Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Side 14
14
__________________FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002
Skoðun i>v
Spurning dagsins
Hvaða fjölmiðla nýtirðu þér helst?
(spurt á Akureyri)
Sigurður Magnússon
forstjóri
Ég nota RÚV, Sjónvarpiö, Stðö 2 og Sýn
mikiö. Síöan er ég áskrifandi aö Vikudegi.
Ég ieita mér heist frétta á Netinu, þaö er
framtíöin.
Eva Dögg Sigurðardóttir,
starfsmaður 118
Ég horfi nokkuö mikiö á sjónvarp en ég nýti
mér þó mest Netiö, nota þaö eiginiega ansi
mikiö.
Jón BJörn Vllhjálmsson
nemi
Sjónvarpiö, þaö er þægilegast. Ég er hins
vegar ekki mikiö á Netinu.
Elísabet Guðmundsdóttir
húsmóðir
Aöaiiega sjónvarpiö, þá mest Stöö 2. Ég
hlusta voöaiega lítiö á útvarp og fer aidrei á
Netiö.
Þórdís Dúadóttir
nemi
Ég er mikiö á Netinu en lítiö í fréttunum,
nota þaö mest tii aö leika mér. Síöan nýti
ég mér sjónvarpiö en er þá frekar aö leita
aö afþreyingu.
Hafsteinn Ingibergsson
forstöðumaður
Ég er alæta. Sjónvarpiö mest, svo Netiö og
dagblööin. Ég er þá helst aö leita almennra
frétta og íþróttafrétta.
Stúdentar - auðveldara að fá góða einkunn fyrir norðan, segir bréfritari
Jgy* > T
m i.
Auðveldara að ná góðu stúd-
entsprófi frá MA en MR
Guðbjörg Pálsdóttir
skrifar:
Það er haft eftir skólameistara
MA í Mbl. í dag að ef einkunn dúx-
ins hefði verið reiknuð skv. eldri
reglum sem víða tíðkast þá hefði
hann í rauninni slegið öll met. Ég er
hneyksluð á meistara og velti því
fyrir mér hvort þetta sé hollt fyrir
dúxinn að svona sé talað.
Satt best að segja þá held ég að
auðveldara sé að ná góðu stúdents-
prófi í MA en í MR sem er trúlega
einn allra kröfuharðasti mennta-
skóli landsins. í MA er sami háttur
hafður á og í fjölbrautaskólum að
því leyti að til prófs er aldrei tekið
meira en námsefni einnar annar -
það er ekki einu sinni prófað úr
„Mér finnst Tryggvi Gísla-
son hafa sent nemanda sín-
um röng skilaboð og svona
getgátur um að ef þetta eða
hitt hefði verið svona en
ekki hinsegin þá hefði hann
náð besta árangri frá upp-
hafi gjörsamlega út í blá-
inn.“
námsefni vetrarins. Hins vegar er
því þannig háttað í MR að prófað er
úr námsefni 6. bekkjar auk verulegs
hluta af því sem tekið er fyrir í 3., 4.
og 5. bekk.
Aðferð MR veldur óþarflega
miklu álagi á nemendur en hún er
e.t.v. góður undirbúningur undir
háskólann þar sem prófað er úr
miklu námsefni. Megnið af því sem
við lesum munum við ekki mjög
lengi. Það er þvi ákaflega þægileg
leið að prófað sé úr námsefni hverr-
ar annar og einkunnunum safnað
saman.
Mér finnst Tryggvi Gíslason hafa
sent nemanda sínum röng skOaboð,
og svona getgátur um að ef þetta eða
hitt hefði verið svona en ekki
hinsegin þá hefði hann náð besta ár-
angri frá upphafi, gjörsamlega út í
bláinn.
Léleg póstþjónusta
Sæmundur
hringdi:
Ég er ekki viss um hvort póstþjón-
ustan hefur batnað eða versnað eftir
að hlutafélag tók við rekstri hennar.
En það er eins og mér finnist að ýmis-
legt berist seinna en áður, hverju sem
hægt er að kenna um það. Mér finnst
sum tímarit koma seinna til mín en
áður. En kannski er ég orðinn óþolin-
móðari en áður. En það sem kom fyr-
ir um daginn hefur aldrei hent mig
áður. Þá fékk ég tilkynningu um af-
„Mér finnst sum tímarit
koma seinna til mín en áður.
