Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002
Fréttir
~nv
DV skoðar nýju kjördæmin - Norðausturkjördæmi
Framsókn ógnar
vinstri-grænum
Úrslit þingkosninga 1999:
Atkv. alls B D F S U
Noröurland eystra 15.802 29,2% 29,9% 1,9% 16,8% 22, OS
Austurland 7.216 38,4% 26,3% 2,9% 21,2% ii, o;
Noröausturkjördæmi 22.613 31,6% 29,0% 2,2% 18,3% 18,6?
Landið allt 165.726 18,4% 40,7% 4,2% 26,8% 9,1?
Þegar lögö eru saman Noröur-
landskjördæmi eystra og Austur-
landskjördæmi, landamærum þeirra
svo hnikað rangsælis beggja vegna,
út fyrir Siglufjarðarkaupstaö í
norðri og inn fyrir Sveitarfélagið
Hornafjörð í suðri, verður niðurstað-
an hið nýja Norðausturkjördæmi.
t ýmsu tilliti er þetta „miðlungs-
kjördæmi", t.d. hvað varðar fjölda
kjósenda og atkvæðavægi. Það er
hins vegar sérstakt m.a. aö því leyti
að það hefur á að skipa óvenjumörg-
um þungavigtarmönnum í stjórn-
málum; í hópi tólf sitjandi þing-
manna svæðisins eru forseti Alþing-
is, þrír ráðherrar og formaður
stjórnmálaflokks.
Mesti þungavigtarmaður eldri
kjördæmanna tveggja, Halldór Ás-
grímsson, hverfur hins vegar nær
örugglega á braut; hann tilheyrir
sem Hornfirðingur nýju Suðurkjör-
dæmi og býður sig að öllum likind-
um fram í Reykjavík.
Gangi það eftir verður framsókn
að þessu leyti vængbrotin, en engu
að siður gæti flokkurinn hirt þing-
sæti af Vinstrihreyfingunni - grænu
framboði, sem þó er hvergi öflugri
en einmitt í þessu kjördæmi.
Kjördæmi öfganna
Allar niðurstöður í þessari grein-
ingu eru fengnar með því að leggja
úrslit síðustu þingkosninga yflr nýja
kjördæmaskipan. Gert er ráð fyrir
að fylgið í þeim sveitarfélögum sem
færast á milli kjördæma dreifist á
flokkana í sömu hlutfóllum og í
„gamla“ kjördæmi þeirra í heild.
í Norðausturkjördæmi er uppi sú
sérkennilega staða, að þar er fylgi
stóru stjórnmáiaflokkanna fjögurra
annaðhvort hið mesta eða hið
minnsta sem þeir njóta í nýju kjör-
dæmunum sex. Þetta er þannig lang-
veikasta kjördæmi Samfylkingarinn-
ar, veikasta kjördæmi Sjálfstæðis-
flokksins, langsterkasta kjördæmi
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs og sterkasta kjördæmi
Framsóknarflokksins. Þrátt fyrir
hlutfailslegan styrk sinn á svæðinu
eiga vinstri-grænir á hættu að missa
þingmann en framsókn á góðan
möguleika á að bæta við sig manni.
Sami fjöldi - samt ekki
í umfjöllun DV um „niðurskurð-
inn mikla“ í Norðvesturkjördæmi
töldust þingsæti Siglfirðinganna
tveggja í hópnum hafa tapast þar.
Þetta eru þingsæti þeirra Kristjáns
L. MöUers (S) og Sigríðar Ingvars-
Núverandi þingmenn:
Norðurlandskjördæmi eystra
1. Halldór Blöndal D
2. Valgerður Sverrisdóttir B
3. Steingrímur J. Sigfússon U
4. Svanfríöur Jónasdóttir S
5. Tómas Ingi Olrich D
6. Ámi Steinar Jóhannsson U
Austurlandskjördæmi
1. HalldórÁsgrimsson* B
2. Arnbjörg Sveinsdóttir D
3. Jón Kristjánsson B
4. Einar Már Siguröarson S
5. Þuríöur Backman U
* Helmabær Halldórs Ásgrlmssonar,
Hdfn I Homaflrði, veröur hluti af Suður-
kjördæmi í nýrri sklpan.
