Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2002, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002
11
DV
Útlönd
Arsfundur ALVIB 2002
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Árás á bækistöðvar Arafats meðan hann fundaði með sendifulltrúa ESB:
Sókninni gegn meintum hryðju-
verkamönnum haldið áfram
REUTER-MYND
Sjálfkælandi dóslr
Subur-kóreski uppfinningamaöurinn Suh Won-gil ergreinilega stoltur af sjálf-
kælandi dósunum sínum sem hann vonast til aö komist á varir þyrstra knatt-
spyrnuáhugamanna í heimsmeistarakeppninni í sumar.
Powell gagnrýnir
Colin Powell, utanrlkisráðherra
Bandaríkjanna, gagnrýndi í gær
Ariel Sharon, forsætisráðherra Isra-
els, fyrir aukinn árásarþunga ísra-
elsmanna gegn Palestínumönnum á
undanfomum dögum. Þetta kom
fram í ræðu Powells þegar hann
ávarpaði bandaríska þingnefnd i
Washington í gær og sagðist hann
ósáttur við að Sharon skuli nota
hernaðarlega yfirburði ísraels-
manna til að þvinga Palestínumenn
að samningaborðinu.
„Hann leysir engan vanda með
auknu vopnavaldi og auknum dráp-
um,“ sagði Powell.
Arafat fékk líka sinn skammt og
gagnrýndi Powell hann fyrir að
taka ekki nógu fast á málum til að
stöðva blóðbaðið.
Ársfundur ALVÍB verður haldinn
í Hvammi, Grand Hóteli við
Sigtún íReykjavík, fimmtudaginn
21. mars nk. kl. 17.15.
Rekstraraðili: fslandsbanki - Eignastýring
Kirkjusandi, 155 Reykjavík, sími 560 8900, www.isb.is
Dagskrá
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar.
Brynjólfur Bjarnason, formaður stjórnar.
3. Ársreikningur 2001, tryggingafrædilegt uppgjör
og fjárfestingarstefna. Kynning á nýjum netyfirlitum.
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri ALVÍB.
4. Kosning stjórnar.
5. Ákvördun um laun stjórnar.
6. Erindi: „Erlend hlutabréf íeignasöfnum lífeyrissjóda."
Frank Satterthwaite, framkvæmdastjóri Vanguard
Group í Evrópu.
7. Onnur mál.
Stjórn ALVÍB
REUTER-MYND
Kofi Annan
Framkvæmdastjórí SÞ segir aö ráö-
ast veröi gegn fátækt í heiminum
vilji menn uppræta hryðjuverk.
Ráðast verður að
rótum hryðju-
verkastarfsemi
Ætli menn sér að uppræta
hryðjuverkastarfsemi í heiminum
þarf meira til en að ráðast að þeim
sem fjármagna hana og styðja, sagði
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, í gær. Hann
hvatti til að hafist yrði handa til að
draga úr fátækt og til að örva hag-
vöxtinn.
Annan veit hins vegar að á bratt-
an er að sækja því erfitt er að sann-
færa stjórnmálamenn um að leggja
fram metnaðarfull áform um aö
koma í veg fyrir styrjaldir og ann-
ars konar átök.
„Kostnaðurinn við það er áþreif-
anlegur og hans verður vart þegar í
stað, á sama tíma og erfiðara er að
benda á árangurinn, venjulega
óæskilegan eða hörmungaratburð
sem ekki á sér stað,“ sagði Kofi
Annan í ræðu sem hann flutti hjá
hinni virtu stofnun Council on For-
eign Relations í New York.
Hann sagði að til að ráðast að rót-
um vandans þyrftu menn að setja
sér bæði langtíma- og skammtíma-
markmið á margvíslegum sviðum.
Hafði nóg á Clinton
Robert Ray, óháður saksóknari
sem rannsakaði mál Bills Clintons,
fyrrum Bandaríkjaforseta, og Mon-
icu Lewinsky, segir í lokaskýrslu
sinni að hann hafi aflað nægilegra
gagna til að geta stefnt Clinton fyrir
rétt og líklega fengið hann sakfelld-
an fyrir að hindra framgang réttvís-
innar og fyrir að bera ljúgvitni.
