Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 DV Fréttir Kvikmyndas j óður: Fjármálastjóri ekki ráðinn Tillaga Þorfmns Ólmarssonar, fram- kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs Is- lands, um að ráðinn verði sérstakur fjármálastjóri til stofnunarinnar náði ekki fram að ganga á fundi stjórnar í gær. „Þetta hlaut ekki undirtektir," sagði Vilhjálmur Egilsson, formaður stjómar sjóðsins, í samtali við DV í morgun. Hann segir ekkert í starfsem- inni vera þess eðlis að þörf sé á íjár- málastjóra. Umsýsla á sviði fjármála sjóðsins fari að mestu leyti fram hjá Ríkisféhirði og Ríkisbókhaldi. „Málið snýst því ekki um annað en að halda utan um fylgiskjöl og merkja þau rétt,“ sagði Vilhjálmur. Kenningum um að Hrafni Gunn- laugssyni sé hyglað við styrkjaúthlut- andir hjá sjóðnum vísar Vilhjálmur á bug. Bendir í því sambandi á að á því hálfa niunda ári sem hann hafi verið formaður sjóðsstjómar hafi Hrafh að- eins einu sinni fengið styrk úthlutað til gerðar kvikmyndar, það er Myrkra- höfðingjans. Það var styrkur sem síðar fluttist til Islensku kvikmyndasam- steypunnar. „í mínum huga snýst spumingin því frekar um hvort Hrafh njóti sannmælis, fremur en að ég sé að hygla honum," sagði Vilhjálmur. -sbs Krónan veiktist talsvert í gær Gengi krónunnar veiktist um 0,43% í gær og endaði gengisvísitalan í 128,2 stigum eftir töluverð viðskipti á gjald- eyrismarkaði. Bandaríkjadalur endaði í 91,20 krón- um en hann hafði farið niður fyrir 91 krónu í fyrradag. Evran kostar nú 83,40 krónur og breska pundið 133,81 kr. Þrátt fyrir þessa veikingu krónunnar hefur dollarinn lækkað um 11,4% gagn- vart krónunni frá áramótum, pundið um 10,3% og evran um 8,4%. -HI Vaxtalækkun strax 14. maí - að mati forseta ASÍ - kominn tími á viðskiptabankana Gylfi Ambjömsson, framkvæmda- stjóri ASÍ, segfr mikinn létti fylgja því að svo virðist sem rauða strikið muni halda samkvæmt greiningu Seðlabank- ans frá í gær. „Það er vissulega ánægju- legt að tekist hefur að vinda ofan af þeirri öfugþróun sem átti sér stað á síð- asta ári. Það skiptir ákaflega miklu máli fyrir okkar fólk,“ sagði Gylfi í samtali við DV í morgun. Seðlabankinn hefur í tvígang lækkað vexti á stuttum tíma um alls 0,8 prósent en bankinn segir að í ljósi þess slaka sem nú sé að myndast í hagkerfinu sé æskilegt að raunvextir Seðlabankans lækki áfram á komandi mánuðum. Þessu fagnar Gylfi. „Með því að ná tök- um á verðbólgunni vorum við að skapa forsendur til vaxtalækkunar og við hefð- um gjaman viljað sjá það gerast hraðar. Nú boða þeir frekari vaxtalækkanir og ég á von á að skilyrði til þess skapist strax eftir mælinguna 14. mai,“ segir Gylfi. Oftaka bankanna á hagnaði Framkvæmdastjóri ASÍ telur að sam- ræmi hafi verið milli aðgerða viðskipta- bankanna og stýrivaxtalækkunar Seðia- bankans en hins vegar telur hann að bankamir eigi að ganga lengra. „Okkur þykir augljóst með hliðsjón af afkomu bankanna að þeir eigi að stfga stærri skref. Þeir hafa verið að auka sinn vaxtamun." Gylfi segir ekki eðlilegt að bankakerfið sé rekið með 20-35% arð- semi. „Það er einfaidlega oftaka á hagn- aði og við höfum gagnrýnt bankana fyr- ir að skila ekki hagnaðinum til baka til viðskiptamannanna." í ársfiórðungsriti Seðlabankans kem- ur fram að undirliggjandi verðbólga er á hröðu undanhaldi. Gengi