Reiri sitjandi þingmenn en hér eru
nefndir eru um hituna, nefnilega þau
Sigríöur Ingvarsdóttir (D) og Kristján L.
Möller (S) frá Siglufirði. Kjösendahópurinn
þarjafngildirekki þingsæti og því teljast
þingsæti þeirra tveggja ekki til núverandi
þingsæta svæöisíns sem myndar nýja
Noröausturkjördæmið.
dóttur (D). Það blasir við að þingsæt-
in tvö geta ekki tapast aftur í Norð-
austurkjördæmi. Niðurstaðan er
þess vegna sú að þingmannafjöldi
Norðausturkjördæmis sé óbreyttur
fyrir og eftir kjördæmabreytingu;
fc)iW
%
/\l,
m - ■ m.
Norðausturkjördæmi
svæðiö hafði tíu þingmenn og fær tíu
þingmenn.
DV telur hafið yfir vafa að rétt sé
að túlka kjördæma-
breytinguna með
þessum hætti, enda
gengur ekki upp að
horfa eingöngu á lög-
heimili sitjandi þing-
manna heldur verður
að taka mið af því
hvort svæði sem flytj-
ast á milli kjördæma
(t.d. Siglufjörður) séu
það fjölmenn að flutn-
ingurinn réttlæti
breytingu á þing-
mannatölu. Til ein-
földunar mætti hugsa
sér að allir fimm
þingmenn Norður-
landskjördæmis
vestra væru búsettir
á Siglufirði og nú
stæði til að færa
Siglufjörð yfir í Norð-
urlandskjördæmi
eystra. Væri þá eðli-
legt að vesturkjör-
dæminu væri ekki út-
hlutað einum einasta
þingmanni og austurkjördæminu
sex eins og áður? Nei, slík niður-
staða yrði vitanlega túlkuð á þann
veg, að kjördæmið hefði tapað funm
þingsætiun, en þingmannatala aust-
urkjördæmisins teldist óbreytt jafn-
vel þótt nú þyrftu ellefu sitjandi
þingmenn að berjast um þingsætin
sex.
Þótt þingmannatala svæðisins
sem myndar Norðausturkjördæmi
teljist með þessum rökum vera
óbreytt við kjördæmabreytinguna
verður jafnframt að horfa tÚ þess að
tólf sitjandi þingmenn berjast um tíu
sæti. Af sjálfu leiðir að tveir detta
nær örugglega út af þingi vegna kjör-
dæmabreytingarinnar. Af úrslitum
síðustu þingkosninga að dæma er sá
þriðji í mikilli hættu vegna þess að
valdahlutföll flokkanna riðlast.
Pláss hjá Framsókn
Þegar staða Framsóknarflokksins
er metin skiptir vitanlega höfuðmáli
hvað verður um sjáifan formanninn.
Formlega tilheyrir Halldór Ásgríms-
son nú Suðurkjördæmi sem Horn-
firðingur.
Hálldór hefur hins vegar ávallt lit-
ið á sig sem þingmann Austfirðinga
og á sterkar rætur að rekja þangað.
Það mun lengi vel hafa komið sterk-
lega til greina hjá honum að bjóða
sig fram í nýju Noröausturkjör-
dæmi. Nú virðast hins vegar öll vötn
falla til Dýrafjarðar og því er hér
gert ráð fyrir að Halldór bjóði sig
fram í Reykjavik. Þar fékk flokkur-
inn ekki nema rúm 10% atkvæða síð-
ast og með því að hífa fylgið upp
gæti formaðurinn tryggt flokknum
a.m.k. einn af þremur þingmönnum
sem bætast við í Reykjavík í nýrri
kjördæmaskipan, ef ekki tvo. Auk
þess eru fyrir í Norðausturkjördæmi
tveir ráðherrar flokksins, þau Val-
gerður Sverrisdóttir og Jón Krist-
jánsson.
