Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Blaðsíða 4
Fréttir
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002
DV
Rannsókn á pillunni:
Eykur ekki líkur
á brjóstakrabba
Notkun getnaðarvamarpillunnar
eykur ekki líkumar á brjóstakrabba-
meini. Þetta em helstu niðurstöður
rannsóknar sem birt er í nýjasta hefti
Thursdagland Joumal og Medicine í
Bandarikjunum. Menn hafa lengi haft
áhyggjur af tengslum pillunnar og
brjóstakrabbameins. Þessar áhyggjur
náðu hámarki árið 1996 en þá söfnuðu
vísindamenn saman niðurstöðum úr 54
rannsóknum sem náðu til 25 ára tíma-
bils. Var komist að þeirri niðurstöðu að
tíðni brjóstakrabbameins meðal kvenna
sem tóku getnaðarvamarpilluna væri
fjórðungi meiri en meðal annarra
kvenna. Að safna þessum rannsóknum
saman á þennan hátt þótti hins vegar
umdeilt og vildi hópur vísindamanna
nálgast vandann á annan hátt. Gerð var
ný rannsókn þar sem sjúkrasaga 9.257
kvenna í nokkmm borgum Bandaríkj-
anna var skoðuð. Niðurstaðan var að
þær 4.575 konur sem fengið höfðu
bijóstakrabbamein vom alls ekki lík-
legri til að hafa notað pilluna en hinar
sem ekki urðu veikar. Þá kom í ljós að
konur sem tekið höfðu getnaðarvam-
arpillur árum saman vom ekki liklegri
til að fá brjóstakrabbamein en þær sem
aðeins höiðu tekið pilluna í stuttan
tíma.
„Heilsufarslegir kostir pillunnar eru
langtum meiri en hættumar sem henni
fylgja," er haft eftir Polly A. March-
banks sem leiddi hina nýju rannsókn.
Hún sagði að rannsóknin nú ætti að
gefa nokkuð fullnægjandi svör við
spumingum um hættuna af getnaðar-
vamarpillunni. -hlh/Reuters
ísinn brotinn í viðskiptum þegar EFTA semur við Singapore:
Evrópa semur við
Asíuland á Héraði
DV-MYND HELGI GARÐARSSON
Gengið til fundar
Fulltrúar EFTA ganga hér til fundar á Hallormsstað í gærdag.
Vorfundur Fríverslunarsamtaka Evr-
ópu, EFTA, var haldinn á Egilsstöðum í
gær undir stjóm Halfdórs Ásgrimsson-
ar, utanríkisráðherra íslands. I gær
hittu ráðherramir og þingmanna- og
ráðgjafanefndir EFTA-ríkjanna Georg
Yeo, ráðherra viðskipta og iðnaðar i
Singapore. Undirritaðir vom fríverslun-
arsamningar EFTA-rikjanna og Singa-
pore. Er það fyrsti samningur af þessu
tagi sem gerður er milli ríkja í Evrópu
og Austur-Asíu og sá víðtækasti sem
EFTA hefur gert hingað til.
Fram kom á fundinum að náðst hafi
góður árangur í viðræðum við Chile og
er stefnt að því að ljúka gerð víðtæks fri-
verslunarsamnings með haustinu. Við-
ræður við Kanada hafa staðið að undan-
fómu og er vonast til að Kanadamenn
leggi sitt af mörkum til lausnar þeim
málum. Ákveðið hefur verið að gera
slíka samninga við Túnis og Egyptaland
og hefja viðræður við Suður-Afríku í
sama skyni strax í haust. Einnig er í
gangi viðleitni til að Júgóslavía geti
tengst efnahagssamvinnu Evrópuríkja.
Eitt af stóm málunum á dagskrá er
stækkun Evrópusambandsins. Þau lönd,
sem gerast aðilar að ESB verða sjálf-
krafa þátttakendur í Evrópska efhahags-
svæðinu. Þar em EFTA-löndin fyrir og
vilja þau ráða nokkm um með hvaða
skilmálum ný lönd fá aðgang að Evr-
ópska efnahagssvæðinu. EFTA vill að
sjálfsögðu ekki glata þeirri aðstöðu sem
það hefur gagnvart þessum löndum og
vill tryggja að ekki verði teknar upp
nýjar viðskiptahindranir, einkanlega
varðandi fiskafurðir.
ESB hefur tekið þessum kröfum
þunglega, að ekki sé meira sagt.
Asía og Evrópa
Halldór Ásgrímsson og viðskiptaráð-
herra Singapore, George Yong-Boon,
eftir að fríverslunarsamningur var
gerður milli aðilanna í gærdag.
Ráðherramir fullyrtu afdráttarlaust
að tollar ESB á stál væm skýlaust brot
á samningnum um Evrópskt efnahags-
svæði.
Nýr stofnsamningur
Stofnsamnningur EFTA hefur verið
endurskoðaður og gerður víðtækari og
tekur nú til fleiri sviða viðskipta en
áður. Má þar nefna ferðalög fólks, opin-
ber innkaup, hugverkarétt, samkomu-
lag um gagnkvæma viðurkenningu,
samgöngur í lofti og á landi, þjónustu-
viðskipti og fjárfestingar.
