Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2002, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002
9
DV
Neytendur
Kartöflur:
Skyndibiti tekur
við af fiskinum
Flestir pokar
þyngri
- en segir á umbúðum
Fyrir skömmu barst Neytendasíð-
unni ábending um kartöflupokar sem
seldir eru í verslunum væru oft á tíð-
um of léttir. Lesandi blaðsins sagðist
hafa farið í verslun og keypt slíkan
eins kilós poka og vigtað hann heima
og reyndist hann vera 920 g. Fór hann
aftur í verslunina og vigtaði § poka og
að sögn voru þeir allir vel undir kilói.
Neytendasíðan fór á stúfana og
vigtaði nokkra kartöflupoka frá fjór-
um framleiðendum. Rétt er að taka
fram að eingöngu var vigtaö á vogum
er hlotið hafa löggildingu hjá Löggild-
ingarstofu.
Helstu niðurstöður þessarar óform-
legu könnunar voru þær að tveggja
kílóa pokamir af rauðum islenskum
frá Ágæti reyndust að meðaltali tæp-
lega 30 g yfir vigt, homfirskt gullauga
58 g yfir, gullauga frá Móður jörð 22 g
yfir og í pokum af rauðum íslenskum
frá JG var 93 g meira af kartöflum en
sagði á umbúðunum.
Af þeim 40 tveggja kílóa pokum
sem vigtaðir voru reyndist aðeins
einn vera undir vigt en hann reyndist
innihalda 1998 g þannig að aðeins 2 g
vantaði upp á kílóin tvö. Þyngsti pok-
inn vó 2166 g sem er 8% meira en það
magn sem greitt er fyrir. - ÓSB
Súkkulaðirúlla
með mascarpone
Ef von er á gestum og gera á eitt-
hvað ótrúlega gott með kaffinu er þessi
súkkulaðirúlluterta tilvalin. Hún er
hreint sælgæti með súkkulaðikremi,
mascarpone osti og jarðarberjum.
Botn
175 g suðusúkkulaði, skorið i litla bita
4 egg, aðskilja rauðu og hvítu
115 g ílórsykur
kakó
nokkur súkkulaðihúðuð jarðarber
Hitið oíhinn í 180' C. Smyrjið fer-
kantað form, 33x23 cm, og leggið bök-
unarpappir í það. Bræðið súkkulaðið
við vægan hita.
Hrærið eggjarauður og sykur þar
til létt og ljóst og bætið bráðnu
súkkulaði varlega saman við. Þeytið
eggjahvitur þar
til á þær mynd-
ast mjúkir topp-
ar og blandið
varlega saman
við súkkulaðiblönduna.
Smyrjið síðan blöndunni jafnt í
formið og bakið í 15-20 minútur eða
þar til kakan hefur lyft sér vel og er
stinn þegar ýtt er á hana. Takið úr
ofninum og hvolfið á bökunarpappír
sem kakói hefur verið stráð yfir, hylj-
ið með hreinu viskastykki og látið
kólna á meðan fyllingin er búin til.
Fylling
225 g suðusúkkulaði i litlum bitum
45 ml koníak
2 egg, rauða og hvíta aðskildar
250 g mascarpone ostur
Bræðið súkkulaðið með koníakinu
yfir vatnsbaði. Takið skálina af hitan-
um. Þeytið eggjarauðumar vel og þeyt-
ið saman við súkkulaðið. Eggjahvíturn-
ar eru stífþeyttar í annarri skál og
blandað varlega saman við rauðumar
og súkkulaðið.
Fjarlægið bökunarpappírinn af
tertubotninum óg smyrjið hann með
mascarpone ostinum. Smyrjið kreminu
þar ofan á og rúllið botninum varlega
upp, frá lengri hlið. Færið yfir á fat eða
kökudisk, skreytið með jarðarberjum
sem dýft hefur verið í súkkulaði. Kælið
kökuna áður en hún er borin fram.
- þó einnig sé hægt að fá sjávarafurðirnar heimsendar
Eins og fram kom i verðkönnun á
fiski sem birt var í fjölmiðlum ný-
verið hefur verð á fiski hækkað
töluvert milli ára. Verðlag er vænt-
anlega einn stærsti áhrifaþátturinn
í þeirri þróun sem orðið hefur á
undanfömum árum en fiskneysla
hefur minnkað jafnt og þétt. Þó vilja
sumir meina aö skyndibitinn hafi
tekið mikið frá fisksölu. Þrátt fyrir
það hefur úrvalið af fisktegundum
sem í boði eru aukist og eins er
þjónustan fjölbreyttari.
