Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2002, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002
Fréttir
DV
Klæðskeri í áralangri baráttu við hið opinbera vegna meints samningsbrots:
Þeir vildu tískufatnað
- þurfti að henda tugum einkennisbúninga ætluðum Flugmálastjórn
Samningurinn um 600 einkennisbúninga fyrir Flugmálastjórn
Jón Skúli Þórisson klæöskeri og hönnuöur telur aö samningi viö sig hafi veriö rift þar sem hann hafi
ekki uþþfyllt væntingar starfsfólks um að geta tekiö tískufatnaö út á beiönir frá stofnuninni.
„Það hefur aö vlsu
dregið úr þessu í seinni
tíð, en lögreglumenn,
sem fóru vel með ein-
kennisklæðnaðinn og
þurftu sjaldan að endur-
nýja hann, gátu nýtt sér
fataheimildir til að taka
út hvaða fatnað annan
sem var í viðkomandi
verslun: Ég veit að á
sínum tíma, þegar skipt
var við verslunina
Última, tóku lögreglu-
menn jafnvel gardínur í
heilu íbúðimar út á
beiðnir embættisins og
þótti ósköp eðlilegt. Eft-
ir því sem ég best veit
hefur þetta viðgengist
víða, til dæmis hjá toll-
inum og landhelgisgæsl-
unni,“ segir heimildar-
maður DV innan lög-
reglunnar og rennir þar
með stoðum undir frá-
sögn Jóns Skúla Þóris-
sonar klæðskera og
hönnuðar sem segist
hafa verið hlunnfarinn
af Flugmálastjórn.
Jón Skúli gerði árið
1993 þriggja ára samn-
ing við Flugmálastjóm
og Ríkiskaup um að út-
vega starfsmönnum
Flugmálastjórnar sex
hundruð einkennisbún-
inga. Samningurinn var gerður að
undangengnu útboði en rift ári síð-
ar. Jón Skúli telur að það hafi verið
vegna þess að starfsfólkið hafi verið
vant því að geta fengið tískufatnað
út á beiðnir frá stofnuninni, en því
hafi ekki verið að heilsa hjá sér.
„Starfsfólkiö var tregt til að koma
í mátun og ég þurfti ítrekað að
ganga á eftir því. Á nokkrum mán-
uðum afhenti ég þó ríflega eitt
hundrað búninga og fékk greitt fyr-
ir þá. Ég hafði hins vegar útbúið um
sjötíu til viðbótar þegar samningn-
um við mig var rift. Ég sat uppi með
þá og þurfti að fleygja þeim. Þetta
var mikið áfall. Ég var úrskurðaður
gjaldþrota skömmu siðar og er enn
að greiða af lánum sem ég tók til að
geta staðið viö samninginn.
Skömmu eftir samningsrofið upp-
lýsti háttsettur maður hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins mig svo um
að starfsmenn Flugmálastjórnar
gengju alls ekki í einkennisklæön-
aði.“
„Hér hefur ekki verið notaður
einkennisklæðnaður í meira en tutt-
ugu ár,“ segir Heimir Már Péturs-
son, upplýsingafulltrúi Flugmála-
stjómar. Spurt er hvers vegna hafi
þá verið ráðist í aö bjóða út fram-
leiðslu á sex hundruð einkennis-
búningum. „Það stóð til að taka þá
upp en það reyndist síðan ekki hafa
hljómgrunn,“ segir Heimir Már.
Engu að síður taldi Flugmála-
stjóm ástæðu til þess 1994, eftir að
samningnum við Jón Skúla hafði
verið rift, aö semja við fataverk-
smiðjuna FASA um að útvega ein-
Nýju fötin ríkisins
Fyrsti hluti
kennisklæðnað i tvö ár. í samningn-
um var, rétt eins og í samningnum
við Jón Skúla, ákvæði um að starfs-
menn mættu eingöngu taka út ein-
kennisklæðnað. Jón Skúli fullyrðir
að þetta ákvæði hafi verið þverbrot-
ið: FASA hafi verið milliliður,
beiðnir hafi verið falsaðar og starfs-
fólkinu gert kleift að nýta úttektar-
heimildir sínar í tísku-
vöruverslunum í bænum.
Hann telur að í þessu
felist bæði skjalafals og
sóun á fé skattborgara.
Ásbjörn Bjömsson, eig-
andi FASA, mótmælir
þessu og segist eingöngu
hafa afgreitt starfsfólk
Flugmálastjórnar með
einkennisklæðnað sam-
kvæmt samningnum.
Guðmundur Guð-
mundsson hjá Ríkiskaup-
um segir að starfsfólk
Flugmálastjómar í Kefla-
vík og Reykjavík hafi sett
fram eindregnar óskir
um að samningnum við
Jón Skúla yrði rift vegna
vanefhda. Ríkiskaup hafi
farið yflr málið og komist
að sömu niðurstöðu. „Ég
man aö það voru einhver
vandræði með Jón,“ seg-
ir Guðrún Mogensen,
innheimtustjóri hjá Flug-
málastjóm. „Hann var
sjaldan við og þetta var
illa saumað."
