Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Qupperneq 2
2 Fréttir FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 DV Landssamband íslenskra útgerðarmanna hætti við að láta Gallup gera könnun: Sakar Gallup um hlut- drægni gagnvart ESB - forstjóri Gallup hafnar því - segist aðeins berjast fyrir réttri aðferðafræði Stuttar fréttir Fleiri lögreglumenn í Kópavog Gunnar I. Birgis- son, formaður bæjar- ráðs Kópavogs, segir í framhaldi ályktunar Landssambands lög- reglumanna um að ástand löggæslumála í Kópavogi sé óviðun- andi að ráða þurfi tvo til fjóra nýja lögreglumenn til þess að ástandið sé viðunandi. Fréttablaðið greindi frá. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, dregur í efa hæfi Þorláks Karlssonar, forstjóra Gallup, til að stýra fyrirtækinu. Kristján segir að LÍO hafi ætlað að semja við Gallup um framkvæmd skoðanakönnunar á aðild að ESB fyrir skömmu en sam- tökin hafi hætt við viðskiptin vegna persónulegrar afstöðu forstjóra Gallup gagnvart ESB. Þess vegna hafi þeir leitað til Pricewaterhouse Coopers. Kristján lýsir hins vegar ánægju með þá könnun sem forsætisráðu- neytið lét Félagsvísindastofnun framkvæma og segir hana þarfa til að menn sjá um hvað sé að ræða. „Ég tel að þama sé spurt þannig að menn séu í afstöðu til að svara en framkoma þessa forstjóra Gallup er hins veg- ar með ólíkindum," segir Kristján. Rúið trúverðugleika Formaður LÍÚ segir að persónulegar skoðanir Þor- láks hafi komið mjög greini- lega fram í afstöðu hans til málaleitana LÍÚ. „Það átti bara að spyrja á hans forsendum og þeir sem tóku þátt í þessu fyrir okkar hönd skynjuðu það þannig að hann hefði sjálfur afstöðu á persónulegum grunni sem réði. Það fmnst mér líka koma mjög vel fram í þeim spuming- um sem hann lagði fyrir Samtök iðn- aðarins." Kristján segir LÍÚ hafa spurt beint og svörin hafl verið þau að minnihluti vildi ganga í bandalagið. „Þar voru engar forsendur gefnar en mér finnst hins vegar enn betra að gefa fólki forsendur. Eins og forsætisráðherra sagði réttilega hefur verið gefið til kynna að hægt sé að semja sig frá hinu óþægilega. Það hefur engum tekist." Aðspurður um frekari þjónustu- kaup milli LÍU og Gallup segir Krist- ján alveg ljóst að LtÚ muni ekki skipta við Gallup í framtíðinni. „Ég harma að það sé tilefni til að draga i efa trúverðugleika þessa fyrirtækis en framkoma hans gagnvart könnun for- sætisráðherra er með þeim öfgalega hætti að maður fyllist vantrú á hæfi þessa manns til að stýra svona fyrir- tæki.“ Spurning um vinnubrögð DV náði tali af Þorláki Karlssyni, forstjóri Gallup í Lundúnum í gær og hafnar Þorlákur því alfarið að tengsl séu milli vinnu Gallup og persónu- legra skoðana hans. „Ég hef enga skoðun á Evrópusambandsmálum en ég berst fyrir réttri aðferðarfræði og að dregnar séu réttar ályktanir af könnunum," segir Þorlákur. Hann segir að ef mæla eigi áhuga að ESB verði það að vera formálalaust, alveg eins og ef kjósa ætti um málið. -BÞ bj I 1 k 4 Kristján Ragnarsson. Krafa um útburð - vegna leiguvanskila Eignarhaldsfélag Landsbankans, Hömlur hf„ hefur lagt fram kröfu um útburð Fréttablaðsins úr húsnæði fé- lagsins að Þverholti 9. Til stóð að þing- festa málið í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Útburðarkrafan er tilkomin vegna vangoldinnar húsaleigu Frétta- blaðsins til margra mánaða. Verði húsaleiga sú sem er í vanskil- um hjá Fréttablaðinu ekki greidd innan