Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 Marel skoraði Marel Baldvinsson var á skotskónum þegar Stabæk tryggði sér sæti í 4. um- ferð norsku bikarkeppninnar í gær- kvöld. Marel skoraði eitt mark í 3-0 sigri Stabæk á Nybergsund. Þrjú úrvalsdeildarlið duttu úr 3. um- ferðinni í gær fyrir liðum í neðri deild- um. íslendingaliðin Molde og Lillestrom auk Sogndal urðu þess vafasama heið- urs aðnjótandi að detta út fyrir 1. deild- arliðum. Bjami Þorsteinsson lék með Molde og Indriði Sigurðsson lék með Lillestrom. -ósk [f «1. DEILD KARLA =25®; --------------------- Valur 6 5 1 0 15-3 16 Afturelding 7 4 2 1 11-10 14 Leiftur/Dalv. 6 2 3 1 11-7 9 Haukar 6 2 2 2 9-6 8 Víkingur 6 2 2 2 7-7 8 Breiðablik 6 2 1 3 12-12 7 Stjarnan 6 2 1 3 9-13 7 ÍR 7 1 3 3 6-12 6 Þróttur R. 6 1 2 3 7-11 5 Sindri 6 1 1 4 5-11 4 Markahæstir: ívar Sigurjónsson, Breiðabliki ... 5 Magnús Már Lúðvíksson, Val .... 5 Sigurbjöm Hreiðarsson, Val.......4 Vilhjálmur Viihjáhnss., Stjörnunni 4 Ámi Ingi Pjetursson, ÍR...........3 Bjarki Már Ámason, Aftureldingu 3 Egill Atlason, Sindra.............3 Hjálmar Þórarinsson, Þrótti, R. . . . 3 Jón Örvar Eiríksson, Leiftri/Dalv. 3 Ragnar Árnason, Stjömunni........3 Þorleifur Árnason, Leiftri/Dalvík . 3 Þorvaldur M. Guðmundss., Aftureld. 3 Næstu leikir: Víkingur Breiðabiik föstud. 28. júní Valur -Haukar .tostud. 28. júní Sindri-Þróttur .... laugard. 29. júní Stjaman-Leift./Dalv. laugard. 29. júní Vinnusigur Mosfellinga 1-0 Bjöm Jakobsson, sjálfsm. . 24. Aiturelding styrkti stöðu sína í öðru sæti 1. deildar með 1-0 sigri á ÍR í gærkvöld. Það má segja að veð- urguðimir hafi sýnt allar bestu hliðarnar á Mosfellsbæ í leik lið- anna og því kjöraðstæður fyrir leikmenn að sýna skemmtilega knattspymu, en þvi var því miður ekki að heilsa. Bæði lið hófu leikinn mjög ró- lega en Mosfellingar voru þó sýnu ákveðnari. Um miðjan fyrri hálf- leikinn fengu þeir þó góða sókn og Boban Ristic komst einn í gegnum slaka vöm Breiðhyltinga en Símon G. Símonarson varði mjög vel. Sím- on var þó ekki í essinu sínu skömmu seinna þegar hættulaus sending Mosfellinga inn fyrir vörn ÍR-inga fór á einhvem óskiljanleg- an hátt milli fóta honum og í mark- ið. Við markið féllu Aftureidingar- menn aftar á völlinn án þess að ÍR- ingar næðu að skapa sér færi. Guðmundur Torfason, þjálfari ÍR, sendi Amar Þór Valsson til leiks á 55. mínútu og hann átti eft- ir að breyta gangi leiksins. Við inn- komu hans gjörbreyttist leikur Breiðhyltinga, sem tóku nú vöidin á vellinum. ÍR-ingar áttu margar liprar sóknir en fengu þó ekki mörg hættuleg færi fyrr en undir lok leiksins þegar þeir fengu nokk- ur. Vöm Aftureldingar hélt leikinn út og Mosfellingar því komnir með 14 stig í öðm sæti i deildinni. Hjá heimamönnum var Albert Ástvaldsson sterkur í vörninni en liðið lék í heild ágætlega. Hjá lR- ingum stóð varla steinn yfir steini í fyrri hálfleik en Björn Jakobsson hélt þeim á floti, auk þess sem Sím- on markvörður varði nokkrum sinnum vel. í seinni hálfleik kom eins og fyrr segir Arnar Þór Vals- son inn á og var allt í öllu hjá þeim. Spurður hvers vegna Mosfelling- ar bökkuðu svo mikið í seinni hálf- leik sagði Sigurður Þorsteinsson, þjálfari þeirra, að það hefði ekki verið ætlunin, það hefði gerst ósjálfrátt eins og stundum áður hjá Aftureldingu. Auk þess hafi ÍR-ing- ar verið grimmir í seinni hálfleik og hans menn hefðu ætlað að skora mark snemma í hálfleiknum en það hefði ekki tekist og það hefði aukið pressuna á lið hans. Maður leiksins: Arnar Þór Valsson, ÍR. -RG Pietar piguvosson.’ oomsn íeiks Kefts- v.'körog'-FM, haíöi i mörgiior1' aö m • gær. Her gripur hann ínn i hantíaiög- •mal á mku Hetmis Suöjónssonai og Aöoits gveinssóhsr. BH-kngurtRn'’ v'afóas Tt^kys ög Keftvðdngurinn Erynjar Gu&munosson tyigjast meö. DV-myná E.GI. mm tMH. m 7 ‘ ?***. * & •í'^ÍssfckiiÍLv.í -'lr. )* vv'ri '2 * SIMA Keflavík og FH skildu jöfn, 1-1, í Keflavík í gærkvöld: Tvö töpuö stig ÐEiLDiN Fylkir 7 4 2 1 15-9 14 KR 7 4 1 2 9-7 13 Grindavík 7 3 2 2 12-11 11 Fram 7 2 3 2 12-11 9 Keflavík 7 2 3 2 10-11 9 KA 7 2 3 2 5-6 9 FH 7 2 3 2 9-11 9 ÍBV 7 2 2 3 10-9 8 Þór Ak. 7 1 3 3 10-14 6 ÍA 7 1 2 4 10-13 5 Markahæstir: - bæði lið misstu af tækifærinu til að blanda sér í toppbaráttuna Keflavík og FH gerðu jafntefli, 1-1, í Keflavík í gærkvöld í Síma- deild karla í knattspymu. Gestirnir voru sterkari í byrjun án þess þó að skapa sér neitt að ráði og heimamenn skoruðu úr fyrsta almennilega færi leiksins á 9. mínútu og var vörn FH-inga flöt og það bar nokkuð á því það sem eftir lifði leiks. Keflvíkingar færðu sig vel aftur eftir markið og treystu á skyndisóknir og var eins og FH-ingar væru vel meövitaðir um það og jafnvel ögn hræddir því þeir voru talsvert lengi að færa lið sitt framar en gerðu það þó um síð- ir. Skapæsingur og stimpingar Fyrri hálfleiks verður aðallega minnst fyrir skapæsing nokkurra leikmanna og það þurfti að skilja þá Valdas Trakys og Kristján Jó- hannsson aö og lá við að brytust út hópslagsmál og þurfti Pjetur Sigurðsson, dómari leiksins, aö nota Fingurna svipað mikið og flautuna. Þá áttu þeir Magnús Sverrir Þorsteinsson, leikmaður Keflvíkinga, og Magnús Ingi Ein- arsson, leikmaður FH, ansi hreint mikið vantalað og voru þeir félag- ar heppnir að ekki fór verr. FH-ingar hófu síðari hálfleik af krafti og náðu strax yflrhöndinni og þeir jöfnuðu á 56. mínútu og var þar að verki Guðmundur Sæv- arsson, sem kom inn á eftir leikhlé í stað Valdas Trakys, sem var bú- inn að hafa allt á hornum sér og meiddist í þokkabót; sannarlega ekki hans dagur. Bæöi lið fengu færi Eftir markið komst á ákveðið jafnvægi, Keflvíkingar færðu sig framar og FH-ingar gerðu hvað þeir gátu til að halda undirtökun- um og lokakafli leiksins var bráð- skemmtilegur og bætti fyrir leið- indin og ruddamennskuna sem einkenndi sér í lagi fyrri hálfleik- inn. Bæði liðin fengu góð færi til þess að bæta við marki eða mörkum og átti Adolf Sveinsson meðal annars skaUa í slá fyrir heimamenn og Jón Þorgrimur Stefánsson átti hörkuskot sem Ómar Jóhannsson varði með tilþrifum. Höldum sprækir áfram Adolf Sveinsson, besti leikmaður Keflvíkinga, var ekki alveg sáttur við niðurstöðuna að leik loknum: „Mér fannst