Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Side 28
28
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002
Sport
DV
Birkir ívar á
leiö í Stjornuna?
Óvíst er hvað Birkir ívar Guð-
mundsson tekur sér fyrir hendur
þegar lánssamningi viö spænska
handknattleiksliðið Torrevieja
lýkur um helgina. Birkir ívar hef-
ur varið mark spænska liðsins
sem stefnir hraðbyri upp í 1.
deild. Lokaumferðin í 2. deild
verður um helgina og nægir
liðinu jafntefli á heimavelli til að
fara upp.
„Það hafa nokkur liö að heim-
an verið í sambandi við mig en á
> þessari stundu er of snemmt að
segja til um hvað ég geri á næsta
tímabili. Kannski verð ég áfram
héma úti ef mér verður boðinn
samningur, sem ég tel líkur á,
eða kem heim. Það er aldrei að
vita nema ég snúi til míns gamla
félags, Stjömunnar sem ég lék
meö áður en ég fór utan,“ sagði
Birkir ívar sem kemur til ís-
lands og byrjar æíingar með ís-
lenska landsliöinu. -JKS
Enska landsliðið
fyrir HM valið
Enska landsliðið í knattspyrnu,
^ sem leikur á heimsmeistaramót-
inu í Japan og S-Kóreu, var valið
í gær. Sven Göran Eriksson
landsliösþjáifari tilkynnti 23 leik-
menn sem fara á mótið. Ein breyt-
ing gæti orðið á hópnum ef David
Beckham verður ekki búinn aö ná
sér af meiöslunum. Ef það gerist
tekur Danny Murphy frá Liverool
sæti hans.
Enski hópurinn:
Markverðir: David Seaman, Arsenal,
Nigel Martyn, Leeds, David James,
West Ham.
Vamarmenn: Rio Ferdinand, Leeds,
V” Sol Campbell, Arsenal, Gareth South-
gate, Middlesbrough, Ashley Cole,
Arsenal, Wayne Bridge, South-
ampton, Danny Mills, Leeds, Wes
Brown, Man. Utd, Martin Keown,
Arsenál.
Miðjumenn: David Beckham, Man.
Utd, Paul Scholes, Man. Utd, Steven
Gerrard, Liverpool, Kieron Dyer,
Newcastle, Nicky Butt, Man. Utd,
Owen Hargreaves, Bayem Miinchen,
Joe Cole, West Ham.
Sóknarmenn: Michael Owen, Liver-
pool, EmUe Heskey, Liverpool, Dari-
us VasseU, Aston VUla, Robbie
Fowler, Leeds, Teddy Sheringham,
Tottenham. -JKS
Bland i poka
Detroít Pistons tapaði á heimaveUi
fyrir Boston Celtics í úrslitakeppni
NBA í gær. Lokatölur urðu 77-85 og er
þá staðan í einvíginu 1-1, Jerry Stack-
house gerði 25 stig fyrir Detroit en
Paul Pierce 22 stig fyrir Boston.
Á heimasiöu handknatUeiksdeUdar
ÍBV kemur fram að Alla Gokorian,
sem leUíið hefur með Gróttu/KR, sé
genginn í raöir Eyjamanna. Þetta verð-
ur að teljast gífurlegur styrkur.
Magdeburg tapaði fyrir toppliði
þýsku deiUdarinnar í handknattleik,
Nordhom, 25-27, á heimaveUi. Ólafur
Stefánsson skoraði 7 mörk fyrir Mag-
deburg. Siguróur Bjarnason skoraði
5 mörk fyrir Wetzlar sem sigraði
Lemgo, 29-27. Gústaf Bjamason skor-
aði 4 mörk fyrir Minden sem gerði
jafnteUi við Schwerin, 29-29.
Þaö veröa Valur og KR sem leika tU
úrslita í deildarbikarkeppni kvenna 1
knattspyrnu. 1 undanúrslitunum sigr-
aði Valur lið Breiðabliks, 2-1. Dóra
Maria Lárusdóttir og íris Andrés-
dóttir skomðu fyrir Vai og Anna
Steinarsdóttir gerði mark Blika. Þá
sigraði KR lið Stjörnunnar, 9-2. Olga
Fœrseth gerði 4 mörk fyrir KR, Hólm-
friöur Magnúsdóttir 3 og Guðrún
Jóna Kristjánsdóttir og Ásthildur
Helgadóttir eitt hvor. Elva Björk Er-
lingsdóttir og Freydis Bjarnadóttir
skoraðu mörk Stjörnunnar.
>
Hannes Sigurðsson gerði eitt marka
Vikings sem sigraði Válerenga, 4-1, í
norsku 1. deUdinni. Brann, lið Teits
Þórðarsonar, sigraði Stabæk, 4-1, í
norsku úrvalsdeUdinni í knattspymu.
