Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2002, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002
Fréttir
DV
Titringur í aðdraganda aðalfundar íslandsbanka:
Orca-hópurinn missti at-
kvæðisrétt á aðalfundinum
- Nóatúnsfjölskyldan keypti hlut Jóns Ólafssonar
Sá einstæði atburður varð nokkrum
klukkustundum fyrir aðalfund íslands-
banka í gær að einn stærsti hluthafi
bankans, Orca SA, var sviptur atkvæð-
isrétti. Orca SA ræður yfir um fimmt-
án prósentum atkvæða í bankanum.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Fjár-
málaeftirlitið beitir sér með þessum
hætti, en heimild til að svipta hluthafa
í banka atkvæðisrétti hefur verið í lög-
um í nokkur ár. í þessu felst að Fjár-
málaeftirlitiö telur annaðhvort aö
staða eigenda Orca SA eða framferði
þeirra skaði heilbrigðan og traustan
rekstur hans.
Kristján Ragnarsson, stjómarfor-
maður bankans, las tilkynningu þessa
efnis og yfirlýsingu frá Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni og Þorsteini Má Bald-
vinssyni fyrir hönd Orca SA fyrir hlut-
hafa bankans í upphafi fundarins í
gær. Kristjáns sagðist harma að til
þessa atburðar skyldi hafa komið og að
hann vonaði að þessu ástandi linnti
sem fyrst svo að menn gætu sameinast
um áframhaldandi uppbyggingu bank-
ans.
Sviptingin hafði ekki áhrif á kjör
bankaráðs. Kristján Ragnarsson, Ein-
ar Sveinsson, Víglundur Þorsteinsson,
Helgi Magnússon, Jón Ásgeir Jóhann-
esson, Þorsteinn Már Baldvinsson og
Gunnar Jónsson vom sjálfkjömfr þar
sem Hreggviður Jónsson hafði dregið
framboð sitt til baka.
Lagaákvæðin
Lög um viðskiptabanka
og sparfsjóðl
12.gr.
Sé aöila, sem á virkan eignarhlut í
viðskiptabanka, svo fariö eöa fari hann
þannig með hlut sinn aö skaöi heilbrigð-
an og traustan rekstur bankans getur
Fjármálaeftirlitið gripiö til eftirfarandi
ráðstafana:
1. Ákveöið aö þeim hlutum fylgi ekki
atkvæöisréttur.
[...]
Viö mat á því hvort gripið skuli til ráö-
stafana skv. 1. mgr. skal m.a. höfö hliö-
sjón af þeim atriöum sem greinir í 6.
mgr. 10. gr. Aö auki skal höfö sérstök
hliðsjón af því hvort staöa eða háttsemi
viökomandi aöila væri til þess fallin aö
rýra traust almennings á hlutaðeigandi
banka, væri hún opinber. [...]
10. gr. 6. mgr.
Fjármálaeftirlitiö leggur mat á hvort
umsækjandi sé hæfur til að eiga eignar-
hlutinn meö tilliti til heilbrigðs og
trausts reksturs viðskiptabanka og skal
gæta meðalhófs viö það mat. Viö mat á
hæfi umsækjenda skal m.a. höfö hlið-
sjón af eftirfarandi:
1. Fjárhagsstööu umsækjanda og að-
ila sem hann er í nánum tengslum viö.
2. Þekkingu og reynslu umsækjanda.
3. Hvort eignarhald umsækjanda
skapar hættu á hagsmunaárekstrum á
fjármálamarkaöi.
4. Stærö þess hlutar eöa atkvæðis-
réttar sem umsækjandi hyggst prfesta
í.
5. Hvort ætla megi aö eignarhald um-
sækjanda muni torvelda eftirlit meö
hlutaöeigandi viöskiptabanka. Viö mat á
því skal m.a. horft til fyrri samskipta
umsækjanda viö Fjármálaeftirlitiö eöa
önnur stjórnvöld, til þess hvort náin
tengsl umsækjanda við einstaklinga eöa
lögaöila geta aö mati Fjármálaeftirlitsins
hindraö þaö í eölilegum eftirlitsaögerö-
um og hvort lög og reglur, sem gilda um
umsækjanda, hindra eölilegt eftirlit.
