Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Blaðsíða 26
V 26 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 > Rafpostur: dvsport@dv.is - keppni í hverju orði Baldvin Þorsteinsson. Eins og ég er vanur að gera „Þetta er eins og ég tek oftast víti og ég sá enga ástæðu til að breyta út af því,“ sagði Baldvin Þorsteinsson, 18 ára piltur í KA-liðinu, sem steig fram og skoraði úr tveimur mikilvægum vítum á lokasprettinum gegn vítabananum Roland Eradze. Baldvin segist síst hafa verið smeyk- ur þegar hann var kallaður til. „Ég var hálfhissa þegar Atli bað mig að taka vít- ið en það kom ekki annað til greina en að segja já. Þegar fyrra vítið fór inn var ég öruggur í því síðara. Manni líður vel fyrir fullu húsi af KA-áhorfendum og þeir styðja alltaf vel við bakið á manni,“ sagði Baldvin Þorsteinsson. -ÓK * > „Spennu- þrungið" „Eigum við ekki að segja að þetta hafl verið spennuþrungið," sagði Jónatan Magnússon, leik- maður KA, eftir leikinn. „Bæði lið voru með hörkuvarnir og markmennimir að verja vel, sérstaklega Eradze, en okkar markmaður gerði vel líka. Þess vegna var hvert mark rosalega mikilvægt í þessum leik. Þá þarf að nýta vítin og við settum litla strákinn (Baldvin Þorsteinsson) í það og hann kann þetta, alveg ískaldur," segir Jónatan. Bæði lið virtust nokkuð taugastrekkt framan af og til að mynda fóm (jórar sóknir for- görðum í röð hjá báðum liðum á fyrstu tíu mínútunum. „Ég held að menn hafi verið að vanda sig of mikið til að byrja með og opnu færin fóru illa. Það er ekki okkar stíll að spila af varkárni, við kýlum á það, en svona ger- ist. Síðan var Fúsi eitthvað að væla,“ bætir Jónatan við þegar Sigfús Sigurösson, línumaður Vals, greip í hann og þakkaði honum fyrir leikinn og greini- lega stutt í glensið hjá strákun- um þrátt fyrir að vera rétt komnir úr miklum baráttuleik. „Þegar við voram orðnir 2-0 undir í rimmunni fómm við að hugsa um að við þyrftum að vinna þrjá leiki í röð. Við sáum að það þýddi ekkert að hugsa þannig og ákváðum því að líta bara á næsta leik. Nú er einn leikur eftir og það verður eins með hann. Við erum orðnir þreyttir og þeir líka og þó að menn fmni ekki fyrir því sjálfir þá sést það á spilinu. Þreytan kemur síðan þegar maður er kominn heim og varir fram að upphitun i næsta leik en hún gleymist í leiknum. Nú ætlum við aö enda þetta eins og 1997, kveðja Atla eins og þeir kvöddu Alfreð (Gíslason),“ sagði baráttujaxlinn Jónatan. -ÓK „Við erum óbugaðir" Snorri Steinn Guðjónsson, fyrirliði Valsmanna, var ekki sáttur við lyktir leiksins en sagði hann hafa verið mjög erf- iðan. „Bæði lið voru að spila sterkan varnarleik, markvarsl- an var góð en að sama skapi voru bæði lið að fara illa með dauðafæri. Við brenndum okk- ur á því að klikka á mörgum dauðafærum og það fer með leikinn hjá okkur. Það er sókn- arleikurinn sem er að klikka, það lið sem spOar betri sóknar- leik stendur uppi sem sigurveg- ari.