Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Blaðsíða 11
11 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002________________________________________________________________________________________ X>v ___________________________________________________________________________________________________________Viðskipti — Umsjón: Viöskiptablaöiö .■mmm Þetta helst Í!737T!T!!T*} d sw y i i f tf* HEILDARVIDSKIPTI 9.100 m.kr. Hlutabréf 5600 m.kr. Húsbréf 2000 m.kr. MEST VIÐSKIPTI Kaupþing 4355 m.kr. Samherji 237 m.kr. Pharmaco 231 m.kr. MESTA HÆKKUN o Rugleiðir 5% © Pharmaco 4,1% © Marel 1,9% MESTA LÆKKUN © Samherji 3,7% © Grandi 3,3% © Kaupþing 3,1% ÚRVALSVÍSITALAN 1.291 stig - Breyting O 0,24 % Finnur hlaut rúss- neska kosningu Finnur Geirsson var endurkjörinn formað- ur Samtaka atvinnu- lifsins á aðaifundi samtakanna í gær. Haim hlaut 98,7% greiddra atkvæða og er því réttkjörinn for- maður SA á næsta starfsári. Kosningin fór fram í beinni póstkosningu og var kosningaþátttakan rúmur helmingur. Stjóm samtakanna fyrir starfsárið 2002-2003 er aðeins breytt frá því í fyrra. Nýir koma inn i stjómina, þeir Bjami H. Matthíasson, Raflögnum Is- lands, Guðlaugur Adolfsson, Fagtaki, Gunnar Felixson, Tryggingamiðstöð- inni og Jón Helgi Guðmundsson, BYKO. Úr stjóminni ganga þeir Einar Sveinsson, Sjóvá-Almennum, Ómar Hannesson, Rafsól og Sigurður R. Helgcison, Björgun, auk Þórarins V. Þórarinssonar sem sagði sig úr stjóm- inni þann 17. desember síðastliðinn. Fallið frá kröfu á hendur Kaup- þingi og Bjarna Búnaðarbankinn og núverandi rekstraraðilar Fóðurblöndunnar hafa ákveðið að falla frá kröfugerð á hendur Kaupþingi og Bjama Pálssyni vegna viðskilnaðar þeirra við Fóðurblönduna, en þessir aðilar áttu og ráku fyrirtækið í rúmt ár. Félagið var tekið yfir á sínum tíma með fjandsamlegri yflrtöku og skráningu af markaði. Búnaðarbankinn keypti siðan Fóðurblönduna í júní sl. og átti félagið í tvær vikur, eða þar til það var selt hópi fjárfesta undir forystu MR- fóðurs og Lýsis hf. Kaupin byggðust á ákveðnum forsendum um efnahags- stöðu fyrirtækisins sem kaupendur töldu að ekki hefði staðist. Upp úr krafs- inu kom t.d. að Fóðurblandan reyndist vera mun skuldsettari en kaupendur sáu fyrir og byggðist kröfugerðin á lækkun á söluverði. En samkvæmt heimildarmanni Viðskiptablaðsins i Búnaðarbankanum mim þó nú hafa ver- ið ákýeðið að falla frá kröfunni. 10. 05. 2002 kl. 9.15 KAUP SALA BfiÍDollar 91,410 91,880 flIlPund 133,760 134,440 li*-. Kan. dollar 58,390 58,750 Dönsk kr. 11,2290 11,2910 FF~Norsk kr 11,0350 11,0960 ESsænsk kr. 8,9410 8,9900 n: Sviss.franki 57,4000 57,7200 r*flap. yen 0,7134 0,7177 ^ECU 83,4857 83,9874 SDR 116,4200 117,1200 ## Seðlabankinn: Onnur vaxtalækkun lík- leg í þessum mánuði „Fyrirliggjandi verðbólguspá [Seðla- bankans] bendir til þess að fljótlega muni skapast forsendur fyrir frekari lækkun vaxta bankans.“ Þetta var haft eftir Birgi ísleifi Gunnarssyni, for- manni bankastjómar Seðlabankans, í Viðskiptablaðinu á miðvikudag sam- fara útkomu Peningamála. Seðlabank- inn hefúr nú tvivegis lækkað stýrivexti á stuttum tima um alls 0,8%. „Þrátt fyr- ir þessar lækkanir er peningastefnan enn aðhaldssöm ef litið er á verðbólgu- væntingar og spár. í ljósi þess slaka sem nú er að myndast í hagkerfmu er æskilegt að raunvextir Seðlabankans lækki áfram á komahdi mánuðum." Birgir ísleifúr vísaði til þess að næsta skref bankans tengdist verðlagsmark- miði aðila vinnumarkaðar nú í maí. „Verði allri óvissu um að núverandi kjarasamningar haldi eytt í þessum mánuði mun bankinn að öllum líkind- um lækka vexti sína skjótt í kjölfarið." Því má teljast ákaflega