Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2002, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002
Fréttir
DV
Skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna:
Framsókn á flugi
en VG tekur dýfu
- Samfylking bætir við sig en Sjálfstæðisflokkur tapar
Framsóknarflokkurinn tekur
stórt stökk upp á við, er kominn
fram úr kjörfylginu og orðinn
næststærsti flokkurinn á þingi. Að
sama skapi hrapar stuðningurinn
við Vinstrihreyfinguna grænt
framboð þannig að hún er orðin
minnst fjórflokkanna. Hefur fylgi
Vinstri grænna ekki verið minna
síðan á haustdögum 1999. Samfylk-
ingin bætir stöðu sína nokkuð frá
síöustu könnun DV en Sjálfstæðis-
flokkurinn tapar. Þetta eru helstu
niðurstöður skoðanakönnunar DV
sem gerð var á mánudagskvöld.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns, jafnt skipt á milli höfuð-
borgarsvæðis og landsbyggðar
sem og kynja. Spurt var: Hvaða
lista myndir þú kjósa ef þingkosn-
ingar færu fram núna?
Þegar svör allra í úrtakinu eru
skoðuð kemur í ljós að 14,2 pró-
sent segjast mundu kjósa Fram-
sókn ef kosið yrði nú, 26,8 prósent
Sjálfstæðisflokk, 2,0 prósent Frjáls-
lynda flokkinn, 12,3 prósent Sam-
fylkinguna og 10,2 prósent Vinstri-
hreyfinguna grænt framboð.
Stuðningur við önnur framboð,
Kristilegt framboð, Húmanista og
Anarkista, er vart mælanlegur.
27,8 prósent aðspurðra voru
óákveðin í afstöðu sinni til flokk-
anna en 5,7 prósent neituðu að
svara. 66,5 prósent tóku því af-
stöðu sem er betri svörun en í
könnun DV í október þegar rétt
um 60 prósent tóku afstöðu.
Stjórnarflokkar styrkjast
Af þeim sem afstöðu tóku í
könnun DV sögðust 21,3 prósent
styðja Framsókn og 40,4 prósent
Sjálfstæðisflokk. Samanlagt
styrkja stjórnarflokkarnir því
stöðu sína nokkuð miðað við
könnun DV í október og eins ef
miðað er við kjörfylgi. Munar þar
mest um fylgisaukningu Fram-
sóknar, 8,3 prósentustig. Tap Sjálf-
stæðisflokks upp á 5,2 prósentustig
dempar þó ris stjórnarflokkanna.
Slétt 3 prósent sögðust mundu
kjósa Frjálslynda flokkinn sem
þýðir tap upp á 0,9 prósentustig
miðað við siðustu könnun DV.
Samfylkingin bætir hins vegar við
sig 5 prósentustigum en 18,5 pró-
sent sögðust mundu kjósa hana.
Vinstri grænir hrapa hins vegar
frá síðustu könnun en 15,3 prósent
sögðust mundu kjósa þá. Tap
þeirra mælist 8,7 prósentustig og
er fylgið orðið eins og í könnunum
í október og desember 1999.
Landsbyggdarflokkur
Sem fyrr fær Framsókn lang-
mest af sínu fylgi af landsbyggð-
inni. Ef einungis er horft til þeirra
í könnun DV sem afstöðu tóku á
landsbyggðinni mælist fylgi Fram-
sóknar 33,3 prósent en einungis 9,5
prósent ef eingöngu er litið til
svara af höfuðborgarsvæðinu.
Fylgi Sjálfstæðisflokks er hins veg-
ar meira á höfuöborgarsvæðinu,
50,2 á móti 30,3 prósentum.
í sókn og vörn
- breyting á fylgi flokka í prósentustigum frá okt 2001
Jlyoi’iS.
iuU *íl
•" -8,7
Fylgi flokka
- mlöað vlö þó sem tóku afstöðu
50
ajfif
40
30
20 “.,1M
10
u
»4
‘M
12,7)3,
v:?
Mt
121
11
l lDV 04/03 ‘02
I iDV 24/10'01
DV 07/08 '01
iDV 07/06 '01
ÍDV 28/01 '01
DV 12/01 '01
DV 23/10'00
DV 29/09 '00
DV 21 -22/03 '00
DV28-29/12
DV 20/10'99
DV 13/09'99
IKosningar
SKOÐANAKÖNNUN
DV
Niðurstöður skoðanakannana DV
- til samanburðar eru niðurstöður fyrri kannana DV og úrslit þingkosninga
50% ~“
20
u
18/03'99 04/03'02
( Kosningar 8/5 '99
18/03'99
-I I-
04/03'02 18/03'99
04/03*02
18/03*99
04/03 '02 18/03 '99
I
04/03'02
Fylgi Samfylkingarinnar mælist
23,9 prósent meðal kjósenda á höf-
uðborgarsvæðinu en 13,1 prósent á
landsbyggðinni. Athygli vekur að
fylgi Vinstri grænna byggist ekki
á landsbyggöarstuðningi eins og í
mörgum fyrri könnunum DV en
enginn marktækur munur er á
fylgi þeirra með tilliti til svæða.
Nær allir stuðningsmenn Frjáls-
lynda flokksins eru á landsbyggð-
inni.
