Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Síða 27
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 27 DV Ronaldo skorar hér sigurmark Brasilíumanna sem tryggöi þeim sæti í úrslitaleik HM gegn Pjóöverjum. Á minni myndinni sést Ronaido fagna markinu á meöan Rustu, markvöröur Tyrkja, horfir á boltann í markinu. PReuters Draumurinn varð að veruleika - draumaúrslitaleikur Þýskalands og Brasilíu staöreynd eftir að Brasilíumenn unnu Tyrki Brasilíumenn tryggðu sér sæti í úrslitaleik HM gegn Þjóðverjum með 1-0 sigri á baráttuglöðum Tyrkjum í Saitama í Japan í gær og þar með er draumaúrslitaleikurinn orðinn að veruleika. Tyrkir veittu Brasilíumönnum harða keppni og sýndu oft mjög góða knattspymu en það dugöi þó ekki til að skora þó að stundum hafi munað litlu. Leikurinn fór rólega af stað og lít- ið var um færi til að byija meö. Tyrk- ir fengu fyrsta alvöru færi leiksins þegar Alpay Özalan átti góðan skalla sem Marcos, markvörður Brasilíu, varði vel. Eftir þetta var eins og leik- menn vöknuðu til lífsins og Rustu, markvörður Tyrkja, varði vel frá Rivaldo aðeins minútu síðar. Brasil- íumenn sóttu áfram stíft og og fengu nokkur færi en Rustu var vandanum vaxinn milli stanganna. En strax á 49. mínútu komust Brasilíumenn yfir með stórglæsilegu einstaklingsframtaki frá Ronaldo og skaut hann hnitmiðuðu skoti í fjær- hornið sem Rustu hafði hendur á en náði ekki að stýra framhjá markinu. Leikurinn datt nokkuð niður við þetta, Tyrkir reyndu að sækja en Brasilíumenn vörðust öllum aðgerð- um þeirra og þeir fengu ekki mörg opin færi fyrr en á síðasta stundar- fjórðungi leiksins. Besta færið fékk Hakan Sukur þegar hann skaut aftur fyrir sig úr erfiðri stöðu en Marcos varði glæsilega. Bjuggumst viö meiri mun Luis Felipe Scolari, þjálfari Bras- ilíumanna, hrósaði Tyrkjum fyrir mikla baráttu eftir leikinn. „Við bjuggumst við að Tyrkir yrðu mjög erfiðir andstæðingar. Þeir spila fast og öðruvísi en önnur lið. Þeir eru með mjög góða miðju og frábæra sóknarlínu. Þeir sköpuðu sér fjölda færa og eru með hættulegt lið en við höfum samt lært hvernig þeir spila. Við bjuggumst við að vinna með meiri mun en ég vil óska Tyrkjum til hamingju með árangurinn. Það er mikið afrek að vera í hópi fjög- urra bestu þjóðanna á HM.“ Senol Gunes, þjálfari Tyrkja, sagði að takmark þeirra um að láta til sín taka í keppninni hafi náðst. „Við komum til leiks á HM til að taka þátt í veislunni og hafa áhrif og ég held að það hafi tekist. Ég er stoltur af leikmönnum mínum. Þeir hafa gert frábæra hluti. Mér þykir aðeins leitt að hafa ekki getað glatt tyrknesku þjóðina meira í dag.“ -HI Engar endur- tekningar Ronaldo varaði sína menn við að láta ekki ófarimar frá því í úrslitaleiknum 1998 endurtaka sig. „Við þekkjum þá tilfinningu að komast í úrslitaleikinn frá því 1998 og nú verðum við að einbeita okkur. Við megum ekki halda að þetta sé búið og hefja okkur upp til skýjanna." Um sigurmark sitt í leiknum sagði Ronaldo og vísaði þá í hvernig hann potaði boltanum framhjá markverði Tyrkjanna meö tánni: „Þetta var mark í anda Romarios. Kannski ekki sérlega fallegt mark en mikilvægt var það.