I síðustu kosningum urðu þau tíð-
Allt í járnum
Reginmunur var á fylgi Framsóknarflokksins í kjördœmunum tveim-
ur og sömuleiðis voru þau eins og svarí og hvítt hvað varðar Vinstri-
hreyfinguna grœnt framboð. Þegar atkvæðatölur eru lagðar saman (og
tillit tekið til breytinga á kjördœmamörkum) kemur í Ijós að feikna-
sterk staða framsóknar á Austurlandi hefði dugað flokknum til að hafa
Sjálfstœðisflokkinn undir í keppninni um fyrsta þingmann Norðaustur-
kjördœmis. Á sama hátt dugar feiknasterk staða vinstri-grœnna á
Norðausturlandi til að fleyta flokknum upp fyrir Samfylkinguna í sam-
einuðu kjördœmi en þó má vart á milli sjá.
Vert er að hafa í huga að Samfylkingin nýtur líklega góös af„nýj-
um“ atkvœðum Siglfirðinga, þar sem Samfylkingin vann hreinan
meirihluta í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Á sama hátt tapar
framsókn líklega á því að atkvœði Hornfirðinga, sveitunga Halldórs Ás-
grímssonar, falla nú í Suóurkjördœmi. Þessi munur gœti hœglega
skekkt þá mynd sem hér er dregin upp - eða öllu heldur gert þaó að
verkum að hér sé dregin upp skökk mynd.
á fylgi flokksins á Austurlandi. Til
að vega upp á móti því horfa
framsóknarmenn einkum til þess að
„álmálið" komist hugsanlega í höfn
á allra næstu dögum og jafnvel að
endanlegar ákvarðanir liggi fyrir um
langþráö jarögöng. Það kæmi flokkn-
um ótvírætt til góða.
Fremur kyrrlátt á austurvígstöðvunum:
Svæðlö sem veröur
Noröausturkjördæm! hefur núna
og þlngmenn í nýju Norö-
austurkjördæml veröa
Þingmenn:
2 frá Framsóknarflokki*
3 frá Sjálfstæöisflokki
2 frá Samfylkingunni
3 frá Vinstrihr. - grænu framb.
0 frá Frjálslynda flokknum
sem skiptast þannig, miöaö viö
úrslit síöustu þingkosninga:
3 frá Framsóknarflokki
3 frá Sjálfstæöisflokki
2 frá Samfýlkingunni
2 frá Vinstrihr. - grænu framb.
0 frá Frjálslynda flokknum
* Halldór Ásgrímsson telst ekki meö hér þar sem heimabær hans, Höfn, sem nú er í
Austurlandskjördæmi, veröur hluti af Suöurkjördæmi og er nógu fjölmennur til aö teljast
„eiga“ þingsætiö og flytja þaö meö sér.
Þingsæti Sigríöar Ingvarsdóttur (D) og Kristjáns L. Möllers (S) frá Siglufiröi teljast hér ekki
hafa „flust“ yfir í nýja kjördæmiö heldur „tapast" í gamla Noröurlandskjördæminu vestra
vegna fámennis Siglufjaröar. Þingmannatala svæöisins telst þvf óbreytt (10) þótt sitjandi
þingmenn meö lögheimili á svæöinu séu 12.
Olafur Teitur
Guðnason
blaöamaöur
Fréttaljós
indi í Norðurlandskjördæmi eystra
að framsókn tapaði fyrsta þingsæti
kjördæmisins yfir til Sjálfstæðis-
flokksins - að vísu með sjónarmun.
Flokkurinn fékk aðeins einn af sex
þingmönnum kjördæmisins og mátti
svo sannarlega muna sinn fífíl feg-
urri.
Samanlagt hefði flokkurinn hins
vegar fengið 31,6% fylgi í nýju Norð-
austurkjördæmi - og viti menn:
framsókn hefði þá skákað Sjálfstæð-
isflokknum og fengið fyrsta þing-
mann kjördæmisins.
En hve líklegt er að fylgið haldist
óbreytt? Brotthvarf
HaUdórs kem-
ur nær ör-
ugglega
niður
En hvort sem það telst nú raun-
hæft markmið eða ekki hjá framsókn
að halda óbreyttu fylgi myndi það
tryggja flokknum þrjá þingmenn
kjörna í kjördæminu. Gangi það eft-
ir skilur Halldór Ásgrímsson eftir
sig laust þingsæti.
í þvi sambandi eru m.a. nefndir til
sögunnar þeir Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, stjórnarformaður Lands-
virkjunar og fyrrverandi þingmaðm-,
og Jakob Bjömsson, fyrrverandi
bæjarstjóri á Akureyri, sem lagði til
atlögu við Valgerði Sverrisdóttur í
prófkjöri fyrir síöustu kosningar.
Einnig er horft til fyrstu varaþing-
manna flokksins í gömlu kjördæm-
imum, þeirra Daníels Ámasonar á
Akureyri og Jónasar Hallgrimssonar
á Seyðisfírði. Sá fyrrnefndi er vonar-
stjarna af yngri kynslóðinni; sá síð-
amefndi hefur oft sest á þing í fjar-
veru formannsins en þótt halda sig
heldur til hlés.
Fleiri en einum við-
mæl-
enda blaðsins þótti hins vegar líkleg-
ast að þriðja sæti á lista flokksins
kæmi í hlut nýkjörins formanns
Sambands ungra framsóknarmanna,
Eskfirðingsins Dagnýjar Jónsdóttur.
Nær ailir gera ráð fyrir að Val-
gerður Sverrisdóttir skipi fyrsta sæti
og Jón Kristjánsson annað, jafnvel
þótt staða Framsóknar á Norður-
landi eystra hafi veikst hin síðari ár
undir forystu Valgerðar og hún sé
umdeildari en Jón. Hógværðin hefur
skilað Jóni langt og talið er ólíklegt
að hann efni til átaka um efsta sæt-
ið.
Átök innan Samfylkingar
Samfylkingin hefði fengið tvo
þingmenn kjörna í Norðausturkjör-
dæmi í síðustu kosningum, þar af
einn jöfnunarþingmann, með ríflega
18% fylgi, sem er langminnsta fylgi
flokksins í nýju kjördæmunum sex.
Það er næstum sjö prósentustigum
minna (!) en í Norðvesturkjördæmi,
þar sem það er næstminnst.
Það bendir því allt til þess að þrír
sitjandi þingmenn svæðisins bítist
um tvö þingsæti. Af viðtölum við
fjölda samfylkingarfólks að dæma
standa öll spjót á Dalvíkingnum
Svanfríði Jónasdóttur.
Frá sjónarhóli áhorfanda i Reykja-
vík hefur Svanfríður verið í hópi öfl-
ugri þingmanna Samfylkingarinnar;
hún hefur m.a. leitt sjávarútvegsum-
ræðu flokksins og stýrir nú Evrópu-
kynningunni sem lýkur með at-
kvæðagreiðslu meðal flokksmanna í
haust um það, hvort aðildarumsókn
að ESB verður sett á stefnuskrána.
En hvorugt hlutverkið hefur verið
vel tfl vinsælda fallið. Og þegar rætt
er við þá sem standa kjördæminu
nær er það mat flestra aö bakland
Svanfríðar sé heldur veikt. Rifjað er
upp hvemig Sigbjörn Gunnarsson
hrökklaðist úr efsta sæti lista Sam-
fylkingarinnar fyrir síðustu kosning-
ar eftir sigur í opnu prófkjöri, þegar
á hann voru bomar sakir um fjár-
málaóreiðu. Svanfríður, sem hafnaði
í þriðja sæti í „hólfaskiptu" prófkjör-
inu, hreppti fyrsta sæti við brott-
hvarf Sigbjöms. Almennt er talið að
málið hafi skaðað hana.
Einn innanbúðarmaður í Samfylk-
ingunni (tekið skal fram að það var
hvorugur hinna þingmannanna) var
ekkert að skafa utan af því og sagði:
„Ég hef engan hitt sem telur að
Svanfríður eigi nokkurn einasta
möguleika." Annar tók í sama streng
og taldi líklegast að Kristján L. MöU-
er, „sá