6. Hvort umsækjandi hefur gefiö Fjár-
málaeftirlitinu umbeönar upplýsingar
ásamt fylgigögnum og þær upplýsingar
hafa reynst réttar.
7. Refsingum sem umsækjandi hefur
veriö dæmdur til aö sæta og hvort hann
sæti opinberri rannsókn.
DV-MYNDIR GVA
Rýnt í skjölln
Kristján Ragnarsson (t.h.) kynnir sér yfirlýsingu frá Orca ásamt Bjarna
Ármannssyni og Vai Vaissyni, forstjórum íslandsbanka.
Yfirlýsing
Kristján Ragnarsson les upp
tilkynningu frá Orca-hópnum á
aöalfundi íslandsbanka
Ástæðan óljós
„Fjármálaeftirlitið sendi okkur bréf
i morgun um þetta og gaf okkur ekkert
ráðrúm til að svara íyrir okkur,“ sagði
Jón Ásgeir Jóhannesson, einn þriggja
eigenda Orca SA og stjómarmaður í ís-
landsbanka, að loknum aðalfundi
bankans í gær. Hann segir að athuga-
semdfrnar hafi fyrst og fremst beinst
að ónógri upplýsingagjöf. „Við teljum
að sú endurskipulagning sem tilkynnt
var um í morgun og felst í sölu á hlut
Jóns Ólafssonar komi í veg fyrir frek-
ari athugasemdir af hálfú Fjármálaeft-
irlitsins," segir hann. Lögfræðingar á
vegum Órca SA sátu á fundi með Fjár-
málaleftirlitinu á meðan á aðalfundi
íslandsbanka stóð.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, vill ekkert um málið
segja annað en að athugun stofnunar-
innar hafi átt sér nokkum aðdraganda
og að stofhunin muni endurskoða niö-
urstöðu sína ef og þegar eigendur Orca
SA ráðast í viðeigandi úrbætur.
í yfirlýsingu þeirra Jóns Ásgeirs og
Þorsteins Más segjast þeir reikna fast-
lega með að fá atkvæðisrétt sinn til
baka innan fárra daga, enda sé Orca
SA eignasterkt félag sem sé fullfært
um að standa undir þeim skuldbind-
ingum sem felist í því að eiga svo stór-
an hlut í íslandsbanka. Jón Ásgeir
neitar því hins vegar að Fjármálaeftir-
litið hafi lýst efasemdum um fjárhags-
lega burði Orca-hópsins. „Það held ég
ekki. Félagið sem heldur utan um
þennan Orcu-hlut er mjög eignasterkt
Óvenjuleg innkoma
Þorsteinn Már Baldvinsson heilsar
Bjarna Ármannssyni. Þorsteinn Már
var kjörinn í stjórn bankans en haföi
fyrr um daginn veröi sviptur
atkvæöisrétti.
í samanburði við önnur eignarhaldsfé-
lög og með eigið fé í kringum tvo millj-
arða,“ segir hann. En telur hann að
ákvörðunin tengist með einhverjum
hætti rannsókn þeirri sem skattrann-
sóknarstjóri stendur fyrir á umsvifúm
Jóns Ólafssonar? „Ja, slík rannsókn er
allavega ein þeirra ástæðna sem getið
er um í lögunum, það er ljóst, en ég fer
ekki nánar út í efúi bréfsins."
Einar „á eigin vegum“
Skömmu fýrir aðalfundinn i gær
var tilkynnt að Schilling Inc. hefði
keypt alla hluti Jóns Ólafssonar í Orca
SA. Kaupverðið er tæpir tveir milljarð-
ar króna og félagið eignast með kaup-
unum tæplega 4% hlut í bankanum.