krónunnar hefur styrkst um 6% frá áramótum sam- fara hraðminnkandi viðskiptahalla og um leið hefur innlend eftirspum haldið áfram að dragast saman. Útlit er fyrfr nokkum samdrátt landsframleiðsiu á þessu ári eftir langt og kröftugt hagvaxt- arskeið, að mati Birgis ísleifs Gunnars- sonar seðlabankastjóra. -BÞ .S I— DV- MYND SKH Nýtt landslag Eins ogDV greindi frá í gær hrundu mannhæöarhá björg úr hlíöinni ofan Eystri-Péturseyjar í Mýrdal. Sigurjón bóndi og hundurinn Veró skoöa hér verksummerkin, en björgin stefndu á bæinn og stöövuöust nokkra tugi metra frá. ERU BESTU TÆKIFÆRISGJAFIRNAR Ljósmyndarar á íslandi Inga Lára Baldvinsdóttir „Bókin er einhver glæsilegasti prentgripur sem ég hef séð." „Sannkölluð gullnáma" Erik Simensen/Lexico Nordica Jpb JRV ÚTGÁFA Brædraborqarstígur 7 • Sími 575 5600 Hrafn Jökulsson/Rás 2 ísland í sjónmáll Æsa Sigurjónsdóttir „Kærkomið tímamótaverk." Einar Falur Ingólfsson/Mbl. um istmi* ■átaaTfim Orðastaður Jón Hiimar Jónsson Ný.mikin 45.000 onSosnmiwrul og endinskoóuð 15.000 notkunanlinni ulgóiu 100.000 samsenorð 11.000 flettíori 1.100 mólshœttir Sr. Hjálmar Jónsson í kosningaeftirliti: Fyigist meö í Sierra Leone „Þetta er spennandi verkefhi sem felst einkum í því að sýna fram á að lýð- ræðið geti virkað og að kosningamar fari heiðarlega fram. Við eigum að heita aflögufær þegar lýðræðið er annars veg- ar,“ sagði Hjálmar Jónsson dómkirkju- prestur við DV í morgun. Hjálmar heldur í dag til Sierra Leone þar sem þing- og forsetakosningar fara fram þann 14. maí nk. Hjálmar verður eini ís- lendingurinn í hópi eftirlitsmanna með kosningunum. Hann segir Hjálparstofn- un kirkjunnar hafa borist beiðni um stuðning og i framhaldinu hafi Jónas Þórisson haft samband við sig. Sierra Leone er þjáð og þjakað af tiu ára borgarastyrjöld en nú er friðarferli komið í gang og lýðræðisöflum að vaxa fiskur um hrygg. Kosningamar fram undan verða að sögn Hjálmars próf- steinn á hvort friður heldur í landinu. „Þetta er virkilega verðugt viðfangs- eftii og ég er reiðubúinn að leggja mitt lóð á vogarskálamar. Það þarf að hvefia til almennrar þátttöku í kosningunum en f því andrúmslofti sem ríkir eftir langvarandi innanlandsátök er fóik ekki svo mikið að velta fyrir sér hefðbundn- um kosningamálum." Hjálmar gerir ráð fyrir að komast heim aftur 18. maí og taka þátt í hátíð- armessu í Dómkirkjunni að. morgni hvítasunnudags. -aþ Formaður Hnjúka á Blönduósi: íhugar að flytjast úr bænum Valdimar Guðmannsson, formað- ur Bæjarmálafélagsins Hnjúka á Blönduósi, segist alvarlega íhuga að flytja úr bænum ef framboð félagsins verði ekki tekið til greina. Hann átti að skipa 2. sæti listans. „Ég var með listann á mér og átti að fara með hann til yfirkjörsfiómar ásamt öðrum manni, en ég gleymdi mér við aðra vinnu á kosningaskrif- stofunni. Við erum búin að visa málinu til Héraðsdóms Norðurlands vestra og fara fram á flýtimeðferð, og ég geri mér vonir um að úrskurður liggi fyrir strax í næstu viku. Það hefúr fiöldi manns haft samband við mig og fleiri í Hnjúk- um og bent á fiölda dæma víða um land þar sem málin voru leyst í kyrrþey, t.d. vegna lítils háttar formgalla á framboð- um. Okkur skilst nú að við hefðum get- að skilað framboðinu hvenær sem var til einhvers yfirkjörstjómarmeðlima en ekki bara á þessum eina klukku- tíma sem