Ekki er verulegur munur á af-
stöðu til flokkanna eftir kynjum.
Framsókn á þó marktækt meira
fylgi meðal karla en kvenna. At-
hygli vekur þó að Sjálfstæðisflokk-
ur á nú meira fylgi meðal kvenna.
Munur hjá öðrum flokkum er nán-
ast enginn.
Skipting þingsæta
Þegar þingsætum er útdeilt mið-
að við núverandi kerfi og þá sem
tóku afstöðu í könnun DV reynist
Framsókn fá 14 þingmenn, bætir
við sig 6 frá síðustu könnun.
Framsókn er með 12 menn á Al-
þingi.
Sjálfstæöisflokkur fengi 26 þing-
menn eins og reyndin er á Alþingi
í dag en tapar 4 mönnum frá síð-
ustu könnun DV. Samanlagt eru
stjórnarflokkarnir með 40 þing-
menn samkvæmt könnuninni en
eiga 38 sæti á Alþingi í dag.
Frjálslyndir fá einn mann, tapa
einum frá síðustu könnun. Sam-
fylkingin fengi 12 menn kjörna
samkvæmt könnuninni, vinnur 4
frá síðustu könnun DV. Samfylk-
ingin er með 17 þingmenn í dag.
Vinstri grænir fengju 10 þing-
menn, tapa 5 mönnum frá síðustu
könnun. Einungis 5 sæti eru
merkt Vinstri grænum í sal Al-
þingis nú. -hlh
Halli sveitar-
félaga
snarminnkar
Rekstrarhalli sveitarfélaga hefur
minnkað mjög að meðaltali undanfarið
og má búast við enn meiri viðsnúningi
í framtíðinni, að
sögn Páls Péturs-
sonar félagsmála-
ráðherra. Þetta
kom fram í svörum
ráðherra við fyrir-
spum Steingríms
J. Sigfússonar um
vanda sveitarfé-
laga í gær. Páll
vitnaði í tölur frá
Þjóðhagsstofhun og sagði að halli sveit-
arfélaga hefði verið 5,2 miiljarðar
króna árið 1998,3,8 milljarðar árið 1999,
3,6 miiljarðar árið 2000 en aðeins 138
miiljónir króna í fyrra. Útlit væri fyrir
innan við 300 milljóna haila á þessu ári.
31 sveitarfélag fékk viðvörunarbréf
vegna fjárhagsstöðu nýveriö frá eftir-
litsne&id með fjármálum sveitarfélaga
og hafði þeim fjölgað nokkuð frá árinu
á undan. Steingrímur spurði um skýr-
ingar þessa og hvort ríkisstjómin
hygðist grípa til sérstakra aðgerða til
að laga vanda þessara sveitarfélaga.
Páil Pétursson sagði þrjá þætti vega
þyngst í vandanum: launabreytingar,
búseturöskun og aukinn vaxtakostnað.
Annars væri útlitið gott.
Kristinn H. Gunnarsson sagði at-
hyglisvert að heyra þessar tölur ráð-
herrans í ljósi þess að halli sveitarfé-
laganna virtist minnka verulega þegar
liði á kjörtímabil sveitarstjómanna.
Niðurstaðan benti tO ábyrgrar f]ár-
málastjómunar og ekki væri hægt að
álykta að afkoma sveitarfélaganna
væri almennt slæm heldur aðeins á
einstökum landsvæðum.
Steingrímur taldi hins vegar að
hluti skýringarinnar gæti verið sá að
bæjarfélög hefðu neyðst til að skera
niður framkvæmdir sem aftur gerði
þau siöur samkeppnishæf þegar fram
liðu stundir. -BÞ
Frá undirritun samningsins.
Háskólar
og IBM í
samstarf
Á ráðstefnu um upplýsingatækni í
skólastarfi, UT2002, var undirritaður
samningur um samstarf Nýheija og
IBM við háskólasamfélagið á íslandi.
Markmið samningsins er að stuðla að
uppbyggingu þekkingar hjá komandi
kynslóðum leiðtoga á sviði rafrænna
viðskipta. Meðal þeirra skóla sem taka
þátt i þessu samstarfi em Háskólinn í
Reykjavík, Tækniskóli íslands og Há-
skóli íslands. Samstarfssamningur
þessi felur í sér að Nýherji, ásamt IBM,
munu veita háskólum á íslandi aðgang
að yfirgripsmiklu safhi IBM hugbún-
aðarlausna, kennsluefnis, handbóka og
tæknilegrar þjónustu. Jafnframt er
lýst yfir fulium vilja til nánara sam-
starfs á sviði rannsóknarverkefna og
útvegun gestafyrirlesara á sviði upp-
lýsingatækni. -BG
Suðurnesin:
Hassplöntur í
heimahúsi
Lögreglan í Keflavík og á Keflavík-
urflugvelli lagði hald á 116 hassplönt-
ur í fyrradag. Plönturnar fundust í
kjallara íbúðarhúss á Suðurnesjum.
Að sögn lögreglu viðurkenndi íbúi í
húsinu, karlmaður á fertugsaldri, að
eiga plöntumar en talið er víst að
hann hafi ekki selt kannabis. Plönt-
umcir hafa verið sendar til Reykjavík-
ur þar sem þær verða rannsakaðar.
Málið telst upplýst. -aþ