Ekki má blanda saman stofhsamn-
ingi þeirra ríkja innbyrðis sem stofnuðu
EFTA-samtökin og þeim samningum
sem verið er að gera við önnur lönd.
Þau lönd sem gera fríverslunarsamning
við EFTA verða ekki þar með aðilar að
EFTA heldur ber að líta á þá samninga
sem venjulega milliríkjasamninga.
-PG
Landsmót 2002 á Vindheimamelum í Skagafirði:
Rjóminn af íslenskum
hestakosti mætir til leiks
- í kynbótadómum, gæðingakeppnum, ræktunarhópum og kappreiðum
Heiðursverðlaun
Gæðingshryssan Þrenna frá Hólum er tilnefnd til heiðursverölauna með 131
stig og 6 dæmd afkvæmi.
Það verður margt sem gleður augað
á Landsmóti 2002 sem hefst á Vind-
heimamelum i Skagafirði þann 2. júlí
næstkomandi. Þar verður saman kom-
inn ijóminn af kynbótahrossum og
gæðingum á landinu.
Samtals mæta 254 ein-
staklingsdæmd kynbóta-
hross á mótið ef öU koma
sem áunnið hafa sér þátt-
tökurétt. Flest eru undan
Orra frá Þúfu, eða 24 af-
kvæmi. Það er nær þrisvar
sinnum fleiri afkvæmi
heldur en mæta undan
næstu hestum í röðinni,
sem eru Gustur frá Hóli,
Kormákur frá Flugumýri
og Óður frá Brún með 9 af-
kvæmi hver. Hrynjandi frá Hrepphól-
um á 8 einstaklingssýnd afkvæmi og
Andvari frá Ey, Galsi frá Sauðárkróki,
Hraöi frá Holtsmúla og Kolfmnur frá
Kjamholtum eiga 7 afkvæmi hver. Alls
eiga 98 feður afkvæmi i hópi kynbóta-
hrossa sem hafa áunnið sér rétt td að
mæta á landsmót að þessu sinni.
Heiðursverðlaunahafar
Af þeim kynbótahrossum sem mæta
á Landsmót 2002 má nefna, að öðrum
ólöstuðum, Glampa frá Vatnsleysu. Þá
má nefna Flygil Kolfmnsson frá Vest-
ari-Leirárgörðum, sem hefur hlotið
gríðarlega háa hæfileikaeinkunn hjá
Olil Amble. Gunnvör frá Miðsitju kem-
ur inn með hæstu einkunn í 5 v. flokki
og Samba frá Miðsitju með hæstu ein-
kunn í 4 v. flokki mæta báðar til dóms.
Gígja frá Auðsholtshjáleigu vann sér
rétt í kynbótadóm en einnig í A-flokki
gæðinga. Hún mun verða í kynbóta-
dómi.
Þrír stóöhestar og tvær hryssur
munu hljóta heiðursverðlaun fyrir af-
kvæmi á landsmótinu nú. Hestamir
eru Þorri frá Þúfu, Gustur frá Hóli og
Oddur frá Selfossi. Heiðursverðlauna-
hryssumar em Þrenna frá Hólum og
Kolskör frá Gunnarsholti.
Þá munu fimm hestar
hijóta 1. verðlaun fyrir af-
kvæmi, þeir Andvari frá
Ey, Kormákur frá Flugu-
mýri, galsi frá Sauðár-
króki, Hrynjandi frá
Hrepphólum og Roði frá
Múla.
Hörð keppni
í gæðingakeppnum á
Landsmóti 2002 má búast
við harðri keppni. Af A-flokks gæðing-
um sem takast á má neöia Loga Nátt-
farason frá Brennihóli, Skuggabaldur
frá Litla-Dal undan Baldri frá Bakka og
Sif frá Flugumýri. Þar er einnig skráð-
ur til leiks Huginn frá Haga sem Sigur-
bjöm Bárðarson mun sitja. Hilmir frá
Sauðárkróki, Fálki frá Hafsteinsstöð-
um, Adam frá Ásmundarstöðum og
Garpur frá Auðsholtshjáleigu em
einnig meðal A-flokkshesta. Loks má
nefna Glampa frá Efri-Rauðalæk en sá
er með 10 fyrir skeið i kynbótadómi.
í B-flokki gæðinga mæta meðal ann-
ars til leiks Sveinn Hervar frá Þúfu,
Bruni frá Hafsteinsstöðum, Kjarkur frá
Egilsstöðum og Dynur frá Hvammi.
Ekki má gleyma sjálfum Markúsi frá
Langholtsparti sem á titil að verja en
hann sigraði B-flokkinn á Landsmótinu
2000. Hinn síungi Oddur frá Blönduósi
er einnig skráður til keppni, svo og
Hróður frá Refsstöðum, Númi frá Mið-
sitju og Óskar frá Litla-Dal.
