Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Síða 10
10
Útlönd
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002
DV
REUTERSMYND
Uppþot í Argentínu
Maður reynir að koma konu til hjálp-
ar sem slasaðist í uppþotinu.
Tveir létust í upp-
þoti í Argentínu
Lögregla notaði gúmmíkúlur og
táragas þegar andstæðingar rikis-
stjómarinnar í Argentínu mót-
mæltu í Buenos Aires í gær. Tveir
létust 1 átökunum í gær sem þýðir
að lætin eru þau mestu síðan kjör-
inni ríkisstjórn var steypt af stóli í
desember siðastliðnum. 17 slösuðust
og 160 voru handteknir.
Átökin hófust þegar lögregla
reyndi að tvístra hópi hundraða at-
vinnulausra mótmælenda sem
margir hverjir klæddust lambhús-
hettum og vopnaðir teygjubyssum,
reyndu að stöðva umferð í borginni.
Um kvöldið komu svo saman
mun fleiri mótmælendur fyrir utan
þinghúsið og létu glamra í pottum
og pönnum í mótmælaskyni.
Bush sakaður um
að vilja ráðu-
neyti ofar lögum
Patrick Leahy, formaður dóms-
málanefndar öldungadeildar Banda-
ríkjaþings, sakaði í gær George W.
Bush forseta og stjórn hans um að
reyna að koma því svo fyrir að fyr-
irhugað ráðuneyti sem á að berjast
gegn hryðjuverkum verði hafið yflr
lögin.
Leahy sagði við Tom Ridge, sem
fer með innanríkisöryggismál í
stjóm Bush, aö ef stjómvöld ætluðu
sér að fá þingið til að fallast fljótt á
tillögumar yrði að endurskoða eða
falla frá ákvæðum um að ráðuneyt-
ið yrði undanþegið flölda lagalegra
skylda.
Öttast árásir Al-
Qaeda á Netinu
Óttast er að næsta hryðjuverka-
árás á Bandarikin muni eiga sér
stað á intemetinu, segja séríræðing-
ar bandarísku ríkisstjómarinnar.
Takmörkin séu helst kjamorkuver,
stíflur eða hvers kyns stór mann-
virki sem er að miklum hluta tölvu-
stjómað.
FBI, alríkislögreglan í Bandarikj-
unum, sagði að mikil umferð frá
Indónesíu, Sádi-Arabíu og Pakistan
hefði verið um heimasíður sem inni-
héldu upplýsingar um ofangreinda
starfsemi sem og að tölvur í eigu Al-
Qaeda, sem Bandaríkjamenn hafa
lagt hald á, innihaldi alls kyns upp-
lýsingar um slík mannvirki.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um, sem hér segir:
Lóð úr landi Laufskála, Borgarbyggð.,
þingl. eig. Gróðrastöðin Laufskálum
ehf, gerðarbeiðandi Lánasjóður land-
búnaðarins, þriðjudaginn 2. júlí 2002
kl.10:30.
Sólbakki, Borgarbyggð, þingl. eig.
Gróðrastöðin Laufskálum ehf, gerðar-
beiðandi Lánasjóður landbúnaðarins,
þriðjudaginn 2. júlí 2002 kl.10:00.
SÝSLUMAÐURINN f BORGARNESI.
Fjarskiptafyrirtækið WorldCom að falli komið:
Sakað um að fela
hundruð milljarða
Bandaríska flármálaeftirlitið hef-
ur lagt fram ákærur á hendur flar-
skiptafyrirtækinu WorldCom eftir
að forráðamenn þess viðurkenndu
að hafa falið kostnaö sem nemur
hátt á flórða hundrað milljarða
króna frá janúar 2001 til marsmán-
aðar á þessu ári.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur fordæmt svindlið og kall-
aði það „hneykslanlegt". Við sama
tækifæri sagðist hann hafa þungar
áhyggjur og hvatti til ítarlegrar
rannsóknar. Hneykslið þykir ekki
minna umfangs en það sem leiddi til
þess að orkufyrirtækið Enron varð
skyndilega gjaldþrota í desember.