Tryggvi Guðmundsson og Marel
Baidvinsson voru báöir í byrjunarliði
Stabæk í leiknum en Maref var skipt
út af á 60. mínútu. Indriði Sigurðsson
og Gylfi Einarsson vora báðir I byrjun-
arliði LUieström sem gerði 1-1 jafntefli
viö Moss heima. Gylfi fór út af á 89.
mínútu. -JKS/ÓK
Leikmenn Arsenal fögnuðu lengi vel og innilega enska meistaratitlinum á Old Trafford. Hér eru fremstir Eduardo Gaspar og Ray Parlour. Reuter
Það er varla hægt
að biðja um meira
- enn ein verðlaunin á Highbury og Arsenal meistari í 12. sinn
Þetta tímabil, sem senn rennur
sitt skeið, verður Lundúnafélaginu
Arsenal minnisstætt fyrir margra
hluta sakir. Um síðustu helgi fagn-
aði félagið sigri í ensku bikarkeppn-
inni og aðeins fjórum dögum síðar
er enska meistaratitlinum hampað
á Old Trafford eftir sigur gegn
Manchester United í fyrrakvöld.
Arsenal nægði í þessum leik eitt
stig tO að gulltryggja sér sigur í úr-
valsdeildinni en liðið gerði enn bet-
ur, lagði heimamenn með einu
marki og var þar Frakkinn Sylvian
Wiltord að verki í síðari hálfleik.
Uppskera Lundúnaliðsins er rík en
segja má að að baki þessum glæsta
árangri fari frábær knattspymu-
stjóri sem sýnir enn einu sinni að
þarna er á ferðinni góður og ekki
síst mjög klókur maður sem kann
ýmislegt í sinu fagi. Hann hefur náð
að vinna einkar glæsilega með þann
hóp leikmanna sem hann hefur í
höndunum. Arsene Wenger er hóg-
værðin uppmáluð og hann lætur
verkin tala en þetta er í annað sinn
sem hann stýrir Arsenal til sigurs í
ensku úrvalsdeiidinni þau fimm ár
sem hann hefur verið í starfi.
Hann sagði eftir leikinn á Old
Trafford á miðvikudagskvöldið að
samheldni allra sem koma að starfi
félagsins eigi þátt í þessum sigri.
Þetta sé það sem er að skila liðinu
þeim árangri sem blasi við öllum.
„Það er svolítið einkennOegt að
fagna þessum áfanga á Old Trafford
en þaðan kemur liðið sem hefur ver-
ið í fararbroddi í deildinni undan-
farin ár. Fyrir þær sakir sérstak-
lega er góð tilfinning að fagna sigr-
inum hér. Ég hlakka mikið til síð-
asta leiksins um helgina en þá fá
stuðningsmenn liðsins tækifæri til
að fagna með okkur þegar við fáum
bikarinn eftirsótta afhentan,“ sagði
Wenger.
Það sem öðru fremur lagði grunn-
inn að sigri liðsins gegn Manchest-
er United var skynsamlegur leikur.
Arsenal lék án þeirra Thierrys
Henrys, Tonys Adams og Dennis
Bergkamps sem allir eiga við smá-
meiðsli að stríða. Fjarvera þeirra
kom ekki að sök eins og margir
höfðu óttast heldur miklu fremur
það hvað Manchester United lék
ósannfærandi.
Það var óneitanlega kátt á hjalla í
Norður-Lundúnum á miðvikudags-
kvöldið þegar titillinn var í höfn og
söfnuðust margir saman fyrir utan
Highbury. Það er ekki oft sem eitt
félag getur fagnað tveimur eftirsótt-
ustu titlunum á fjórum dögum eins
og í þessu tilfelli. -JKS
Markahrókurinn Pierre Van Hooijdonk skoraöi tvívegis fyrir Feyenoord í úrslitaleik
UEFA-bikarsins gegn Dortmund. Hér gefur hann bikarnum léttan koss. Reuter
Úrslit UEFA-bikarsins:
Fagnaðí
Rotterdam
- Feyenoord lagði Dortmund
Hollenska félagið Feyenoord frá Rotterdam lék í þriðja
skipti til úrslita í sögu UEFA-bikarsins á heimavelli í
fyrrakvöld og mætti þar Borussia Dortmund. Feyenoord
gerði sér lítið fyrir og sigraði, 3-2, og hefur þar með unnið
sigur í öllum þremur úrslitaleikjunum sem liðið hefur tek-
ið þátt í.
Hollenska liðið mætti mjög ákveðið til leiks gegn ný-
krýndum Þýskalandsmeisturum frá Dortmund og komst
tveimur mörkum yfir i fyrri hálfleik með tveimur mörkum
frá Pierre Van Hooijdonk. Strax í upphafi síðari hálfleiks
minnkaði Marcio Amoroso muninn fyrir þýska liðið. Dan-
inn Dahl Tomasson gerði síðan þriðja mark Feyenoord en
Jan Koller klóraði í bakkann fyrir Dortmund um miðjan
hálfleikinn. Það var á brattann aö sækja fyrir Dortmund
en Júrgen Kohler var vikið af leikvelli eftir hálftímaleik
og þýska liðið lék einum færri það sem eftir lifði leiks.
-JKS