Jón Skúli mótmælir
þessu og bendir á að
hann hafl saumað ein-
kennisklæðnað fyrir
Flugleiðir i átján ár án
þess að slíkar athuga-
semdir kæmu fram um
störf hans. Árið 1995
stefndi Jón Skúli Ríkiskaupum og
krafðist þess að sér yrðu greiddar
7,3 milljónir króna, „andvirði eftir-
stöðva kaupsamningsins“. Málið
féll um sjálft sig þegar ríkislögmað-
ur krafðist þess að hann legði fram
tryggingu sem hann hafði ekki ráð
á, enda gjaldþrota. Síðan þá hefur
hann óskað eftir sátt í málinu við
fjármálaráðherra, án árangurs.
Ekki alls fyrir löngu tókst honum
að útvega margvísleg skjöl um mál-
ið hjá Ríkisendurskoðun og hefur
falið lögmanni að undirbúa nýja
málshöfðun. Hann segist binda von-
ir við að dómsmálaráðherra mæli
með því að honum verði veitt gjaf-
sókn til að reka það. -ÓTG
Litlar líkur á að pólitísk rannsóknarnefnd verði skipuð um Landssímann:
Pólitískur loddaraleikur
- segir samgönguráðherra - ekkert blóðbragð, svarar Samfylkingin
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sakaði Samfylkinguna um
„pólitískan loddaraleik" með þingsá-
lyktunartillögu flokksins um skipun
rannsóknarnefndar í málefnum
Landssímans. Heitar umræður fóru
fram á þingi í gær um tillöguna en
ljóst virðist að hún muni ekki ná
fram að ganga. Sjálfstæðismenn og
framsóknarmenn leggjast gegn tillög-
unni. Síðast var skipuð sambærileg
nefnd á sjötta áratug síðustu aldar.
Fólk er reitt
Jóhanna Sigurðardóttir hóf um-
ræðurnar og sagði hún stærstu
einkavæðingaráform sögunnar hafa
beðið alvarlegt skipbrot. Sifelldar
ásakanir hefðu verið milli stjórnar,
ráðherra og einkavæðingarnefndar
og margvíslegt klúður orðið á kostn-
að skattborgara. „Fólk er reitt og
finnst því misboðið," sagði Jóhanna.
Almenningur upplifði að aðrar regl-
ur giltu um almenning en toppana í
landinu og mikið væri um spillingu
í meðferð fjármuna og stjórnsýslu.
Fyrir utan ábyrgð stjómenda
Símans og einkavæðingamefndar
sagði Jóhanna að Sturla Böðvarsson
hefði gert óeðlilega samriinga sem
hugsanlega væru brot á hlutafélaga-
lögum. Það væri alvarlegt mál og
ótrúverðugt að ráðherra segðist
sammála um að öll stjómin ætti að
víkja en sjálfur teldi hann fráleitt að
sama ætti viö um sig sjálfan. Hún
Sturla Ögmundur
Böðvarsson Jónasson
gagnrýndi einnig að Davíð Oddsson
forsætisráðherra skyldi vera fjar-
staddur umræðuna, þar sem hann
bæri mikla ábyrgð.
Fullkomiö vindhögg
Sturla Böðvarsson brást hart við
og sagði fullkomið vindhögg af
hálfu Samfylkingarinnar að leggja
til aö skipaður yrði „pólitískur
rannsóknaréttur". Þetta væri póli-
tískur loddaraleikur til þess eins
fallinn að koma höggi á sig.
Rök Sturlu gegn því að rannsókn-
amefndin yrði skipuð voru þau að
Ríkisendurskoðun væri að fara yflr
öll atriði og þar myndu skýr svör
liggja fyrir innan tíðar um álitaefni.
Hann spurði hvort Samfylkingin
væri meðvitað að gera Ríkisendu-
skoðun tortryggilega í augum al-
mennings.
Furðulegt ábyrgðarleysi
Ögmundur Jónasson sagöi málið
allt tengjast emkavæðingarstefnu
rikisstjómarinnar fremur en mann-
legum misbrestum. Það væri furðu-
legt ábyrgðarleysi að Síminn hefði
fjárfest fyrir 11 miUjarða í fyrra og
hann vildi láta upplýsa hverjir
hefðu staðið á bak við kaupin á
Landssimahúsinu. ögmundur sagði
að Síminn væri orðinn leiksoppur á
fjármálamarkaði og þegar gullgerð-
arvélar eins og símafyrirtæki hefðu
verið einkavædd sæju einstaklingar
féþúfu handa sér á kostnað almenn-
ings. Engan sérfræðing þyrfti tU aö
sjá hvar ábyrgðin lægi. Hún væri
hjá forsætis- og samgönguráðherra
og ráðherrahópi sem bæri ábyrgð á
einkavæðingamefnd. Þessum synd-
um myndi þjóöin ekki gleyma en
gott væri að vita tU þess að stutt
væri í kosningar.