Hlutabréf í WorldCom féllu í
verði og fréttimar ollu miklum óróa
á mörkuðum víða um heim.
Fjármálasérfræðingar spáðu því í
gær að WorldCom myndi óska eftir
gjaldþrotaskiptum fyrir lok vikunn-
ar. Sautján þúsund starfsmönnum
hefur þegar verið sagt upp og Scott
REUTERSMYND
Ekki björgulegt ástand
Bernard Ebbers, einn stofnenda
WorldCom, neyddist til að segja af
sér fyrir sjö vikum og nú stefnir í
gjaldþrot fyrirtækisins vegna svindls
í bókhaldinu.
Sullivan, flármálastjóri fyrirtækis-
ins, hefur verið rekinn.
Harvey Pitt, forstöðumaður flár-
málaeftirlitsins, sagði að stofnunin
ætlaði að fá úrskurð dómara til að
koma í veg fyrir að WorldCom los-
aði sig við eignir, eyðilegði gögn eða
greiddi háttsettum stjómendum há-
ar flárhæðir, eins og gerðist við
gjaldþrot Enron. Þá fengu forstjór-
arnir milljónir dollara en starfs-
menn og hluthafar stóðu uppi slypp-
ir og snauðir.
I lögsókn flármálaeftirlitsins á
hendur WorldCom segir aö fyrir-
tækið hafi falsað upplýsingar um
tekjur til aö hafa þær í samræmi
við væntingar flármálafyrirtækj-
anna á Wall Street.
Ráðamenn WorldCom sögðu að
bókhaldsvandamálið hefði upp-
götvast við hefðbundið innra eftir-
lit. Fyrirtækið skipti um endurskoð-
unarfyrirtæki á þessu ári, fór frá
Arthur Andersen til KPMG.
REUTERSMYND
Kínverjar losa sig við dópið
Kinverskir lögregluþjónar eyðiieggja hér eiturlyf sem lagt hafði verið hald á í borginni Guangzhou í suðurhluta Kína á
alþjóðlegum degi gegn eiturlyfjum sem var víst í gær. Þá hafa veriö geröir opinberir víðs vegar um landiö dómar sem
hafa falliö í fíkniefnamálum en algeng viöurlög viö innflutningi á eiturlyfjum eru dauðarefsing.
Arafat boðar til kosninga í janúar og hyggst bjóða sig fram:
Bush eykur þrýstinginn
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti er ekki sannfærður um ágæti
þeirra kosninga sem Yasser Arafat
hefur boðað til í janúar næstkom-
andi. Leiðtogi Palestínumanna, sem
Bush bað um að þeir losuöu sig við
í ræðu fyrr í vikunni, tilkynnti
nefnilega að hann væri hvergi
nærri hættur og ætlaði aö bjóða sig
fram. Bush bætti um betur í gær
þegar hann sagði óbeinum orðum
að Bandaríkjamenn mundu hætta
allri flárhagslegri aðstoð losuðu
Palestinumenn sig ekki við Arafat.
„Ég hef trú á því að Palestínu-
menn skilji algerlega hvað við erum
að reyna að segja, og að þeir muni
taka rétta ákvörðun þegar þar að
kemur,“ sagði Bush í gær.
Annars hélt leiðtogafundur G8-
ríkjanna í Kanada áfram í gær og
eins og fyrri daginn er varla rætt
um annað en ástandið fyrir botni
REUTERSMYND
George W. Bush og Tony Blair
Leiötogarnir tveir héldu sameiginleg-
an blaðamannafund í Kanada í gær.
