Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Page 11
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002
11
Utlönd
Mótmæli um allt Kanada gegn ieiðtogafundi G8-ríkjanna:
Bush og Blair svitna
saman í tækjasalnum
REUTERSMYND
Tekiö á mótmælendum í Ottawa
Lögreglan í Ottawa í Kanada handtekur einn úr hópi mótmælenda sem komu
saman í gær til aö mótmæla fundi leiötoga helstu iönríkja heims.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og George W. Bush Bandaríkja-
forseti puðuðu saman í tækjasalnum í
tuttugu minútur í gær og fór vel á
með á þeim á þessum fyrsta „leik-
fimifundi", eins og aðstoðarmenn
þeirra kölluðu samkomuna.
Eftir morgunskokkið sitt í
kanadíska tjallabænum Kananaskis,
þar sem leiðtogar átta helstu iðnríkja
heims sitja á fundi, í gær rakst Bush
óvænt á Blair í tækjasalnum og var
greinilega hrifmn af því hvað breski
forsætisráðherrann var duglegur í
tækjunum.
„Ég fór niðureftir eftir hlaupið og
þar var forsætisráðherrann að puða.
Ég verð að segja að það var
hörkupúl," sagði Bush á fúndi með
fréttamönnum.
Blair þakkaði hlý orð í sinn garð og
fór fógrum orðum um atgervi Banda-
ríkjaforseta.
Leiðtogar iðnrikjanna átta sem
mynda svokallaðan G8-hóp funduðu
fjarri heimsins glaumi í Kananaskis í
gær, undir strangri vernd hermanna
og flugskeyta.
Rússar voru gerðir að fullgildum fé-
lögum í félagsskapnum og ákveðið var
að halda fund leiðtoganna í Rússlandi
árið 2006.
„Heimurinn er að breytast. Rússar
hafa sýnt fram á getu sína til að gegna
veigamiklu hlutverki í að að taka á
þeim vanda sem við stöndum allir
frammi fyrir,“ sagði meðal annars í
yfirlýsingu frá leiðtogunum.
Leiðtogarnir ræddu einnig um leið-
ir til að koma í veg fyrir að hryðju-
verkahópar komist yfir gjöreyðingar-
vopn og jafnframt gáfu þeir fátækari
ríkjum þessa heims veika von um að
bjartari tímar kynnu að vera fram
undan. Loforð voru gefm um að af-
skrifa einn milljarð dollara til viðbót-
ar af skuldum fátæku landanna.
Á sama tíma og leiðtogamir sátu
einangraðir í Kananaskis flykktust
andstæðingar hnattvæðingar út á göt-
ur helstu borga Kanada til að mót-
mæla fundinum í fjöllunum.
í Calgary, Ottawa og Vancouver
komu saman hnattvæðingarfiendur,
mannréttindafrömuðir og umhverfis-
sinnar og létu andúð sina á stefnu iðn-
ríkjanna í ljós með ýmsum hætti, svo
sem með knattspymuleikjum.
Þótt mótmælendur hefðu hátt voru
aðgerðir þeirra engu síður að friðsam-
legar að mestu. Lítið var um stimp-
ingar við lögreglu, ólíkt því sem gerst
hefur við svipuð tækifæri, svo sem
þegar fundinum í Genúa á Ítalíu í
fyrra var mótmælt. Þar lét einn mót-
mælandi lífið fyrir hendi ungs lög-
regluþjóns.
Lögreglan sagði að einn maður
hefði verið handtekinn nærri Kan-
anaskis og að tveir hefðu verið teknir
fyrir að fara ólöglega inn í Kanada frá
Bandaríkjunum.
Mótmælendur eru reiðir yfir því að
leiðtogamir ætli að taka ákvarðanir
um lykilmál, svo sem viðskipti, efha-
hags- og þróunarmál, án þess að leita
nokkuð í smiðju til venjulegs fólks í
viðkomandi löndum.
REUTERSMYND
Unnið hörðum höndum
Svo viröist sem sleitulaus vinna
björgunarmanna sé aö borga sig.