Ræktunarbúin
Annar þáttur sem ætíð hefur verið
beðið með eftirvæntingu á stórmótum
er sýning ræktunarbúa. Af þeim sem
nú sýna ræktun sína má nefha Haf-
steinsstaði, Vatnsleysubúið og Stóm-
Gröf. Þá koma feðgamir Guðmundur
og Sveinn á Sauðárkróki fram með
sína ræktunargipi. Dalland sýnir sína
ræktun með gæðinginn Orm í farar-
broddi svo og Auðsholtshjáleiga, Fet og
Miðsitja. Úr Þingeyjarsýslu koma rækt-
unarhópar frá Hellulandi og Torfunesi.
I tölti eru ríflega 40 hestar skráðir til
keppni, þar af margir feikilega sterkir.
Þar má nefna Laufa frá Kollaleyru
Hans Kerúlfs, Hegra Ragnars Tómas-
sonar og Kóng frá Miðgrund sem Sigur-
bjöm Bárðarson situr. Tómas Öm
Snorrason mætir með Skörung frá
Bragarholti og Sveinn Ragnarsson
mætir með Hring ffá Húsey. Gísli
Gíslason verður með Birtu frá Ey og
Sigurður Sigurðarson með Fífu frá
Brún. Eyjólfur ísólfsson mætir með
Rás frá Ragnheiðarstöðum
Vinsældir kappreiða hafa því miður
farið þverrandi. í flugskeiði em þó 34
hestar skráðir til leiks en aðeins 24 í
150 metra skeiði og 22 í 250 m skeiði en
þess má geta að lágmörk í skeiðgrein-
um eru allströng. í 300 m stökki em að-
eins skráðir 9 hestar. -JSS
LANDSMÓT
DV-MYND HARI
Vaxmyndir í Perluna
Ernst Backman, sem heldur um fæt-
ur eins fornmannsins, hefur ásamt
eiginkonu sinni, Ágústu Hreinsdótt-
ur, gert þær eðlilegu vaxmyndir sem
prýða sýninguna.
Sögusýningin:
Landnáms-
menn og aðrir
fornmenn
Um helgina veröur opnuð í
Perlunni allsérstæð sýning þar sem
áhorfandinn verður leiddur í gegn-
um fomöld fslendinga í sýningu
sem er á vegum Sögusafnsins. Það
eru hjónin Emst Backman og
Ágústa Hreinsdóttir sem em aðal-
hönnuðir sýningarinnar sem bygg-
ist að miklu leyti á vaxmyndum
sem þau hafa gert. Það var Emst
sem átti hugmyndina og fékk hann
hana er hann heimsótti Tussaud-
safnið í Kaupmannahöfh fyrir fimm
árum. „Þar kviknaði sú hugmynd í
kollinum á mér að við íslendingar
þyrftum að eignast sögusafn. Upp
frá því fór þetta að þróast." Ekki er
að efa að mörgum leikur forvitni á
að sjá árangur erfiðis þeirra hjóna
en myndir þeirra eru einstaklega
„lifandi". -HK
Reykjagarður:
Aðrir sláturhópar
ekki sýktir
Eins og DV greindi frá í gær innkall-
aði Reykjagarður hf. og tók úr sölu allt
kjöt sem mögulega tengdist sláturhópn-
um sem grunaður var að hefði sýkst af
salmonellu. Eins og DV greindi frá í
gær komu fram visbendingar um
mögulega mengun við reglubundið eft-
irlit í sláturhúsinu.
Niðurstöður eru komnar úr svoköll-
uðu Tegra-prófi. Reyndist það vera nei-
kvætt og skar þar með úr um að kross-
mengun hefði ekki átt sér stað. Það
þýðir að smit hefur ekki borist i aðra
sláturhópa.
Niðurstaðna um hvort um mengun
hafi verið að ræða í viðkomandi slátur-
hópi er að vænta á allra næstu dögum.
Það fer alfarið eftir þeim niðurstöðum
hvort hægt verður að elda kjötið eða
hvort þarf að brenna það. -vig
EM í bridge:
Sigur og tap
Eftir erfiðan gærdag, þar sem
tröppugangur var í ferli íslenska karla-
landsliðsins, er bjartara fram undan í
dag. Kvennalandsliðið tapaði hins vegar
báðum leikjum sínum og á erfiðan dag
fram undan. Karlalandsliðið mátti þola
stórtap gegn Englendingum, 5-25, í
fyrsta leiknum, gerði hins vegar jafn-
tefli við sterkt lið Búlgaríu í öðrum leik,
15-15, og vann síðan góðan sigur í þeim
þriðja, gegn Kýpur, 23-7. Kvennalands-
liðið tapaði illa fyrir Króötum, 7-23, en
náði aðeins að rétta úr kútnum gegn
Svíum, 13-17.
ítalir eru enn langefstir. Islendingar
eru sem fyrr í tólfta sæti. Þjóðveijar
hafa forystu í kvennaflokki en íslensku
konumar eru i 21. sæti.
I dag spilar karlalandsliðið við Fær-
eyjar, Lichtenstein og Danmörku sem
öll eru í óæðri enda töflunnar. Kvenna-
landsliðið spilar hins vegar við Dan-
mörku, Holland og Finnland. -StG.