Sem dæmi um aukna þjónustu
má nefna að um 6 þúsund heimili fá
nú fisk og aðrar sjávarafurðir send-
ar heim en fyrirtækið Hagfiskur
hefur boðið upp á slíka þjónustu í
um 10 ár. Rúnar Björgvinsson, einn
af eigendum Hagfisks, segir að á 5
vikna fresti sé hringt í viðskiptavini
og þeir panti úr vörulistanum það
sem hugurinn gimist. Vörunni er
síðan ekið upp að dyrum án sér-
staks aukagjalds, sé keypt fyrir
meira en 3000 kr., en annars kostar
heimsendingin 200 kr.
Rúnar segir vöruúrvalið gott.
„Við bjóðum upp á nánast allt milli
himins og jarðar, t.d. ýsuflök, roð-
laus og beinlaus, bæði sjófryst og
landfryst, reykta ýsu, þorskflök,
saltfisk, tilbúna fiskrétti, eins og
ýsu 1 sósu, sjávarréttabökur, for-
steiktan fisk í raspi, fiskinagga,
fiskibollur, úthafsrækju, humar,
hörpudisk, marineraðan silung, sil-
ungsflök, rauðsprettu, smálúðu,
skötusel, harðfisk og fleira.“
Þorskurinn sækir á
Meðalíjölskyldan kaupir sjávaraf-
urðir fyrir um 6.000 kr. á fimm
vikna fresti og segir Rúnar Hagfisk
væntanlega vera með svipað verð og
keppinautar þeirra. „Sem dæmi um
verð má nefna að kílóið af roðlaus-
um og beinlausum smáum ýsuflök-
um er á tæpar 1000 kr. en þau em
vinsælasta varan hjá okkur. Svo er
auðvitað hægt að fá dýrari fisk. En
megináhersla fyrirtækisins er á
gæðum; þau verða að vera 1.
flokks."
Rúnar segir að neyslumynstur
landans hafi breyst töluvert undan-
farin ár. „Nú er ekki lengur fiskur á
Gott úrval
Það er af sem áöur var þegar flestir keyptu fiskinn sinn beint úr bátunum eöa í fiskbúðinni. Nú er einnig hægt að fá
þessa hollu fæöu í stórmörkuöum og í heimsendingu. Myndin er tekin í stórmarkaöi og eins og sjá má er úrvaliö
gott, enda er iandinn opinn fyrir aö prófa nýjar fisktegundir.
borðum annan hvem dag eins og
áður var. En fólk gerir líka meiri
kröfur til þess fisks sem það neytir,
það er fleira en soðin ýsa á borðum.
Þorskurinn sækir hægt og bítandi
á, enda telja margir að hann sé mun
betri fiskur en ýsan. Sala á öðrum
tegundum er einnig að aukast, svo
og á tilbúnum fiskréttum beint í
ofninn.“
Forsvarsmenn Hagfisks segja
þessa þjónustu ekki vera setta upp
til að keppa beint við fiskbúðimar
heldur sé hér um enn einn valkost-
inn fyrir neytendur að ræða.
Skyndibiti í stað fisks
1 sama streng tekur Júlíus Helga-
son, einn af eigendum Fiskbúðar
Hafliða. „Ég held að Hagfiskur sé
svo sem ekkert að ná viðskiptum af
fiskbúðunum. Þeir eru að selja aðra
vöru en við, þ.e. frosinn fisk, þar
sem við erum með ferskan. Fiskbúð-
irnar sem slíkar finna meira fyrir
minni fisksölu vegna annarra mat-
artegunda sem hafa sótt mikið á
undanfarin ár. Það er eilíf útsala á
svínakjöti og kjúklingum og pitsur
hafa tekið mikið frá fisksölunni. Ég
heyrði einhvern tímann að pitsu-
veltan hér á landi væri um 2 millj-
arðar árlega en ekki eru mörg ár
síðan pitsumenningin hóf innreið
sína af fullum krafti hér á landi. Ég
giska á að veltan í fisksölunni sé
um 8-900 milljónir. Því hafa pitsan
og annar skyndibiti tekið mikið frá
fisksölunni.
Keppa við útflytjendur
Júlíus segir að fiskur hafi hækk-
að meira í verði en margar aörar
tegundir matvöru. „Helsta ástæða
þess er sú að við erum nú að keppa
um fiskinn á fiskmörkuðum við þá
aðila sem flytja fisk út. Þeir geta selt
vöruna dýrt og geta þar af leiðandi
borgað meira fyrir hann á markaði.
