Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Blaðsíða 18
i 18 Tilvera FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 DV Myndbandarýni 2000 & None * Síöustu dagarnir 2000 & None er gráglettin gaman- mynd um lífið og dauðann, mynd sem hefur þann boðskap að betra sé að deyja ánægður en áhyggju- fullur. Þetta er nú kannski ekki svo létt í raunveruleikanum enda er húmorinn í myndinni í svartara lagi. Þá er myndin um leið og hún er á létt- um nótum ábending um að það er ekk- ert gefið í sambandi við lífið. John Turturro leikur steingervinga- fræðinginn Benjamin, sem stjómar hópi vísindamanna sem er að gera merkisuppgötvun í þróun lífs á jörðu. Daginn áður en gera á lýðnum ljósa uppgötvimina fær hann þær fréttir hjá lækni sínum að hann sé haldinn sjald- gæíúm heilasjúkdómi sem muni draga hann til dauða innan mánaðar. Þegar Benjamin er húinn að jafiia sig á þess- um upplýsingum ákveður hann að skemmta sér það sem hann á eftir ólif- að. Gailinn við þessa ákvörðun er að hann kann ekki að skemmta sér, hefúr aldrei gert það og í tiiraunum sínum við að koma vinum sínum á óvart halda ailir hann galinn. Og þegar hann reynir að segja fyrrum eiginkonu brandara þá bendir hún honum á að hann hafi aldrei sagt brandara og ætti að sleppa því. Það vantar ekki hugmyndimar i 2000 & None og sumt hittir í mark og er skemmtilega gert, annað er miður eins og oft viil verða. Það hefði samt mátt ganga lengra í húmomum, gera hann enn dekkri. John Turturro, sem stendur sig vel i hlutverki Benjamins, er einmitt leikarinn til að gera slíkt. -HK '* Útgefandi: Góöar stundir. Leikstjóri: Arto Paragamian. Kanada 2000. Lengd: 90 mín. Leikarar: John Turturro, Katherine Borowitz og Oleg Kisseliov. Leyfð öllum aldurshópum. Three Btind Mice •* Hver er morðing- inn? Sá ágæti leikari Brian Dennehy, sem mestmegnis hefur starfað við sjónvarpið, hefur verið ávísun á góða y. skemmtun. Hann leikur oft lögfræð- inga eða lögreglu- menn sem komnir eru af besta skeiði og gerir það mjög vel. Þá er hann fundvís á góð handrit og er hann það sterkur persónuleiki að hann á auðvelt með að bera mynd uppi. Þegar svo myndin sem hann leik- ur í er byggð á sakamálasögu eftir Ed McBain þá er von á góðu og Three Blind Mice er akkúrat þaö sem búist er við, gamaldags sakamálamynd i klassískum stíl sem er ágæt afþreying eina kvöldstund. Brian Dennehy leikur lögfræðing sem fenginn er til að verja vin sinn úr Víetnamstríðinu, vin sem hefúr verið ákærður fyrir að drepa þijá unga inn- * flytjendur frá Víetnam, sem höfðu ver- ið ákærðir fyrir að nauðga eiginkonu hans, en verið sýknaðir. Þetta virðist fyrir ffam tapað mál þar sem vinurinn hafði i vitna viðurvist hótað að drepa þá. Það er samt ekki allt sem sýnist og undir yfirborðinu er ýmislegt sem ilia þolir dagsljósið. Three Blind Mice er sakamálamynd þar sem ekki er komið upp um morð- ingjann fyrr en í lokin og er góð stig- andi í myndinni framan af og ailt þar til lausn á málinu er i sjónmáli. Þá fara að koma brotalamir í söguna og - hún fer að verða ótrúverðug, nokkuð sem maður átti ekki von á frá Ed McBain. Dennehy kemur i veg fyrir slys með góðum og markvissum leik. -HK Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Christopher Leitz. Bandarikin 2001. Lengd: 87 mín. Leikarar: Brian Dennehy, Debrah Farentino, Mary Stuart Masterson og Rosalind Chao. Bönnuð börnum innan 16 ára. The Majestic Jim Carrey leikur handritshöfund í Hollywood sem er útskúfaö. Bíófrumsýningar: Minnislaus handrits- höfundur og uppvakningar Spider-Man hefur verið vel tekið og var metaðsókn að henni um síðustu helgi og verður ör- ugglega áffarn góð aðsókn á hana. Segja má að sú helgi sem fer í hönd sé stund á milli stríða því 17. maí verður nýja Star Wars myndin frumsýnd. Aðeins tvær myndir verða teknar til sýninga í dag. Nýjasta kvik- mynd Jim Carrey, The Majestic og framtiðarhrollvekjan Res- ident EvU. The Majestic Sambíóin frumsýna í dag The Majestic sem leikstýrð er af Frank Darabond, sem á að baki tvær kvikmyndir, sem báðar eru gerðar eftir sögum Stephens Kings. Um er að ræða The Shawshank Redemption, sem er á góðri leið með að komast i hóp klassískra kvikmyndaverka og The Green MUe. Er Darabond einn af sex leikstjórum sem hef- ur orðið þess heiðurs aðnjótandi að hans tvær fyrstu kvikmyndir hafa verið tilnefndar tíl ósk- arsverðlauna sem besta kvik- mynd. í The Majestic leitar hann ekki í smiðju Kings að þessu sinni heldur