“ - Heldur þú aö þaó hafi slœm áhrif á liöió aö hafa misst niður tveggja leikja forskot? „Nei, við vomm búnir að vinna sex leiki í röð, sjálfs- traustið er í lagi og það þarf meira en tvo tapleiki til að buga okkur. Nú er þetta búið og næsta verkefni er fyrir höndum, leikurinn á föstudag- inn. Hann er á okkar heima- velli og við töpum ekki tvisvar í röð á Hlíðarenda," sagði Snorri Steinn. -ÓK Heimir Orn Arnason brýst í gegn um vörn Valsmanna í fjórða leik liðanna á Akureyri. Heimir Örn skoraði sigurmark KA í leiknum. DV-mynd Hilmar Þór Kveð vonandi með titli sagði Atli Hilmarsson sem á eftir að stjórna KA-liðinu í einum leik „Þetta var mjög erfiður sigur og maður sér það á báðum liðum að menn eru orðnir mjög þreyttir og stressið er mikið, enda mikið undir, það sést á því hversu mikið fór í súginn af dauðafærum. Þetta féll okkar megin núna og við njótum góðs af því að geta skipt aöeins meira inn á. Við fáum óþreytta menn inn á eins og Baldvin í dag, hann kom með kollinn klár- an. Þegar svona er komið, menn orðnir þreyttir og lappimar hættar að svara þá vinnst þetta í höföi manna." - Hvað hugsaði þjálfarinn þegar 18 ára strákur setti boltann rétt yfir höfuðið á einhverjum mesta víta- bana deildarinnar í leik sem gat ráðið úrslitum um íslandsmeistara- titilinn? „Menn horfðu á mig á bekknum og spurðu: „Ætlarðu að láta Baldvin taka vitið? Hann tekur ekki einu sinni vítin í 2. flokki!“. Einhvem veginn fannst mér hann vera í besta standinu af þeim sem vom inn á, ég veit að þetta er klár strákur og sá setti hann!“ Atli kvaddi KA-heimilið i leikn- um eftir fimm ára vem þar og áhorfendur stóðu upp fyrir leik og hylltu hann. „Þetta var mjög gaman og þetta fyrir leikinn var alveg frá- bært, að geta kvatt fyrir fullu húsi og það var ánægjulegt að vera kvaddur svona. Ég vona aö ég geti kvatt félagið með titli á föstudag- inn.“ Atli segir það skemmtilega til- hugsun að geta fetað í fótspor Al- freðs Gíslasonar, fyrnrni landsliðs- félaga síns, sem vann titilinn á sínu síðasta ári. „Það væri auðvitað gam- an. Það er erfitt verkefni fram und- an og erfiður útivöllur. Það er eng- in spurning að Valur er mjög gott lið og í raun synd að annað liðið þurfi að tapa,“ sagði Atli. -ÓK „Seljum okkur dýrt“ „Þetta var hörkuleikur enda eng- in spurning að þaö væri erfitt að spila hér,“ sagði Ágúst Jóhannsson, aðstoðarþjálfari Vals, eftir leikinn. „Við vomm að spila vel varnar- lega en vorum i vandræðum sóknar- lega, sérstaklega fi-aman af, en náð- um síðan að leysa úr því eftir því sem líða fór á leikinn. Spennan var ótrúlega mikil og það sást á gæðum leiksins, þetta var ekki leikur upp á toppeinkunn." „Það var okkur dýrt að misnota dauðafæri og 2 víti, sérstaklega i fyrri hálfleik, og í svona leikjum skipta dauðafærin miklu máli. Varnirnar vom mjög góðar en það er ekki hægt að horfa fram hjá þvi að menn em orðnir þreyttir. Það er hins vegar skemmtanagildið í þessu að menn ná að reka sig áfram og við komum tO með að selja okk- ur dýrt í Valsheimilinu." Það var greinilegt í leiknum að Valsmenn vora ekki alls kostar sátt- ir við dómgæsluna. „Við emm ekki sáttir við dóm- gæsluna hér í dag, í heildina var þetta allt í lagi en það komu tveir, þrír mikilvægir dómar, KA-menn skora eitt greinilegt línumark og síðan skil ég ekki hvað þeir voru að dæma á Sigfús undir lokin. Við vor- um svo sem ósáttir í Valsheimilinu um daginn en það er langt frá því að við séum að kenna dómurunum um.“ -ÓK Águst Johannsson var ekki sátt- ur viö dómgæsluna á Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.