Því erum viö nú að selja fisk á svip-
uðu verði og hann kostar erlendis.
Fiskverð á mörkuðum hefur hækk-
að um 30% á tæpu ári.
Júlíus segir algengt verð á glæ-
nýrri línuýsu vera á bilinu 900-1000
kr. í fiskbúðum og stórmörkuðum
en að það sé ekki sambærileg vara
við sjófryst smáflök.
Þó enn sé salan mest í ýsunni hef-
ur sala á þorski aukist mikið hjá
Fiskbúð Hafliða. Júlíus segir ýsuna
hafa verið svo vinsæla vegna þess
að sjómennimir máttu hirða hana -
verðmætin lágu í þorskinum. Mér
finnst skrýtið að ekki skuli borðað
meira af honum - ætli hræðslan við
orminn vegi þar ekki þungt. Ég held
hins vegar að sá ótti sé ástæðulaus
því nánast öll flök eru sett á ljósa-
borð og skoðuð vel. Annars eru ís-
lendingar sífellt að verða opnari fyr-
ir nýjum tegundum. T.d. er steinbít-
urinn mjög vinsæll og svo seljum
við nokkuð af keilu, sérstaklega á
veitingahúsin.“ -ÓSB
Stjórn húsfunda er vandaverk:
Hægt að fyrirbyggja deilur og fjártjón
- með réttri framkvæmd. JC og Húseigendafélagið með þjónustu við húsfélög sem tryggir rétt boðaða og haldna fundi
Á aðalfundum húsfélaga eru oft
teknar ákvarðanir um dýrar fram-
kvæmdir og miklar skuldbindingar
sem mikil fjárútlát fylgja. Almenn
forsenda fyrir lögmæti slíkra
ákvarðana um viðhaldsframkvæmd-
ir og þá fyrir greiðsluskyldu eig-
enda er að þær séu teknar á fundi
sem er rétt og löglega boðaður og
haldinn. Þótt það virðist ekki vera
mikið vandaverk að halda húsfundi,
sem standast lagakröfur og eru bær-
ir til að taka lögmætar ákvarðanir,
reynist það oft þrautin þyngri.
Húseigendafélagið býður upp á
þjónustu sem er samstarfsverkefni
félagsins og JC hreyfingarinnar en í
henni felst ráðgjöf og aðstoð við
húsfundi en nú er tími aðalfunda í
húsfélögum. Þeir sem vilja nýta sér
þessa þjónustu fá fundarstjóra og
fundarritara frá JC sem hafa þekk-
ingu, reynslu og þjálfun í fundar-
höldum. Þeir gefa ráðgjöf og aðstoða
við undirbúning og boðun funda og
annast fundarstjórn á fundinum
sjálfum og rita fundargerð. Eins
koma lögfræðingar Húseigendafé-
lagsins að þjónustunni og eru ráð-
gefandi um öll atriði hennar. Þessi
Vandræðl og deilur
Þeim málum fjölgar stöðugt þar sem vandræöi og deilur hafa risiö í fjölbýlis-
húsum og rekja má til mistaka viö ákvaröanatöku og fundarhöid.
þjónusta á að tryggja lögmæta fundi
og að rétt sé staðið að töku ákvarð-
ana.
Samkvæmt fjöleignarhúsalögun-
um gilda ákveðnar reglur um töku
ákvarðana en þær skal taka á hús-
fundi. Mörg dæmi eru til um húsfé-
lög og stjórnarmenn þeirra sem
hafa orðið fyrir tjóni og skakkafoll-
um vegna þess að kastað var til
höndunum við undirbúning og
framkvæmd húsfunda. Þeim húsfé-
lögum sem vilja hafa allt á hreinu í
þessu efni og leita aðstoðar Húseig-
endafélagsins fer íjölgandi með
hverju árinu.
Þrátt fyrir það fjölgar líka stöðugt
málum þar sem vandræði og deilur
hafa risið og má rekja til mistaka
við ákvarðanatöku og fundarhöld.
Fyrir þessa þjónustu er tekin sann-
gjöm þóknun sem miðast við hóf-
legt tímagjald og þann tima sem í
verkið fer.
Nánari upplýsingar má fá á
heimasíöu Húseigendafélagsins
www.huseigendafelagid.is og á
skrifstofu þess að Siðumúla 29.
Heimild: Grein á heimasíöu
Húseigendafélagsins