við vera betri í þess- um leik og eiga skUið þrjú stig. Við fengum á okkur klaufamark en hefðum átt að vera búnir að bæta við áður en það kom en svona er þetta bara. Það var þónokkur hiti í þessu í fyrri hálf- leik en róaðist þegar „vinurinn" (Valdas Trakys) var tekinn út af en við höldum sprækir áfram enda er andinn góður í liðinu og ég er bjartsýnn," sagði Adolf Sveinsson. Hefðum átt aö gera betur Heimir Guðjónsson, leikmaður FH, var heldur ekki ánægður með niðurstöðu leiksins og hafði þetta að segja í leikslok: „Við spUuðum á köflum ágæt- lega og hefðum átt að gera betur en það er voðalega erfitt að vinna leiki þegar við gefum mark eins og við gerðum í byrjun leiks. Við gerðum það líka á móti KA um daginn og þetta er alger óþarfí hjá okkur og eitthvað sem við verðum bara að hætta að gera enda fer mikið púður í það að vinna slíkt upp. Við vissum að Keflvíkingam- ir væru erflðir heim að sækja og það voru læti í mönnum í fyrri hálfleik en það verður að vera smá hiti í þessu, annars er ekkert gaman að þessu,“ sagði Heimir Guðjónsson. Úrslitin í gær hljóta að vera von- brigði fyrir bæði lið. Þau hefðu get- að blandað sér af krafti í toppbar- áttuna með sigri í leiknum en tókst hvorugu ætlunarverk sitt. Gunnar H. Þorvaldsson, ÍBV........5 Jóhann ÞórhaUsson, Þór, Ak........5 Sævar Þór Gíslason, Fylki .........5 Grétar Hjartarson, Grindavík .... 4 Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR .. 4 Steingrímur Jóhannesson, Fylki .. 4 Adolf Sveinsson, Keflavík..........3 Andri Fannar Ottósson, Fram .... 3 Ellert Jón Björnsson, ÍA...........3 Sigurvin Ólafsson, KR..............3 Þorbjöm Atli Sveinsson, Fram ... 3 Næstu leikir: KR-Fylkir ...........fim. 27. júni ÍA-ÍBV...............fim. 27. júní Grindavík-Þór Ak.....fim. 27. júní -SMS Keflavík-FH 1-1 (1-0) 1-0 Adolf Sveinsson (9., skot úr 1-1 Guðmundur Sævarsson (56. Keflavík (4-5-1) Ómar Jóhannsson ........3 Brynjar Guðmundsson .... 3 Georg Birgisson.........3 Haraldur Guðmundsson ... 2 Zoran Ljubicic..........3 Kristján Jóhannsson ....2 Þórarinn Kristjánsson .... 3 Magnús S. Þorsteinsson ... 2 (58., Guðmundur Steinarss. 3) Jónas G. Sævarsson......2 (70., Hólmar Rúnarsson ... 3) Adolf Sveinsson.........4 Hörður Sveinsson .......3 (70., Haukur I. Guðnason .. 3) Dómari: Pjetur Sigurðsson (3). Áhorfendur: 876. teig eftir sendingu Kristjáns Jóhannssonar). , skot úr markteig eftir sendingu Baldurs Bett). Gul spjöld: Adolf (15.), Hólmar (89.), Haraldur (90.), Keflavík - Baldur (58.), FH. Rauö spjold: Engin. Skot (á mark): 10 (4) - 11 (4) Horn: 3-6 Aukaspyrnur: 15-14 Rangstöður: 2-3 Varin skot: Ómar 3 - Daði 2. FH (4-4-2) Daði Lárusson..........3 Magnús I. Einarsson .... 3 Hilmar Bjömsson .......4 Benedikt E. Árnason .... 3 Róbert Magnússon.......2 Emil Hallfreðsson .....3 (62., Jónas G. Garðarsson. 2) Jón Þ. Stefánsson ......3 Heimir Guðjónsson.......3 Baldur Bett.............3 Valdas Trakys...........2 (46., Guðmundur Sævarss. 3) Jóhann Möller...........3 Maður leiksins hjá DV-Sporti: Hilmar Björnsson, FH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.