skrifar hand- ritið Michael Sloane, sem er einn hesti vinur Darabond. Myndin fiaUar um Peter Appleton, sem er handritshöfundur i HoUywood á sjötta áratugnum þegar kommún- istaveiðar voru í algleymingi. Peter Appleton gengur aUt í haginn og handrit hans eru kvUimynduð með Resident Evil Milla Jovovich ieikur einn úr björgunarliöinu sem lendir í óvæntum átökum viö blóösugur. góðum árangri þar tU kommagrýlan vefur sig utan um hann og er honum um leið útskúfað. Appleton er í öng- um sínum þegar hann lendir í bUslysi og missir minnið. í kjölfarið flyst hann í lítinn bæ og þar halda aUir að hann sé annar en hann er, horfin stríðshetja. Aðalhlutverkið leikur Jim Carrey og má segja að í þessari mynd eins og Man on the Moon og The Truman Show er hann að reyna að bijótast út úr viðjum farsaleikararans. Er ekki annað hægt að segja en að honum hafi tekist það með ágætum. Resident Evii Resident EvU er hroUvekjandi spennumynd um ófreskjur á veiðum og ófreskjuveiðara. Myndin sem byggð er á tölvuleik gerist í upphafi i neðanjarðar- byrgi þar sem losnað hefur um banvænan vírus sem gæti haft örlagaríkar afleiðingar fyrir mannkynið nái hann að komast upp á yfirborðið og það gæti al- veg eins gerst þar sem vírusinn komst út í andrúmsloftið þegar tUraun var gerð tU að stela hon- um. Fámennur hópur kvenna og karla er i björgunarliði sem sent er undir yfirborð jarðar. Þegar þangað er komið er þeim gert erfitt um vik þar sem stjómtölva hefur aö því er virðist sýkst einnig og gerir björgunarteym- inu erfitt fyrir. Það sem þó er al- varlegast er að vírusinn ekki að- eins drepur, heldur vekur hann upp þá dauðu sem verða að blóðþyrstum ófreskjum ... í aðalhlutverkum eru MUla Jovo- vich og MicheUe Rodriguez. Leikstjóri er Paul Anderson, sem á baki nokkr- ar framtíðarspennumyndir, má þar nefna Mortal Kombat og Event Myndbönd mánaðarins: 100 tölu- blöð að baki Eitt útbreiddasta mánaðarit landsins, Myndbönd mánaðarins, hélt upp á stórafmæli á miðvikudag- inn, en þá var því fagnað að eitt hundrað tölublöð hafa verið gefin út. Blaðið var fyrst gefið út í ágúst 1993 og var Bergur ísleifsson rit- stjóri og hefur hann stýrt blaðinu allar götur síöan. í fyrstu var blaðið 24 síður og upplagið var 20.000 eintök. Blaðið hefur stækkað siðan og er nú 64 síð- ur og prentað í 29.000 eintökum. í dag birtir blaðið upplýsingar um þær myndir sem koma út á mynd- bandi ásamt skemmti- og afþreying- arefni. Blaðið er seit tU myndbanda- leiga af útgefanda, sem er Mynd- mark. Leigumar dreifa því síðan ókeypis tU viðskiptavina sinna. Myndbönd mánaðarins hafa á undanfómum árum tekið þátt I fiöl- miðlakönnun SÍA og í síðustu könn- un mældist blaðið með 37,4% lestur. Mjög mismunandi er hvaða aldurs- hópar lesa blaðið. í aldurshópnum 12-19 ára var útkoman 70% og fer síðan stiglækkandi og aUt niður í 1,5% hjá aldursflokknum 68-80 ára. í nýjasta tölublaðinu er rakin saga blaðsins, tUurð þess og vanda- mál í upphafi. Það er ritstjórinn, Birgir ísleifsson, sem skrifar grein- ina. í blaðinu er einnig að finna lista yfir 100 vinsælustu myndbönd- in frá því blaðið hóf göngu sína og þar trónir efst There’s Something About Mary. -HK Ein frumlegasta og eftirtektarverðast kvikmynd siðari ára var Memento, sem leikstýrt var af nýlið- anum Christopher Nolan. í mynd sinni tókst Nol- an að rekja flókinn sögu- þráð afturá- bak meö frá- Hllary Swank Lögreglu- kona í leit að sann- leikanum. Ný kvikmynd frá leikstjóra Memento: Svefnleysi í Alaska bærum árangri. Nolan er að koma með nýja kvik- mynd, Insomnia, sem frumsýnd verður í Banda- ríkjunum 24 maí. Eins og hans er von og vísa er söguþráðurinn langt í frá að vera einfaldur. Fjallar mynd- in um tvo lögreglu- menn sem sendir eru tU lítUs bæjar í Alaska tU að rann- sáka óhugnan- legt morð á ungri stúlku. Ekki byrjar ferð þeirra gæfulega þar sem annar lögreglumannanna verð- ur hinum óvart að bana. í stað þess að viður- kenna sekt sína fær hann óvænt upp í hend- umar fiarvistarsönnun sem hann notar. Auk þess sem lögregluþjónn- inn, sem leikin er af A1 Pacino þar að eiga við samvisku sína þarf hann að leysa morðmál og Al Pacino og Robin Williams takast á við það að ung Tveir stórleikarar sem Christopher Nolan hefur lögreglukona finnst sitt- fengiö til liös viö sig. hvað grunsamlegt við hvarf félaga hans. Robin WUliams, HUary Swank og Auk A1 Pacino leika í Insomnia Martin Donovan. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.