Schilling Inc. er dótturfélag Saxhóls,
eignarhaldsfélags Nóatúnsijölskyld-
unnar. Félagið seldi fyrir um tveimur
árum allan hlut sinn í Kaupási og um-
svif þess eru fyrst og fremst í rekstri
fasteigna og fjármálastarfsemi. Fram-
kvæmdastjóri þess er Einar Öm Jóns-
son, en hann tók sæti Eyjólfs Sveins-
sonar í bankaráði íslandsbanka þegar
Eyjólfúr seldi hlut sinn í Orca um ára-
mótin. Einar Öm hefur því verið tal-
inn tilheyra fylkingu Orca-hópsins.
Hann var sjálfkjörinn varamaður í
stjóm á aðalfúndinum í gær.
„Þessi kaup era algjörlega á okkar
forsendum," segir Einar Öm aðspurð-
ur hvort þau hafi verið gerð í samráði
við Jón Ásgeir eða Þorstein Má. En við
hvaða atkvæði studdist hann sem arf-
taki Eyjólfs Sveinssonar í stjóm bank-
ans? „Engin sérstök. Ég tilheyri eng-
um fylkingum. Það er af og frá og ég er
bara hér á eigin vegurn," segir Einar
Öm. Hann vill ekki upplýsa hverjir
hvöttu hann til að bjóða sig fram sem
varamaður í stjóm bankans. „Þeir sem
þekkja Einar vita að hann er sinn eig-
in herra,“ segir Jón Ásgeir aðspurður
hvort líta mætti á Einar Öm sem
„hans mann“ í stjóminni.
Einar Öm segir enga ástæðu til að
freista þess að ná ffarn breytingum á
stjóm bankans að svo stöddu. „Gunn-
ar Jónsson, sem er þama sem fúlltrúi
Jóns Ólafssonar, hefur fúllan stuðning
minn og á meðan hann viE sitja er ég
sáttur við hann.“
Jón Ólafsson seldi enn fremur í gær
um það bil eins prósents hlut í bankan-
um sem skráður var á félag hans, Jón
Ólafsson & Co, en ekki er vitað hver
keypti. -ÓTG
Jón Ásgeir Jóhannesson um bréfin í Tryggingamiðstöðinni:
Ég hafði samning
um forkaupsrétt
- segir samninginn hafa horfið úr vörslu Ara Edwald
hald þessa samnings væri ekki lengur
í gildi. Ég óskaði þá eftir því að fá að
sjá samninginn. Hann varð ekki við
þeirri beiðni."
Ari Edwald segist vísa þessum ásök-
unum algjörlega á bug og segir þær til-
hæfúlausar með öllu. Aðspurður hvort
slíkur samningur hafi verið tii ítrekar
Ari fyrra svar sitt og bætir við að
stjóm Straums hafi verið algjörlega
óbundin við ráðstöftm hlutabréfanna í
Tryggingamiðstöðinni og haft það eitt
að leiðarljósi að fá sem hæst verð fyrir
þau. Ari segir að öll stjóm Straums,
þrfr menn auk varamanns, hafi verið
algjörlega einhuga um afgreiðslu máls-
ins.
Jón Ásgeir segir að lögmenn hafi
verið vitni að undirritun samningsins
og segist vera að skoða næstu skref í
málinu. -ÓTG
„Ég gerði skriflegan samning við
stjóm Straums um forkaupsrétt að
bréfúm Straums í Tryggingamiðstöð-
inni,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson,
sem telur sig hafa verið svikinn um
tækifæri til að bjóða betur í bréfin.
„Samningurinn var I vörslu Ara Ed-
wald og hvarf,“ segir Jón Ásgeir og
segist telja að samningnum hafi verið
eytt.
Straumur sem er fjárfestingarfélag,
að stærstum hluta til í eigu íslands-
banka, seldi um nýliðin mánaðamót
Landsbankanum öll bréf sín í Trygg-
ingamiðstöðinni, næstum ellefu pró-
senta hlut, fyrir tæplega 1,7 milljarða.