líklegt að næsta vaxtalækkun bankans verði núna í þessum eða næsta mánuði. I máli Birgis ísleifs kemur fram að ólíklegt sé að vísitala neysluverðs fari yfir verðlagsmarkmið aðila vinnu- markaðarins nú i maí. „Sá árangur sem nú virðist vera að nást við að endurreisa stöðugleika og að koma verðbólgu niður á eðlilegt stig er fyrst og fremst afrakstur þeirrar að- haldssömu peningastefnu sem fylgt hef- ur verið á undanfómum misseram. Háir vextir hafa dregið úr fjárfestingu og einkaneyslu sem síðan hefúr stuðlað samtímis að minni viðskiptahaila og betra jafnvægi á vinnumarkaði. Afleið- ingin er sú að launaskrið hefúr stöðvast og fyrirtæki verða að auka framleiðni og minnka kostnað í stað þess að hækka verð. Hér sannast því enn einu sinni að verðbólga er pen- ingalegt fyrirbæri. Frumkvæði aðiia vinnumarkaðar á sér stað innan þessa ramma í þeirri merkingu að aðhalds- söm peningastefna stuðli að minni verðbólgu og geri það erfitt að sækja á um launahækkanir til að bæta upp verðhækkanir fyrri tíma. Það breytfr þvi ekki að þetta frumkvæði er ákaf- lega mikilvægt og stuðlar án efa að þvi að verðbólguhjöðnunin gengur hraðar fyrir sig og að henni fylgir liklega á endanum minni kostnaður í formi glat- aðs hagvaxtar og atvinnuleysis en ella,“ sagði Birgir ísleifúr. ÚA kaupir meirihluta í ICECON Útgerðarfélag Akureyringa hf. hefúr keypt 60% hlut í ráðgjafar- fyrirtækinu ICECON í Reykjavík og í kjölfarið flyst starfsemi fyrir- tækisins til Akureyrar, þar sem það verður rekið sem sjáifstætt dótturfélag ÚA. ICECON mun eftir sem áður sinna hlutverki sinu sem sjálfstætt ráðgjafarfyrirtæki í sjáv- arútvegi, þar sem byggt verður á sérþekkingu og styrk íslenskra fyr- irtækja, segir í tilkynningu frá ÚA. ÚA greiðir fyrir 60% hlutinn með hlutafjáraukningu í félaginu á næstu tveimur árum. ICECON var stofnað árið 1986 með það að markmiði að veita alþjóðlega ráðgjöf á sviði sjávarútvegs. Á liðnum árum hef- ur fyrirtækið komið að verk- efnum úti um allan heim. Fyrir tveimur árum tóku Þorgeir Pálsson og Magnús Gunnarsson við rekstri ICECON og eftir kaup ÚA á meiri- hluta í félaginu mun Þorgeir Páls- son flytjast til Akureyrar og veita þar félaginu forstöðu. Þorgeir og Magnús munu eiga jafnan hlut í fé- laginu á móti Útgerðarfélagi Akur- eyringa. Guðbrandur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akur- eyringa, segist hafa trú á því að er- lendis séu sóknarfæri í sjávarútvegi og kaup ÚA á meirihluta í ICECON beri að skoða i þvi ljósi. Guðbrandur Sigurðsson. Kári með 3,2 milljónir í mánaðarlaun Laun Kára Stef- ánssonar, forstjóra íslenskrar erfða- greinmgar, hækk- uðu um tæplega 28% í dollurum talið á síðasta ári. Launa- greiðslur til hans árið 2001 námu 38,5 milljónum króna, eða 3,2 miiljónum króna á mánuði. Auk þess fékk hann 4,6 milljónir króna greiddar í bíla- og húsnæðisstyrk. Þetta kemur fram í við- bót við ársskýrslu fyrir fjárhagsárið 2001 sem deCODE skilaði til banda- riska verðbréfaeftirlitsins SEC, eða „Securities and Exchange Comm- ission", 30. apríl sl. Þama kemur t.d. fram hveijir eru stjómendur fyrirtæk- isins og hvað þeir hafa í tekjur, hlunn- indi o.s.frv. Þar sem Kári og aðrir helstu stjómendur fyrirtækisins fá greitt í dollurum þá hækkuðu laun þeirra enn meira á síðasta ári vegna þess að dollarinn hækkaði verulega gagnvart krónunni. Hér er miöað við lokagengi á árinu (eins og gert er i árs- skýrslu deCODE) og þá kemur í ljós að launahækkun Kára i íslenskum krón- um er enn meiri, eða 42%. Laun Hannesar Smárasonar, aðstoð- arforstjóra deCODE, hækkuðu um tæp- lega 38% í dollurum talið en þess ber að geta að á síðasta ári fékk hann 100.000 dollara í sérstaka