“ -HI Ronaldo fagnar marki sínu gegn Tyrkjum. Reuters Hakan Sukur vonbrigði Tyrkja Þó að árangur Tyrkja í keppn- inni hafi farið fram úr björtustu vonum er óhætt að segja að einn leikmaður, Hakan Sukur, hafi vald- ið vonbrigðum. Hann náði sér eng- an veginn á strik í keppninni, skor- aði ekki en misnotaði fjölda færa. Senol Gunes, þjálfari Tyrkja, var undir nokkurri pressu að setja Sukur út úr liðinu eftir leikinn gegn Senegal. Þá var Sukur skipt út af eftir að hafa misnotað mörg færi og sá sem kom í hans stað, II- han Mansiz, kom Tyrkjum í und- anúrslit með frábæru gullmarki. En Sukur var aftur kominn í gær og enn sem fyrirliði. Og aftur stóð hann ekki undir væntingum. -HI Hakan Sukur níöurlútur ab leik loknum. Reuters Sport VjOREA ’|APAN Ronaldo er með marki sínu gegn Tyrkjum orðinn einn markahæstur í keppninni með sex mörk. Hann gæti því verið fyrstur til að rjúfa sex marka múrinn á HM síöan árið 1974 en þá skoraði Pólverjinn Grzegorz Lato sjö mörk þegar keppnin var haldin í Þýskalandi. Úrslitaleikur Þjóðverja og Brasil- íumanna verður sögulegur að því leyti að þetta veröur i fyrsta sinn sem þessar þjóðir mætast á HM eins og fram kom í blaðinu í gær. Það sem er enn merkilegra er að annað- hvort liðið hefur leikið alla úrslita- leiki HMeftir seinni heimstyrjöld- ina nema einn. Sá fór fram 1978 þeg- ar Argentínumenn léku gegn Hol- lendingum. Bœði liöin munu leika úrslitaleik á HM í sjöunda sinn og hefur engu liði tekist aö komast svo oft á þennan leik. Hjá veðbönkum eru líkumar taldar 5-2 á að Brasilíumenn hampi titlin- um en þær voru 11-2 áður en mótið byrjaöi. Likur Þjóðveija eru nú 7-4 en voru 16-1 fyrir HM. í fyrri vióureignum Brasilíu og Þýskalands hafa Brassarnir haft heppnina með sér. Þjóðverjar hafa aðeins unnið þá þrisvar í 17 lands- leikjum síðan áriö 1963. Rudi Völler hefur látiö hafa eftir sér að enginn geti komið í staöinn fyrir Michael Bailack, en hann mun sem kunnugt er missa af úrslitaleiknum vegna leikbanns. Ballack hefur skor- aði þrjú mörk og lagt upp fjögur þannig að hans verður áreiðanlega sárt saknað. Gengi Þjóðverja í keppninni hefur jafnvel komið þeim sjáifum á óvart. Það kemur hvergi betur í ljós en í miöapöntunum á úrslitaleikinn en þýska knattspymusambandið pant- aði aðeins 1.000 niða á leikinn í stað þess að panta tæplega 6.000 eins og allar þátttökuþjóðimar áttu kost á. Þýsk dagblöð hrósuðu frammistöðu Þjóðverja gegn Suður-Kóreu í há- stert og sögðu aö þetta hefði verið vinnusigur sem undirstrikaði þá mannkosti sem Þjóðverjar byggju yf- ir. Fjölmiðlar í Suður-Kóreu reyndu að hughreysta lesendur sína í gær og segir að þó að draumurinn sé búinn núna hafi frammistaöan fyllt Kóreu- búa sjálfstrausti. Kóreumenn hafi einfaldlega brostið úthald. Engu aö siður geti þeir verið stoltir af frammistöðu liðsins. Knattspyrnusamband Asiu hefur ítrekað kröfu sína um aö Asía fái fimm sæti í næstu lokakeppni HM. Nú styður sambandiö kröfuna með frábærum árangri Suður-Kóreu í keppninni. Fjórar Asíuþjóðir vom í keppninni núna auk gestgjafanna frá Japan og Suður-Kóreu en það vom Kína og Sádi-Arabía. Þá hefði íran einnig getað komist í keppnina en þeir töpuöu fyrir írum í umspili. Antonio Oliviera, landsliðsþjálfari Portúgala, var vikið úr starfi í fyrra- kvöld eftir slakt gengi portúgalska liðsins á HM. Oliviera mun þó halda launum næstu tvö árin þannig aö hann á enn eftir að fá um 40 milljón- ir króna í vasann frá portúgalska sambandinu. Alain Giresse, fyrmm landsliðs- maður Frakka í knattspymu, hefur lýst yfir áhuga á að taka við starfi landsliösþjálfara Frakka. Giresse þjálfar nú FAR Rabat í Marokkó en hefur einnig þjálfað liðin Toulouse og Parmain í Frakklandi. Franska knattspyrnusambandið mun til- kynna það 5. júlí hver framtíð núver- andi landsliðsþjálfara, Roger Lem- erre, verður en Michel Platini hef- ur þegar upplýst að Lemerre verði rekinn og að hann hafi þegar rætt við arflaka hans. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.