Vonir glæðast í
skógareldunum
Björgunarmenn í Arizona í
Bandaríkjunum eru nú vongóðir
um að geta bjargað fiallabænum
litla, Show Low, frá því að brenna
til grunna í skógareldunum sem
geisa þar nú. „Við erum þó ekki að
segja að Show Low sé úr allri hættu
þar sem móðir náttúra gæti enn
komið með óvænt útspil," sagði Jim
Paxon, talsmaður björgimaraðgerö-
anna.
í fyrsta sinn var hægt að nota
jarðýtur í gærmorgun til að mynda
nokkrar vamarlinur í kringum
eldana og voru menn greinilega
vongóðir um að það gæti skipt sköp-
um í baráttunni. Þó er hættan alltaf
sú að aðeins ein þurr elding gæti
verið nóg til að kveikja í skrauf-
þurrum furuskógum sem eru í
næsta nágrenni.
Borgarstjóri Show Low, Gene
Kelley, sagði að íbúar bæjarins
gætu líklega snúið aftur til síns
heima á mánudag, viku eftir að hafa
yfirgefið heimili sín.
REUTERSMYND
Andrés prins fylgist með fótboltaspili
Andrés prins, hertogi afJórvík, fyigist spenntur meö viöureign skólastúlku frá París og félaga í skoskri hálandahljóm-
sveit í fótboltaspili í göröum breska sendiherrabústaöarins í París.
Enn eitt rútuslys unglinga á ferðalagi:
Einn lést í Frakklandi
Aðeins nokkrum dögum eftir að 4
unglingar létu lífið í rútuslysi í
Bandaríkjunum er einn látinn eftir að
skólaferðalagi skoskra unglinga til
Barcelona lauk skyndilega á hrað-
brautum Frakklands. 1 lést og 24 eru
slasaðir, þar af 9 alvarlega.
Bandarísku táningamir voru á leið
í kristilegar sumarbúðir en þessir
voru frá Largs-skólanum í Ayrshire á
leið sinni til Barcelona á Spáni í
skólaferðalagi.
6 fullorðnir voru meðal 49 farþega í
rútunni, þar af 2 bílstjórar. Þeir höfðu
lagt af stað frá Bretlandi í gær. Sam-
kvæmt frönsku lögreglunni vora að-
stæður á veginum góðar og ekki er út-
lit fyrir að önnur bifreið hafi komið
nálægt slysinu. Viðmælandi Sky
News fréttastofúnnar hélt því fram að
svo hefði virst að bílstjórinn hafi ein-
faldlega misst stjóm á rútunni.
Kennari sem hafði samband við for-
eldra í Skotlandi sagði að tveir væra
enn fastir í rútuflakinu en flestir
þeirra slösuðu væra fluttir til að-
hlynningar í Dijon, Auxerre og
Beaune.
Talsmaður skólans í Skotlandi
sagði að skólastjórinn, George
Maxwell, væri að ræða við fiölskyldur
ferðalanganna og að sérstöku neyðar-
simanúmeri hefði verið komið á fót
svo að áhyggjufullir ættingjar geti
hringt og fengið nánari upplýsingar.
Peter McNamara, formaður
fræöslumála í norðurhluta Ayrshire,
sagði að hann hefði fengið fregnir af
einum nemanda sem lést og kennara
sem missti handlegg í slysinu. Hann
hefði hitt nokkra úr hópnum í heim-
sókn sinni í skólann fyrir skömmu og
allir verið í skýjunum vegna komandi
ferðalags. „Að slíkt skuli hafi gerst er
hörmulegt," sagði hann.
J. R. BÍLASALAN
www.jrbilar.is
M. Benz E200
1990, ekinn 125.000 km, topplúga,
álfelgur, sumar- og vetrardekk.
Verð 990.000,
allt að 100% lán, skipti athugandi.
Til sölu og sýnis á JR Bílasölu,
Bíldshöfða 3, sími 567-0333
Getum bætt við okkur bílum á staðinn og á skrá. Visa/Euro raðgreiðslur.