Óheppileg atvikaröð
Guðni Ágústsson, varaformaður
Framsóknarflokksins, sagði að
óheppUeg rök atvika og umræða
hefði skaðað Símann en orrahríð-
inni hlyti að linna. Hann gagnrýndi
lífeyrissjóðina fyrir að hafa ekki
fjárfest í Símanum og taldi að slíkir
sjóðir almennings ættu að taka við
hlutverki ríkisvaldsins í eignar-
heddi á Símanum. Guðni taldi að úr-
sögn Samfylkingarmanna úr stjórn
Landssímans hefði verið pólitískt
moldviðri og meiri ábyrgð hefði
falist í því að sitja áfram. Hins veg-
ar hefðu fuUtrúar Framsóknar-
flokksins ákveðiö að hverfa úr
stjóm fyrir næsta aðalfund.
Guðni harmaði sérstaklega opin-
ber ummæli Hreins Loftssonar,
fyrrum formanns einkavæðingar-
nefndar, um Símann. Það hefði ver-
ið slæm ákvörðun hjá honum um
viðkvæm innri mál fyrirtækisins.
Ekkert blóðbragö
Ýmsir stjómarliðar hömruðu á
göUum þess að sérstök rannsókna-
nefnd yrði skipuð og töldu bæði
erfitt að velja í hana og eins yrði
ólíklegt að nokkur sameiginleg nið-
urstaða myndi nást. Lúðvik Berg-
vinsson sagði hins vegar fráleitt að
Samfylkingin væri í pólitískum
loddaraleik og Guðmundur Ámi
Stefánsson sagði: „Við erum ekki
með blóðbragð í munninum." Hann
sagði samsæri þagnarinhar að
hruni komið. Sannleikurinn fyndi
sér ætíð farveg. -BÞ
: 'ír-f. ■zjíyfnsEtW
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag i kvöld 19.04 18.46
Sólarupprás á morgun 08.11 08.01
Síðdegisflóö 13.13 17.46
Árdegisflóó á morgun 02.08 06.41
El við norðurströndina
Austlæg eða breytileg átt, 3-10
m/s og dálítil snjókoma suðaustan
til í dag, él við norðurströndina en
annars skýjaö með köfium. Frost 0
til 12 stig, kaldast í innsveitum
norðanlands.
Veóríð á
JJjLj'rjLiJ
Urkomulítiö suðvestanlands
Noröaustan 9-15 og víða snjókoma
á landinu en þó úrkomulítiö
suðvestanlands. Frost 0 til 12 stig.
Kaldast í innsveitum fyrir noröan.
Laugardagur Sunnudagur Mánudagur
9 ©m © o o Hiti 1* til 10' 9 O Hiti 1* til 10* °w Hiti 2° til 9*
Vindur: 8-13 n>/s Vindur: 3-13 m/s Vtndur: 7-12 m/s
'l'
Austan- og norðaustanátt, víöa ft-13 m/s. Él, einkum norðan og austan tll. Frost Austan- og noröaustanátt, viöa 8-13 m/s. Él, einkum norðan og austan til. Frost NorðUeg eða breytlleg átt, skýjað með köflum og víða dálítil él. Fremur kalt I veðrl.
1 tll 10 stlg. 1 tll 10 stlg.
« ■
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinnlngsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviörí 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
mmm::
AKUREYRI skýjað -7
BERGSSTAÐIR snjóél -6
BOLUNGARVÍK snjóél -7
EGILSSTAÐIR skýjað -7
KIRKJUBÆJARKL. alskýjað -3
KEFLAVÍK léttskýjaC i -5
RAUFARHÖFN alskýjaö -7
REYKJAVÍK alskýjaö -5
STÓRHÖFÐI snjókoma -3
BERGEN snjóél -1
HELSINKI snjókoma -1
KAUPMANNAHOFN
OSLO skýjað -4
STOKKHÓLMUR -1
ÞÓRSHÖFN léttskýjaC i -4
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma í gr. -2
ALGARVE heiðskírt 12
AMSTERDAM skúr 10
BARCELONA skýjaö 9
BERLÍN rigning 9
CHICAG0 alskýjaö 1
DUBUN rigning 8
HAUFAX snjóél 0
FRANKFURT rigning 9
HAMBORG rigning 8
JAN MAYEN skýjaö 8
LONDON skýjaö 11
LÚXEMBORG súld 7
MALLORCA súld 9
MONTREAL alskýjað -2
NARSSARSSUAQ heiðskírt -15
NEW YORK heiöskírt 10
ORLANDO alskýjað 14
PARÍS súld 9
VÍN skýjaö 11
WASHINGTON heiöskírt 6
WINNIPEG heiöskírt -21