tiltekins tíma mun Héraðsdómur kveða upp úrskurð um að eigendur þess eigi að rýma húsnæðið, samkvæmt venju- bundinni meðferð slíkra mála. Síðan verður leitað atbeina sýslumannsemb- ættisins í Reykjavík um að eigendur blaðsins hlíti úrskurðinum og rými hús- næði eignarhaldsfélagsins. -JSS Ný ársfjórðungskönnun heilbrigðisráðuneytisins: Gífurlegur vöxtur í neyslu geðdeyfðarlyfja - fjöldi dagskammta svarar til að 18 prósent landsmanna noti geðlyf Enn eykst notkun landsmanna á geðdeyfðarlyfjum. Umtalsverð aukning er milli fyrsta ársfjórðungs þessa árs og síðasta ársfjórðungs ársins 2001. Notkun á svefnlyfjum og róandi lyfjum er einnig mjög mikU og þar hefur einnig verið stöð- ugur vöxtur á undangengnum árum. Hún er þó ívið minni á fyrsta ársfjórðungi þessa árs heldur en hún var á síðasta ársfjórðungi 2001. Gera má ráð fyrir að landsmenn kaupi geðlyf fyrir á þriðja mUljarð króna á þessu ári verði þróunin sú sama og verið hefur undanfama ársfjórðunga. Þetta kemur fram í P'" H "l i ð Wjj /•§1 1 f 1 f" ■ Mm Tnm / ■ TrUjf Tf pi §/Áj ‘-ííwVÍ!. ||v! í'VV.Í'' $i;!. /;' l'j .fefe BL JL íMe ^ÍMÉLa fatjp Æ& W JBLJL >iWiii JffLiiniim BESTU TÆKIFÆRISGJAFIRNAR ★ ★★★ iiQrUtet Oúoa Kfístmuniístíöítir temarr Steinn Steinarr I—II Gylfi Gröndal „Gylfi Gröndal hefur unnið nauðsynlegt og löngu tímabært verk af alúð og nærgætni ..." Hrafn Jökulsson/strik.is Björg Sigriður Dúna Kristmundsdóttir „Loksins, loksins íslensk ævisaga sem birtist eins og litfagur regn- bogi og gefur fyrirheit um bjartari famtíð til handa unnend- um ævisagna ... Þetta er list." Auöur Styrkársdóttir/Vera Undir bárujárnsboga Eggert Þór Bernharösson „Ágæt og fróðleg bók." Jón Þ. Þór/Mbl. Jpb JPV ÚTGÁFA Brædraborgarstígur 7 • Sími 575 5600 samantekt sem skrifstofa lyfjamála í heUbrigðisráðuneytinu á neyslu á geðlyfjum hér á landi á fyrsta árs- fjórðungi þessa árs. Samkvæmt samantekt ráðuneytisins neyta landsmenn samtals um 184 skU- greindra dagskammta af lyfjum nú á fyrsta ársfjórðungi þessa árs á hverja þúsunnd íbúa. Þar af eru 85 dag- skammtar af geðdeyfðarlyfjum, 58 dag- skammtar af svefhlyfjum og róandi lyfium og minna af öðrum geðlyfjum. Heildarfjöldi þeirra dagskammta sem neytt er svarar tU þess að 18 prósent allra landsmanna taki geðlyf að stað- aldri alla daga ársins. -JSS Ársfjóróungstölur 2002 Notkun geðlyfja Verömæti geðlyfja ____ Lyf viö heilabilun jjjgj Örvandi lyfoglyfsem effa heilastarfsemi i | Geödeyföarlyf | Svefnlyfogróandi lyf [ | Róandi og kviðastillandi lyf | 1 Sterk geölyf Örlög Lífafls ráðast á þriðjudag: Að brenna upp á tíma Aðalfundur Lífafls fór fram sl miö- vikudag en fyrir fundinum lá hvort fýr- irtækið yrði gert upp eða hvort leita ætti frekari leiða tU að bjarga því. Að sögn Björgvins Njáls Ingólfssonar, stjórnarformanns Lífafls, var ákvörðun frestað fram að stjómarfundi nk. þriðjudag. „Lagðar vom fram á fúndin- um upplýsingar um hugsanlega fjár- festa sem vUja koma að fyrirtækinu. Menn þurfa að gefa sér tíma tU að fara yfir það og meta stöðuna," segir Björg- vin NjáU. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er eini aðUinn sem hefur lofað auknu hlutafé, 19 milljónum, en alls þarf fyrir- tækið 57 mUljónir ef það á að lifa af. Fyrr í vetur náðust samningar við lánar- drottna um niðurfellingu á kröfum. „Enn standa vonir til að nýir aðilar komi að fyrirtækinu en við erum að brenna upp á tíma,“ segir Björgvin NjáU. Eins og DV hefur greint fiá stendur Lífafl fyrir athugunum á rafrænum áhrifúm húsa og híbýla á menn og dýr. Fyrirtækið hefúr verið starfrækt í leiguhúsnæði í Skjaldarvík í Eyjafiröi, fyrrum eUUieimiÚ. Akureyrarbær á húsið og er stjómarformaður Lífafls ósáttur viö framkomu Akureyrarbæj- ar. „Sumfr kröfuhafar gáfú eftir helm- ing af kröfum sínum eða breyttu í hlutafé. Eini aðUinn sem hefúr ekkert gert er Akureyrarbær," segir Björgvin NjáU. Hugsanlegt er að starfsemin verði endurreist ef félagið fer í þrot, að sögn Björgvins Njáls, en hann segir slíkt tal aðeins vangaveltur í stöðunni. Hann segir að gjaldþrotið verði ekki stórt ef tU þess kemur. Kristján Þór JúUusson, bæjarstjóri á Akureyri, sagði í samtali við DV fyrir aöalfúndinn að Akureyrarbær ætti að- eins um 2% í Lífafli. Áður hefúr bæjar- stjórinn svarað ásökunum félagsins og lýst furöu á vinnubrögðum forráða- manna þess. -BÞ Bjargaði bróður sínum Þrettán ára drengur, Þórólfúr Svein- bjöm, bjargaði eUefu ára gömlum bróð- ur sínum, Ágústi Páli, þegar hann féU aftur fyrir sig og í sjóinn. Lenti Ágúst með höfuðið á steini og bjargaði það honum að vera með hjálm á höfði. Þórólfúr brást skjótt við og bjargaði bróður sínum með aðstoð vinar þeirra, Daníel Smára, náði hann Ágústi úr sjónum. Atburðurinn átti sér stað á Ár- skógsströnd. Morgunblaðið greindi frá. Ársmeðalrennsli skerðist Ársmeðafrennsli um farveg Þjórsár neðan Norðlingaöldu minnkar aUs um 34 rúmsentímetra á sekúndu vegna stíflu sem Landsvirkjun fyrirhugar að reisa á svæðinu. í matsskýrslu um fram- kvæmdina sem Skipulagsstofnun hefúr tU umfjöUunar kemur fram að töluvert bætist við rennslið fyrir neðan Norð- lingaöldu. Morgunblaðið greindi frá. Húsvíkingar úr gjörgæsiu Eftirlitsnefnd með fjármálum sveit- arfélaga telur að ekki sé lengur ástæða tU þess að hafa fjármál Húsavikur tU sérstakrar skoðunar. Húsavikurbær og fyrirtæki i hans eigu skulda samtals 3,3 mUjarða króna, þegar með eru teknar lifeyrisskuldbindingar. Reinhard Reyn- isson bæjarstjóri segir að gert sé ráð fýrir því að tekjur bæjarins aukist á næstu árum. RÚV greindi frá. Markaðir geta lokast Embætti yfirdýra- læknis óttast að sú staða geti komið upp að markaðir lokist fýrir íslenskar land- búnaðarafurðir vegna þess að fram- leiðendur uppfýlli ekki lágmarkskröfúr sem móttökulönd afurðanna setja. Kemur þetta fram í ársskýrslu embætt- isins. Morgunblaðið greindi frá. Á undan áætlun Þrem íslendingum, sem eru í leið- angri yfir Grænlandsjökul, sækist vel. Þeir eru töluvert á undan áætlun enda hefur veðrið verið mjög gott. Reiknað er með þvi að þeir verði komnir heim 18. maí. Morgunblaðið greindi frá. - helgarblað Dómskerfið brást dóttur minni í Helgarblaði DV á morgun er viðtal við Rósu Maríu Salómonsdóttur, móður á Akranesi. Hún lýsir því hvemig ís- hefúr brugðist dóttur hennar en Hæstirétt- ur sýknaði mann sem kærður var fýrir að misnota dóttur henn- ar kynferðislega í sex ár frá því hún var átta ára. í blaðinu er einnig viðtal við Davíð Odds- son forsætisráðherra þar sem hann fjall- ar um stjómmálaástandið, stjómarsam- starfið og margt fleira. DV ræðir við Jörmund Inga Hansen allsherjargoða um innanhússarkitektúr, heiðni og rakstur. Einnig ræðir DV við Hlín Diego dansara um ný verkefni í nýju landi, fer á æfmgu hjá Léttsveit Reykjavíkur og talar við Marsibil Sæ- mundsdóttur frambjóðanda. PÁÁ lenskt dómskerfi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.