En kannski er ég orðinn óþol-
inmóðari en áður. En það
sem kom fyrir um daginn
hefur aldri hent mig áður.“
borgun í póstinum tveimur dögum eft-
ir gjalddaga. Ég flýtti mér í bankann
eins og hægt var því ég vil alls ekki
vera óskilamaður. En þá var ég látinn
borga þrjátíu krónur í dráttarvexti og
þótti mér það ekki gott.
Útgjöldin eru ekki mikil en mér
fannst ég bíða hnekki á mannorðinu
fyrir að borga ekki á réttum tíma. Ef
íslandspóstur hf. er á annaö borð að
taka að sér að senda út greiðslutil-
kynningar á hann að skammast til að
koma þeim til viðtakenda tímanlega
til að hægt sé að inna greiðsluna af
hendi ekki síðar en á gjalddaga.
Garri
Þrír gestir á alþjóðafundi
Lögreglulið Egilsstaða var kallað til fundar
fyrir helgi þegar fréttist af fundi alþjóðasamtak-
anna EFTA, sem hófst raunar á Egilsstöðum í
gærmorgun. „Hví erum við kallaðir svo seint
til?“ sagði varðstjóri lögreglunnar þegar sýslu-
maður gerði þeim grein fyrir hinum alþjóðlega
fundi á Héraði. „Fylgdust þið ekki með,“ hélt
hann áfram, „þegar NATO-fundurinn var hald-
inn í Reykjavík. Þá voru allir lögreglumenn í
borginni kallaðir úr frli og ekki nóg með það.
Ríkislögreglustjóri boðaði einnig til starfa lög-
regluþjóna úr Kópavogi og Hafnarfirði, auk þess
sem liðsstyrkur var sendur frá Akranesi og
Keflavík. Þá sveimuðu varnarliðsflugvélar yfir
Reykjavik meðan á fundinum stóð. Eigum við að
verja EFTA-fulltrúana fyrir terroristum og öðr-
um óþjóðalýð án þess að fá nokkuð „bakköpp"?
Ég krefst þess að fá lögreglumenn neðan af fjörö-
um og lágmark er aö Landhelgisgæsluþyrlan
sveimi hér yfír meðan á alþjóðafundinum stend-
ur.“ Varðstjórinn var fölur af geðshræringu eftir
ræðuna, samfara rikri ábyrgðartilfinningu. Hann
horfði stíft á sýslumann.
Vanir menn til varnar
Sýslumaður var að rjátla við pappíra og náði
ekki að svara áður en yfirmaður seinni vaktar
Egilsstaðalögreglunnar reis úr sæti. Hann lagði
húfuna til hliðar, enda molla í fundarherbergi
sýslumannsembættisins. Hann var rasandi ekki
síður en varðstjórinn og krafðist skyndiaðgerða
og æfingar fyrir fundinn. Lágmark væri að fá að-
stoðarlið innan hálftíma frá Seyðisflrði, auk toll-
varða frá sama stað, sem vanir væru að fást við
þrjóta og pólitíska flóttamenn sem vikulega
kæmu þangað með Norrænu. Ella væri ekki
hægt að sinna svo viðamiklum vömum sem
gæsla allra EFTA-fulltrúanna væri.
Húsvörðurinn líka
„Bíðið hægir, piltar,“ sagði sýslumaður og
reyndi að lægja kurr í lögregluliðinu, bæði fyrri
og seinni vaktinni. „Við viljum fyrirhyggju,"
kallaði ungur lögreglumaður frá Fellabæ fram í.
„Skotheld vesti líka,“ hrópaði annar, „ef tryggja
á öryggi lögregluliðsins á svo fjölmennum fundi
alþjóðasamtaka hér,“ hélt hann áfram. „Þaö er
nefhilega það,“ sagði sýslumaður þegar hann
komst loks að. „Rétt er það að ráðherrafundur
EFTA-ríkjanna verður haldinn í Menntaskólan-
um á Egilsstöðum en hann verður ekki sérlega
fjölmennur. EFTA er nefnilega fámennustu al-
þjóöasamtök í heimi. Á þessum alþjóðafundi
verða ekki nema þrír gestir í boði Halidórs Ás-
grimssonar. Hann skutlar þeim hingað austur á
jeppanum sínum."