Ray segist hins vegar hafa ákveð-
ið að höfða ekki mál á hendur Clint-
on eftir að hann gekkst opinberlega
við því að hann hefði breytt rangt í
tengslum við ástarsamband sitt við
lærlinginn fyrrverandi. Fjögur ár
eru nú liðin frá því fyrstu fullyrð-
ingarnar komu fram um að Clinton
væri að reyna að fela samband sitt
við Lewinsky.
David Kendall, lögmaður Clint-
ons, sagði í gær að ekkert nýtt
kæmi fram í skýrslu Rays og að
tími væri kominn til að horfa fram
á veginn. Rannsóknin á Clinton
hefði verið bæði löng og dýr og ein-
kennst af flokkadráttum.
ísraelskar orrustuþotur, herþyrl-
ur og byssubátar héldu áfram árás-
um á skotmörk á Vesturbakkanum
og Gaza í nótt eftir eina hörðustu
árásahrinu á óróasvæðinu fyrir
botni Miðjarðarhafs í gær síðan yf-
irstandandi ófriður hófst fyrir
sautján mánuðum.
ísraelar hófu aðgerðirnar með inn-
rás í bæinn Tulkarem á Vesturbakk-
anum úr þremur áttum, eftir að hafa
lýst yfir útgöngubanni, tekið af raf-
magn og fyrirskipað íbúum bæjarins
að halda sig innandyra á meðan loft-
árásir stæðu yfir á tiltekin skot-
mörk. Tveir Palestiumenn munu
hafa látið lífið í innrásinni en inn-
rásarliðið tók sér stöðu í Nour
Shams-flóttamannabúðum í útjaðri
bæjarins og hóf leit hús úr húsi að
meintum hryðjuverkamönnum.
ísraelskir byssubátar hófu einnig
sprengjuárás á skotmörk á Gaza
annan daginn í röð og var
sprengjuregninu aðallega beint að
bækistöðvum lögreglunnar, með
þeim afleiðingum að þrettán lög-
reglumenn særðust, þar af þrír lífs-
Ariel Sharon á átakasvæðinu í Gaza
Ariel Sharon, forsætisráöherra ísraels, heimsótti átakasvæöiö í Gaza í gær
og sést hér á myndinni ásamt herforingjum sfnum og lífvörðum.
hættulega. Einnig var sp'rengjuhríð-
inni beint að sjóbækistöðvum
Arafats á Gazaströndinni.
Að sögn talsmanna ísraelska
hersins voru „hryðjuverkamenn"
aðalskotmörkin í morgun eins og í
gær, auk þess sem ísraelskar
sprengjuþotur gerðu árás á aðal-
bækistöðvar pcdestínskra yfirvalda
í Jerúsalem.
Alls sautján manns hafa látið líf-
ið í árásunum i gær og morgun, þar
af fjórtán Palestinumenn og tveir
ísraelar, en einn Palestínumann-
anna var foringi í liðssveitum
Hamassamtakanna sem drepinn var
í sprengiárás á heimili hans í Gaza
í gær. Þá var Mohammed Anani, 27
ára gamall foringi Jihad-samtak-
anna, meðal hinna látnu en hann
var drepinn í árás á bæinn Siris á
Vesturbakkanum í gær.
Næturárásimar voru gerðar í
beinu framhaldi af sprengjuárás á
bækistöðvar Arafats í Ramallah en
þar lenti flugskeyti í nágrenni skrif-
stofu Arafats á sama tíma og hann
fundaði með Miguel Angel Moratin-
os, sendifulltrúa ESB í Mið-Austur-
löndum, og afsakaði talsmaður hers-
ins árásina með því að segja að hún
væri liöur í baráttu ísraelsmanna
gegn hryðjuverkunum. Talsmaður
Arafats sagði árásina lýsa vel inn-
ræti ísraelsmanna og sagði hana til-
ræði gegn friðarviðleitni á svæðinu.
Verð 29.900, “stgr.
SJÓNVÖRP
Lágmúla 8 • Sími 530 2800