Miðjaröarhafs. „Óbreytt ástand (í
Palestínu) er gjörsamlega óþol-
andi,“ sagði Bush á blaðamanna-
fundi í gær. Bandarísk stjórnvöld
upplýstu í gær að Arafat hefði sam-
kvæmt heimildum þeirra borgað
samtökunum Al-Aqsa tæpar tvær
milljónir króna en samtökin lýstu
sig ábyrg fyrir sjálfsmorðsárás sem
kostaði 6 manns lífið og særði 35.
„Bara einn dropinn til i upplýsinga-
hafið,“ sögðu embættismenn. Bush
sagði að hann óskaði eftir því að
fiárstreymi Palestínustjómar yrði
meira áberandi í kjölfarið á þessum
fréttum.
Starfsmaður í ríkisstjóm Bush
sagði að Bandarikjamenn muni
ekki skipta sér af kosningunum í
Palestínu verði þær „frjálsar og
sanngjarnar" en afleiðingamar séu
ljósar flykki Palestínumenn sér um
Árafat og kjósi hann.
Kominn yfir Andesfjöll
Bandaríski ævintýramaðurinn
Steve Fossett fór yfir snæviþakin
Andesfiöllin í Suður-Ameriku 1 gær á
leið sinni umhverfis hnöttinn í loft-
belg. Fossett er senn hálfnaður með
ætlunarverk sitt.
Matarmaður í heimsókn
Forstöðumaður matvælaaðstoðar
SÞ heimsótti Mazar-i-Sharif, ein-
hverja hættulegustu borg Afganist-
ans, í gær til að kanna þarfir bæjar-
búa fyrir aðstoð.
Vill útrýma valmúa
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, hvatti félaga
sina á leiðtogafundi
G8-iðnríkjanna til að
beita sér fyrir því að
útrýma valmúarækt-
un í Afganistan á
næstu tíu árum.
Bush sagði að ný stjórnvöld í
Afganistan hefðu þegar eyðilagt 25
prósent uppskerunnar nú.
Schröder húkkar far
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari hefur beðið Junichiro
Koizumi, forsætisráðherra Japans,
um að fá að sitja í til Japans eftir fund
G8 í Kanada til að hann geti horft á
úrslitaleik HM.
Hollustueið úthýst
Dómstóll í Bandaríkjunum úr-
skurðaði í gær að það samræmdist
ekki stjórnarskrá landsins að blanda
guði í svokallaðan hollustueið sem
skólaböm og fleiri þylja. Stjómmála-
menn hafa margir fordæmt úrskurð-
inn.
Castro skammar Bush
Fidel Castro
Kúbuforseti gagn-
rýndi Bush Banda-
rikjaforseta og stjóm
hans harðlega í gær
fyrir að skipta sér af
kúbverskum innan-
ríkismálum. Castro
varaði Bandaríkja-
menn við að ef þeir létu ekki af þess-
ari afskiptasemi kynni svo að fara að
þeir þyrftu að loka sendiskrifstofu
sinni í Havana.
Tekinn af lífi í Texas
Maður sem dæmdur var fýrir
nauðga og myrða konu og nauðga
ungri dóttur hennar var tekinn af lífi
með eitursprautu í Texas í gær.
Bændur varaðir við
Stjórn Roberts
Mugabes í Simbabve
varaði við því í gær
að hún myndi grípa
til aðgerða gegn
þeim hvítu bændum
sem neituðu að
hlýða fyrirmælum
um að láta bújarðir
sínar af hendi. Stjómvöld sögðu að
enginn hefði vald til að hunsa lögin.
Fleiri í hungurverkfall
Sífellt fleiri hælisleitendur í flótta-
mannabúöum í Ástralíu fara í hung-
urverkfall til að mótmæla því að
senda eigi þá heim.
Ravalomanana maðurinn
Bandarísk sflómvöld lýstu í gær
stuðningi sínum við Marc Ravalom-
anana sem réttan leiðtoga Indlands-
hafseyjunnar Madagaskar eftir sex
mánaða blóðuga baráttu um forseta-
embættið.