Sýslumaður hallaði sér aftur í stólnum, losaði
um bindið og dæsti. „Fyrri vaktin sér um mál-
ið,“ sagði hann. „Sú seinni getur tekið því ró-
lega, einkum vegna þess að húsvörðurinn í
menntaskólanum ætlar að opna og hella á könn-
una.“
Gjgffi
Unglinga
á elliheimilin
Haukur hringdi með byltingarkennda hugmynd:
Sagt er að iðjuleysi sé rót alls iils.
Þess vegna er það nú væntanlega að
unglingar um fermingu eru ráðnir í svo-
kallaða unglingavinnu. En því miður
virðist verkstjóm ekki vera sérlega
markviss í unglingavinnunni eða reynt
að halda uppi þokkalegum vinnumóral
því oftar en ekki sér maðm- blessaða
unglingana liggja háifhreyfingarlausa í
beðunum þar sem þau róta annars hug-
ar í moldinni. Þau skynja kannski ekki
tilganginn í baráttunni við arfann eða
önnur skyld verk, hver veit. Ég held að
það væri mun skynsamlegra ef ein-
hverjir þessara krakka fengju vinnu
inni á eiliheimilum þar sem þau hefðu
það hlutverk að aðstoða gamla fólkið
við hitt og þetta og halda því félagsskap.
Gamalt fólk er ekki beinlíns að drukkna
í heimsóknum skyldmenna og þarna
gæfist gjörólíkum kynslóðum kærkomið
tækifæri til að kynnast - og hafa af því
bæði gagn og gaman.
Tönnlast á „fés“
Rúnar skrifar
Óskaplega
var hvimleitt
að heyra
fréttakonu á
Bylgjunni
tönnlast á
orðinu „fes“ í
hveijum
fréttatíman-
um af öðrum
síðastliðinn
laugardag. í
fréttinni var
konan að
reyna að
segja tíðindi
af fórgun fjár i Skagafirði af völdum
salmonellusýkingar en beygði nafnorðið
fé eilíflega vitlaust i eignarfalli. Von-
andi eru gerðar meiri kröfur til frétta-
manna en svo að þeir fari vitlaust með
þetta algenga orð sem maður hélt að
fullorðið fólk hefði almennt á valdi sínu.
Svo heyrði ég að sama fréttakona fór
enn og aftur vitlaust með þetta orð í
fréttum Stöðvar 2 að kveldi sama dags.
Þar með var mér öllum lokið. Á Skjá
einum hefur iðulega mátt heyra að fólk
væri á leiðinni til Akranesar. Æ, æ, æ...
Sárindi bréfbera
Bergljót skiifar
Sonur minn hefur borið út Frétta-
blaðið í um hálfl ár. Hann hefur aðeins
einu sinni fengið greitt fyrir vinnu sína
að fullu og í annað skipti að hluta. Hann
ætlaði sér að nota þessi vinnulaun sín
til að safna sér fyrir eyðslueyri í sumar-
ferð fjölskyldu sinnar á Spáni í næsta
mánuöi. Eftir ítrekaöar tilraunir við að
innheimta laun drengsins hjá útgefend-
um blaðsins má ljóst vera að drengur-
inn þarf að leita til foreldra sinna um
eyðslueyri í ferðinni. Hann er miður sín
vegna þessa og hefði betur farið að ráði
félaga síns sem gafst upp á útburði
blaðsins fyrir mörgum mánuðum. Þetta
er raunaleg reynsla ungs manns af
fyrsta launaöa starfmu og útgefendum
Fréttablaðsins til skammar.
Aliir sem koma fram í
sjónvarpi veröa aö
vanda sig
- fé, um fé, fré fé
— til fjár - rtei fés!
Landssystur
Sjúrdur Hansen skrifar frá Þórshófn í Færeyjum:
Við Færeyingar erum komnir í riðil
með ykkur íslendingum í knattspymu-
keppni Evrópu - og með okkur eru fyrr-
verandi og kannski verðandi heims-
meistarar, Þýskaland. Ég var á íslandi
12. til 19. júní og naut sólarinnar. Ég
kem aftur og þá munu Færeyringar
sigra ykkur í fótbolta. Sá betri mun
vinna, það vita bræðra- og systraþjóð-
imar efalaust. En að vera með Þjóðveij-
um, fótboltarisanum, í riðli er stórmál
fyrir smáþjóðimar tvær. En munum
það að smáþjóðir geta gert stóra hluti.
Við Færeyingar lékum síðast við Skota
í Tóftum og þar varð jafntefli, 1:1.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.