Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2002, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2002, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002 9 DV Fréttir Barátta gegn „rafrænum húsdraugum“ á undir högg að sækja á Akureyri: Lífafl leitar nauðasamninga - Akureyrarbær synjaði - starfsemin í hættu um næstu mánaðamót EinkaMutafélagið Lífafl á við mikla fjárhagserílðleika að stríða og gæti farið 1 þrot um næstu mánaða- mót að óbreyttu. Búið er að segja upp öllum starfsmönnum og hefur félagið leitað nauðasamninga við helstu lán- ardrottna. Flestir hafa tekið því boði en bæjarstjóm Akureyrarbæjar hafnaði nauðasamningum við félag- ið. í bréfi Björgvins Njáls Ingólfsson- ar, stjórnarformanns Lifafls, til Ak- ureyrarbæjar segir að „ijárhagsstaða félagsins sé mjög slæm“. Ekki hafi tekist að afla nauðsynlegs hlutafjár til að halda rekstrinum gangandi en unnið sé að fjármögnun. Ekkert sé þó öruggt í þeim efnum og því sé algjör óvissa um framtíð félagsins. Þess megi þó vænta að auðveldara reynist að afla nýs hlutafjár ef skuldastaða félagsins verði bætt. Ennfremur segir að stjóm félags- ins hafi ákveðið að hefja fjárhagslega endurskipulagningu til að koma í veg fyrir þrot. M.a. fari fyrirtækið þess á leit við helstu lánardrottna að þeir felli niður helming skuldar eða að allri skuldinni verði breytt í hluta- fé i Lífafli á gengi 1,3. Vonbrigði meö Akureyrarbæ Björgvin Njáll sagði í samtali við DV að allir helstu lánardrottnar hefðu lýst vilja á nauðasamningum nema Akureyrarbær og það væri sér- stakt þar sem skuldin við bæinn næmi aðeins um hálfri milljón króna. Lífafl þyfti 57 milljóna króna hlutafjáraukningu og þar af væri þegar komið loforð fyrir 37 milljón- um. Nýsköpunarsjóður atvinnulífs- ins hefði m.a. veitt vilyrði fyrir 19 milljónum. „Ég mun taka málið aftur upp við yflrvöld á Akureyri. Þetta eru mikil vonbrigði vegna þess að við erum að reyna að byggja upp fyr- irtækið fyrir riorðan," segir Björgvin Njáll. Yrði skaði fyrir Eyjafjörð Fimm starfsmenn era nú hjá Lífa- fli en þeir voru 12-14 þegar mest var. Brynjólfur Snorrason er arkitektinn að viðskiptahugmynd Lífafls. Hann hefur kenningar um að rafségulsvið hafi áhrif á bæði menn og dýr og er Lífafl að þróa lausnir sem draga úr þessum áhrifum. Hluti vinnunnar er rannsóknir sem ætlað er að sýna fram á að kenningar Brynjólfs séu skotheldar og hafa staðfestingar komið frá viðskiptavinum félagsins um jákvæðar niðurstöður f kjölfar breytinga á rafkerii húsa. Umtals- verður árangur er m.a. sagður hafa náðst í kjúklinga- og svínaeldi og þá leitaði Marel til Brynjólfs varðandi uppsetningu nýs húss. „Það yrði mikið hagsmunamál fyrir Eyfirðinga ef hægt væri að klára þetta mál þvi hér eru ýmsir merkilegir hlutar að gerast,“ segir Brynjólfur. Hann segir verkefhastöðu góða en fé vanti til rannsókna og þróunar. Einkennileg vinnubrögð Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að það séu fréttir fyrir sig að heyra að Akureyrarbær sé sá eini í hópi helstu lánardrottna sem hafi synjað erindi Lífafls um nauðasamninga. Ástæða synjunar hafi verið sú að bæjarsjóður hafi þeg- ar komið myndarlega að stuðningi við fyrirtækið t.d. með vægri leigu og breytingu á leigugreiðslum í hlutafé. Hann segir leigu ógreidda og fyrstu viðbrögð fyrirtækisins gagnvart van- skilum á henni hafi verið að senda Fyrrum elliheimili sem nú er miðstöð forvitnilegra rannsókna. Undir högg að sækja Hugmyndir Brynjólfs Snorrasonar um „lækningar“ á húsum hafa ekki enn oröið sú auölind sem einkahlutafélagið Lífafl vonaöist eftir. Starfsemin er rekin í fyrrum elliheimili skammt frá Akureyri, Skjaldarvik, og leitar félagiö nú nauöasamninga. bænum þetta erindi um ósk um nauðasamninga. „Það er eðlilegt að menn hafi ekki tekið því fagnandi," segir Kristján Þór. Spurður hvort lík- ur séu á að bænumsnúist hugur seg- ir hann engu hægt að svara um það. Eflaust séu menn tilbúnir að skoða alla hluti en verklag fyrirtækisins sé eigi að síður einkennilegt. -BÞ Opiö virka daga 10-19. SUÐURNESJUM SÍMI 421 4888-421 5488 Opið lau. 12-10. TOWoTOv fyflrnfhm Toyota LandCruiser GX 4,2 turbo disil, M. Benz E-240 Elegance, árg. 1994, ekinn 240 þús„ hvitur, sjálfskiptur, nýskráöur 07/98, innfluttur nýr af Ræsi, einn 38" breyting, lækkuö hlutföll. eigandi, leður, topplúga, sjálfskiptur, rafdr. Verö 2.800 þús. Ath. skipti. sæti, cruisecontrol, loftkæling o.fl., gullsans. Verð 3.450 þús. Glæsilegur bíll. Þú getur hagnast á reynslu annarra - komdu og láttu reyna á það bilaland.is Sími: 575 1230 Volvo 960 VW Bora GL Ford Escort Ghia Hyundai Sonata GLSi Renault Laguna RT Nýskr. 9. I996, Nýskr. 3. I999, Nýskr. 5. I997, Nýskr. 2. I998, Nýskr. 9. I997, 2500 cc vél, 1600 cc vél, 1600 cc vél, 2000 cc vél, 2000 cc vél, 4 dyra, sjálfskiptur, 4 dyra, 5 gíra, 4 dyra, 5 gíra, 4 dyra, sjálfskiptur, 5 dyra, sjálfskiptur, blár, grár, grænn, hvítur, grænn, ekinn 82 þ. ekinn 27 þ. ekinn 63 þ. ekinn 72 þ. ekinn 78 þ. Verð : Verð : Verð : Verð : Verð : 1.690.000 750.000 750.000 1.060.000 l.l 70.000 Umboð: Akureyri Bílaval, Glerárgötu 36 S(mi: 461 1036 Akranes Bílasalan Bílás, Þjóðbraut 1 Sími: 431 2622 Keflavik Bílasala Keflavíkur, Bolafæti 1 Sími: 421 4444 Grjóthálsi 1 www.bl.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.