bónusgreiðslu sem ekki kom núna. Mánaðarlaun hans í fyrra vom um 1,7 milljónir kr. á mánuði. Hlutabréfaívilnanir eru vana- lega stór hluti af launum stjómenda bandarískra fyrirtækja en engar slíkar voru innleystar á síðasta ári hjá deCODE. Þá má geta þess að í viðauk- anum kemur einnig fram hve stóran hlut þeir Kári og Hannes eiga í líf- tæknifyrirtækinu Prokaria ehf. (áður íslenskar hveraörverur) en það hefur sérleyfi til að nýta hitaþolnar örverur hér á landi. Kári mun vera skráður þar fyrir 19,7% hlut en Hannes á 17,8%. Hagnaður Tanga 221 milljón króna: Besta rekstrartímabil í sögu fyrirtækisins Afkoma Tanga hf. á Vopnafirði fyrstu þrjá mánuði ársins er sú besta á sambærilegu tímabili í sögu félags- ins. Hagnaður af reglu- legri starfsemi félagsins nam 221,3 milljónum króna á tímabilinu. Á sama tíma í fyrra nam tap af starfsemi félags- ins 38,5 milljónum króna. Nettóskuldir félagsins lækkuðu um 368,9 mifljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins. Velta félagsins jókst um 42,4% frá sama tímabili 2001. Það skýrist einkum af verðhækkun á mjöli og lýsi og því að félagið tók nú á móti mesta magni af loðnu á samsvarandi tímabili til þessa. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði nam 201,5 milljón króna sem er 54,5% hækkun á mflli ára. Veltufé frá rekstri nam 184,1 milljón króna í stað 76,3 milljónum króna á fyrstu þrem mánuðum ársins 2001. Fjármagnsliðir voru hagstæðir á túnabilinu og lækkuðu langtímaskuld- ir um 59 milljónfr króna auk þess sem reiknaðar tekjur vegna verðlagsbreyt- inga námu 16,5 milljónum króna. Alls námu fiármunatekjur 78,5 miiljónum króna fyrstu þrjá mánuði þessa árs á móti fiármunagjöldum upp á 116,1 milljón króna á sama tímabili síðasta árs. Nettóskuldir félags- ins lækkuðu úr 1.762,6 miiljónum króna 31. desember 2001 í 1.393,7 milljónir króna 31. mars 2002 eða um 368,9 milljónfr króna. Félagið hefúr aldrei áður tekið við jafhmiklu magni af loðnu á fyrstu þremur mánuðum árs eins og á þessu ári, eða tæpum 44 þúsund tonnum. Á sama tímabili 2001 tók félagið á móti 32 þúsund tonnum. Félagið frysti 3.580 tonn af loðnuafurðum á móti 4.150 tonnum i fyrra. Rekstrartekjur af fiski- mjölsverksmiðju félagsins jukust úr 253 milljónum króna fyrstu þrjá mán- uðina 2001 í 465 milljónir fyrstu þrjá mánuði þessa árs eða um 83,6%. Afkoma timabilsins var góð eins og við mátti búast þegar miö er tekið af góðri loðnuvertíð, háu verði á mjöli og lýsi og hækkun á gengi krónunnar í lok tímabilsins. Þó skal það áréttað að fyrstu þrír mánuðir ársins eru að öllu jööiu hagstæðustu rekstrarmánuðir ársins. Framtíðarhorfúr eru góðar um þess- ar mundir en þó ber að geta þess að óstöðugt umhverfi, meðal annars vegna gengis islensku krónunnar, skapar ákveðna óvissu til framtíðar. Dekkjahótel vib geymum dekkin fyrir þig gegn vægu gjaldi sóinmuc (onlinenlal* Kópavogi - Njar&vík - Selfoss Borgarstjórnarkosningar 25. maí 2002 Kjörskrá Kjörskrá vegna borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 25. maí nk. liggur frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 15. maí nk. fram á kjördag. Vakin er athygli á að kjörskrána verður einnig að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.rvk.is. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sé hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni. Athugasemdum við kjörskrá skal beina til borgarráðs. Setjum hjðliO í toppstand fqrir sumariö! Vfirfarið reiOhjö! Viö gerum viö allar tegundir af hjólum Faxafeni 14 (GÁP húsinu) 108 Reykjavik Simi: 568 7575 Opid: virka daga 10-19 laugard. 11-16 aðeins 2.680 hr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.