Fyrir þessi viðskipti var Ovalla Trad-
ing stærsti hluthafmn í Tryggingamið-
stöðinni en Ovalla er í eigu Jóns Ás-
geirs og Hreins Loftssonar. Jón Ásgeir
vildi sjálfúr kaupa þessi bréf Straums
Jón Ásgeir
Jóhannesson.
og telur eins og fyrr segir að stjóm fé-
lagsins hafi svikið samning um að
hann fengi tækifæri til að hækka
hæsta boð í þau. Ari Edwald er stjóm-
arformaður Straums og Bjami Ár-
mannsson, bankastjóri íslandsbanka,
annar meðstjómenda.
„Ég hef rætt þetta við Ara,“ segir
Jón Ásgeir. „Hann tjáði mér að inni-
Ari
Edwald.
Í£ S i WL Wiij s1íi yifríiJJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 19.19 19.02
Sólarupprás á morgun 07.54 07.40
Siðdeglsflóð 18.12 22.45
Árdegisflóð á morgun 06.27 11.00
y’y.fP/iíiii
Léttir til
NV 8-13 m/s og víða él. Hæg
suölæg átt og skýjaö meö köflum
vestantil en NV 8-13 og léttir til á
austanveröu landinu síödegis. Frost
0 til 5 stig, kaldast noröan til.
BS
Suölæg átt, 10-15 m/s og rigning
en síðar skúrir sunnan og vestan til
en skýjað á Norðausturlandi.
Hlýnandi veöur, hiti 0 til 5 stig seint
um daginn.
Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur
SV S8 m/s.
Snjó- eða
slydduél
sunnan og
vestan tll en
léttskýjaö á
NA-landl. Hltl
um
frostmark.
Hæg SV átt.
Snjó- eóa
slydduél
sunnan- og
vestan tll en
léttskýjað á
Norðaustur-
landl. Hltl
kringum
frostmark.
Vimiur:
5-8"^
A og NA 5-8
m/s. Dálitil él á
Noröur- og
Austuriandi en
yflrleitt
léttskýjaö á
Suöur- og
Vesturiandi.
Frost 0 til 7
stig.
m/s
Logn
Andvari
Kul
Gola
Stinnlngsgola
Kaldl
Stinnlngskaldi
Allhvasst
Hvassviðri
Stormur
Rok
Ofsaveður
Fárviðrl
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
17,2-20,7
20,8-24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
>= 32,7
mmm
AKUREYRI skýjaö 0
BERGSSTAÐIR skýjað -1
BOLUNGARVÍK snjóél -5
EGILSSTAÐIR léttskýjaö -1
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -3
KEFLAVÍK snjókoma 0
RAUFARHÖFN léttskýjaö -3
REYKJAVÍK úrkoma í gr. 1
STÓRHÖFÐI snjóél 0
BERGEN skúr 4
HELSINKI léttskýjaö -2
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 4
ÓSLÓ alskýjaö 2
STOKKHÓLMUR 1
ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 0
ÞRÁNDHEIMUR snjókoma 1
ALGARVE alskýjaö 16
AMSTERDAM alskýjaö 6
BARCELONA
BERUN skýjaö 6
CHICAGO skýjaö 1
DUBUN léttskýjaö -1
HAUFAX léttskýjaö -3
FRANKFURT skýjaö 7
HAMBORG skýjaö 5
JAN MAYEN úrkoma í gr. -8
LONDON þoka 6
LÚXEMBORG skýjaö 8
MALLORCA þokumóöa 7
MONTREAL alskýjaö -3
NARSSARSSUAQ skafrenningur 3
NEW YORK hálfskýjaö 4
ORLANDO léttskýjaö 17
PARÍS alskýjaö 8
VÍN léttskýjaö 2
WASHINGTON skýjað 1
WINNIPEG þoka -10