamadóttur húsmóður.
Dætur Þorsteins og Þóru Hreins-
dóttur, f. 29.6. 1954, era Anna Val-
gerður, f. 29.8. 1977, nemi; Soffia, f.
4.8. 1980, blaðamaður.
Böm Jóhönnu Fiólu era Hrönn
Hrafnsdóttir, f. 17.11. 1967, við-
skiptafræðingur; Ólafur Hrafnsson,
f. 14.10. 1969, kerfisfræðingur; Anna
Hera Björnsdóttir, f. 11.1. 1980,
nemi.
Systkini Þorsteins: Guðfinna
Jóna, f. 21.9. 1944, skrifstofumaður
hjá Hjartavernd; Jón Þorkels, f. 29.9.
1945, netagerðarmeistari í Keflavík;
Guðrún, f. 27.4. 1961, viðskiptafræð-
ingur og deildarstjóri.
Foreldrar Þorsteins: Eggert Jóns-
son, f. 29.5.1921, pípulagningamaður
í Keflavík, og Guðrún Jónsdóttir, f.
24.7. 1924, húsmóðir.
Ætt
Eggert er sonur Jóns, útvegsb. í
Kothúsum í Garði, Þorkelssonar og
Guörúnar, systur Eggerts aflakóngs,
Þorsteins skipsfjóra, föður Eggerts,
forstjóra og ráðherra, og systur
Gísla, föður Eggerts fiskimálastjóra.
Guðrún var systir Guðmundu,
ömmu Gunnars Amar Gunnarsson-
ar listmálara. Guðrún var dóttir
Eggerts, b. í Kothúsum í Garði,
Gíslasonar, b. í Steinskoti á Eyrar-
bakka, Gíslasonar. Móðir Eggerts
var Gróa Eggertsdóttir, b. í Haga í
Holtum, Eggertssonar og Þorbjargar
Brandsdóttur, skipasmiðs og skálds
í Kirkjuvogi í Hötnum, Guðmunds-
sonar, b. i Kirkjuvogi, Brandssonar,
b. á Felli í Mýrdal, Bjamasonar,
ættfoður Víkingslækjarættar, Hall-
dórssonar.
Guðrún, móðir Þorsteins, er dótt-
ir Jóns, útgerðarmanns í Garðs-
horni í Keflavík, Eyjólfssonar, í
Vestra-Garðshornshúsi, Þórarins-
sonar. Móðir Eyjólfs var Guðrún
Þórðardóttir frá Hjáleigusöndum.
Móðir Jóns útgerðarmanns var
Guðrún Egilsdóttir, b. i Bakkakoti á
Álftanesi, Símonarsonar og Hall-
dóru Hannesdóttur, systur Hafliða,
hreppstjóra í Gufunesi, langafa Haf-
steins Hafsteinssonar, forstjóra
Landhelgisgæslunnar. Móðir Guð-
rúnar Jónsdóttur var Guðfinna
Benediktsdóttir frá Breiðabóli á
Svalbarðsströnd, systir Elínrósar,
ömmu Þórarins Eyíjörðs leikara.
Þorsteinn verður á veitingastaðn-
um Amsterdam í Tryggvagötu í
Reykjavík á afmælisdaginn frá kl.
20.00.
Merkir Islendingar_______________
Bjöm Kristjánsson, ráðherra og alþingis-
maður, var fæddur á Hreiðurborg í Flóa
26. febrúar 1858. Hann var sonur hjón-
anna Kristjáns Vernharðssonar, bónda
á Hreiðurborg, og k.h., Þórunnar Hall-
dórsdóttur.
Bjöm nam skósmíði og stundaði
hana á árunum 1876 til 1882. Á árunum
1878 til 1879 og 1888 til 1910 dvaldist
hann í Kaupmannahöfn þar sem hann
stundaði meðal annars nám í tónfræði.
Bjöm var einnig bókhaldari, kaupmað-
ur og bæjargjaldkeri í Reykjavík. Þann
1. október 1909 varð hann bankastjóri
Landsbankans og gegndi því starfi til
ársins 1918. Frá 4. jan. til 28. ágúst 1917 var
hann fjármálaráðherra og hafði síðan ævilangt
Björn Kristjánsson
sérstök eftirlaun. Bjöm átti einnig sæti í
nokkrum nefndum og má þar nefna velferð-
amefnd, orðunefnd, matsnefnd Islands-
banka og árið 1928 var hann kosinn í
landsbankanefnd en sagði af sér á
miðju sumri það ár.
Bjöm ritaði marga ritlinga og rit-
gerðir um bankamál, viðskipti, jám-
brautarmál og verslunarmál. Hann
var mikill áhugamaður um efnafræði
og stundaði sjálfsnám í þeim fræðum.
Auk gerði hann efnarannsóknir á stein-
tegundum og fleiru um langt skeið.
Björn lést í Reykjavík 13. ágúst árið
1939.
Andlát
Veturliði G. Veturllðason, Fagraholti 1,
ísafirði, lést á Landspítala Hringbraut
fimmtud. 21.2.
Ásgeir V. Björnsson verslunarmaður,
Hrafnistu, Hafnarfiröi, áður Stigahlið
14, Reykjavík, lést föstud. 22.2.
Ragnheiður Gísladóttlr Wienbarg,
andaðist þriöjud. 5.2. í Richmond í
Bandaríkjunum. Útförin hefur farið fram.
Sally A. Kelley (Sólveig Sigurjónsdóttir)
frá Hvoli, Borgarfirði eystra, lést á
heimili sínu í Mechanicsburg,
Pennsylvaníu í Bandaríkjunum mánud.
18.2.
Gunnar Kristjónsson, Skólavörðustíg
26, Reykjavík, lést á Landspítala
Landakoti miðvikud. 20.2.
íillurt aólurhiinglrm
wwv/.utforin.i: