Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Qupperneq 7
7
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002
I>V Fréttir
^suizmeo
Menning í Skálholti:
19. aldar kaffiborð
Sumartónleikar, kynning fomleifa-
uppgraftar, staðarskoðun, veislukostur
að hætti fyrri alda, tyrirlestrar og há-
tíðamessur mynda inntak þeirrar dag-
skrár sem verður á boðstólum um helg-
ar í Skálholti í sumar. í samvinnu við
Sumartónleika í Skálholtskirkju, og
Fomleifastofnun býður Skálholtsskóli
upp á sérstakt helgartilboð í sumar.
Dagskráin hefst á laugardögum kl. 14.00
með fyrirlestri sem tengist annaðhvort
tónleikum helgarinnar eða starfi Fom-
leifastofnunar. Meðal annars munu þar
koma fram staðartónskáld sumarsins.
Boðið verður upp á kaffiborð Valgerðar
biskupsfrúar, steikt brauð og bakaðar
kökur og um kvöldið er efht til miðalda-
kvöldverðar að hætti Þorláks biskups
helga. -GG
Eyiafiörður:
Beint flug
mikilvægast
- fyrir ferðaþjónustuna
í skýrslu Hólmars Svanssonar, fram-
kvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar, á aðalfundi félagsins fyrir
skemmstu, kom fram að brúa ætti bilið
milli tilgangs félagsins og einstakra
verkefna á starfs-
sviðum félagsins
með ákveðnum
„þemaverkefnum".
Þau eru skilgreind
sem ótímasett
áhersluatriði í
starfsemi félagsins
en þó til ekki nema
eins árs í senn.
Þar ber hæst
beint millilanda-
flug til Akureyrar en AFE telur það
mikilvægustu aðgerðina fyrir ferðaþjón-
ustu á svæðinu. Þá telur félagið brýnt
að efla rannsóknar- og þróunarstarf
tengt úrvinnslu sjávarafurða með
áherslu á liflækni og fiskeldi. Flytja
skuli ríkisstofhanir til Eyjafjarðarsvæð-
isins og efla ríkisfyrfrtæki á starfssvæð-
inu. Stuðla beri að beinum opinberum
aðgerðum til aðstöðujöfnunar fyrir fyr-
irtæki á landsbyggðinni og laða að fyr-
irtæki sem gætu haft rekstrarlegan
ávinning af starfsemi við Eyjafjörð. Þá
þurfi að efla jákvætt hugarfar gagnvart
frumkvöðlum og nýsköpun. -BÞ
Hólmar
Svansson.
Tímamótarannsóknir á háhitasvæðinu við Þeistareyki:
••
Orlog suralsins eru
tengd tilraunaborun
- jarðhitinn vannýttnr sem orkugjafi til þessa, að sögn Hreins Hjartarsonar
DVA1YND JÚLÍA IMSLAND
Minnisvaröi um náttúruhamfarir
Búið er að koma upp góðum minnisvarða um náttúruhamfarirnar á Skeiðarársandi
1996 þegar jðkulhlaupið reifburt veg og brýr á sandinum. Járnbitum úr Skeiðarárbrú,
sem hlaupið reifniöur, hefur verið komið fyrir á steinhleðsiu við þjóðveginn nokkru
austan við ána og þar er kominn snyrtilegur áningarstaður þar sem hægt er að setj-
ast niður með nestið sitt og skoða ieiðarkort sem þarna er afsvæðinu.
Tilraunaborun við Þeistareyki hefst
eftir nokkra daga. Boruð verður 1600
metra löng hola með Sleipni og er þetta
fyrsta „alvöru rannsóknarholan" á
svæðinu, að sögn Hreins Hjartarsonar,
stjómarformanns Þeistareykja hf.
Aldrei fyrr hafa svo kostnaðarsamar
tilraunir verið gerðar á jarðhitasvæð-
inu við Þeistareyki en áætlaður kostn-
aður við borunina er áætlaður um 110
milljónir króna.
Örlög súrálsverksmiðju á Norður-
landi geta ráðist af niðurstöðum til-
rauna á Þeistareykjasvæðinu. „Stað-
setning slíkrar verksmiðju er bundin
góðum hita en til súrálsins þarf ekki
nema 150-160 gráður. Við bindum von-
ir við að finna allt að 250 gráða heitt
svæði þama,“ segir Hreinn.
Hann segir markmiðið að rannsaka
hita og lekt á svæðinu. Þama sé sann-
arlega mjög gott jarðhitasvæði og
menn hafi mestan hug á að gufan fari í
beina nýtingu en ekki í rafmagnsfram-
leiðslu þótt hún komi einnig til greina.
„Hugmyndir um súrálsverksmiðju snú-
ast um beina nýtingu á gufunni.“
Að Þeistareykjum hf. standa Norður-
orka á Akureyri og Orkuveita Húsavík-
ur með um 40% hlut hvort fyrirtæki og
þá eiga Reykjadalshreppur og Aðal-
dælahreppur um 10% hvor í félaginu.
Bjartsýni ríkir hjá norðanmönnum
gagnvart rannsóknunum og skiptir
ekki öllu máli hvemig til tekst í fyrstu
tilraun, að sögn Hreins. „Við þurfum
ekkert endilega að hitta æðina í fyrstu
holu. Menn sjá fyrir sér að þama verði
hugsanlega að bora nokkrar holur en
ef við fáum góðan hita erum við öragg-
ir með svæðið.“
Jarðhitinn hefur að mati stjómarfor-
manns Þeistareykja verið vannýttur í
orkuöflun landsmanna til þessa. Lands-
virkjun hafi ekki haft mikinn áhuga á
að nýta jarðhita hingað til en sá áhugi
sé að vaxa og sé það fagnaðarefni. „Það
er voðalega lítill áhugi hjá Norðlend-
ingum að framleiða rafmagn til þess
eins að flytja það í burtu,“ segir
Hreinn. -BÞ
;i Grand Vitara
SuzuEd XL-7 var kjörinn BÍLL ÁRSINS 2002 á Íslandí, í floktó jeppa
og jepplíngs, af dómnefnd stópaðri fulflníum DV, Mótors og FÍB Waðsíns-
Atriðí sem réðu vafinu voru m.a. aflmítót V6 véfín, hjólahaf, ínnanrýmí
og staðaibúnaður míðað víð verð.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00.
ísafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 22 30.
Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bílasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, sími 471 30 05.
Hátt og lágt drif