kjörsfiómin auglýsti. Við vomm í 300 metra fiarlægð frá þeim og kannski hafa þeir haldið að við ætluð- um að vera eitthvaö sniðugir með því að koma á síðustu stundu. Ef allt fer á versta veg á ég erfitt með að horfast í augu við félaga mína, ég ber fyrst og fremst ábyrgð- ina, og hef þá bmgðist þeim algjör- lega. Því hef ég þegar íhugað að flytja úr bænum ef svo fer. En hvert er al- gjörlega óráðið," segir Valdimar Guðmannsson. -GG formaður Finnur Geirsson var endurkjörinn for- maður Samtaka at- vinnulífsins á aðal- fundi samtakanna í gær. í ræðu sinni gagnrýndi hann hvemig hið opinbera leiddi þróun launa- mála í landinu. „Hið opinbera, sem byggir á skattlagningu atvinnulífs og almennings, hefúr tekið forystu um kostnaðarhækkanfr í launum og öðr- um starfskjörum sem atvinnulifið get- ur ekki fylgt eftir. Slíkt getur ekki end- að nema með ósköpum," sagði Finnur m.a. í ræðu sinni. Endurkjörinn Lottóvinningshafi fundinn Hjón með fiögur böm, búsett í Hafti- arfirði, fengu rúmar 80 milljónir í Lottóinu. Heimilisfaðirinn gaf sig ný- verið fram við íslenska getspá en hann kvaðst hafa geymt miðann í náttborðs- skúffu meðan hann hugsaði sitt ráð. Brjóstamjólkin eflir vit Brjóstamjólkin hefur áhrif á gáfúr bama ekki síður en heilsu þeirra. Þá getur hún minnkað líkumar á að böm þjáist af offitu síðar á lifsleiðinni. Þetta er niðurstaða bandarísks prófessors í bamalækningum sem hélt erindi hjá Félagi íslenskra bamalækna um síð- ustu helgi. mbl.is greindi frá. Fjárhagslegur aðskilnaður Samkeppnisráðs hefúr mælt fyrir að fiárhagslegur aðskilnaður verði á milli starfsemi Veðurstofú íslands, sem er á samkeppnismarkaði, og hins vegar þeirrar starfsemi sem stofnuninni er skylt að veita samkvæmt lögum. Til- efni úrskurðar Samkeppnisráðs er kvörtun frá Halo sem rekur veðumpp- lýsingakerfi og veðurþjónustu. Halo taldi Veðurstofuna misnota aðstöðu sína gagnvart öðrum fyrirtækjum. Meint trúnaðarbrot Landlæknir hefúr nú til skoðunar meint trúnaðarbrot starfsmanns hjá Heilbrigðisstoftiun Suðurlands gagn- vart sjúklingi. Á mbl.is er haft eftir að- stoðarlandlækni að kvörtunarmál er varða trúnaðarbrot heilbrigðisstarfs- fólks séu afar fátíð eða innan við tíu á ári. Stefnir á tindinn Fjallagarpurinn Haraldur Öm Har- aldsson bíður nú betra veðurs áður en hann leggur til at- lögu við tind Everest- fialls. Veðurútlit þyk- ir hagstætt til upp- göngu á laugardag í fyrsta lagi og bíður Haraldur átekta f grunnbúðum. Ef allt gengur eftir ætti hann að eiga möguleika á að virða fyr- ir sér útsýni af hæsta tindi heims um aðra helgi. Bóhem neitað Úrskurðamefnd um áfengismál hef- ur staðfest synjun borgarráðs þess efti- is að skemmtistaðurinn Bóhem fái lengri afgreiðslutíma. Niðurstaðan var kynnt á fundi borgarráðs í gær en for- ráðamenn skemmtistaðarins höfðu far- ið fram á að fá að veita áfengi til 5.30 á morgnana. Staðan er hins vegar sú að Bóhem má hafa opið til eitt virka daga en til 5.30 um helgar. Norðurljós áminnt Verðbréfaþing ís- lands hefúr áminnt Norðurljós, sem rek- ur m.a. Bylgjuna og Stöð 2, fyrir að hafa ekki skilað ársreikn- ingi til þingsins fyrir síðasta ár. Reglur þingsins segja að út- gefendum skuldabréfa beri að skila þinginu ársreikningi innan þriggja mánaða frá lokum reikningsárs. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.